Morgunblaðið - 28.08.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987
Vinna við Blönduvirkjun samkvæmt áætlun:
Nánast lokið við að
grafa jarðgöngin
VINNA við Blönduvirkjun hefur gengið eftir áætlun í sumar að
sögn Jóhanns Más Maríussonar aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar.
Nánast er lokið við að grafa jarðgöngin, aðeins eftir höft við Blöndu
og neðst i stöðvarhúsinu sem verða ekki opnuð fyrr en ailt annað
er tilbúið. Hafin er vinna við að steypa upp stöðvarhús virkjunarinn-
ar og verið er að ganga frá stálfóðringum í þrýstigöng að stöðvar-
húsinu.
í vetur er fyrirhugað að vinna
við steypu í jarðgöngunum og búist
er við að jarðgangnaverktakinn,
Krafttak, ljúki sínu verkefni á árinu
1989. Á næsta ári er fyrirhugað
að byija undirbúning stíflugerðar-
inhar. Virkjunin á að vera tilbúin
árið 1991.
Hugað hefur verið að öðrum
virkjunum á hálendinu í sumar.
Jóhann sagði að lónstæðið við Sig-
öldu hefði meðal annars verið
skoðað, en tækifærið var notað
þegar jámblendiverksmiðjan á
Grundartanga var stöðvuð í júlí og
álagið því lítið. Jóhann sagði að í
ljós hefði komið að mannvirkin
standa sig mjög vel og ekki sjáan-
legt að nein hætta væri þar á
ferðum.
Kröfluvirkjun var stöðvuð í sum-
ar að vanda og var tíminn notaður
til viðhalds auk þess sem ein gufu-
holan var boruð upp. Einnig var
settur upp vamargarður á hæðinni
ofan við stöðvarhúsið en ekki er
fyrirhugað að gera meira af slíku
í bili þar sem ekki hefur borið á
landrisi þar í nokkra mánuði.
Morgunblaðið/KGA
|K*fF 'Ml | v, ''A b,:* ®:j: ij f f 1
ækI 1 i 1 • m 1
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Vefiurstofa islands
(Byggt á vefiurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 28.08.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Lægðardrag fyrir vestan- og suövestan
land.
SPÁ: f dag verður vestan- og suðvestanátt um land allt, víðast
gola eða kaldi. Skúrir víða vestanlands en þurrt og bjart um landið
austanvert. Hiti á bilinu 10 til 17 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR OG SUNNUDAGUR: Hæg suðvestlæg eða vest-
læg átt. Skúrir um vestanvert landið en víða bjart veður austantil.
Hiti veröur 7—13 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
v' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
' * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , 1 Suld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
V 1 %
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veöur
Akureyri 16 úrkoma
Reykjavfk 11 skúr
Bergen 12 súld
Helslnki 20 léttskýjað
Jan Mayen 7 þoka
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 7 rignlng
Nuuk S rigning
Osló Stokkhólmur 14 skýjað vantar
Þórshöfn 12 rigning
Algarve 24 skýjað
Amsterdam 16 skúr
Aþena 28 heiðskfrt
Barcelona 26 alskýjað
Beriin 18 rígnlng
Chlcago 17 súld
Feneyjar 24 skýjað
Frankfurt 18 skýjað
Glasgow 17 láttskýjað
Hamborg 18 skýjað
Las Palmas 28 lóttskýjað
London 14 skýjað
LosAngeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Madrfd 29 skýjað
Malaga 27 skýjað
Mallorca 33 skýjað
Montreal 10 skýjað
NewYork 16 rigning
Parfs 16 skýjað
Róm 27 skýjað
Vfn 25 skýjað
Washlngton 23 þoka
Wlnnlpeg 9 reykur
Veröldin ’87opnuðígær
SÝNINGIN Veröldin ’87 var opnuð í Laugardalshöll í gær. Sýning-
in mun standa til 6. september og er opin daglega frá klukkan 16
til 23 og frá klukkan 13 til 23 um helgar. Myndin var tekin er
Hólmfríður Karlsdóttir klippir á borða og opnar íbúð á sýningunni,
en í henni em hlutir sem hún valdi. Fyrir aftan standa Guðmund-
ur Jónsson framkvæmdastjóri Kaupstefnunnar og Þorsteinn
Sigurðsson stjómarformaður.
Tillaga fjármálaráðherra:
Áburðarverksmiðj-
an í Gufunesi verði
seld einkaaðilum
14 fyrirtæki til viðbótar á sölulista
Fjármálaráðherra lagði á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag
fram lista yfir 15 fyrirtæki, sem rikið á að öllu eða hluta, sem hann
vill koma í sölu sem fyrst. Meðal þeirra fyrirtækja sem eru á listan-
um er Áburðarverksmiðjan í Gufunesi, hlutar af starfsemi Pósts og
síma og Ferðaskrifstofa ríkisins.
„Ég hef lagt fyrir ríkisstjómina
all ítarlega skýrslu um undirbúning
fjárlagagerðar og stöðu ríkisfjár-
mála. Ennfremur hef ég sett fram
skrá yfír pólitískar ákvarðanir sem
taka þarf áður en vinnu verður lok-
ið við fjárlagagerð og lánsfjárlög.
Þessi listi yfir ríkisfyrirtæki er part-
ur af því,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, fjármálaráðherra, í
samtali við Morgunblaðið.„Þetta er
í raun ekkert nýmæli. Fyrrverandi
ríkisstjóm reyndi fyrir sér með sölu
ríkisfyrirtækja og varð eilítið
ágengt. í stefnuyfírlýsingu og
starfsáætlun núverandi ríkisstjórn-
ar er þetta síðan sett fram sem
stefnumið, þetta er því ekkert sem
ætti að koma á óvart. Spumingin
er bara hvenær og hvemig þetta
komi til framkvæmda. Bæði er um
að ræða ríkisfyrirtæki og hlut ríkis-
ins í ýmsum fyrirtækjum. Það er
ágætt greinarkom um þetta í tíma-
riti sem ég sé stundum sem heitir
Stefnir," sagði Jón Baldvin að lok-
um.
Þau fyrirtæki sem fjármálaráð-
herra vill selja eru: Áburðarverk-
smiðjan í Gufunesi, Búnaðarbanki
íslands, Ferðaskrifstofa ríkisins,
Lyfjaverslun ríkisins, hluti starf-
semi Pósts og síma, Ríkisprent-
smiðjan Gutenberg, Sfldarverk-
smiðjur ríkisins og Laxeldisstöðin í
Kollafirði. Einnig er lagt til að hlut-
ur ríkisins í ýmsum fyrirtækjum
verði seldur. Hér er um að ræða
hlutabréf ríkissjóðs í Steinullar-
verksmiðjunni, Þróunarfélaginu,
Hólalaxi, Jarðborunum, Sjóefna-
vinnslunni á Reykjanesi og Þormóði
ramma.
Nýir yfirmenn
á Þjóðviljanum
ÞJÓÐVILJINN hefur ráðið Hall Pál Jónsson sem framkvæmdastjóra
blaðsins frá 1. október nk. Guðrún Guðmundsdóttur hefur verið
framkvæmdastjóri Þjóðviljans um fimm ára skeið og hyggst hún
snúa sér að kennslu.
Hallur hefur BA-próf í sálar-
fræði, heimspeki og íslensku. Hann
hefur setið i bæjarstjóm fyrir Al-
þýðubandalagið á Isafirði um skeið,
en undanfarið hefur hann starfað
við fasteignadeild Kaupþings.
Þá hefur útgáfustjóm Þjóðviljans
í hyggju að ráða þá Óttar Proppé
framkvæmdastjóra _ Alþýðubanda-
lagsins og Mörð Ámason blaða-
mann sem ritstjómarfulltrúa
blaðsins, að því er fram kom í frétt
í blaðinu í fyrradag.