Morgunblaðið - 27.11.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
17
Ráðhúsið við
Tj örnina
eftir Björgu M.
Thoroddsen
Gott er að öllum fínnist svo vænt
um „djásn" sinnar höfuðborgar,
Tjömina, og má gera ráð fyrir að
'þeim sé ekki síður annt um hana
sem að framkvæmdum borgarráð-
húss standa. Það er ekki fáttt að
upp rísi andmælaraddir er nýjungar
standa fyrir dyrum. „Landinn" er
þrasgjam og sýnist sitt hveijum.
Þetta mega þeir hafa sem í fylking-
arbijósti standa, að reynt er að
ófrægja tillögur og gjörðir. Þá þarf
að standa af sér álagið. Það gerir
okkar borgarstjóri, því hann veit
hve margir stóðu honum að baki
við síðustu kosningar.
Ég man nú svo langt, að ekki
mátti skerða svo mikið sem metra
af Menntaskólalóðinni við Lækjar-
götuna. Urðu þá heitar umræður
og þótti hin mesta goðgá að breyta
þar nokkm. Nú hef ég ekki orðið
vör við annað en að allir séu ánægð-
ir með þá breytingu sem þáverandi
borgarstjóri gerði — lét slag standa
og framkvæmdi þá breytingu er til
heilla horfði.
Afmæli
unglinga-
athvarfs
ÞANN 1. október síðastliðinn
voru liðin 10 ár frá stofnun Ungl-
ingaathvarfs Reykjavíkurborg-
ar. í tilefni þessara tímamóta
hefur verið ákveðið að halda
afmælisveislu laugardaginn 28.
nóvember fyrir fyrrverandi
starfsmenn og unglinga sem í
Unglingaathvarfinu hafa verið á
liðnum árum.
Afmælisveislunni er ætlað að
standa kl. 15.00-18.00 í húsnæði
athvarfsins að Tryggvagötu 12.
Kaffí og veitingar verða á boðstól-
um, í bland við gamlar myndir og
minningar.
Sýnist mér teikning sú er fékk
verðlaunin falleg og sérstaklega
fagna ég súlnaröðinni, sem liggur
að Tjöminni og er nýjung í okkar
húsagerðarlist.
Um fuglalíf Tjamarinnar er það
að segja, fuglunum hefur fjölgað
þrátt fyrir mikla umferð og hávaða
sem af henni leiðir, má þakka það
yfírvöldum að vel hefur verið að
þeim hlynnt og verður sjálfsagt
áfram. Fuglamir hafa sinn inn-
byggða „radar" og komast oftast
sína leið án okkar alltvitandi mann-
fólks, og geta þá flutt sig um set,
ef í það fer.
Höfundur er húsmóðir í
Reykjavík.
Erindi og pallborðs-
umræður um ævisögnr
I t
Björg M. Thoroddsen
„Sýnist mér teikning sú
er fékk verðlaunin fal-
leg og sérstaklega
fagna ég súlnaröðinni,
sem liggur að Tjörninni
og er nýjung í okkar
húsagerðarlist. “
FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir stendur fyrir fundi um
ævisagnaritun laugardaginn 28.
nóvember. Fluttir verða þrir fyrir-
lestrar um efnið en síðan verður
efnt til pallborðsumræðna.
Þeir sem hafa framsögu á fundin-
um eru: Gunnar Karlsson prófessor
í sagnfræði við Háskóla íslands en
hann nefnir erindi sitt „Ævisögur:
Snertiflötur sagnfræði og skáldskap-
ar“, Ragnhildur Richter bókmennta-
fræðingur flytur erindi er hún nefnir
„Að ljá þögninni mál. Fyrstu sjálfsæ-
visögur íslenskra kvenna" og Ingólf-
ur Margeírsson rithöfundur og
blaðamaður flytur erindi er hann
nefoir „Lífshlaup á bók. Skáldskapur
eða skrásetning?".
Þátttakendur í pallborðsumræðun-
um verða, auk framsögumanna, þau
Bergsteinn Jónsson sagnfræðingur,
Bjamfríður Leósdóttir kennari,
Elísabet Þorgeirsdóttir skáld og
Helgi Skúli Kjartansson sagnfræð-
ingur.
Fundurinn verður haldinn í stofu
101 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla
íslands, og hefst kl. 14.00. Fundur-
inn er öllum opinn og aðgangur
ókeypis.
Tónleikar á
Akranesi og
Stykkishólmi
KOLBEINN Bjamason flautuleik-
ari og Páll Eyjólfsson gítarleikari
halda tónleika á Akranesi og
Stykkishólmi um helgina.
Tónleikamir á Akranesi verða í
safnaðarheimilinu Vinaminni laugar-
daginn 28. nóvember kl. 16.00 og
Stykkishólmi í Tónlistarskólanum
sunnudaginn 29. nóvember, einnig
kl. 16.00.
, Efnisskrá tónleikanna samanst-
endur af tónverkum frá byijun 17.
aldar til nóvembermánaðar 1987.
Meðal höfunda era Atli Heimir
Sveinsson, Georg Friedrich Hándel
og Hjálmar H. Ragnarsson.
EIINSTOK
ÞJONUSTA
Við bjóðum viðskiptavinum okkar
að panta sér einkatíma
til að skoða úrvalið í ró og nœði,
á kvöldin milli kl. 20:00 og 22:00.
Opið alla laugardaga 10:00 - 14:00. Greiðslukort - afborganir.
EGGERT
feldshri
Efst á Skólavörðustígnum, sími II121.
Sendu vinum þínum erlendis gjafaáskrift!
Hringdu STRAX! Sími 84966, Höfðabakka 9, Reykjavík.