Morgunblaðið - 28.10.1987, Síða 20

Morgunblaðið - 28.10.1987, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987 Einhverjum kalt. . . Hinir landskunnu hitablásarar frá Hitablásarar: Thermozone: Geislaofnar: Kambofnar: Viftur: til notkunar: iön.húsnœöi, nýbyggingum, skipum. — lúguop, huröarop, o.fl. — svölum, garöhúsum, lagerhúsnœöi. — skipum, útihúsum, rökum stööum. — skrifstofum, iönaöar- og lagerhús- 2 ktv. lfasa 4.5 kw.Uasa- Stxröir: 2—23 kw. 1 fasa og 3 fasa. Talið við okkur. - Við vitum allt um hitablásara. •JTröNNING Sundaborg, sími 84000 Guðjón Sigmundsson, skólastjóri Björgunarskólans, afhendir Birgi ísleifi Gunnarssyni námsskrána. Vinstra megin við Guðjón standa Björgvin Ríkharðsson, yfirkennari Björgunarsviðs, og Sólveig Þor- valdsdóttir, yfirkennarl Skyndihjálparsviðs. Landssamband hjálparsveita skáta: Námsskrá Björgimar skólans komin út NÁMSSKRA fyrir Björgunar- skóla Landssambands hjálpar- sveita skáta var gefin út nýlega og er þar lýsing á öllum nám- skeiðum sem björgunarsveita- mönnum standa til boða. Tilgangurinn með þessari endur- bættu útgáfu er að skilgreina þær kröfur sem gerðar eru til hjálparsveitamanna, auka þar með gæði þjálfunar og stuðla að samræmingu á þjálfun hjálpar- sveitamanna. Nýja námsskráin er gefín út I lausblaðamöppu og er því hægt um vik að endumýja og halda henni við. Möppunni hefur verið dreift til allra björgunarsveita á landinu svo og almannavamanefnda og lög- reglustjóra. I fréttatilkynningu frá Lands- sambandi hjálparsveita skáta segir* að Björgunarskóli Landssambands- ins sé vel þekktur meðal þeirra sem eitthvað starfi að björgunarmálum því að á tíu ára starfsferíi sínum hafí hann lagt þung lóð á vogarskál- ar til bættrar þjálfunar hjálpar- og björgunarsveitamanna. Skólanum sé og ætlað stórt hlutverk í þjálfun- armálum hjálparsveitanna. Þar sé efst á blaði annars vegar að út- skrifa leiðbeinendur í ýmsum greinum björgunarstarfa og hins vegar að samræma þjálfun og að- laga gildandi kröfum. Rótarútvarp: VERKFRÆÐINGAR TÆKNIFRÆÐINGAR Dagana 16.-20. nóv. nk. mun Hátækni hf. standa fyrir kynningu og námskeiði í forritun á HONEYWELL EXCEL iðnaðartölvum. Leiðbeinandi verður Neil Cramer frá Honeywell. Þar sem þátttaka er takmörkuð, biðjum við áhugasama að hafa samband sem fyrst við Hátækni hf. í síma 31500 eða 36700 í síðasta lagi þann 6. nóv. nk. Nánari upplýsingar gefur Halldór Sigurðsson. w Hátæknihf. Skemmdarverk uimið í Stúdentaráði HÍ - segir Benedikt Bogason formaður Vöku ÁKVEÐIÐ var á fundi Stúdenta- ráðs Háskóla íslands nýlega að Stúdentaráð gerðist hluthafi í utvarpsfélaginu Rót hf. Miklar deilur urðu um hlutafjárkaupin á fundinum, þannig að fresta varð umræðu um ýmis hags- munamál. Tillaga stjórnar um hlutafélagsþátttökuna var sam- þykkt með 14 atkvæðum gegn 13. Meirihlutinn í Stúdentaráði sem stendur að stjóm SHÍ er skipaður af fulltrúum Félags umbótasinna og Félags vinstrisinna. Stjómin lagði það til að Stúdentaráð gerðist hlut- hafi í Útvarpsfélaginu Rót. Að loknum umræðum á tveimur Stúd- entaráðsfundum og tveimur fundum menntamálanefndar SHÍ var gengið til atkvæða um málið. Fulltrúar Vöku greiddu atkvæði gegn tillög- unni, fulltrúar umbótasinna greiddu atkvæði með henni, svo og tíu full- trúar Félags vinstrimanna. Þrír vinstrimenn sátu hjá. Meðal þeirra sem greiddu atkvæði með tillögunni var Theodór Grímur Guðmundsson, sem jafnframt er stjómarmaður í Útvarpsfélaginu Rot. Theodór sagði að ákveðið hefði verið að kaupa fjóra hluti í útvarps- félaginu fyrir samtals 20 þúsund krónur, en stefnt er að því að safna hlutafé fyrir 3-4 milljónir króna. Hann sagði að hann teldi að meiri- hluti Stúdentaráðs hefði lagt til grundvallar ákvörðun sinni álit menntamálanefndar ráðsins. Þar kemur fram að útvarpið skapi stúd- entum vettvang til þess að útvíkka baráttu sína og kostnaðurinn sé óverulegur. Þá hafí önnur samtök námsmanna, SÍNE og BÍSN, tekið ákvörðunn um að gerast aðilar að útvarpinu og þessi samtök geti stað- ið saman um flutning efnis í útvarp- inu. Vökumenn lögðu fram sérstaka bókun vegna þessa máls að lokinni atkvæðagreiðslunni. Þar var á það minnt að meirihluti stúdenta vildi að Stúdentar^ð einbeitti sér að hags- munamálum, en væri ekki vettvang- ur pólitísks dægurþrass. Viðurkennt væri að Rót ætti að vera pólitískt útvarp; málgagn félagshyggju, og að ekki væri hlutverk Stúdentaráðs að taka þátt í stofhun slíks útvarps. í samtali við Morgunblaðið sagði Benedikt Bogason formaður Vöku að þetta væri mjög slæmt mál fyrir Stúdentaráð. „Það er ekki hlutverk Stúdentaráðs að gerast hluthafí í einhveijum félögum út í bæ, og enn slður ef slíkt hlutafélag er stofnað í kringum pólitísk samtök. Með til- löguflutningi sem þessum, sem vitað er að skapar úifúð, er verið að ala á ósætti og hindra gott samstarf allra stúdentaráðsliða í hagsmuna- málunum, eins og sást best á fundinum, þegar fresta varð um- ræðu um lánamál og stúdentasjóð- ina. Hér er því verið að vinna skemmdarverk í Stúdentaráði, til þess eins að hjálpa upp á sakimar við hlutaflársöfnun pólittskrar út- varpsstöðvar," sagði Benedikt og benti enn fremur á að söfnun þessi gengi illa, enda hefðu flest verka- lýðsfélög hafnað þátttöku. Tvennt var það sem Benedikt vildi benda á I þessu máli, sem honum þótti fara út fyrir mörk siðferðis. „í fyrsta lagi er það að skrifstofa Stúdentaráðs hefur verið notuð sem söluskrif8tofa á bréfum I hlutafélag- inu, án þess þó að ákvörðun hefði verið tekin um málið I Stúdentaráði. Hitt málið, sem ekki er slður sið- Iaust, er að eitt atkvæði réð úrslitum um kaup á hlutabréfunum, það at- kvæði kom frá Theodór Grími Guðmundssyni, sem einnig er stjóm- armaður I Rót hf. Hann er því vanhæfur og hafði auk þess lýst því yfir áður, að hann myndi ekki greiða atkvæði," sagði Benedikt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.