Morgunblaðið - 27.11.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
29
Valur Pálsson
Lauk ein-
leikara-
prófi
á kontra-
bassa
VALUR Pálsson, kontrabas-
saleikari, lauk nú um síðustu
helgi námi og einleikaraprófi
frá Sí
beliusar Akademíu i Helsinki
í Finnlandi.
Valur útskrifaðist frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík árið
1984 og var kennari hans þar
kontrabassaleikarinn Jón Sig-
urðsson, en áður hafði Valur
stundað nám í fíðluleik hjá
Gígju Jóhannesdóttur.
Einleikaratónleikarnir fóru
fram í aðaltónleikasal Akade-
míunnar að viðstaddri próf-
nefnd og námsmönnum
skólans, auk íslendinga sem
fjölmenntu.
Olli Kosonen lektor var aðal-
kennari Vals. Valur útskrifaðist
með hæstu einkunn sem tekin
hefur verið á kontrabassa við
skólann.
Valur hyggst halda tónleika
hér á landi kringum jólin og
honum til aðstoðar verður unn-
usta hans, Mona Sandström frá
Norköbing í Svíþjóð, en hún
hefur einnig lokið einleikara-
prófí í píanóleik frá Akade-
míunni. Þess má geta að bróðir
Vals, Eggert, er að ljúka nú í
vor námi í slagverki frá Tónlist-
arháskólanum í Vínarborg. Þeir
bræður hafa báðir leikið með
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Landsbankinn;
Ráðningar
bankastjóra
ekki ræddar
RÁÐNINGAR nýrra bankastjóra
að Landsbankanum hafa ekki
verið ræddar í bankaráði bank-
ans enn, að sögn Péturs Sigurðs-
sonar formanns ráðsins. Næsti
fundur bankaráðsins er fyrir-
hugaður í byrjun desember og
auk þess eru fyrirhugaðir 2-3
fundir til viðbótar í þeim mánuði.
„Það hafa ýmsar skipulagsbreyt-
ingar verið til umræðu í sambandi
við að á næstunni fer hið besta
fólk frá okkur bæði vegna aldurs
og annara starfa en það er enn á
umræðustigi," sagði Pétur Sigurðs-
son. Hann vildi ekkert segja um
hvort ákvörðun um bankastjóra-
ráðningar yrði tekin á þessu ári.
Landið, sagan ogsögumaríNoirænahúsmu:
Magnúsflytur fyrídestim kvökl
Bókin Landið, sagan og sögumar kemur út í dag. Af því tilefni flytur höfundurinn, Magnús Magnússon,
fyrirlestur í Norræna húsinu í kvöld, föstudaginn 27. nóvember klukkan 20:30.
Fyrirlesturinn ber sama heiti og bókin, Landið, sagan og sögumar. Hann er fluttur á ensku og er að sögn
Magnúsar eins konar könnunarleiðangur um söguna og söguslóðir Islendingasagnanna.
Að fyrirlestrinum loknum mun Magnús árita bókina. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og ölium heimill.
VAKA-HELGAFELL
öflum íslendingum nýjan lykil
að/ortíð þjóðarínnar
LANDIÐ, SAGAN OG SÖGURNAR er nýstárleg og
stórskemmtileg bók eftir Magnús Magnússon, þar sem
nýju og einstaklega lifandi ljósi er varpað á fyrstu aldir
byggðar á íslandi. Hér er fléttað saman sögulegum
fróðleik, efni íslendingasagna, sögnum um íslenska
sögustaði og fólkið sem mótaði söguna. Frásagnargleði
og stíll Magnúsar gerir Iandið, þjóðarsöguna, bók-
menntimar og líf þjóðarinnar í
landinu að einni órofa heild. Á annað
hundrað litmyndir, kort og
teikningar gefa efninu aukna vídd
og bókinni glæstan svip.
FORSETIÍSLANDS,
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR,
ritar inngangsorð bókarinnar og segir þar m.a.:
„Með þessari bók hefúr Magnús Magnússon fært þjóð
sinni góða gjöf sem vonandi á eftir að tendra forvitni í
hugum yngri sem eldri til að lesa meira og kynnast enn
betur hvaðan við erum komin og hvemig til komin,
__ sjálfstæð þjóð meðal þjóða á síðari
% / A b / hluta 20. aldarinnar, - því fortíð
\okkar allra er homsteinn þjóðarinnar
og vegvísir til framtíðar gulli betri
hvetja stund sem líður.“
HELGAFELL
Magnús Magnússon er fæddur í Reykjavík árið 1929. Hann er (slenskur ríkisborgari þrátt fyrir búsetu í Skotlandi frá nfu mánaða aldri. Þessi viðkunni
rithöfundur og sjónvarpsmaður nýtur ekki sfst virðingar fyrir frábæra þætti og ritverk á sviði sagnfræði og fomleifafræði. Hann hefur skrifað tólf bækur
og verið afkastamikill þýðandi íslenskra bókmennta. Fyrstu drög að efni þessarar bókar mótuðust þau sex sumur sem hann var leiðsögumaður
breskra ferðamanna um fslenskar söguslóðir, en frá árinu 1984 hefur Magnús unnið að ritun bókarinnar í samstarfi við Vöku-Helgafell.
etirr
691140
691141
Með einu símtali er hægt að
breyta innheimtuaðferðinni.
Eftir það verða áskriftargjöld
in skuldfærð á viðkomandi
____ VERIÐ VELKOMINI
MZI GREIÐSLUKORTA-
VIÐSKIPTI.