Morgunblaðið - 24.09.1987, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987
t
Eiginmaður minn, fafiir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR KOLBEINN EIRÍKSSON
prentari,
Bergstaðastrœtl 50a,
andaðist þriöjudaginn 22. sept.
Þórný Magúsdóttir,
Þórdís Guðmundsdóttir, Helgi Hákon Jónsson,
Runólfur Þ. E. Guðmundsson, Camilla Richardsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KATRÍN SIGU RÐARDÓTTIR,
Höfðagötu 2,
Hólmavík,
er lést á Borgarspítalanum 18. september, verður jarðsungin frá
Hólmavíkurkirkju laugardaginn 26. september kl. 14.00.
Magnús Þ. Jóhannsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ADOLF ANDERSEN,
Önundarhorni,
Austur-Eyjafjöllum,
er lést á heimili sínu sunnudaginn 20. september verður jarð-
sunginn frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 26. september
kl. 13.00.
Kristjana
Óli Einar Adolfsson,
Jón Már Adolfsson,
Svanlaug Adolfsdóttir,
Marinó Adolfsson,
Guðmundur Helgi Adolfsson,
Guðni Adolfsson,
Sigrún Adolfsdóttir,
Erna Adolfsdóttir,
Einarsdóttir,
Maja Jónsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir,
Ingvar Magnússon,
Jónína Sigurjónsdóttir,
Bára Kjartansdóttir,
Helgi Friðþjófsson,
Helgi Magnússon
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
ANNA HALLDÓRSDÓTTIR,
áður Hofsvallagötu 18,
Reykjavík,
sem andaðist 18. september i Skjólgarði, dvalarheimili aldraðra
á Höfn í Hornafirði, verður jarðsett frá Fossvogskapellunni 25.
september kl. 1 5.00.
Börn hinnar látnu.
t
ÞORVALDUR STEPHENSEN,
Hrafnistu,
Reykjavík,
verður jarðsunginn föstudaginn 25. september kl. 15.00 frá Foss-
vogskapellu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Davíð Sch. Thorsteinsson.
Systir okkar, t INGIGERÐUR A. AUÐUNSDÓTTIR
frá Dalseli,
verður jarðsungin frá Stóradalskirkju laugardaginn 26. september
kl. 15.00. Systkinin.
t
Hugheilar þakkir færum við þeim fjölmörgu nær og fjær sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR GUNNLAUGSSONAR
fv. bónda og hreppstjóra frá Ytra-Ósi,
Blöndubakka 18, Reykjavfk.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalheiður Þórarinsdóttir,
Sigríður Þóra Magnúsdóttir, Ríkharður Jónatansson,
Marta Gunnlaug Magnúsdóttir, Svavar Jónatansson,
Nanna Magnúsdóttir, Hrólfur Guðmundsson,
Þórarinn Magnússon, Sígríður Austmann Jóhannsd.,
barnaböm og barnabarnabörn.
Minning:
Kristín Þóra
Jóhannesdóttir
Kristín Þóra, eða Stína eins og
hún var alltaf kölluð, var fædd 28.
júní 1944. Foreldrar hennar voru
Ingibjörg Þórðardóttir frá
Hraunsmúla í Kolbeinsstaðahreppi
og Jóhannes Guðmundsson frá
Syðstugörðum, seinna bóndi á Jörfa
í sömu sveit. Jóhannes lést í mars
sl. Af föður sínum hafði Stína ekki
mikið að segja og saknaði hún þess
alla tíð að ég held, að vera ekki
viðurkennd af föður sínum. Það
hlaut að vera nánast óskiljanlegt
jafn trygglyndri manneskju og
Stína var, að nokkur gæti sýnt af-
kvæmi sínu fullkomið tómlæti.
Móðir Stínu giftist seinna ágætis
manni, Guðmanni Sigurðssyni frá
Sjólyst í Garði. Guðmann reyndist
Stínu sem besti faðir og var sam-
band þeirra ákaflega notalegt alla
tíð. Guðmann lést fyrir fjórum árum
langt um aldur fram. Ingibjörg og
Guðmann eignuðust tvo drengi
saman, en þeir eru Þórður, sem er
sjómaður og Kristjón, en hann er
trésmiður. Ingibjörg og Guðmann
byggðu sér hús í Garðinum á stað
sem þá var alla fjarri aðalbyggð.
Nefndu þau bæ sinn Lund. í Lundi
hefur fjölskyldan átt heima síðan.
Nú er komin mikil byggð umhverf-
is Lund, enda hefur Lundarnafnið
orðið að víkja fyrir skipulaginu og
nefnist nú Melbraut 12.
Stína og móðir hennar voru sam-
an alla tíð og voru mjög samrýndar.
Umhyggja Stínu fyrir móður sinni
var afdráttarlaus og án undantekn-
inga. Missir Ingibjargar er því
mikill. Stína var fædd á heimili for-
eldra minna á Brúarhrauni í
Kolbeinsstaðahreppi. Fæðing litlu
stúlkunnar var mikil gleðistund í
lífi móður hennar. Og ekki var
ánægjan lítil hjá foreldrum mínum
og bamaskaranum þeirra að lítil
frænka var í heiminn komin.
Ingibjörg varð eins og nærri má
geta að vinna fyrir sér og litlu dótt-
urinni. Um margt var ekki að ræða
fyrir konur á þeirri tíð. Mest var
Ingibjörg í vistum hingað og þang-
að og hafði hún Stínu ávallt með
sér. En á hveiju vori kom Stína í
sveitina og dvaldi þar fram yfir
réttir. Krakkahópurinn á Brúar-
hrauni kallaði hana Stínu litlu til
aðgreiningar frá öðrum Stínum í
ættinni. Og við vorum farin að bíða
eftir komu hennar um leið og fór
að lengja dag og söknuðum hennar
sárt þegar hún fór til síns heima
að afloknum réttum.
Stína var ekki gömul þegar hún
fór að vinna í fiski til að afla heimil-
inu tekna. Smám saman urðu
sumardvalir hennar því styttri í
sveitinni. Fullorðinsárin tóku við.
En á hverju sumri kom Stína í sveit-
ina í fríum sínum og oft skrapp hún
í réttirnar. Þá voru rifjaðar upp
réttarferðir barnæskunnar, þegar
við systumar á Brúarhrauni og
Stína forum í ævintýralegar réttar-
ferðir á misjafnlega slæmum reið-
skjótum og skemmtum okkur
konunglega. Gott var að muna
annasaman dag og hvíld að kveldi,
þegar fjórar ungar meyjar lögðust
til svefns með kindajarmið í höfðinu
eins og við sögðum stundum.
Stína byijaði snemma að vinna
í fiski eins og ég nefndi áður. Fisk-
vinnsla ýmis konar varð hennar
aðalstarf. Hún var víkingur til verka
og eftirsótt til starfa. Hátekju-
manneskja varð Stína þó ekki og
ekki átti hún mikinn veraldlegan
auð. Enda var hún svo greiðug og
hjálpsöm, að ekki var við því að
búast, að hún safnaði auði. Hjálp-
semi Stínu og greiðvikni fengum
við systkinin frá Brúarhrauni oft
að kynnast. Umhyggja hennar fýrir
okkur og fjölskyldum okkar var
alla tíð takmarkalaus. Litlu bömin
í fjölskyldum okkar hafa nú misst
góðan vin. Nú geta lítil frændsystk-
ini ekki lengur heimsott Stínu í
Garði.
Stína var ágætlega greind kona.
Hún hafði mikinn áhuga á ættfræði
og grúskaði talsvert í þeim fræðum.
Stína hafði ennfremur talsverðan
áhuga á stjómmálum og fylgdi Al-
þýðubandalaginu að málum.
Alþýðubandalagið taldi hún vera
flokk alþýðunnar, þeirrar alþýðu
sem hún sjálf tilheyrði. Stínu var
afar annt um verkalýðsfélagið sitt
og gegndi þar trúnaðarstöðum.
Fyrir fimm ámm varð fyrst vart
við þann sjúkdóm sem dró Stínu til
dauða. í sinni fyrstu sjúkrahúsdvöl,
þegar ljóst var að hún var með al-
varlegan sjúkdóm, skrifaði hún
ýmislegt niður um daglegt amstur
á sjúkrahúsinu, líðan sína og um
lífið og tilvemna. Það kom mér á
óvart, þegar ég sá þessi skrif henn-
ar, hve trú hennar var sterk og kom
hispurslaust fram í þessum skrifum.
Sem bam vissi ég að hún var trú-
uð, en á fullorðinsámm ræddi hún
ekki mikið um trúmál líkt og flestir
Islendingar. A sjúkrahúsinu í ein-
vemnni gat hún trúað blaðinu fyrir
innstu hugrrenningum sínum.
Stína tók veikindum sínum með
jafnaðargeði. Síðasta ár var henni
æði erfítt. Hún reyndi þó allt fram
á síðasta dag að leyna þrautum
sínum. Þannig var Stína trú til
hinsta dags sínu innsta eðli, því að
létta byrðar annarra en bera sínar
eigin byrðar í þögn og þolinmæði.
Minningin um Stínu litlu, sólar-
geisla móður sinnar og heillar
ættar, á eftir að verma okkur
frændfólk hennar og vini um ókom-
in ár. Guð gefi Ingibjörgu og
bræðmm Stínu styrk á erfiðri
stund.
Sigurveig Sigurðardóttir
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti G, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara, Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar fmmort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er
birtur. Meginregla er sú, að
minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður,
SIGURLAUGAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Brekkulæk i' Miðfirði.
Jóhann Sigvaldason,
Arinbjörn Jóhannsson, Gudrun Hanneck-Kloes,
Friðrik Jóhannsson,
Sigvaidi Jóhannsson, Kristín Á. Ákadóttir,
Hólmfriður I. Jóhannsdóttir, Karl H. Sigurðsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og jarðarför
PÉTURS VIGFÚSSONAR,
i Hægindi.
Helga Baldvinsdóttir,
Vigfús Pétursson,
Auður Pétursdóttir, Jón Sigvaldason
og barnabörn.
t
Þakka innilega ættingjum og vinum samúðarkveðjur og vináttu
við andlát og útför konu minnar,
ÖLMU HELENU KUMMER,
Hólmgarði 33.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Oddgeir Hjartarson.
t
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför sonar okkar,
SIGURÐAR HARALDS.
Sigrún Sigurðardóttir,
Ólafur Jóhannsson.