Morgunblaðið - 24.09.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
43
atwinnn p/ \ /innn — ntx/inna - — ntwinna — ' ntwinnn o f wint
cuvumo —— C4 ( v ## #1 #Ö Cf f VIIIIICÍ “ cííviiiiid divii n id dl VIIII ld
Mosfellsbær
Garðabær
Atvinna óskast
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið í Hiíðatúns-
hverfi.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 666935
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík, sími 83033.
Siglufjörður
Blaðberar óskast á Hólaveg og Suðurgötu.
Upplýsingar í síma 96-71489.
Tölvunarfræðingur
- kerfisfræðingur
Tölvudeild Kaupfélags Eyfirðinga óskar að
ráða tölvunar- eða kerfisfræðing.
í notkun hjá Kaupfélagi Eyfirðinga eru tölvur
frá IBM, Digital og Hewlett Packard og eru
um 60 útstöðvar tengdar við þær. í byrjun
næsta árs verður tekin í notkun tölva af
gerðinni HP 3000/930 í stað hinna þriggja
og mun þá fjöldi útstöðva þrefaldast á
skömmum tíma.
í tölvudeildinni starfa nú 3 kerfisfræðingar
við hönnun og viðhald forrita.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Hallsson í
síma 96-21400.
Seltjarnarnesbær
— tölvuvinnsla
Starfskraftur óskast sem fyrst í 62% starf
til að annast innfærslu og gagnavinnslu á
WANG-tölvu á skrifstofu bæjarsjóðs.
Upplýsingar gefur aðalbókari í síma 612100.
Trésmiðir
— trésmiðaflokkar
Smiðir óskast til starfa. Mikil vinna. Ferðir
og fæði á staðnum.
Upplýsingar veita Ólafur Pálsson í síma
53999 og Kristján Sverrissson í síma
92-14978.
HAGVIRKI HF
SfMI 53999
Bifreiðavarahlutir
— karl eða kona
Viljum ráða áhugasaman og duglegan af-
greiðslumann, karl eða konu, í bifreiðavara-
hlutaverslun okkar. Framtíðarstarf.
Reglusemi, stundvísi og samviskusemi áskilin.
Upplýsingar gefur Guðmundur Kr. Erlends-
son verslunarstjóri.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá síma-
verði og í versluninni.
Blaðbera vantar í Flatir, Kjarrmóa og Bæjargil.
Upplýsingar í síma 656146.
JMffrgAutlrliifrife
jmO ö Mrn .
Barónsstíg 2.
Starfsfólk vantar
Við auglýsum eftir fólki í almenn verksmiðju-
störf.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum milli
kl. 9-16.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf í verslun
okkar:
1. í matvörudeild.
2. í grænmetispökkun.
3. í mötuneyti.
4. Á lager.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri á skrif-
stofu Miklagarðs, sími 83811.
/VHKUG4RDUR
MARKAÐUR VID SUND
Hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, óskar
að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa nú þeg-
ar eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
95-5270.
Starfsmaður
óskast
karl eða kona, í blikkdeild. Hreinleg og þokka-
leg vinna. Matur á staðnum.
Upplýsingar hjá Garðari verkstjóra.
Garða-Héðinn,
Stórási 6, Garðabæ,
sími52000.
Ritari/einkaritari
Þekkt þjónustufyrirtæki í miðborg Reykjavík-
ur óskar eftir að ráða manneskju til að
ann^st ritara- og einkaritarastörf.
Starfið felst í almennum ritarastörfum að
hluta og að hluta er um einkaritarastörf fyrir
forstjóra að ræða.
Leitað er að starfsmanni sem hefur mjög
góða vélritunarkunnáttu, gott vald á íslensku
og ensku.
Verzlunarskólamenntun eða hliðstæð þekk-
ing er óhjákvaemileg. Reynsla er æskileg en
ekki skilyrði. Ákjósanlégur aldur 20-40 ára.
Stundvísi, reglusemi og dugnaðar er krafist.
Leitað er að ritara sem hefur til að bera ör-
ugga og aðlaðandi framkomu. Góð laun og
hlunnindi eru í boði fyrir hæfan starfsmann.
Um heilsdagsstarf er að ræða. Þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Þeir sem hafa áhuga leggi umsóknir inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir septemberlok
merktar: „Ritari — 2454“. Umsóknir þurfa
að vera ítarlegar.
Fullum trúnaði er heitið. Öllum verður svarað.
Liðlega þrítugur maður óskar eftir vellaunuðu
starfi. Margt kemur til greina. Er m.a. vanur
vélavinnu. Vinsamlegast hringið í síma 71923
eftir kl. 16.00 næstu daga.
SfcrrísAliölunin
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Ármúla 19 -108 Reykjavík • 0 689877
Bráðvantar fólk á skrá til ýmis konar verslun-
arstarfa, hálfan og allan daginn.
Upplýsingar eru ekki gefnar í síma.
Sjáumst!
Fóstrur/
aðstoðarfólk
Fóstrur og aðstoðarfólk óskast til starfa á
dagheimilið Efrihlíð við Stigahlíð nú þegar
eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir Fanný Jónsdóttir, deildar-
stjóri, í síma 27277.
Aðstoðarfólk í
prentsmiðju
Aðstoðarfólk óskast til starfa í prentsmiðju
í austurbænum. Vaktavinna.
Starf jafnt fyrir konu sem karl.
Góð heildarlaun í boði. Öllum svarað.
Umsóknir merktar: „Prentsmiðja — 5379“
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir helgi.
Atvinna óskast
Maður á fertugsaldri með próf frá Savminnu-
skólanum óskar eftir vellaunuðu og fjöl-
breyttu starfi. Reynsla í stjórnun,
sölumennsku og mannlegum samskiptum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„B.Þ. - 5382“.
Vörumóttaka
Okkur vantar starfsmenn í vöruskemmu okk-
ar við vörumóttöku. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf strax.
Upplýsingar á staðnum.
Vöruflutningamiðstöðin,
Borgartúni 21.
Kennarar
Kennara vantar við Héraðsskólann í Reykja-
nesi við ísafjarðardjúp. Aðalkennslugrein
íslenska. Mjög gott og ódýrt húsnæði. Frír
hiti. Mjög góð vinnuaðstaða og mikil vinna
fyrir áhugasaman kennara.
Einnig vantar starfsmann til aðstoðar eftir
að kennsludegi lýkur.
Upplýsingar veitir Skarphéðinn Ólafsson í
símum 94-4841, 94-4840, 98520140 og
91-78611.
Héraðsskólinn í Reykjanesi.
□ggaan
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKCJRVEGI 66 HAFNARFIRDI SÍMI 54 100
Óskum eftir starfskrafti til framtíðarstarfa í
verslunina. Vélritunarkunnátta æskileg.
Vinnutími kl. 13.00-18.00, nema föstudaga
til kl. 19.00.
Upplýsingar í versluninni, ekki í síma.