Morgunblaðið - 27.11.1987, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
Ást er...
... að hlaupa til hennar á
mettíma.
TM Req, U.S. Pat. Oft.—all rtahts reserved
c1984 Los Angeles Times Syndicate
Ég hélt hann væri orðinn
blankur en þá dregur
hann upp visakortið.
Með
morgimkafftnu
Hvað er að? Ég er í
giuggaþvottinum. — Það
er þriðjudagur ... ?
HÖGNI HREKKVÍSI
í>essir hringdu . . .
Tryggingar -
bótaskylda
Sigmar Ármannsson hjá Sam-
bandi íslenskra tryggingafélaga
hringdi:
„I fyrirspum í Velvakanda
þriðjudaginn 24. nóvember gætir
nokkurs misskilnings og tel ég
ví rétt að eftirfarandi komi fram.
skilmálum um heimilistrygging-
ar og húseigandatryggingar eru
yfirleitt samhljóða ákvæði varð-
andi gáleysi og ásetning. Vá-
tryggður á ekki kröfu á hendur
tryggingafélagi ef um stórfellt
gáleysi eða ásetning er að ræða.
Bótaskylda tryggingafélags getur
hins vegar orðið vegna svonefnds
einfalds gáleysis af hálfu vá-
tryggðs. Mismunurinn á heimilis-
tryggingu og húseigandatrygg-
ingu er í grófum dráttunm sá að
húseigendatrygging tekur til tjóns
á húsinu sjálfu en heimilistrygg-
ing tekur til tjóns á innbúi."
BMX hjól
Krómað BMX hjól með bláum
dekkjum og bláum fylgihlutum
var tekið við Dalasel 1 fyrir
skömmu. Þeir sem geta gefið
upplýsingar eru vinsamlegast
beðnir að hringja í síma 74564.
Ósæmilega vegið
að trillukörlum
Sjómaður hringdi:
„Lengi hefur staðið til að
sauma að trillukörlum en nú virð-
ist stefnt að því að útiýma þeim.
Þetta er mjög einkennilegt þegar
það er haft í huga að nýting afla
er hvergi betri en á handfærum.
Þar er hver tittur hirtur og yfir-
leitt landað samdægurs. Eg hef
sjálfur verið á togara og veit vel
hvemig er farið með smáfísk og
ýmsar fiskitegundir þar, best að
hafa sem fæst orð um það. Ég
tel þessa aðför að trillukörlum í
alla staði ósæmilega og hvet menn
að láta þetta ekki yfir sig ganga
orðalaust."
AUSTURRÍKI
vetrarfrí í fjöllum
Austurríkis
Enn eru í boði frábæru, ódýru og eftirsóttu
skíðaferðirnar til Austurríkis.
Áfangastaðina þekkja margir af góðri reynslu:
skíðabæina Zell am See, Mayrhofen og
Kitzbiihel.
Flugleiðir fljúga beint til Salzburg einu sinni
í viku og þaðan er ekið til skíðcisvæðanna.
Þið munið góðu brekkurnar, sólina, snjóinn,
náttúrufegurðina, notalegu veitingastaðina,
þægilegu gistihúsin, fjörið og allt hitt.
Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða
eða ferðaskrifstofur og fáið nánari upplýsingar.
Upplýsingasími: 25 100
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Slök vinnu-
brögð hjá Ríkis-
sjónvarpinu
Til Velvakanda
Við erum nokkrir nemendur í
Fjölbrautarskóla Suðurlands á Sel-
fossi sem viljum lýsa yfír óánægju
okkar með vinnubrögð sjónvarpsins
við tökur á þætti okkar, Annir og
appelsínur. Þáttur okkur var byggð-
ur upp að miklum hluta á tónlist
eins óg sjónvarpsmenn vissu vel
áður en þeir gerðu sér ferð yfir
heiðina. Við teljum okkur geta stát-
að af góðum kór og tónlistarfólki
og þótti okkur því sjálfsagt að nota
það í þættinum. Eftir upptöku kórs-
ins vorum við mjög ánægð með
hljóminn en í sjónvarpinu varð þetta
eins og kallað er á máli fagmanna
„komflexpakka sound“. Sem sagt
algert klúður. Þama var rúmlega
fjörutíu manna kór sem kom út eins
og kraftlaus tíu manna kór. Þótti
okkur sárt að heyra hversu augljós
munur var á hljómgæðum í þáttum
Reykjavíkurskólanna og okkar úti
á landi. Við viljum fá skýringu hjá
sjónvarpsmönnum á þessu klúðri.
Fyrir hönd nokkurra nemenda
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Kristín Gunnarsdóttir
Lóa Hrönn Harðardóttir
Helena Káradóttir
rEIKNNÉVA^
m