Morgunblaðið - 24.09.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.09.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987 Sjávarútvegssýningin: Sala og viðskipti nema tugum milljóna króna SALA og viðskipti á íslenzku sjávarútvegssýninguimi, sem lauk i gær, hafa farið fram úr björtustu vonum sýnenda og skipuleggjenda sýningarinnar. Einstaka fyrirtæki hafa selt bún- að fyrir milljónir króna, önnur hafa fengið pantanir langt um- fram það, sem reiknað var með. Varlega áætlað mun veltan á sjávarútsýninguni nema hundr- uðum milljóna. Megnið af mögulegu sýningarplássi á næstu sýningu eftir þijú ár er þegar upppantað. Þegar sýningunni lauk í gær voru gestir orðnir um 15 þúsund. Jósafat Hinriksson hefur sýnt toghlera og annan búnað á 38 sjáv- arútvegssýningum. Hann segir að hann hafí aldrei áður náð öðrum eins árangri. Hann seldi um 20 pör af toghlerum á sýningunni, yfír 200 tonn af stáli, og reiknar með að sýningin færi honum sölu á um 400 tonnum til viðbótar. Megnið af hler- unum hefur hann selt til útlanda. DNG seldi tölvufæravindur fyrir um 10 milljónir króna, en Kristján Jóhannesson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði I samtali við Morgunblaðið að ekki hefði verið reiknað með að selja færavindur beint á sýningunni. „Þetta er meiri háttar," sagði hann í samtali við Mogunblaðið, „ég hef aldrei tekið þátt í jafn árangursríkri sýngingu og þessari." Samband íslenzkra samvinnufé- laga kynnti meðal annars lyftara frá Lansing á sýningunni. Þrír slíkir voru til sýnis, en alls voru seldir lyftarar fyrir rúmar 10 milljónir króna. Guðjón H. Hauksson, sölu- stjóri búnaðardeildar SÍS, sagðist hafa verið á mörgum sýningum áður, en aldrei hefði verið um beina sölu tælqa að ræða fyrr en nú. „Það er ekkert hik á mönnum, nú vita þeir hvað þeir ætla að kaupa og gera það strax," sagði hann. Erlendir sýnendur hafa verið mjög ánægðir og er danski hópurinn gott dæmi um það. Jan F. Ander- sen, fulltrúi danska útflutningsr- áðsins, sagði árangurinn hafa farið fram úr björtustu vonum hópsins. Einstök fyrirtæki hefðu náð ein- stökum árangri og önnur góðum. Niels Johstad Möller og Öm Þor- láksson, sem báðir flytja inn ýmsan búnað fyrir sjávarútveg frá Dan- mörku, sögðust hafa selt mikið, mun meira en reiknað hefði verið með. Pat Foster, framkvæmdastjóri sýningarinnar, sagði aðsókn hafa verið með miklum ágætum svo og árangur sýnenda. Selt hefði verið fyrir verulegar upphæðir og veltan væri með eindæmum. Þegar hefði megnið af plássi á næstu sýningu verið selt. Sjá ennfremur viðtöl á miðopnu. VEÐURHORFUR í DAG, 24.09.87 YFIRLIT á hádegi f gær: Hæðarhryggur að þokast austur yfir landið. SPÁ: f dag verður norðan- eða norðaustanátt á landinu, víðast kaldi, en stinningskaldi á stöku stað. Norðantil á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands verða slydduél og 2ja—5 stiga hiti, skúrir og 5—8 stiga hiti austanlands, en nokkuð bjart veður og allt að 10 stiga hiti sunnanlands og við Faxaflóa. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Fremur hæg breytileg átt og bjart veður víðast hvar. Fram eftir föstudegi verður þó norðvestan- átt með skúrum við norðausturströndina, en á laugardag fer að þykkna upp með suðvestanátt á Vestfjörðum. Hiti 7—11 stig um sunnanvert landið en 4—8 stig norðanlands að deginum, víða hætt við næturfrosti. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Heióskírt V stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * V Skúrir El Þoka Léttskýjað / / / / / / / Rigning A** / / / * / * ? 9 5 Þokumóða Súld Skyjað / * / * Slydda / * / # * * oo 4 Mistur Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * # K Þrumuveður Sifl C 4 w w VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 i gœr að ísl. tíma hhl veóur Akureyri 6 rigning Reykjavlk 8 skýjað Bergen 12 akúrir Heltlnkl 12 þokumóða Jan Mayen 6 úrk.ígrennd Kaupmannah. 13 akýjað Naraaareauaq 4 rignlng Nuuk 4 rignlng Oaló 14 akýjað Stokkhólmur 15 akýjað Þórahðfn 11 akúrir Algarve , 24 akýjeð Amaterdam 18 hálfakýjað Aþena 28 léttakýjað Barcelona 28 léttakýjað Beriln 18 rignlng Chlcago 10 helðsklrt Feneyjar vantar Frankfurt 18 rignlng Glaagow 16 skýjað Hamborg 16 rignlng Laa Palmaa 27 Mttakýjað London 18 hálfakýjað LoaAngelea 21 þrumuveður Lúxemborg 17 rignlng Madr.'d 24 akýjað Malaga 26 léttskýjað Mallorca 28 láttakýjað Montreal 11 þokumóða NewYork vantar Paria 18 skýjað Róm 27 þokumóða Vln 24 Mttakýjað Waahlngton 16 léttskýjað Wlnnlpeg 11 Mttakýjað Morgunbladið/BB Frá vinstri Garðar Garðarsson lögmaður Útvegsbankans, Björg- vin Jónsson skrifari fógeta, Guðmundur Hauksson bankastjóri Útvegsbankans og Jón Eysteinsson bæjarfógeti. Hraðfrystihúsið Sjöstjarnan hf. selt á nauðungaruppboði: Útvegsbankinn borg- aði 85 milljónir Keflavfk. Hraðfrystihúsið Sjöstjarnan hf. í Ytri-Njarðvík var slegið Útvegsbankanum hf. á 85 miljj- ónir króna á nauðungarupp- boði í gær. Fjórir aðilar buðu í eignina, Fiskveiðisjóður 59 miiyónir, Nj arð víkurbær 71 miljjón, Olís 82 miiyónir og Útvegsbankinn hf. sem bauð hæst. Fiystihúsið var veðsett á um 150 milljónir króna á 45 veðrétt- um og er það svipuð upphæð og brunabótamat hússins. Vélar og tæki eru metin á 80 til 90 milljón- ir og verðmæti Sjöstjömunnar því alls um 240 milljónir. Guðmundur Hauksson bankastjóri og Garðar Garðarsson lögmaður Útvegs- bankans óskuðu þegar eftir lyklavöldum og umráðum yfír eigninni. Þeir sögðu að ekkert hefði verið ákveðið hvað gert yrði við frystihúsið en töldu líklegt að það yrði selt aftur. Björgvin ólafsson fram- kvæmdastjóri sagði að hjá fyrir- tækinu væru nú starfandi um 25 manns. í sumar hefðu verið um 70 manns þegar mest hafði verið og taldi hann að næsta skrefíð yrði að segja þessu fólki upp. - BB Eskifjörður: Jón Kjartansson sigldi heim með af la sinn Gat fengið 550 krónum meira fyrir tonnið í Krossanesi LOÐNUSKIPIÐ Jón Kjartansson SU 111 var væntanlegt til Eski- fjarðar á miðnætti í nótt með fullfermi eða um 1100 tonn af loðnu. Loðnunni verður landað í verksmiðju Hraðfrystihúss Eski- fjarðar hf. sem mun borga 1.950 krónur fyrir tonnið. Jón sigldi heim með aflann, þrátt fyrir það að hann ætti kost á þvi að fá 2.500 krónur fyrir tonnið hjá Krossanesverksmiðjunni. Jón Kjartansson fór áleiðis á loðnumiðin á laugardag sl. en þang- að er um sólarhrings sigling. Aðspurður um það, hvers vegna siglt hefði verið með aflann til Eski- fjarðar en ekki fenginn hærri upphæð hjá Krossanesverksmiðj- unni, sem einnig væri mun nær miðunum, sagði Aðalsteinn Jóns- son, útgerðarmaður Jóns Kjartans- sonar, að ástæðan væri einfaldlega sú að hann ætti bræðsluna á Eski- fírði einnig, og að hana hefði vantað verkefni. Aðalsteinn bjóst ekki við því að sjómennimir væru óhressir með þetta, enda hefði hið háa verð í Krossanesi aðeins verið fyrir eina löndun. „Eskifjörður er hins vegar þeirra heimahöfn." Einn annar bát- ur hefur hafíð veiðar frá Eskifirði en það er Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 sem einnig hélt á veiðar á laug- ardag. Reykjavík: Öformlegur fundur um lóðamál Sambandsins DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri og Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambands islenskra samvinnufé- laga hafa ræðst við á óformleg- um fundi um lóðamál Sambandsins. Endanleg niður- staða fékkst ekki en ákveðið hefur verið að halda annan fund. „Þetta var óformlegur fundur þar sem við fómm yfír stöðuna og Guð- jón ræddi hugmyndir Sambandsins og ég ræddi hvað gæti komið til greina innan borgarmarkanna," sagði Davíð. „Við ætlum sfðan að skoða málið betur og tala aftur saman." Davíð sagði að hingað til hefði Sambandið ekki rætt við borgar- yfír- völd en eingöngu kannað lóðir utan borgarmarkanna vegna þess hvað 8ambandsmenn hafí stórt land í huga. „Ég held að það sé sameigin- legt sjónarmið okkar að menn eigi að raeða saman áður en endanleg ákvörðun er tekin. Borgin getur alltaf komið til móts við aðila með einhveijum hætti. Spumingin er einungis hvort það sé nægjanlegt," sagði Davfð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.