Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 12
12
MOÍtáUNIiIAÐrÐ, PIMMTUDÁGUR ÍV.' NÓVeMBER 1988
Atvinnumál fatlaðra:
Tvöfalt fleiri á bið-
lista nú en 1 fyrra
NÚ eru á milli 40 og 50 manns á biðlista hjá vinnumiðlun fyrir
fatlaða hjá Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, og hefur biðlist-
inn rúmlega tvöfaldast frá því á sama tíma í fyrra. Virðist sem
samdráttur í atvinnulífinu bitni fyrst á fotluðum. Kom þetta fram
á ráðstefhu sem Samráðsnefnd um málefni fatlaðra hélt á þriðju-
daginn um fatlaða og atvinnulífið.
Ráðstefnan var haldin í þeim
tilgangi að ræða um möguleika
fatlaðra til að fara út á almennan
vinnumarkað, og á hana var boðið
atvinnurekendum og átjómendum
fyrirtækja.
Á ráðstefnunni fluttu þeir Davíð
Á Gunnarsson forstjóri Ríkisspítal-
anna og Svavar Sawarsson fram-
leiðslustjóri hjá Granda h.f. erindi
um viðhorf stjómenda fyrirtækja
til fatlaðra starfsmanna, Þorleifur
Kristmundsson skrifstofumaður
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
Guðbjörg Sigurbjartsdóttir af-
greiðslumaður gerðu grein fyrir
sjónarmiðum fatlaðra starfsmanna
á vinnumarkaði, Elísabet Gutt-
ormsdóttir forstöðumaður vinnum-
iðlunar fyrir fatlaða hjá Ráðning-
arstofu Reykjavíkurborgar fjallaði
um atvinnuleit og atvinnumiðlun
fatlaðra, Friðrik Sigurðsson
þroskaþjálfi fjallaði um vemdaða
vinnu á almennum vinnumarkaði
og endurhæfingu fatlaðra og Guð-
rún Hannesdóttir forstöðumaður
Starfsþjálfunar fatlaðra gerði
grein fyrir starfsþjálfun sem starf-
rækt er fyrir fatlaða.
Á ráðstefnunni var sýnt nýtt
íslenskt myndband, sem gert hefur
verið til að fara með út í fyrir-
tæki, þegar verið er að leita nýrra
atvinnutækifæra fyrir fatlaða.
Visa ísland:
Alíslenskt fyrirtæki
VISA Island hefur beðið Morgunblaðið að birta eftirfarandi at-
hugasemd:
„í fréttatilkynningum um hið
nýja greiðslukort Samvinnuhreyf-
ingarinnar „Samkort" nú undan-
farið er ranglega haldið fram að
hér sé um fyrsta og eina alíslenska
greiðslukortið að ræða.
Af því tilefni óskast skýrt tekið
fra af hálfu VISA íslands —
Greiðslumiðlunar hf. að það fyrir-
tæki er í fullri eigu innlendra pev'-
ingastofnana eða um 83% banka-
kerfísins. Alls eru hluthafar 25, 5
bankar og 20 sparisjóðir. Einstakl-
ingar eiga þó einnig óbeina aðild
að fyrirtækinu, sem hluthafar í
Alþýðubankanum hf., Iðnaðar-
banka íslands hf. eða Samvinnu-
banka íslands hf., og eins þjóðin
öll, þar sem ríkisbankamir tveir,
Búnaðarbanki Islands og Lands-
banki íslands era stærstu eigna-
raðilar VISA íslands.
VISA-greiðslukortin era öll gef-
in út á nafni viðkomandi banka
og sparisjóða, en bera jafnframt
VISÁ-merkið, sem gerir þau gjald-
geng um heim allan.
VISA ísland á aðild að VISA
Intemational fyrir hönd eignarað-
ila sinna en ekki öfugt.
Hvað árgjald og stofngjald
SAMKORTS áhrærir væri allt ann-
að óeðlilegt en að það væri mun
lægra en þeirra korta, sem gilda
á yfír 4.000 stöðum hérlendis og
6 milljón stöðum erlendis, þar sem
gildi þess er jafn takmarkað nú í
upphafi, sem raun ber vitni.
Tilkoma SAMKORTS er fram-
faraspor og fagnaðarefni.
Virðingarfyllst,
Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri VISA.
Frá vígslu gamla Barnaskólaas á Húsavík 1908. Hvítblái fáninn blaktir á stönginni. Borgarhóll er
til vinstri, en þar er talið að 'iandnámsmaðurinn Garðar Svavarsson hafi reist hús sitt og þess vegna
beri bærinn nafhið Húsavík.
Húsavík:
Bamaskólahúsið 80 ára
SKÓLAHÚS - nýbyggt — var tekið til afiiota 2. nóvember
1908 á Húsavík, eða á 5 ára afinælisdegi Morgunblaðsins, og
er það eitt af fáum húsum, sem bæjaryfirvöld hafa ekki látið
hverfa, þá var hætt að nota það, eins og upphafiega það var
byggt til. En hér hafa, að mér finnst, merkt hús verið látin
hverfa, brennd eða rifin, en sitt sýnist hveijum.
Með tilkomu nýju fræðslulag-
anna 1907 vildu Húsvíkingar
mæta með stórhug þeirri vakn-
ingu, sem með þeim lögum var
hafin, og byggðu árið eftir tveggja
hæða timburhús með risi á háum
kjallara og var það tekið til af-
nota hinn 2. nóvember 1908 og
var þess minnst nú í bamaskólan-
um á afmælisdaginn.
Pyrsta skólasetning fór fram
þann dag með mikilli viðhöfn og
að viðstöddum meirihluta þorps-
búa, því árið áður, 1907, luku
þeir við að reisa sér kirkju, sem
enn í dag skartar, sem ein feg-
ursta kirkja landsins.
Kennslustofumar vora á efri
hæðunum en í kjallara var fundar-
salur hreppsneftidar og sem jafn-
framt var samkomusalur hrepps-
búa og var svo allt fram undir
1930 að Samkomuhúsið (nú leik-
og bíóhús) var byggt.
Dagbók bamaskólans hefur að
geyma margan fróðleik og segir
þar frá hlutum, sem nú þykja
ótrúlegir. í fyrra stríðinu var mjög
erfitt að fá kol eða annað til upp-
hitunar á þessu stóra húsi, en
kennt var samt þótt hitastig væri
lítið yftr frostmarki. Hinn 9. des-
ember 1914 segir að það væru
vandræði, hve skólahúsið væri
kalt. Undanfarið hafi engin aftaka
frost verið, en þó væri blek frosið
nálega á hverjum morgni í
kennslustofunum. Sama ár segir
ennfremur: Lestrarkennsla heim-
ilanna fyrir skólaskyldualdur er
óhæfíleg að því er sum böm snert-
ir. Fræðslulögin ætlast til að böm
10 ára gömul komi læs í skólann
og á hinn bóginn gersamlega
óréttmætt að ætlast til að skólam-
ir annist stöfunarkennslu eins og
þeim er enn háttað hjá oss. Lestr-
arkennsla þeirra á vitanlega að
vera fólgin í því að laga lestur
barnanna og fegra hann.
Árið 1915 samþykkti fræðslu-
málastjóri að kennt væri annan
hvem dag til að spara eldsneyti
— enda tvísýnt um hvort nægileg
kol fáist. Frostaveturinn 1917 var
skólanum frestað fram yfir nýár
og hófst kennsla ekki fyrr en 15.
janúar. Erfítt var að kynda, þegar
frostið var allt að 16° á Celsíus
að morgni þá kveikt var upp í
ofnunum og tæplega var orðið
frostlaust þegar kennsla hófst, en
þolanlegt um hádegi eins og þar
stendur. Það era orðnir breyttir
tíma.
Við, 'sem í þetta skólahús geng-
um fyrstu áratugi hans, minn-
umst sérstaklega þriggja kenn-
ara, þeirra Benedikts Bjömssonar
skólastjóra, Egils Þorlákssonar og
Jóhannesar Guðmundssonar, sem
allir vora sérstakir skólamenn.
, Nú hefur gamla skólahúsið ver-
ið flutt um set og því verið breytt
í þriggja íbúða hús, sem stendur
við hlið elsta hús bæjarins, Fakt-
orshússins, nyrst í Reitnum.
- Fréttaritari
Hlj ómplötuútgáfan:
Taktur sendir frá sér tíu titla í ár
Hljómplötuútgáfan Taktur sendir frá sér fyrir jólin tíu plötur,
geisladiska og kassettur. Þar á meðal eru geisladiskar með þekkt-
ustu lögum Hljóma og Hauks Morthens.
„Þjóðlegur fróðleikur" nefnist
plata með Guðmundi Ingólfssyni og
félögum þar sem þeir jassa íslensk
þjóðlög og sína eigin ópusa.
„Quintet" er geisladiskur með
Bimi Thoroddsen þar sem hann leik-
ur ásamt þekktum dönskum jasslei-
kurum. Diskurinn var tekinn upp í
Kaupmannahöfn og útgáfa verður
samtímis á íslandi og í Danmörku.
í tilefni af 25 ára afmæli Hljóma
kemur út diskur með þekktustu lög-
um þeirra. Þessi diskur er fyrstur í
fyrirhugaðri útgáfuröð á því sem
kalla mætti „sígilda dægurtónlist"
og hefur hlotið hefur nafnið „Gulln-
ar glæður".
I þeim flokki kemur einnig út
diskur með öllum helstu lögum
Hauks Morthens, sem mörg hver
hafa verið ófáanleg í áraraðir.
Bamaplata með „afa“ á Stöð 2
sem Öm Ámason leikur kemur einn-
ig út og plata Grafíkur „Get ég tek-
ið Cjéns" verður endurútgefin á
geisladiski.
Þá kemur út hjá Takti þriggja
plötu safn með söng Maríu Markan
og er það önnur platan í útgáfuröð
sem hófst í fyrra með „Stefán ís-
landi - Áfram veginn“.
„Ljósið loftin fyllir“ inniheldur
sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason í
flutningi Garðars Cortes, Ólafar
Kolbrúnar Harðardóttur, Sigríðar
Ellu Magnúsdóttur, Kristins Sig-
mundssonar og Ólafs Vignis Al-
bertssonar.
Platan „Ómar Ragnarsson -
Syngur fyrir bömin" verður endur-
útgefín og loks verða endurútgefnar
4 kassettur þar sem 8 skáld lesa
úr verkum sínum. Þau eru: Halldór
Laxness, Þórbergur Þórðarson,
Steinn Steinarr, Davíð Stefánsson,
Tómas Guðmundsson, Jón Helga-
son, Sigurður Nordal og Gunnar
Gunnarsson.
Heillandi jolaundirbuningur í Kaupmannahöfn
og Vín eða Búdapest fyrir aðeins 27.600 kr,
Sex dagar í ógleymanlegri jólastemmningu á götum
Kaupmannahafnar og í tónlistarborginni Vín eða austar í
álfunni í hinni fögru Búdapest. Flogið er til Kaupmanna-
hafnar með SAS á laugardagsmorgni og heim á föstu-
dagskvöldi. Innifalið er flug Reykjavík — Kaupmannahöfn
- Reykjavík, flug fram og til baka frá Kaupmannahöfn til
Vínar eða Búdapest og gisting á hóteli í sex nætur, þar
af þrjár í Kaupmannahöfn. Kynntu þér þetta einstaka
jólatilboð hjá Samvinnuferðum — Landsýn.
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 • Sími 91 -69-10-10 • Suðurlandsbraut 18 • Sími 91 -68-91 -91
Hótel Sögu við Hagatorg • Sími 91 -62-22-77 • Skipagötu 14 • Akureyri ■ Sími 96-2-72-00
JW
Laugavegi 3, símar 21199 / 22299