Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 93
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
93
-L
rrr
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
itf Uifílti Méíi K tí
Þessir hringdu . . .
Er ísland kennt
við gnði?
K.f.D. hringdi:
í Morgunblaðinu sunnudaginn
7.desember er _að fínna þessa fyr-
irsögn, „Er ísland kennt við
guði en ekki hafís?“ Undifyrir-
sögnin var: „Agnar Þórðarson
rithöfundur setur fram nýstár-
legar kenningar um nafngiftir
Islands og Grænlands.“
Ég satt að segja hrökk við er
ég las þessa fyrirsögn. Þessari
spumingu hefur Einar Pálsson
svarað og fært mjög glögg rök
fyrir að nafn íslands sé einmitt
kennt við „guði“, nafnið sé komið
frá gyðjunni ísis. Ég vil eindregið
benda aðstandendum þessarar
greinar á að lesa betur bókina
„ARFUR KELTA", sem útkom
1981 og er 6. bindi í ritsafninu
„RÆTUR ÍSLENSKRAR MENN-
INGAR". Einkum bendi ég á
fímmta kafla, bls. 34, er ber nafn-
ið ísis og íra. Ég efast stórlega
um að aðrir hafí grafíð dýpra til
róta íslenskrar menningar en Ein-
ar Pálsson og erfítt muni hveijum
sem um þessi fræði fjalla að nefna
ekki nafn h?ns þó aðrir kunni
fróðir að vera.
„Halló
halló, Moskva
kallar
12 + 8 hringdi og bað fyrir
eftirfarandi vísu:
Halló halló, Moskva kallar.
Sælar verið þið allar
ég hrópa héma fréttablað
því nóg er af að segja.
Samt kýs ég helst að þegja
því andinn í mér ekki er
sem vildi ég feginn birta þér
því eitthvað í mig vantar.
K.f.D. segir Einar Pálsson hafa
sett fram hugmyndir um að
nafnið ísland sé kennt við
„guði“, fyrir fimm árum síðan
í bók sinni „ARFUR KELTA“.
Ef geng ég út í hina glæstu borg
þá við mér blasir hið Rauða torg
með höllum er á súlum standa
og tumum er gnæfa við himinn hátt
og horfa niður á fólkið snautt og smátt
sem áfram götuna skrefar.
Hvert stefnir hinn mikli múgur manns?
Að grafarhýsi foringjans
sem leiddi það út í darradans,
þann dans er það ennþá stígur.
Breytið fyrir-
komulaginu
Gamall viðskiptavinur Happ-
drættis Háskóla Islands hringdi:
Ég vil taka undir orð lesanda
í DV þar sem vikið er að Happ-
drætti Háskóla íslands. Mér
sýnist auðsætt að forsvarsmenn
happdrættisins verði að breyta
vinningakerfí sínu nú þegar
„lottóið" er farið af stað. Sam-
keppnin kallar á nýja siði.
Það verður að hætta með allan
þennan fjölda af 5000 króna vinn-
ingum og mjókka bilið milli lægsta
og hæsta vinnings. Sá lægsti
gæti t.d. verið 15000 krónur en
sá hæsti hálf milljón. Vitaskuld
vil ég styðja gott málefni en vinn-
ingsvonin verður líka að vera
einhver. Að vísu segja þeir hjá
happdrættinu að fjórði hver miði
færi vinning en oft eru þetta
smáar upphæðir sem koma í hlut
hins heppna. Happdrættið skyldar
menn til að borga miða sína út
árið svo ef þeir vinna, segjum
5000 krónur, þá er raunverulegur
vinningur aðeins 2.600 krónur.
Mitt ráð er því að fækka vinning-
um og láta þá meira koma í hlut
hvers vinningshafa.
Rangt farið með
Grím
Kjartan Ragnars hringdi og
gerði athugasemd við það hvemig
farið var með hluta úr vísu Gríms
Thomsens, Goðmundi á Glæsivöll-
um, hér á síðu Velvakanda. Rétt
er vísubrotið svona: „í góðsemi
vegur þar hver annan.“
„Ég er ekki
fæddur í Grjóta-
bænum“
Haraldur Þórðarson hringdi
og vildi leiðrétta það sem sagði
áður hjá Velvakanda um fæðing-
arstað hans. En hann hafði verið
sagður fæddur í Grjótabænum en
hið rétta er að bæinn var búið að
rífa löngu áður en Haraldur fædd-
ist. Hins vegar fæddist faðir
Haraids, Þórður, í Grjótabænum.
Velvakandi biður Harald velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Hvernig er
vísan Ævar?
Gömul kona í Reykjavík
hringdi. Sagðist hún hafa hlustað
á þátt Ævars Kjartanssonar í út-
varpinu á sunnudaginn 7.desem-
ber. Þar var meðal annars farið
með vísu um þrengsli á sveita-
balli. Nú langar konuna til að fá
vísuna á prent og er Velvakandi
fús að birta hana.
Þakkir til Árna
Sigurðssonar
Ungur sjónvarpsáhorfandi
hringdi:
Ég vil þakka Áma Sigurðssyni
fyrir þátt hans í sjónvarpinu þann
5.des sl. Unglingamir í frumskóg-
inum hét hann og var glöggt
dæmi um að gera má góða þætti
fyrir unglinga.
„Kristur notaði ekki áfengi“
Svar til S.R. Haralds:
Jóhannes kom, og át hvorki né
drakk, og menn segja: Hann hefir
illan anda (Matt. 11:18). Haturs-
menn hans bám það á hann að
hann hefði illan anda, og vora það
lygar einar. Ekkert er athugavert
við það þó að maður eti ekki né
drekki um nokkum tíma.
Jesú sagði um Jóhannes skírara,
að enginn maður af konu fæddur
væri meiri en Jóhannes, og segir
það allt um heilagt líferni hans.
Mannssonurinn kom, át og
drakk, og menn segja: sjá átvagl
og vínsvelgur! Vinur tollheimtu-
manna og syndara (Matt. 11:19).
Ekkert er athugavert við það þó
að maður eti og drekki, því að eng-
inn lifir mjög lengi án þess, þó höfðu
bæði Móse og Kristur þá reynslu
að fasta í 40 daga og 40 nætur.
Kristur lifði eftir boðum Guðs og
því í algjörri andstæðu við fræði-
menn gyðinga, og því vora þeir
sífellt að bera á hann lygar. Það
ber að hafa í huga að það vora
þessir hatursmenn hans sem sögðu
hann átvagl og vínsvelg, og sátu
þeir ávallt um að ráða hann af dög-
um eftir þrítugsaldurinn, þá hann
tók að prédika þjóðinni fagnaðarer-
indið. Líf og starf Jesú var allt sagt
fyrir í Gamla Testamentinu, og
hvergi er neitt boð um það að hann
eigi að drekka áfengi.
Nú á seinni tímum, fyrir meir
en 100 áram, sýndi Drottinn þjóni
sínum, Ellen G. White, líf Jesú frá
bemsku til fullorðinsára. í bókinni
Kristur frelsari vor á bls. 26 stend-
ur „Sæi hann einhveija hungraða
eða þyrsta, gaf hann þeim ætfð
svaladrykk, og oft gaf hann þeim
þann mat sem honum var ætlaður."
Og þau 3'/2 ár sem hann prédik-
aði, var hann upptekinn við að boða
Guðs ríki, og lækna fólk af allskon-
ar sjúkdómum og plágum, og hafði
vart tíma til að neita matar eða
drykkjar, og fáar hafa hvíldar-
stundimar verið. í sömu bók
stendun „Þegar Jesú kom til Jó-
hannesar til að skírast af honum,
sá Jóhannes á ásjónu hans svo
glöggt merki hins heilaga lífemis,
að hann neitaði honum um skím
og sagði: Mér er þörf að skírast af
þér.“ Á þessu getum við séð, að
það sem gyðingar sögðu um lifnað-
arhætti Krists vora helber ósann-
indi. Ég hef aldrei séð heilagt lífemi
á ásjónu áfengisneytanda.
Það eru líka helber ósannindi
þegar áfengisneytendur nútímans
kyija slagorðið Kristur drakk
áfengt vín. Þessir menn hafa mest-
an áhuga á því að kenna fólki að
drekka áfengi, og fyrr en varir
verða margir áfengissjúklingar.
Engum geta þeir boðað Guðsríki
og enga læknað. En ljós heimsins
gat boðað sannleikann og læknað.
Sá er hinn mikli munur. Hann gerði
menn heila heilsu, en eiturlyfjaneyt-
endur gera menn að sjúklingum.
Ég hef oft lesið þessi vers sem
S.R. Haralds vitnar í og era þau
tengd vantrú gyðinga og spilltu lífí
þeirra, og aldrei hefí ég fundið neitt
í þeim sem höfðar til óreglu hjá
frelsaranum. Neðar í sama kafla
hjá Matteusi er Kristur að segja frá
þungum dómum yfír borgum ísra-
els, og að þær muni fá þyngri dóma
en Týras og Sídon, og Sódóma til
foma, og er þá langt til jafnað.
Ætti ekki Reykjavík að fara að
bæta ráð sitt, með heiðna presta-
stétt, áfengisþambara og svína-
kjötsætur og fjölda annarra synda?
Þetta á við um allar borgir heimsins
í dag.
Grein mín í Morgunblaðinu 18.
nóvember vitnar alveg á móti því
að Kristur hafi notað áfengi, þó að
braggendur og sölumenn áfengis,
og neytendur hafí gaman af því að
eitra fólk og drepa, þá ættu þeir
að bera aðra fræðara fyrir því en
Drottin.
Svo vona ég að allir hætti að
selja og drekka áfengi. „En ávöxtur
andans er: Kærleiki, gleði, friður,
langlyndi, gæska, góðvild, trú-
mennska, hógværð, bindindi." (Gal.
5.22-23.)
Kær kveðja,
Óðinn Pálsson,
Stóru-Völlum.
URVALS
► Fullur staðgreiðsluafslattur
► Afsláttur við helmings útborgun
► Engin utborgun. en
raðgreiðslur í 2-12 mánuði
► Þægilegur og odýr greiðslumáti
vörur
OPIÐ TIL
KL. 18 Á
SALERNI.
Við bjóðum þér vönduð
salerni af ýmsum gerðum.
Ásamt ýmsum áhöldum á
baðherbergið. Sérlega
hagstætt verð.
LAUGARDAG
BAÐMOTTUR.
Mikið úrval af baðmottum
og ýmsum gerðum af bað-
hengjum. Svo og öðrum
smáhiutum á baðherberg-
ið.
STÁLVASKAR.
Vandaðir stálvaskar í ýms-
um stærðum og gerðum.
GUFUBÖB,
Bjóðum nú gufu og sauna-
böð, er henta hvaða heimil^
sem er. Allt í einum pakka.
BLÖNDUNARTÆKI.
Ótrúlegt úrval af blöndun-
artækjum. Stilhrein/falleg.
STURTUKLEFAR.
Sturtuklefar er ganga hvar
sem er. Af öllum stærðum
og gerðum.
kl A LÍTIÐ VIÐ - VANDIÐ VALIÐ.
W
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK
SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966