Morgunblaðið - 27.11.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Sprungnir hjólbarðar Fokkervélar Flugleiða á Egilsstaðaflug-
velli í fyrradag.
Skipt um hjólbarða á Fokker
ÞEGÁR Fokkervél Flugleiða
var að lenda á Egilsstaðaflug-
velli kl. 17.43 í fyrradag sprakk
á báðum hjólum vélarinnar
vinstra megin.
Viðgerðamenn fóru með ný
dekk austur í fyrradag og vélinni
var flogið aftur til Reykjavíkur í
fyrrakvöld. Vélin var óskemmd
að öðru leyti og aldrei stafaði
nein hætta af þessu óhappi, að
sögn Þórs Sigurbjömssonar flug-
stjóra vélarinnar.
Hópuppsagnir hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur
ÁTTA rafmagnseftirlitsmenn af
tólf hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur hafa sagt störfum sínum
lausum, með þriggja mánaða upp-
sagnarfresti, frá og með 1.
desember. Astæða uppsagnanna
er að starfsmennirnir vilja segja
sig úr starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar og ganga í
félag íslenskra rafvirkja innan
Rafiðnaðarsambandsins. Eftirlits-
mennimir sögðu sig skriflega úr
starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar í vor, en félagið tók
úrsögnina ekki gilda.
Að sögn Aðalsteins Guðjohnsen,
rafmagnsstjóra Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, hafa störf eftirlits-
mannanna verið talin þess eðlis að
Reykjavíkurborg hefur viljað halda
þeim sem opinberum starfsmönnum.
„Um er að ræða tvo hópa, annnars
vegar mælauppsetningamenn, og
hins vegar efírlitsmenn með raflögn-
um.“ Rafmagnsstjóri sagði muninn
á kjörum opinberra starfsmanna og
félaga í Rafiðnaðarsambandi íslands
vera meiri hjá yngri starfsmönnum,
og því væri erfitt að fá unga menn
til þessarra starfa.
Af níu stöðum eftirlitsmanna með
raflögnum eru nú fímm mannaðar,
og aðspurður um áhrif uppsagnanna,
kæmu þær til framkvæmda, sagði
Aðalsteinn það ljóst að Rafveitan
yrði í talsverðum erfíðleikum. „Um-
ræður um uppsagnimar eru á
viðkvæmu stigi og ég vonast til að
lausn á þessu máli fínnist á næstu
dögum.“ sagði rafmagnsstjóri.
Viljum vera í
okkar fagfélagi
„Við erum fyrst og fremst raf-
V estur-Bar ðastrandarsýsla:
Bændur hafa ekki feng-
ið greitt fyrir afurðirnar
SAUÐFJARBÆNDUR í Araar-
firði og Tálknafirði, sem fengu
fé sínu slátrað hjá Sláturfélagi
Vestur-Barðstrendinga á Pat-
reksfirði í haust, eftir að slátur-
húsi þeirra á Bíldudal var lokað,
hafa enn ekki fengið greiðslur
fyrir innlagðar afurðir. Sam-
kvæmt búvörulögum eiga
bændur að fá framgreiðslu í
síðasta lagi tíu dögum eftir inn-
leggsdág, en slátrun á fé Ara-
firðinga lauk 5. nóvember og
hefðu allir bændur samkvæmt
því átt að hafa fengið frum-
greiðslu 15. nóvember.
Sauðfjárbændur á þessu svæði
óskuðu eftir því við Framleiðsluráð
landbúnaðarins að það útvegaði
þeim slátrun þegar í óefni var kom-
ið eftir deilur á milli bænda og
yfirdýralæknis um starfrækslu slát-
urhússins á Bfldudal sem endaði
með því að bændur fengu ekki að
slátra í sláturhúsi sínu. Framleiðslu-
ráð vísaði þeim á sláturhúsið á
Patreksfírði og lögðu þeir fé sitt
# M m ^
A A
AA 4^ í S? tD \
*t+ lll^EÍÍÉÍÍBl'' X A
.viljir þú sameina
a
x ®
fr á
A <0
CP ¥
& V
þar inn.
Sigurður Guðmundsson bóndi í
Otradal sagði í samtali við Morgun-
blaðið að frumgreiðsla afurðanna,
sem venjulega væri 50—55% af inn-
leggi, hefði ekki borist og engin
svör fengjust hjá forráðamönnum
sláturhússins um hvenær það gæti
orðið. Sláturfélag Vestur-Barð-
strendinga hefði ekki einu sinni
greitt gjaldfallin rekstrarlán sem
Sláturfélag Amfírðinga tók í
Landsbankanum á Bíldudal til að
greiða bændum upp í væntanlegt
innlegg. Þessi lán, samtals um 4
milljónir kr., hefðu fallið á Sláturfé-
lag Amfírðinga. Taldi Sigurður að
verðmæti kjötinnleggsins væri ná-
lægt 20 milljónum kr. og ætti
Sláturfélagið á Patreksfirði því að
vera búið að standa skil á 10 millj-
ónum kr.
Gat Sigurður þess að á síðasta
ári hefði Sláturfélag Amfírðinga á
Bfldudal slátrað fé flestra aðstand-
enda sláturhússins á Patreksfirði,
að ósk Framleiðsluráðs. Þá hefði
slátrun lokið 2.-3. nóvember og
allir innleggjendur fengið fmm-
greiðsluna 12. nóvember.
virkjar og viljum vera í okkar
fagfélagi." sagði Ægir Einarsson
verkstjóri mælastöðvar, einn af þeim
átta sem sagt hafa upp störfum.
„Við teljum okkur eiga litla samleið
með félögum í starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar, svo sem fóstrum,
baðvörðum, slökkviliðsmönnum og
skrifstofumönnum, við teljum eðli-
legra að menn sem þekkja inn á
okkar störf semji við Rafmagnsveitu
Reykjavíkur fyrir okkar hönd.“
Ægir sagði ennfremur að aðrir
rafvirkjar innan stofnunarinnar væru
félagar í Rafíðnaðarsambandinu, og
hefðu þeir gengið í það við svipaðar
aðstæður fyrir um tuttugu árum.
Einnig væri stór hluti eftirlitsmanna
hjá Rafmagnsveitum ríkisins í Raf-
iðnaðarsambandinu. „Þetta er
samskonar mál og símvirkjar, sem
nú kallast rafeindavirkjar, hjá Pósti
og Síma áttu í fyrir nokkrum árum,
en sem kunnugt er gekk stór hluti
þeirra Rafíðnaðarmannasambandið.
Þeir sem ekki segja upp nú eru allir
með langan starfsaldur og eru jafn-
vel að hætta störfum á næstu árum.“
sagði Ægir Einarsson.
Ákvörðun borgaryf ir-
valda en ekki starfs-
mannaf élagsins
Haraldur Hannesson, formaður
starfsmannafélags Reykjavíkurborg-
ar sagði það alfarið í höndum
borgaryfírvalda eftir hvaða kjara-
samningum fólk væri ráðið til
borgarstofnana. Þeir sem ráðnir
væru eftir kjarasamningum borgar-
starfsmanna væru í starfsmanna-
félaginu, samkvæmt ákvörðun
borgarráðs.
„Við höldum engum nauðugum í
félaginu, ákvörðunin er borgarinnar
en ekki okkar." sagði Haraldur.
„Hins vegar komum við ekki auga á
það hvemig borginni verður hægara
að greiða mönnum hærra kaup þó
að þeir skipti um stéttarfélag. Til
skemmri tíma munu þeir ef til vill
fá hærri laun í krónutölu, en síðan
verður að athuga lífeyrissjóðsrétt-
indi, orlof og greiðslur í veikindum,
sem hefur verið metið til fjár. Þetta
er spegilmynd af þeirri þróun sem
hefur átt sér stað og því sem er að
gerast í ASÍ og Verkamannasam-
bandinu um þessar mundir, stærri
félögin eru að splundrast í smærri
eiginhagsmunahópa. Menn virðast
ekki gera sér grein fyrir að það eru
félagsheildimar sem skipta máli þeg-
ar til stórræðanna kemur.
sagði Haraldur Hannesson.
•AUSTURSTRÆTI 14* S42345'
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell:
Rúmlega þrjátíu bækur
gefnar út fyrir jólin
BÓKAÚTGÁFAN Vaka-Helga-
fell gefur út tæplega 40 nýjar
bækur á þessu ári, þar af rúm-
lega þrjátíu nú fyrir jólin. Að
sögn Ólafs Ragnarssonar for-
stjóra útgáfunnar er lögð mikil
áhersla á fjölbreytni; skáldverk,
endurminningar, handbók um
veðrið, matreiðslubækur og
smásagnasafn eru meðal þess
sem Vaka-Helgafell gefur út á
þessu hausti.
Frumsamdar íslenskar bækur
eru um helmingur jólabókanna, og
taldi ólafur þar viðamesta og
giæsilegasta bókina „Landið, sag-
an og sögumar" eftir hinn þekkta
sjónvarpsmann og rithöfund Magn-
ús Magnússon. „Þessari bók er
ætlað að opna heim sögunnar á
nýstárlegan hátt,“ sagði Ólafúr,
„hún fléttar saman sögulegum
fróðleik, efni íslenskra sagna og
upplýsingum um íslenska sögu-
staði." Tæplega tvö hundruð
litmyndir, kort og teikningar eru í
bókinni.
Einnig nefndi Ólafur Ragnars-
son bókina „Vandratað í veröld-
inni“ eftir Franziscu Gunnarsdótt-
ur, sonardóttur Gunnars
Gunnarssonar skálds. Hún segir í
bókinni frá dvöl sinni í æsku hjá
Gunnari afa sínum og Franziscu
ömmu sinni, á Skriðuklaustri í
Fljótsdal.
Af þýddum bókum nefndi Ólafur
„Dal hestanna“ eftir Jean Auel,
sjálfstætt framhald bókarinnar
„Þjóð bjamarins mikla", sem út
kom í fyrra. Einnig gefur Vaka-
Helgafell út margar bama- og
unglingabækur, meðal annars eftir
Ármann Kr. Einarsson, Guðmund
Ólafsson og Kristínu Steinsdóttur,
smásagnasafn eftir Svövu Jakobs-
dóttur og nýja bók eftir Halldór
Laxness.