Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.11.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987 27 Sigló hf. selur vél- ar til framleiðslu á gaffalbitum til Hafnar SIGLÓ hf. & Siglufirði hefur selt Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga á Hðfn í Hornafirði vélasam- stæðu sem notuð er til fram- leiðslu á gaffalbitum. Um leið missa um 20 starfsmenn Sigló hf. atvinnuna. Guðmundur Skarphéðinsson framkvæmdastjóri Sigló hf. sagði í samtali við Morgunblaðið að verið væri að endurskipuleggja ýmislegt í fyrirtækinu. Hætt yrði að fram- leiða gaffalbita þar sem sú fram- leiðsla hafí verið rekin með tapi ár hvert. „Okkur hefur ekki tekist að reka þessa framleiðslu með hagnaði og teljum okkur því ekki í stakk búna að halda vinnslunni áfram. Því var ákveðið að selja vélamar. Sigló hefur framleitt 30.000 kassa af gaffalbitum á Rússlandsmarkað og fengust um 46 Bandaríkjadalir fyr- ir kassann. Það er mjög slæmt að þurfa að selja vélamar, sérstaklega vegna starfsfólksins. Pyrirtækið hefur framleitt gaffalbita í 25 ár og við þessa breytingu er nokkmm konum sem unnið hafa við þessa fram- leiðslu allan þann tíma sagt upp störfum. Þetta er mjög erfitt og viðkvæmt fyrir svona stað, en við höfum ekki efni á að framleiða vöm sem gefur engan hagnað." Þegar núverandi eigendur Sigló hf. keyptu fyrirtækið af ríkinu árið 1984 var gaffalbitaframleiðslan vélvædd. Þá var keypt ný sjálfvirk vélasamstæða frá Danmörk. Um leið var starfsfólki fækkað úr 60 í 20 til þess að geta rekið framleiðsl- una með hagnaði. Guðmundur sagði að það hefði ekki nægt, enda væri öflun hráefnis mjög dýr. Sigló hf. rekur einnig rækju- vinnslu og hefur tekið á móti 3000 tonnum af rækju á árinu. Við rækjuvinnsluna starfa milli 40-50 manns. „Við höfum fullan hug á að reka fyrirtækið áfram, en ekki greinar sem reknar em með tapi,“ sagði Guðmundur Skarphéðinsson framkvæmdastjóri. Nýtt listaverkakort HÁSKÓLASJÓÐUR Háskóla ís- lands hefur gefið út listaverka- kort eftir verki i eigu Listasafns Háskóla Islands. Verkið er eftir Snorra Arinbjamar og nefnist „Frá Vestfjörðum". Á undanfömum ámm hefur Há- skólasjóður gefíð út nokkur lista- verkakort eftir verkum í eigu listasafnsins og má þar nefna verk eftir Þorvald Skúlason, Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Hring Jóhannesson og Jóhannes Jóhannes- son. Öll þessi kort em til sölu í aðal- skrifstofu Háskólans og bókabúðum borgarinnar auk þess sem þau em seld beint til stofnana og fyrirtækja. Unglinga- saga frá þjóð- veldisöld SONUR Sigurðar heitir ný íslensk unglingabók eftir Guð- laugu Richter, sem bókaforlag Máls og menningar hefur gefið út. Bókin fjallar um líf unglinga á þjóðveldisöld. I kjmningu frá útgefanda segir: Söguhetjur bókarinnar era tveir strákar, höfðingjasonurinn Þor- steinn og ambáttarsonurinn Gijót- garður. Þótt þeir alist upp á sama bæ er óravegur á milli þeirra. Þor- steinn er fullur af hetjudraumum sem að lokum leiða hann í ógöng- ur, hann verður sekur maður, en Gijótgarður fylgir honum í útlegð. Og þá verður tvísýnt hvor þeirra er meiri hetja. " syni. Bókin er prentuð í Prentsmiðj- Sonur Sigurðar er 102 bls., unni Odda hf. en Teikn hannaði myndskreytt af Þorvaldi Þorsteins- kápu. BREYTING í TOLLAMÁLUM KALLAR Á NÝJA MEÐFERÐ TOLLSKJALA í tilefni breytinga í tollamálum mun Stjórnunarfélag íslands halda námskeið um nýja meðferð tollskjala. Námskeiðin verða í tveimur hlutum: A og B. A-HLUTL Kynningarnámskeið (yfiriitsnámskeið) í nýjungum tollamála. Fjallað er um tollalög, tollverð og tollverðsákvörðun, EUR-reglur, nýjar aðflutningsskýrslur, nýja tollskrá (H:S) o.fl. Mestur tími fer í fræðslu um nýja aðflutningsskýrslu. ÞÁTTAKENDUR: Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem þekkja til tollamála og vinna við tollskýrslugerð. LEIÐBEINENDUR: Guðrún Ásta Sigurðardóttir, lögfræðingur, Karl Garðarsson, viðskiptafræðingur og Sveinbjörn Guðmundsson,deildarstjóri. TÍMIOG STAÐUR: Námskeiðið verðurhaldið þrisvar: 7. og 8. des. kl. 14.00-18.00, 9. og 10. des. kl. 8.30-12.30 og 9. og 10. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15. 4 framhaldsnámskeið, sem skipt er niður eftir vöruflokkum. Nánar verður farið í einstaka flokka nýrrar tollskrár og H:S númerakerfið. 8J MMVÖMR OG KFMÍSK Pl. LEIÐBEINENDUR: Friðjón Margeirsson og Páll Franzson. TÍMI OG STAÐUR: 16. og 17. des. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15. B2 TEXTÍL, SKÓFATNAÐUR OG HÖFUÐFAJNAÐUR. LEIÐBEINANDI: Sveinbjörn Guðmundsson. TÍMIOG STAÐUR: 16. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15. LEIÐBEINENDUR: Reynir Haraldsson og Kristján Halldórs- son. TÍMI OG STAÐUR: 18. og 19. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15. B4 ÝMSAR VÖRUR. LEIÐBEINENDUR: Friðjón Margeirsson, Páll Franzson og Sveinbjörn Guðmundsson. TÍMI OG STAÐUR: 18. og 19. des. kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15. ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ. Stjórnunarfélag Islands ----= Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 P toripit! W 'mfa U> '251% Metsölublað á hverjum degi! co / <■* r\i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.