Morgunblaðið - 27.11.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987
33
Leiðrétt-
ing vegna
vínflösku
HINN 21. nóvember birtist hér í
blaðinu mynd af gríðarstórri
vínflösku og var fyrirsögnin:
„Vínflaska í lagi“. Fréttin, sem
með fylgdi var þó ekki alveg í
lagi, þvi sagt var að þarna væri
um Búrgundavín að ræða. Hið
rétta er að umrædd flaska var
ætluð til auglýsingar á vini frá
Bordeaux.
Það var glöggur lesandi blaðsins,
sem vakti athygli á þessum mistök-
um og benti meðal annars á að
höllin, sem að baki flöskunni stend-
ur, Chateau de Louviére, er ekki í
Búrgundalandi heldur í Bordeaux.
Sem áhugamaður um góð vín benti
hann aukin heldur á lag flöskunn-
ar, sem sýndi svo ekki yrði um
villst, að hún væri frá Bordeaux
komin.
Mistök þessi leiðréttast hér með.
Færeyjar:
Ræðar-
inn Ove
Joensen
drukknar
Þórshöfn í Fœreyjum, frá Snorra Halld-
órssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FÆREYSKA sækempan Ove Jo-
ensen, sem í fyrrasumar reri milli
Færeyja og Kaupmannahafnar,
fannst í gær drukknaður á Skála-
firði. Síðdegis á þriðjudag fréttist
það síðast til Ove að hann hygðist
róa i blíðviðrinu áleiðis frá Glyvr-
um á Skálafirði til heimabyggðar
sinnar f Nólsey. Þangað hringdi
hann og bað mann koma á móti
sér í vélbát. Síðan spurðist ekkert
til róðrarkappans.
Þegar klukkan var orðin níu um
kvöldið og maðurinn á vélbátnum
hafði hvorki fundið tangur né tetur
af Ove eða bát hans Díönu Victoríu,
sem Ove notaði við róðurinn til Dan-
merkur, hafði hann samband við land
og leit hófst. Seinna um kvöldið
skýrði maður nokkur frá því að hann
hafi séð bát úti á firðinum, sem hann
hafði talið liggja við veiðar. Við eftir-
grennslan kom í ljós að þetta var
Díana Victoría, en án Ove Joensen
og lágu áramar úti.
Leitinni að Ove var haldið áfram
og um hádegisbilið í gær fannst líkið
um 200 m frá landi. Engin váibend-
ing hefur fundist um hvað olli
drukknun róðrarkappans.
Ove Joensen gat sér frægð í fyrra-
sumar, þegar hann vann það þrek-
virki að róa einn síns liðs frá
Færeyjum til Kaupmannahafnar.
Eftir það var hann aldrei nefndur
annað en sæhetjan Ove heima í
Færeyjum.
Ove Joensen.
Reuter
ÁRANGURSLAUS RÁÐHERRAFUNDUR
Á myndinni má sjá frá landbúnaðarráðherra írlands, Vestur-
Þýskalands og Belgíu á fundi í Briissel í vikunni. Landbúnaðar-
ráðherrar Evrópubandalagsríkja komust ekki að samkomulagi
um minni styrki til landbúnaðar. Bandalagið er nú í mikinm
fjárhagserfiðleikum og hætt er við að landbúnaðurinn gleypi
stóran hluta fjármagns þess ef leiðtogafundur Evrópubanda-
lagsríkja í Kaupmannahöfn í næstu viku ber heldur ekki
árangur.
Kína:
Zhao hvetur til kerfis-
umbóta úr ræðustóli
Peking, Reuter.
ZHAO Ziynag, leiðtogi kínverska
kommúnistaflokksins, hvatti í
október síðastliðnum til póli-
tískra umbóta, en ræðan var
fyrst birt opinberlega í gær.
Forsíða Dagblaðs alþýðunnar var
að mestu lögð undir ræðu Zhaos,
en í henni gagnrýndi hann ákaf-
lega á skrifræðið, sem hann
sagði allt ætla að kæfa og lagði
áhersiu á að flokkurinn hætti að
skipta sér af hversdagsmálefn-
um ríkisins og iðnaðarins.
Zhao sagði nefndir og ráð flokks-
ins hafa sökkt sér í stjómunarstörf
með þeim afleiðingum að á hans
vegum þyrfti her manns til skrif-
stofu- og stjómunarstarfa og sagði
hann þetta bæði hafa bitnað á
flokknum og ríkinu. Aðskilnað ríkis
og flokks sagði hann vera homstein
pólitískra umbóta í Kína.
Ræðan var haldin á fundi mið-
stjómar flokksins hinn 14. október,
en var ekki birt fyrr en í gær. I
henni sagði Zhao, sem var kjörinn
aðalritari flokksins 2. nóvember, að
mannkynssagan hefði ekki stöðvast
við kommúnistabyltinguna 1949 og
bætti við að fjöldahreyfingar og
miðstýring ættu ekki lengur við
framfarasókn Kínveija.
Að sögn erlendra stjómarerind-
reka ér ráðdeild í efnahagsmálum
Mitterrand býð-
ur Goria þátttöku
í varnarsamstarfi
Napólí á Ítalíu, Reuter.
FRÁNCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, bauð ítölum að taka
þátt í sameiginlegu varnar- og öryggissamstarfi Frakka og
Vestur-Þjóðverja. Forsetinn hefur einnig gefið í skyn að Spáni
verði einnig boðið að taka þátt í þessu samstarfi.
Talsmaður Frakklandsforseta,
Michele Gendreau-Massaloux,
sagði að forsetinn hefði sagt á
fundi sínum með Giovanni Goria,
forsætisráðherra Ítalíu, að eðli-
legt væri að öllum Evrópuþjóðum
væri gefinn kostur á að taka
þátt í þessu vamarsamstarfi.
Sagði talsmaður forsetans að
hann hefði lagt ríka áherslu á
það við Goria að fyrirhuguð
fransk-þýsk herdeild, sem Mitter-
rand og Helmuth Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, hefðu samið
um fyrr í þessum manuði, væri
ekki ætluð til þess að einangra
Frakkland og Þýskaland frá öðr-
um þjóðum í Vestur-Evrópu.
Goria tók vel í þetta tilboð for-
seta að sögn talsmanns Frakk-
landsforseta.
þjóðarinnar aðalbaráttumál Zhaos.
Hins vegar kann það að reynast
honum erfitt að fækka í embættis-
mannaliði flokksfns, því vafasamt
er að takist að flnna þeim vinnu
þar sem hæfíleikar þeirra nýtast
betur. Stjómarerindrekamir sögðu
að slíkar ráðstafanir myndu vafa-
laust gera efnahagslífíð léttara í
vöfum, en bættu við að allir hátt-
settir embættismenn og stjómendur
fyrirtækja væru hvort eð er í
flokknum, svo áhrif kommúnista-
flokksins myndu lítt eða ekki
minnka.
Zhao viðurkenndi að ekki væri
einhugur um fyrirhugaðar breyt-
ingar, en átaldi um leið þröngsýna
embættismenn, sem „sætu á aftur-
endanum fastir í viðjum vanaverka
hversdagsins."
Rigning í Róm
Reuter
Róm, AP.
MIKIÐ úrhelli var á Suður-ítaliu i gær. í Róm varð að loka flug-
vellinum vegna rigningar og áin Tíber flæddi yfir bakka sína.
Börn komust ekki heim til sin eftir skóla vegna vatnselgs á götum.
Veðurstofan í Róm mældi 50 millimetra úrkomu í gær, en úrkoma
síðustu fjögurra daga hefur mælst 110 millimetrar (samkvæmt upplýs-
ingum Veðurstofunnar er meðalársúrkoma í Reykjavík um 800
millimetrar). Áin Tíber flæddi yfir bakka sína og mest mældist 1,5
metra vatnsborð á götum í suðurhlutum borgarinnar. Eldingum sló
víða niður og meðal annars særðist 17 ára piltur er elding laust hann.