Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987 11 Bragi Ásgeirsson Mannfuglar eða fuglmenni er það þema sem myndlistarmaðurinn Bjarni Ragnar er upptekinn af þessa stundina. Það kemur mjög ljóslega fram á sýningu hans í sýningarsal FÍM, á mótum Garðastrætis og Ránargötu, þar sem hann kynnir 27 ný málverk fram til 6. desember. Bjami lætur þekkjanlegt líkams- formið vera að mestu óbreytt, þótt hann færi það nokkuð í stflinn, en hins vegar eru mannverur hans með höfuð fiðurfés ýmiss konar. Þetta eru draumkenndar verur úr hugarheimi ímyndunaraflsins, en munu þó eiga (að sögn) að vera án táknrænnrar merkingar, sem er nokkuð erfitt að sannfæra skoðend- ur um á síðustu og „bestu tímum" goðsögulegrar skírskotunar, en þar er fuglmennið og fuglshamurinn engan veginn óþekkt fyrirbæri, síður en svo. „En allt er leyfilegt" nú á dögum, eins og unga fólkið tjáir okkur eldri svo hressilega, og þá einnig að snúa staðreyndum við, enda veit ég varla íslenzkan nýbylgjumálara, sem með þakklæti og auðmýkt viðurkennir mikilvæg og mikilsverð áhrif er- lendra núlistarstrauma í list sinni. Allt virðast þeir sjálfír hafa fundið upp, litir, léreft, penslar og terp- entína ættu eftir þessu að vera þeirra sköpunarverk og heita vatnið um leið. Að öllu gamni slepptu þá hlýtur einhver táknræn merking að felast í mannfuglum Bjarna Ragnars, jafnvel þótt ekki sé nema vísun til drauma eða starfsemi hugarflugs- ins, ófreskir draumar hafa ávallt táknrænt gildi og þá meira meðvit- að en ómeðvitað. Og þó að verur Bjarna Ragnars eigi ekki við þær hremmingar að stríða í formi tilvistarkreppu og djúprar sálarangistar og hjá mörg- um starfsbróður hans, vísi frekar til ljúfari hliða og munúðar ástar- lífsins, þá meðtekur skoðandinn þetta myndtákn. Þessi myndtákn eru þó um sumt annars eðlis en ýmissa starfsbræðra hans og félaga, merking þeirra opn- ari en um leið óræðari, enda virðist myndverkasmiðurinn ekki ganga jafnt margvisst og umbúðalaust til leiks. Ég sakna innri baráttu og átaka við efniviðinn, í senn mynd- efni sem liti og form. Meðferð hans á olíulitnum er sérstæð að því leyti að hún minnir í senn á vatnsliti og krítarliti, líkast sem gerandinn hafí verið full upp- tekinn af þynningarefnunum á meðan að á verki stóð, og það er mikil list að mála þannig án þess að hinir sérstöku og verðmætu eig- inleikar olíulitarins missi einkenni sín. En að sjálfsögðu má ætla að þetta sé með ásettu ráði gert eins og t.d. að nota myndtákn án tákn- rænnrar merkingar og annað sem leyfilegt er í nútímanum. En í sumum myndunum er litur- inn dýpri og safaríkari og þá myndmálið um leið. Árétta ég þessa skoðun mína með vísun á myndir eins og „Miðnæturstemma" (15), „Rauðir vængir" (18) og „Fálkaorð- an“ (21). Þessar myndir og aðrar svipaðar fannst mér bera af á sýn- ingunni fyrir sannfærandi átök við efniviðinn. Meira af slíku. FUGLMENNI Vegna sýningar Kees Visser Myndlist Bragi Ásgeirsson Fram hefur komið, að mér varð óforvarandis á í messunni í um- fjöllun minni um kynningarsýningu Myndhöggvarafélagsins á verkum Kees Vissers á Korpúlfsstöðum (Mbl. 17. nóv.). Ég fór eftir merkt- um leiðbeiningum í húsinu og píla, teiknuð á bréfrenning festan á vegg og sem á var skrifað „Sýning", beindi ferð minni fyrst í sal með nokkrum ávölum gijóthnullungum á gólfí, sem sagaðir höfðu verið niður á ýmsa vegu. Ég spurði, hvort ekki væri meira að skoða og var svarið jákvætt og farið með mig upp á næstu hæð, þar sem fyrir voru stálskúlptúrar Kees Vissers. Þar sem einungis hafði í fjölmiðl- um verið auglýst ein sýning í gangi á Korpúlfsstöðum og það mjög vel, stóð ég vitaskuld í þeirri meiningu að þetta væru allt verk Kees Viss- ers. En nú hefur komið fram, að steinskúlptúrinn er eftir allt annan mann, Þjóðveijann Gerhard Amm- an, sem dvalið hefur hérlendis sl. 2>/2 mánuð og unnið að list sinni sem gestur myndhöggvarafélags- ins. Þykir mér merkilegt, að ekki skyldi upplýst betur á staðnum og þá einnig í fjölmiðlum, að_ um tvær sýningar var að ræða. Ýmsu var mjög ábótavant varðandi listkynn- ingu þessa, sem ég reifaði lauslega í listdómi mínum, en fór ekki nánar í saumana á vegna þess að ég hef vakið athygli á slíkum trassaskap margoft og er ekki kær að endur- tekningum — hætta er á að slíkt fái svip af nöldri. Vil ég vísa til þess, að sýningarskráin var aldeilis út í hött og númeruð merking mynda bæði uppi og niðri með ógreinilegasta móti. Þegar þannig er staðið að vel auglýstum listkynningum mega hlutaðeigandi eiga von á að eitthvað kunni að fara úrskeiðis og geta sjálfum sér um kennt. Engu að síður þykir mér rétt að vekja athygli á mistökunum og biðj- ast velvirðingar á þeim — einkum þykir mér þetta leitt vegna áður- nefnds gests myndhöggvarafélags- ins, Gerhard Ammans, sem fyrir vikið fékk um sumt rangsnúin um- mæli um verk sín. Mun verða á varðbergi næst og mæta á staðinn með vasaljós og stækkunargler! En vísa vil ég til þess að lokum, að með ótrúlega lítilli fyrirhöfnn er mögulegt að merkja leiðbeiningar mun betur á veggi, en hér var gert og í raun var klénn brandari... Suðurlandsbraut 4 Nú eru aðeins eftir í þessu stórqlæsilega núsi áþriðju hæð 198m2 ájarðhæð 389 m 2 Húsið er tilbúið til afhendingar nú þegar. — Glæsileg bygging — Góð staðsetning, frábært útsýni. cgjsteintak hf FASTEIGMASALA SUÐURLANDSBRAUT 18 SIMI 84433 LOGFRÆÐINGUR ATLIVAGNSSON Ljósritunarvélar frá kr. 75.0nn stgr Gæðatæki-Fmmtíðaneign HVERRSGÖTU 103 SlMI 25999 STRIK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.