Morgunblaðið - 13.12.1986, Qupperneq 96
•'C'-'
Jólasveinn á tölvuöld
Morgunblaðið/Þorkell
Jólasvemamir hafa smáni saman tekið tæknina í sína þjónustu. Ekki eru mörg ár síðan
þeir fóru að nota bíla og flugvélar á ferðalögum og ekki er annað að sjá en að þeir hafi nú
tekið tölvutæknina í sína þjónustu. Þessi jólasveinn heimsótti höfuðstöðvar IBM á íslandi í
gærdag og notaði tækifærið til að reyna tölvur fyrirtækisins. Þegar hann ýtti á takkann
birtist þessi forláta mynd af Charlie Chaplin.
Mistök hjá ASÍ og VSÍ:
Yiðbótarsamkomu-
lag um bónusmál
EFTIR undirritun kjarasamningana um síðustu helgi kom i ljós að
samkomulagið leiddi til beinnar launalækkunar hjá hluta þess fisk-
verkafólks sem vinnur eftir bónuskerfi. Samningsaðilar settust aftur
niður og undir kvöld á fimmtudag var gengið frá viðbótarsamkomu-
lagi sem ætlað er að leiðrétta þetta.
Karl Steinar Guðnason, varafor-
maður Verkamannasambands ís-
lands, staðfesti það í gærkvöldi að
þetta viðbótarsamkomulag hefði ver-
ið gert vegna þess að komið hefði í
Ijós að hætta hefði verið á að þeir
sem væru á 15 ára taxta í ákveðnum
bónuskerfum hefðu lækkað í launum.
Með samkomulaginu fær bónusfólkið
5% hækkun og að auki 3 krónur á
tímann upp í væntanlega launa-
hækkun vegna námskeiða. Einnig
er svokallað bónusþak hækkað úr
200 í 210.
Kjarasamningamir voru felldir í
verkakvennafélaginu Snót f Vest-
mannaeyjum en samþykktir hjá
Framsókn í Reykjavík.
Sjá blaðsíðu 52.
Sá þak fjárhússins
skrúfast í loft upp
Holti.
AFTAKAVEÐUR gerði undir
Eyjafjöllum um hádegið í gær
og stóð mesti ofsinn í um tvo
tíma. Svona veðri er erfitt að
Endumýjun flugflota Flug-
leiða kostar 9,8 milljarða
Forstjóri félagsins segfir að flugið þoli ekki auknar álögur
SIGURÐUR Helgason forstjóri Flugleiða lýsti andstöðu við tillögur
flugmálanefndar um hækkun flugvallarskatts og eldsneytisskatts til
að standa undir auknum framkvæmdum við flugvelli á næstu tíu
árum, á ráðstefnu sem samgönguráðuneytið efndi til um skýrslu
jiefndarinnar í gær. Það gerðu fleiri fundarmenn.
„Við erum alfarið á móti aukinni
skattheimtu á flugfélögin og flug-
farþega, teljum að flugið þoli það
ekki nú þegar fyrir liggur að end-
umýja þarf flugflotann," sagði
Sigurður í samtali við Morgunblað-
ið. Hann sagði að endumýjun
flugvélaflota Flugleiða myndi kosta
9,8 milljarða króna. Á ráðstefnunni
kom fram hjá Sigurði að þar af
muni endumýjun innanlandsvél-
anna kosta 1,4 milljarða, Evrópu-
vélanna 2,8 milljarða og
Ameríkuflugvélanna 5,6 milljarða,
en meðalaldur flugvélanna væri 18
ár.
Sigurður sagði að ekki væru
möguleikar á að velta hækkun
skattanna út í far- og farmgjöld
og yrðu stjómvöid því að leita ann-
arra leiða ef þau ætluðu að fara út
í allar þessar framkvæmdir. í tillög-
um nefndarinnar er lagt til að á
næstu tíu árum verði farið út í fram-
kvæmdir í fluginu sem kosta 2
milljarða. Sigurður sagði að niður-
röðun og tímasetning framkvæmda
í þessari áætlun væri óraunhæf.
Skynsamlegra væri að taka fyrir
færri verkefni og ljúka þeim. Þá
sagði hann að framlög til flugmála
hefðu verið skammarlega lág á
undanfömum árum.
lýsa, það lægir í milli en síðan
koma byljir með magnþrungnum
ofsa þannig að ekkert laust er
óhult. Ókeyrandi var i byljunum
í dag og víða fauk á bæjum.
Mesta tjónið sem vitað er um
varð í Hvammi, en þar fauk í
einu lagi þak af fjárhúsi. Þakið
var mörg tonn að þyngd og nið-
umjörvað með járnbindingurn í
steypta veggi.
Magnús bóndi Sigurjónsson í
Hvammi sagðist hafa af tilviljun séð
þak fjárhússins eins og skrúfast
langt upp í loft og berast síðan um
150 metra frá húsinu. Síðan hefði
brakið úr því fokið í burtu.
Fréttaritari
Mistök við dreif ingu bæklings um eyðni:
Tólf ára börn fengu
sendan bæklinginn
Stórútflutningur á
ærkjöti til Egypta-
lands til athugunar
STJÓRNVÖLD hafa nú til athugunar tilboð frá dönsku
kjötsölufyrirtæki um kaup á miklu magni af kindakjöti,
mest ærkjöti. Ef af viðskiptum verður fer kjötið á markað
í Egyptalandi.
Miklar birgðir eru af nauta- og
ærkjöti í landinu. Ærkjötið féll
að stórum hluta til vegna niður-
skurðar á kindum vegna samn-
ir.ga bænda við Framleiðnisjóð
landbúnaðarins en sjóðurinn tók
ábyrgð á sölu þess kjöts sem til
féll vegna niðurskurðarins, og er
talið að það verði um 700 tonn.
Markaðsnefnd landbúnaðarins fór
á stúfana og leitaði tilboða í kjöt-
ið. Kom tilboð frá þessu danska
fyrirtæki um kaup á 1.200—1.300
torinum af nautakjöti og 700 tonn-
um af ærkjöti. Ekki varð úr að
því tilboði væri tekið vegna þess
að það verð sem í boði var fyrir
nautakjötið þótti ekki forsvaran-
legt.
Nýlega kom nýtt tilboð frá
danska fyrirtækinu um kaup á
1.300 tonnum af kindakjöti, þar
af 1.000 tonnum af ærkjöti og
300 tonnum af dilkakjöti. Býður
fyrirtækið 700 dollara fyrir hvert
tonn af ærkjöti komið í höfn í
Alexandríu en heldur hærra verð
fyrir dilkakjötið. Ljóst þykir að
skilaverð fyrir ærkjötið verði um
20 krónur íslenskar sem er rúm-
lega 10% af óniðurgreiddu heild-
söluverði hér innanlands en
talsvert lægra fyrir dilkakjötið.
VEGNA mistaka Skýrsluvéla
ríkisins var börnum og unglingum
á aldrinum 12-14 ára sendur upp-
lýsingabæklingur um eyðni, sem
Landlæknisembættið hefur gefið
út. Senda átti bæklinginn öllu
ungu fólki á aldrinum 15-24 ára.
Nokkrir foreldrar höfðu samband
við Landlæknisembættið í gær og
lýstu furðu sinni yfir því að 12 ára
bömum þeirra hefði verið sendur
upplýsingabæklingur um eyðni. Kom
þá í ljós að þama var um að ræða
mistök SKÝRR sem annaðist tölvu-
útkeyrslu á nöfnum og prentun á
límmiðum.
Að sögn Landlæknisembættisins
verður prentað viðbótarupplag af
bæklingum og þeim sent sem upp-
haflega áttu að fá pésann í hendur.
Sjá frétt um bæklinginn á bls.
50.
Morgunblaðið/Ól.K.Mag.
Slæmt veður um land allt
KRÖPP lægð gekk yfir landið í gær með úrhellisrigningu og fór
veðurhæðin upp í 8—12 vindstig. Víða um land átti fólk í erfiðleikum
með að komast leiðar sinnar, til dæmis lágu flugsamgöngur að
mestu niðri og skólum var sums staðar lokað. Myndin var tekin við
Ægisgarð um miðjan dag í gær.