Morgunblaðið - 14.04.1988, Page 62

Morgunblaðið - 14.04.1988, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1988 KNATTSPYRNA Lárus Guðmundsson aftur til liðs við Víkinga Tíu ársíðan Lárus lék sinn fyrsta leik með Víkingsliðinu í 1. deild VÍKINGAR hafa fengið öflugan liðsstyrk. Lárus Guðmunds- son, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, ákvað í gœr að ganga til liðs við sitt gamla fólag. Það eru nú liðin tíu ár síðan Lárus lék sinn fyrsta leik með Vfking- um í 1. deildarkeppninni. Lárus var með íslandsmeistaraliði Víkings 1981, en síðan hált hann út ÍVfking og herjaði með Waterschei í Belgíu og síðan Bayer Uerdingen og Kaisers- lautern í V-Þýskalandi. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um það, að Lárus, sem er mikill markaskorari, kemur til með að styrkja Víkingsliðið mikið. að verður gaman að koma aft- ur heim og leika með Víkingi. Ég tel að þar hafí verið mest þörf fyrir krafta mína og ég vona að ég geti miðlað reynslu minni til hinna ungu leikmanna félagsins. Það er hörð keppni framundan í 1. deild. Aðalverkefni okkar er að forðast botninn. Með því að komast sem lengst frá botninum, þá komust við sem næst toppnum," sagði Lárus. Hétt út sem meistari og msrfcakóngur Þegar Lárus hélt til Belgíu 1981, fór hann út sem markakóngur 1. deildar, skoraði 12 mörk eins og Sigurlás Þorleifsson, Vestmanna- eyjum. Hefur Lárus hug á að endur- heimta markakóngstitilinn? „Ég mun að sjálfsögðu reyna að skora sem flest mörk. Knattspyman er ekki einleikur, heldur byggist leik- urinn upp á samvinnu leikmanna. Ég er opnari heldur en hér um árið og mun kappkosta að leggja upp marktækifæri fyrir meðspilara rnína." „Ég veit að það verður mikil pressa á mér og allir vamarmenn munu kappkosta að koma í veg fyrir að ég fái að leika lausum hala,“ sagði Láms, sem mun leika fyrsta eða annan leik Víkinga í 1. deildinni, gegn ÍBK í Keflavík 15. maí eða gegn KA í Reykjavík 21. maí. Lárus hefur skorað 21 mark í 1. deildarkeppninni. Hann skoraði sitt fyrsta mark gegn FH á Kaplakrika- vellinum 1978, 3:3. Lárus náði einu sinni að skora þrennu, þijú mörk I leik. Það var í leik gegn Val, 3:2, 1981. Þess má geta til gamans að aðeins tveir leikmenn Víkingsliðsins nú, léku með Lárusi í meistaraliðinu 1981. Það em þeir Þórður Marels- son og Jóhann Þorvarðarson. KNATTSPYRNA / SVISS Sigurður skoraði gegn Grasshopper SIGURÐUR Grétarsson kom Luzern á bragöið þegar fálagið vann Grasshopper, 2:1, í úrslitakeppninni f Sviss, á þriðjudagskvöldið. Sigurður skoraði mark sitt eftir horn- opyrnu á 15. mín. leiksins. „Ég fákk knöttinn eftir hornspyrnu og poppaði honum í netið af stuttu fœri,“ sagði Sigurður. Við eigum góðan möguleika á að tryggja okkur UEFA-sæti næsta keppnistímabil," sagði Sig- urður. Luzem á nú eftir níu leiki. Neuchatel Xamax er efst í úrslita- keppninni, með 25 stig. Aarua er með 21, Grasshopper 20 og þá koma Servette og Lucem með 18 stig. Luzem á einn leik til góða. „Liðin sem verða í öðm og þriðja sæti tryggja sér UEFA-farseðil- inn,“ sagði Sigurður. .. ■■ ' r m i ' Reuter Lárus Guðmundsson sést hér vera búinn að leika á Norðmanninn Hans Hermann Henriksen f landsleik f Osló. Lárus Guðmundsson Lárus Guðmundsson HFæddur: 12. desember 1961 Víkingur iHæð: 1.87 m Þyngd: 80 kg iLandsleikir: 17 HEiginkona: Ása Baldursdóttir iTitlar: ísiandsmeistari 1981, iBarn: Linda Björk (sextán Bikarmeistari f Belgfu með Wat- mánaða) erschei 1982, Bikarmeistari í V- iFélög: Víkingur, Waterechei, Þýskalandi með Bayer Uerdingen Bayer Uerdingan, Kaiserelautem, 1985 KNATTSPYRNA Guðni á heimleið GUÐNI Bergsson, lands- liðsmiövöröur í knattspyrnu, sem hefur œft og leikiö meA 1880 MUnchen ÍV-Þýskalandi, kemur heim í dag. Gengið hefur verið frá félagas- skiptum Guðna, sem verður löglegur með Valsliðinu gegn Fram í fyreta leik 1. deildarkeppninnar, 15. maí. Guðni kemur heim reynsl- unni rfkari og í góðri æfíngu. Hann mun stjóma vamarleik Vals í sum- ar, eins og hann gerði sl. keppn- istímabil - eins og herforingi. Ragnar Margeirsson var einnig hjá 1860 Munchen. Hann kom heim fyrir viku og lék sinn fyreta leik með Keflavík í Litlu-bikarkeppninni um sl. helgi. Tilraun forráðamanna 1860 Miinc- hen, að tryggja sér sæti í 2. deildar- keppninni í V-Þýskalandi, gekk ekki upp. T- KNATTSPYRNA / ÓLYÍVIPÍUyÐIÐ Atta Framarar í 22 leikmanna hópi Endanlegur 16 manna hópur tilkynntur í næstu viku SIEGFRIED Held, landsliAs- þjálfari í knattspyrnu, hefur valiA 22 leikmenn til aA taka þátt í undirbúningnum fyrir ólympfulandsleikina gegn Hollandi og Austur-Þýska- landi, sem fara fram ytra f lok mánaAarins. Alaugardagsmorgun verður æfing hjá hópnum undir stjóm Guðna Kjartanssonar, en Held kemur til landsins eftir há- degi sama dag. Að sögn Gunnare Sigurðssonar, formanns ólympíu- nefiidar KSÍ, valdi Held 22 leik- menn, en endanlegur 16 manna hópur verður tilkynntur f næstu viku. Eftirtaldir leikmenn voru valdir Markverðir: Friðrik Friðriksson, B1903, Guðmundur Hreiðarsson, Víkingi. Framaramir Birkir Krfstinsson, Guðmundur Steinsson, Þoreteinn Þoreteinsson, Kristján Jónsson, Kristinn Jónsson, Viðar Þorkels- son, Pétur Amþóreson og Ormarr örlygsson. Þorvaldur Oriygsson, KA, Halldór Áskelsson, Þór, Valsmennimir Ingvar Guðmundsson, Valur Vals- son og Guðni Bergsson, KR- ingamir Ágúst Már Jónsson og Rúnar Kristinsson, Skagamenn- imir Heimir Guðmundsson og Ól- afur Þórðarson, Sveinbjöm Há- konareon, Stjömunni, og Guð- mundur Torfason, Winterslag. Landsliðið heldur til Hollands sunnudaginn 24. apríl, leikur gegn Holiendingum 27. apríl og gegn Austur-þjóðvetjum 30. apríl. KNATTSPYRNA Ómarog Sævar til Búdapest Omar Torfason, sem leikur með Olten og Sævar Jónsson, sem leikur með Solothum í Sviss, kom- ast í vináttulandsleikinn gegn Ung- veijum f Búdapest 4. maí. Félög þeirra eru ekki að leika í Sviss þann dag. Aftur á móti kemst Sigurður Grét- arsson ekki, þar sem hann er að leika með Luzem daginn áður. Eins og hefur komið fram í Morgun- blaðinu þá getur Ásgeir Sigurvins- son ekki leikið með gegn Ungvetj- um. Atli Eðvaldsson er tilbúinn í slaginn og einnig Sigurður Jónsson, þar sem Sheffield Wednesdáy leikur ekki þennan dag. Þá er ekki leikið í Noregi, þannig að Bjami Sigurðsson og Gunnar Gíslason geta leikið í Búdapest og sterkar líkur eru á að Amór Guðjohnsen komist í leikinn. V 4-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.