Morgunblaðið - 14.04.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.04.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1988 35 „ísland- slag“ eft- ir Svavar Guðna- son. Mynd mánaðarins í Listasafni Islands í Listasafni íslands er kynnt vikulega „Mynd mánaðarins". Fjailað er ítarlega um eitt verk í eigu safnsins svo og höfund þess. Mynd aprílmánaðar er íslandslag eftir Svavar Guðnason, olíumálverk frá árinu 1944. Málverkið var keypt til safnsins árið 1946. Leiðsögnin „Mynd mánaðarins“ fer fram í fylgd sérfræðings alla fimmtudaga kl. 13.30—13.45 og er safnast saman í anddyri safnsins. (Fréttatilkynning) Þijár bifreiðar skemmd- ust í hörðum árekstri ÞRJÁR bifreiðar skemmdust mikið í óhappi í Reykjavík í gær. Tvær þeirra skullu saman, en sú þriðja skemmdist þegar götuviti, Heimild til verkfalls- boðunar STJÓRN og trúnaðarmannar- áð Félags íslenskra kjötiðnað- armanna hefur nú fengið heimild til verkfallsboðunar. Fyrirhugaðir eru fundir hjá félaginu í næstu viku um samn- ingamálin. sem varð fyrir barðinu á annarri hinna bifreiðanna, bognaði niður í þak hennar. Lítíl meiðsli urðu á fólki. Óhappið varð í hádeginu í gær, á gatnamótunum þar sem skerast Elliðavogur, Kleppsmýrarvegur og Skeiðarvogur. Amerískri bifreið var ekið norður Elliðavog og inn á gatnamótin. Þá kom að önnur bif- reið, sem var ekið upp, eða suður, Kleppsmýrarveg og áfram yfír gatnamótin. Bifreiðarnar tvær skullu saman af miklu afli. Ameríska bifreiðin kastaðist á götu- vita, sem bognaði og gekk niður í þak bifreiðar, sem var kyrrstæð við gatnamótin. Bifreiðamar þijár skemmdust allar mikið. Tveir voru fluttir á slysadeild, en meiðsli þeirra reyndust ekki al- varleg. Akureyrarsainmngariiir samþykktir víðast hvar Akureyrarsamningamir svokölluðu hafa nú verið bornir upp og samþykktir í flestum þeim félögum sem þátt tóku í viðræðun- um á Akureyri. Alls er hér um að ræða 36 félög og hér á eftir fer listí yfir þau félög sem ekki hefur þegar verið getið, ásamt atkvæðatölum þar sem þær fengust. Verkalýðsfélag Borgamess samþykkti með 81 atkvæði gegn 57, Verkalýðsfélag Austur-Hún- vetninga með 22 atkvæðum gegn 7, Verkakvennafélagið Aldan á Sauðárkróki 35-2, Verkamanna- félagið Fram á Sauðárkróki 32-2, Vaka á Siglufírði 30-0, Verka- lýðsfélag Vopnafjarðar 58-35, Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs, samhljóða, Verkalýðsfélag Bakkafjarðar, samhljóða, Verka- lýðsfélag Reyðarfjarðar 8-6, Verkalýðsfélag Fáskrúðsfjarðar, samhljóða, og Verkalýðsfélag Breiðdælinga 17-3. Önnur félög sem samþykktu og ekki hefur verið áður getið í fréttum em: Afturelding á Helliss- andi, Stjaman í Grundarfirði, Verkalýðsfélag Hólmavíkur, Verkalýðsfélag Hrútfírðinga, Verkalýðsfélag Skagastrandar, Verkalýðsfélag Borgarfjarðar Eystra, Fram á Seyðisfírði, Verkalýðsfélag Stöðvarfjarðar, og Verkalýðsfélag Djúpavogs. Bjarmi á Stokkseyri mun enn eiga í samningaviðræðum við at- vinnurekendur á staðnum. Morgunblaðið/Ingólfur Friðgeireson Hrafnkell A. Jónsson, formaður Verkamannafé- lagsins Árvakurs á Eskifirði, sést hér kynna Akureyrarsamningana á vinnustaðafundi hjá Fiskverkun Þórs hf., en Árvakur samþykkti samningana fyrir páska. Atkvæði greidd um Akureyrarsamningana hjá Fiskverkun Þórs á Eskifirði. Tveggja daga leyni- leg atkvæðagreiðsla fór fram hjá Árvakri, eins og svo mörgum öðrum verkalýðsfélögum. Fiskmarkaðir: Sama verð fyrir ufsa í Reykjavík og Bretlandi Breki VE fékk hátt verð á Faxamarkaði VERÐ á ferskum ufsa var í gær nánast það sama á Faxamarkaðn- um í Reykjavík og brezku fisk- mörkuðunum í Hull og Grimsby. Breki VE fékk að meðaltali 27,44 krónur fyrir ufsann í Reykjavík, en i Bretlandi fór gámaufsinn að meðaltali á 28,19. Kostnaður við söluna hér heima er nálægt 5% af uppboðsverði, en við sölu gámafisks erlendis má reikna með allt að 25 króna kostnaði á hvert kíló sé allt meðtalið, kostn- aður, þyngdarrýrnun og kvóta- kerðing. Verð á ufsa í Þýzka- landi var yfir 44 krónur í gær. Skýrsla menntamálaráðherra um Tangen-málið: Skýrslan pöntuð til að klekkja á fréttastofunni - segir Kári Jónasson, fréttastjóri Útvarps „ÞAÐ er f upphafi rétt að menn hafi f huga að þessi skýrsla virðist beinlínis pöntuð til að klekkja á Fréttastofu Útvarps vegna Tangen- málsins, þvf þegar óskað var eftír skýrslunni lágu staðreyndir málsins fyrir, fréttastofan var búin að viðurkenna að gerð hefðu verið mistök og beðist var afsökunar á því,“ sagði Kári Jónasson, fréttastjóri Út- varps, er hann var inntur álits á skýrslu menntamálaráðherra um svokallað Tangen-mál. Skýrsla þessi var lögð fram á Alþingi á þriðju- dag. Menntamálaráðherra fór þess á leit við dr. Þór Whitehead að hann legði mat á skjöl þau um samskipti íslenskra og bandarískra stjóm- valda, sem gerð voru að umtalsefni í fréttum og fréttatengdum þáttum Ríkisútvarpsins. „Við fyrsta yfirlest- ur skýrslu menntamálaráðherra kemur í ljós að þar eru engar nýjar staðreyndir um málið, heldur safnað saman á cinn stað fréttapistlum og álitsgerðum um þetta margumrædda mál, sem getur verið gott út af fyr- ir sig,“ sagði Kári Jónasson. „í skýrslunni er álitsgerð doktors Þórs Whitehead, sem æðsti yfírmaður Ríkisútvarpsins hefur fengið til að strá salti í sárin, því varla er það tilviljun að ekki er leitað til neins annars. Ég held að í annan tíma hafi ekki verið gert meira veður út af frétt, en þeirri sem hér um ræð- ir, og fínnst mörgum mælirinn vera orðinn fullur fyrir löngu." Kári sagði, að í upphafi skýrslu menntamálaráðherra sé því slegið föstu, að trúnaðarbrestur hafí orðið milli Ríkisútvarpsins og hlustenda vegna þessa máls. „Hlustendur verða auðvitað að svara því hver fyrir sig, en óneitanlega skýtur það nokkuð skökku við að það skuli vera sjálfur menntamálaráðherra sem heldur þessu fram og er með þessu að grafa undan því trausti sem ríkt hefur og ríkir vonandi enn milli Fréttastofu Útvarps og hlustenda," sagði hann. Kári sagði, að í álitsgerð dr. Þórs Whitehead, sagnfræðiprófessors, væri málið rakið frá því fréttin birt- ist 9. nóvember 1987, og það vekti óneitanlega nokkra athygli í upphafí að ekki komi fram í álitsgerðinni að hann hafí talað við aðalmanninn í þessu máli, Norðmanninn Dag Tang- en. „Doktor Þór dvelur lengi í álits- gerð sinni við umræður i Dagskrá á Rás tvö síðdegis 10. nóvember, og heldur svo áfram að rekja fréttir af þessu máli í Útvarpinu og segir frá lokum málsins, þegar fréttaritari útvarpsins í Bandaríkjunum greindi frá því 13. nóvember að í Truman- safninu sé ekkert um að Stefán Jó- hann Stefánsson hafí hitt starfs- menn Leyniþjónustu Bandaríkjanna eða sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík reglulega. Þá rekur hann þegar skýrt er frá því í „Kvöldfrétt- um“ að fréttir um náin samskipti Stefáns Jóhanns og bandarísku leyniþjónustunnar hafí rejmst úr lausu lofti gripnar og Fréttastofan harmar að heimild, sem hún hafði ekki ástæðu til að véfengja, skyldi reynast ótraust. Eftir að hafa þann- ig rakið gang málsins í Útvarpinu og lagt út frá þvf á ýmsa vegu seg- ir doktor Þór svo í upphafí sjötta kafla álitsgerðar sinnar að málið sé „í eðli sínu svikamál", upphafsmað- urinn sé Tangen og er ekki hægt að skilja orð sagnfræðiprófessorsins öðru vísi en svo, að fréttamenn hafi tekið þátt í þessu „svikamáli". Þess- ari kenningu doktors Þórs vísa ég algjörlega á bug, fréttamenn Út- varps stóðu hér ekki að neinu „svika- máli“, Tangen var heimildin sem brást.“ Kári sagði, að í niðurlagi álitgerð- arinnar segði sagnfræðiprófessorinn svo, að líta eigi á umdeild sagnfræði- leg viðfangsefni frá fleiri en einni hlið, en álitsgerðin beri ekki með sér að hann hafí haft þetta heilræði sitt að leiðarljósi þegar hann samdi hana. „Ég ætla þó ekki að fara út f sagnfræðilegar deilur við hann um þau efni,“ sagði Kári. „Síðustu orð sagnfræðiprófessorsins í álitsgerð- inni koma svo eins og skrattinn úr sauðaleggnum, þar sem hann talar um að útvarpsmenn „fínni stjóm- málaskoðunum sínum vettvang utan fréttatíma." í fyrsta lagi er mér ekki kunnugt um að fréttamenn hafi verið að viðra stjómmálaskoð- anir sfnar í fréttum og f öðru lagi bendir hann ekki á neitt í fréttum Útvarps af þessu máli, orðum sinum' til stuðnings," sagði Kári Jónasson, fréttastjóri utvarps, að lokum. Verð á ýsu er lágt í Bretlandi vegna mikils framboðs. Þorskverð h'efur hækkað um allt að 30 krónur á kíló frá því í síðustu viku er fram- boð umfram eftirspum dró það níður í rúmar 40 krónur á kíló. Breki seldi alls 146,2 tonn fyrir 4,7 milljónir króna í Reykjavík í gær. Meðalverð var 32,05. 72 tonn af karfa fóru að meðaltali á 27,11, 44 af ufsa á 27,44, 23,5 af ýsu á 51,45 og 5 af þorski á 44,63. Á sama tíma voru seld 304 tonn úr gámum héðan í Hull og Grimsby. Heildarverð var 17,2 milljónir króna, meðalverð 56,37. 55 tonn af þorski fóm að meðaltali á 74,81, 138 af ýsu á 58,67, 73 af kola á 45,343 og 21 af ufsa á 28,19. Þá seldi Sólberg ÓF 105 tonn af 155 í Grimsby. Aflinn var að mestu þorskur og fór á 7,2 milljónir króna, meðalverð 69,02. Hermann Kr. Jónsson, starfs- maður Samtogs í Vestmannaeyjum, sem gerir Breka út, sagði í samtali við Morgunblaðið, að verðið fyrir fískinn úr Breka hefði verið heldur hærra en búizt hefði verið við. Auk þess sem selt hefði verið á Faxa- markaðnum hefði karfí af Breka verið settur í fjóra gáma til sölu í Þýzkalandi. Miðað við verðið hér heima, þyrftu því að minnsta kosti að fást rúmar 50 krónur fyrir hvert kíló ytra svo jafnt væri. Þá mætti benda á það, að um leið og selt hefði verið úr Breka hefði verið selt úr tveimur gámum frá Samtogi í Bretlandi, mest ýsa og þorskur. Meðalverð úr gámunum hefði verið 58,93, sem nægði ekki til að skila sama meðalverði heim og fískurinn, sem seldur var á Faxamarkaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.