Morgunblaðið - 14.04.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 14.04.1988, Síða 2
MORGUNBLAÐBÐ, FIMMTUDAGtJR 14. APRÍL 1988 Sérstakur sendiherra í afvopn- unarmálum HJÁLMAR W. Hannesson hefur verið skipaður sérstakur sendi- herra til að fara með afvopnun- armál og sinna málefnum Ráð- stefnunnar um öryggi og sam- vinnu í Evrópu (RÖSE), en þriðji framhaldsfundur hennar stend- ur nú yfir í Vín. Forseti íslands skipaði Hjálmar í sendiherrastöðuna frá 1. apríl að telja, að tillögu Steingríms Her- mannssonar, utanríkisráðherra. Hjálmar lauk MA-prófí í stjóm- málafræði frá ríkisháskóla Norður- Karólínu í Chapel Hill í Banda- ríkjunum. Hann hefur starfað í ut- anríkisþjónustunni frá 1. janúar 1976. Samgönguráðherra: Ferðaskrif- stofa ríkisins seld starfsfólki Frá fundi verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyjum. Morgunbladið/Sigurgeir MATTHÍAS Á. Mathiesen, sam- gönguráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um sölu á Ferðaskrifstofu rfldsins. Stefnt er að þvi að selja starfsfólki ferðaskrifstofunnar þá 2/s hluta- fjárins sem seldir verða. Ferðaskrifstofa ríkisins hafði áð- ur fyrr einkaleyfí til rekstrar ferða- skrífstofu og naut þeirra sérrétt- inda, a.m.k. að nafninu til, fram til ársins 1964. Meginþættir starfsemi hennar em nú fímm. í fyrsta lagi fyrirgreiðsla við skipulag utan- landsferða ríkisstarfsmanna, í öðm lagi rekstur hópferða, í þriðja lagi kynning á ferðum ánnarra ferða- skrifstofa, í fjórða lagi rekstur sum- arhótela og t fímmta lagi að und- irbúa og annast ráðstefnur. í greinargerð segir að verði frum- varpið að lögum muni þegar heflast viðræður við starfsfólk Ferðaskrif- stofunnar um kaup á 2/s hlutaQár- ins. Segir að sú leið að selja starfs- fólki hafí áður verið farin við sölu ríkisfyrirtækja og gefist vel. Þá beri einnig að lfta á það að í gild- andi lögum um skipulag ferðamála séu starfsfólki gefín fyrirheit um að gerast eignaraðilar að Ferða- skrifstofu ríkisins þótt það ákvæði hafí ekki komið til framkvæmda. Óánægja með laimaliði réð úrslitum í Eyjum - segir Vilborg Þorsteinsdóttir formaður Snótar VeHtmannaeyjum. Fr& Huga Ólafssyiii KlnSamnnni Morjfunbladsins. Akureyrarsamningamir voru felldir á sameiginlegum fundi Verkalýðsfélags Vestmannaeyja og Verkakvennaf élagsins Snótar i Alþýðuhúsinu í Eyjum í gær með 150 atkvæðum gegn 106, en 6 seðlar voru auðir og ógildir. Ekki hafa verið ákveðnar frek- ari aðgerðir af hálfu félaganna í kjölfarið á þessari niðurstöðu, en ljóst er að yfirvinnubann Verkalýðsfélags Vestmannaeyja mun halda áfram. Fullt var út úr dyrum meðan á fundinum stóð en alls munu um 500 manns inn- an félaganna tveggja starfa við Breytingartillaga við bjórfrumvarpið: Borið undir þjóðar- atkvæði í ágúst FJÓRIR þingmenn lögðu I gær fram breytingartillögu við „bjór- frumvarpið" þess efnis að lögin tslri gildi 1. júlí 1989 ef þau hafi hlotið samþykki meirihluta þeirra er þátt taka í almennri þjóðarat- kvæðagreiðslu er fram myndi fara Iaugardaginn 27. ágúst 1988. Þingmennimir _sem flytja tillög- una eru þau Ámi Gunnarsson (A/Ne), Ragnar Amalds (Abl/Nv), Níels Ami Lund (F/Rn) og Þórhildur Þorieifsdóttir (K/R). Steftit hafði verið að því að ljúka þriðju umræðu um bjórfrumvarpið I neðri deild í gær. Seint í gærkvöldi kom upp sú staða að tvær breyting- artillögur höfðu verið lagðar fram um daginn en afbrigða verið leitað um hvoruga þeirra. Ekki voru nógu margir þingmenn í húsinu til þess að leita afbrigða en til þess þarf helming þingdeildarinnar. Tillögum- ar hefðu þvf ekki getað komið til atkvæða ef umræðu hefði verið lok- ið þar sem samkvæmt þirigsköpum þarf að leggja þær fram sólarhring áður en umræðu lýkur eða leita af- brigða ella. Eftir stutt fundarhlé var ákveðið að fresta umræðunni en halda henni áfram að loknum fundi f sameinuðu þingi í dag. Sjá frásögn á þingsíðu bls. 37. fiskvinnslu. Vilborg Þorsteinsdóttir, for- maður Snótar, sagði að ekki væri vafí á því að óánægja með launaliði Akureyrarsamninganna hefði ráðið úrslitum. „Við höfum heimild til verkfallsboðunar en sögðum á fund- inum að við myndum hafa samband við okkar fólk á vinnustöðunum á næstu dögum áður en frekari að- gerðir verða ákveðnar." Aðspurð sagðist Vilborg ekki geta sagt hvort fólk væri tilbúið í harðar aðgerðir, en hægt væri að grípa til annarra aðgerða en verkfalls. Hún sagði að fyrst yrði að tilkynna ríkissátta- semjara þessa niðurstöðu og bíða eftir ákvörðun hans í framhaldi af því. „Við erum í erfiðri aðstöðu en það er ljóst af úrslitunum að það er engan bilbug að finna á fólk- inu,“ sagði Jón Kjartansson formað- ur Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. „Ég tel að við séum alveg samnings- laus nú og það er spuming hvort við eigum ekki að fara út f upp- boðsmarkað á vinnuafli." Jón sagði að það væri ekki óhjákvæmilegt að verkfall yrði boðað fljótlega. Hann sagðist ekki geta sagt neitt um frekari aðgerðir á þessari stundu, slíkt væri mál stjómar og trúnaðar- ráðs Verkalýðsfélagsins, sem ekki hefðu enn verið kölluð saman. Atvinnurekendur í Eyjum héldu fund í gærkvöldi vegna úrslita at- kvæðagreiðslunnar. Eyjólfur Mart- insson, framkvæmdastjóri ísfélags Vestmannaeyja, sagðist ekki gera sér grein fyrir hvaða afleiðingu þessi niðurstaða hefði en ljóst að upp væri komin afleit staða. Mikill skilningnr á hagsmunum okkar - sagði Steingrímur Hermannsson eftir viðræður við William Ball, flota- málaráðherra Bandaríkjanna Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Washington. STEINGRÍMUR Hermannsson Morgunblaðið að utanríkisráðherra ræddi í gær við William Ball, flotamálaráð- herra Bandaríkjanna, um sam- eiginleg hagsmunamál ríkjanna. Ráðherrann sagði í samtali við Siglufjarðartogarar selja afla sinn í Hafnarfirði Minnkandi áhugi á yfirvinnu vegna staðgreiðslu skatta MJÖG góður þorskafli er nú þjá togurum fyrir norðan land. Land- burður hefur þvl verið af flsld f Siglufirði að undanfömu og erfltt um vik að vinna «11»»» afla, sem að landi berst. Ástæður eru ýms- ar, svo sem minni hraði á afskip- iiniim á saltfiski osr minnkandi áhugi fólks á yflrvinnu í kjölfar staðgreiðslu skatta. Vegna þessa, meðal annars, munu tveir togarar Þormóðs ranuna se(ja afla sinn á Fis kmarkaðn um hf. f Hafnarflrði. Stapavflán kom inn til SigluQarðar f vikunni með 115 tonn af þorski eftir 5 daga veiðiferð. Stálvíkin selur f Hafnarfirði I dag og Sigiuvik á þríðjudag. Bæði skipin eru að mestu með karfa og ufsa. Róbert Guðfínnsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma, sagði f samtali við Morgunblaðið, að mikið af físki hefði borizt að á undanföm- um vikum. Talsvert af honum hefði farið f tandurverkun á saltfiski, en þar sem hægt hefði veríð á afskipun- um, væri ekki lengur hægt að tand- urvinna fiskinn. Fullstaðinn fiskur tæki lengri tíma f vinnu og þvf ekki hægt að taka við eins miklu af físki til söltunar. Framundan væri mikil vinna við umstöflun og fleira. Þvi hefði sú ákvörðun verið tekin að láta skipin tvö selja afla sinn f Hafnar- firði. Með því ynnist næði til að ganga frá saltfiskinum að miklu leyti áður en grálúðutömin byijaðL Húsið væri sérhæft fyrir þorskvinnslu, en ufsi og karfi væri uppistaðan f afla Stálvíkur og Sigluvíkur og að auki væri hægt að halda uppi nægrí vinnu f frystihúsinu við þorskinn af Stapavíkinni. Róbert sagði einnig, að með stað- greiðslu skatta hefði áhugi fólks & yfírvinnu greinilega minnkað og það drægi úr afkastagetunni. Þar að auki væri afkoman I frystingunni það slæm, að húsinu væri enginn akkur f þvf að borga yfírvinnu fyrir vinnu við fisk, sem tap væri á að framleiða. viðræðunum loknum, sem fram fóru í skrif- stofu flotamálaráðherrans f Pentagon — höfuðstöðvum varn- armálaráðuneytis Banda- ríkjanna — að hann teldi þær hafa verið mjög nytsamlegar og að skilningur beggja á afstöðu hins hefði aukist. Viðræður ráðherranna snem fyrst og fremst að öryggismálefn- um rfkjanna og vamarliðinu í Keflavík. Bar olíulekann og áhuga íslendinga á að Njarðvík verði áfram aðalhöfn hersins meðal ann- ars á góma. Þá var rætt um manna- hald vamarliðsins, en til stendur að fækka borgaralegum starfs- mönnum þess. Lagði Steingrímur áherslu á, að fyrst yrði fækkað aðsendu starfsliði að vestan áður en til uppsagna íslendinga kæmi. f samtali við Morgunblaðið sagði ráðherra að sér hefði fundist að hinn ungi flotamálaráðherra hefði ríkan skilning á hagsmunamálum íslendinga. Flotamálaráðherrann hefði sett sig furðu vel inn í fs- lenskar aðstæður og þau mál, sem efst væm á baugi. í dag mun Steingrímur ræða við John Whitehead, aðstoðamtanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sem gegn- ir starfí utanríkisráðherra f flarvem George Shultz. Steingrímur heldur heimleiðis í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.