Morgunblaðið - 17.11.1988, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
Hannes H. Gissurarson um „lektorsmálið“:
Hannes Hólmsteinn Gissurarson við kennslu í Félagsvísindadeild. Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Er erlendur
gjaldmiðill órök-
réttari en er-
lendar mæliein-
ingar?
HANNES HÓLMSTEINN Gis-
surarson er byrjaður að kenna
við Félagsvisindadeild Háskól-
ans. Um eitt ættu þeir stuðn-
ingsmenn Hannesar og and-
stæðingar, sem deildu harðast
um skipun hans í lektorsstöðu
við deildina, að geta verið sam-
mála: Félagsvísindadeild er
ekki söm eftir og áður. En
Hannes lætur að sér kveða á
fleiri vígstöðvum og hefur ný-
verið sent frá sér bók, Markað-
söfi og miðstýring, auk þess
sem hann hefur unnið nokkra
fræðslu- og umræðuþætti sem
nýlega hafe verið sýndir í sjón-
varpi.
-Hvernig hefur þér verið tekið
í Félagsvísindadeild?
„Mér hefur verið vel tekið í
Félagsvísindadeild og ég kann
ljómandi vel við mig þar. Eg held
að það sé deildinni til góðs að þar
gæti fjölbreytni í viðhorfum jafn-
framt því sem lögð er áhersla á
fræðilega ögun.“
Áhug'asamir nemendur
„Ég verð ekki var við annað
en kennarar deildarinnar vilji gott
samstarf við mig og ég er tilbúinn
til að hafa gott samstarf við þá.
Ég ætla ekki að erfa við þá ein-
hver ógætiieg orð sem þeir kunna
að hafa látið falla í stundarreiði
fyrir nokkrum mánuðum, það er
fúllkomið aukaatriði. Ég finn að
nemendumir eru opnir, áhugas-
amir og greindir og ég kvíði engu
um samstarf við þá í framtíðinni.
Aðalatriðið er að efla félagsvísindi
á íslandi með fræðilegum rann-
sóknum. Mitt framtíðarverefni
verður að nýta mér þá þekkingu,
sem ég hef aflað mér erlendis, til
þess að greina betur sögu okkar
og þjóðlegan arf. Bokin sem ég
er að senda frá mér um þessar
mundir, Markaðsöfl og miðstýr-
ing, er að sumu leyti viðleitni í
þá átt.
-Hveijum er sú bók ætluð? Um
hvað fjallar hún?
' Hún er miðuð við framhalds-
skólanemendur og háskólastúd-
enta í þjóðfélagsvísindum. Hún
er tvennt. I fyrsta lagi kynning á
helstu kenningum um stjómmál
og efnahagsmál sem komið hafa
fram á síðustu tvöhundmð árum,
allt frá Adam Smith á átjándu
öldinni, til Karls Marx á nítjándu
öldinni, og til John Maynard Key-
nes og Friedrieh Hayeks á tuttug-
ustu öldinni. Sem sagt: Bókin er
kynning á hugmyndum um kapít-
alisma, sósíalisma og blandað
hagkerfí. í öðru lagi er hún til-
raun til þess að beita slíkum kenn-
ingum á islenskan veruleika og
íslensk vandamál. í því sambandi
ræði ég meðal annars. samskipti
kynjanna, þróunaraðstoð, hag-
vöxt og réttlæti í tekjuskiptingu."
Stingengu ^
undir stól
-Þú ert ekki þekktur fyrir að
liggja á skoðunum þínum um þjóð-
mál og ég ímynda mér að margir
dæmi þessa bók fyrirfram sem
pólitískan áróður frekar en að hún
sé skrifuð af fræðilegu hlutleysi.
„Ég held að fræðimaður sé
ekki hlutlaus þótt hann reyni að
leyna skoðunum sínum. Aðalatnð-
ið er það að hann sé heiðarlegur.
Ég reyni að reifa öll meginsjónar-
mið og röksemdir sem mér er
kunnugt um í þeim málum sem
ég fjalla um. Ég sting engum
skoðunum eða staðreyndum undir
stól, heldur glími við þær allar,
en mér fínnst ekkert að því að
reyna að komast að einhverri nið-
urstöðu, þar sem þess er kostur.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé
hægt að komast að niðurstöðu í
mörgum málum, til dæmis um það
hvað sé skynsamlegasta fyrir-
komulag fískveiða við íslands-
strendur eða hvort kjarabarátta
hafí merkjanieg áhrif á kjarabæt-
ur. Þetta eru atriði sem eru að
ýmsu leyti mælanleg. Við lifum
sem betur fer í frjálsu landi og
ef menn eru ósammála mér þá
geta þeir sagt það og skrifað aðr-
ar bækur."
-Að hvaða niðurstöðum kemstu
um þessi „mælanlegu atriði"?
„Tvær róttækustu hugmynd-
imar sem ég ræði í þessari bók
eru varðandi peningamál og físk-
veiðistefnuna. Ég ræði um það
hvort ekki sé kominn tími til fyrir
okkur íslendinga að leggja niður
Seðlabankann og hætta útgáfu
sjálfstæðs gjaldmiðils og taka upp
sama hátt og ýmsar aðrar smá-
þjóðir hafa gert, að binda gjald-
miðil okkar við gjaldmiðil annarr-
ar þjóðar."
Kotungskrónan
„Ég tel að við búum ekki við
nægilega festu í stjómarfari og
hagkerfi okkar er svo lítið og
óvarið að það borgi sig ekki fyrir
okkur að halda uppi sjálfstæðum
gjaldmiðli. Það er í sjálfu sér ekki
órökréttara að nota erlendan
gjaldmiðil eins og til dæmis
bandaríkjadal en að nota erlendar
mælieiningar eins og metra og
lítra í stað álna og feta. Peningar
eiga að vera fastur mælikvarði á
verðmæti."
-Er það ekki spuming um þjóð-
arstolt að íslendingar hafí eigin
gjaldmiðil og á krónan sér ekki
þrátt fyrir allt sess í þjóðarvitund-
inni?
„íslenska krónan er ekkert til
að vera stoltur af. Hún er kot-
ungskróna, sem hefur verið að
hríðfalla í verði. Meðan hún var
á gullfæti vom peningamál í best-
um skorðum og einkabanki gaf
hér út krónur, sem vom innleys-
anlegar í gulli. Mínar hugmyndir
em að vissu leyti afturhvarf til
þess tíma. í stað gullfótar mætti
koma dol!arafótur.“
-Þú sagðist setja fram í bókinni
róttækar hugmyndir um fískveiði-
stefnu. í hveiju em þær fólgnar?
„Það sem Islendingar verða að
stefna að í framtíðinni er að koma
á sjálfstýringu og samkeppni í
stað miðstýringar í sjávarútvegi.
Auðlindum okkar hefur verið sóað
vegna þess að það hefur enginn
eignarrétt á þeirn."
Aflaklær kaupi
út fiskifælur
„Það hefur enginn átt físki-
stofnana og þess vegna hefur
enginn hirt um þá eða ræktað þá.
Ofveiðin er bein afleiðing af því
að eignarréttur hefur ekki fengið
að myndast á þessu auðlindum.
Ég er sammála Gylfa Þ. Gíslasyni
og öðmm sem telja að við verðum
að hafa hér markað fyrir veiði-
leyfí, þannig að aflaklæmar geti
keypt út fískifælumar og veiði-
leyfín geti með fijálsum viðskipt-
um safnast á hendur þeirra sem
veiða með lægstum tilkostnaði.
Það er hagkvæmasta fyrirkomu-
lag fískveiða. En ég er ósammála
Gylfa og ýmsum öðmm um það
að ég tel að þessi veiðileyfi eigi
að vera eign veiðimannanna en
ekki ríkisins. Ef veiðileyfín em
eign ríkisins er í rauninni verið
að þjóðnýta fiskistofnana í stað
þess að skilgreina á þeim eignar-
rétt. Ég ræði þetta í smáatriðum
í bókinni og geri grein fyrir ýms-
um lausnum og þótt ég leggi þessa
lausn til sjálfur, set ég fram rök
fyrir öðmm lausnum og ræði þau
ítarlega."
Sjónvarp hugsar
I fyrirsögnum
-Þú hefur gert nokkra sjón-
varpsþætti sem Stöð 2 hefur sýnt.
Em fleiri slíkir á döfinni og hvem-
ig líkar þér við miðilinn?
„Mér líkar ágætlega að vinna
fyrir sjónvarp. Ég held að sjón-
varpið sé ákaflega nytsamlegt til
að vekja athygli á hugmyndum
en það getur ekki komið í staðinn
fyrir bækumar. Sjónvarpið hefur
sekúnduna að drottningu og hugs-
ar í fyrirsögnum en er geysilega
notadijúgt til að vekja athygli
fólks á hugmyndum og röksemd-
um, síðan koma bækumar til. Ég
hef gert þijá þætti fyrir Stöð 2
um ýmsar hugmyndir, sem hafa
verið ofarlega á baugi í þjóðfé-
lagsmræðu, einkavæðingu, ný
viðhorf í skóla- og menntamálum
og hugsanlegar stjómarskrár-
breytingar. Einnig hef ég gert
þátt sem Ríkissjónvarpið mun
sýna seinna í nóvember um ævi-
feril og skoðanir Jóns Þorláksson-
ar, fyrrum forsætisráðherra. Ég
tel hann vera einn merkasta
stjórnmálahugsuð á íslandi á 20.
öldinni, sem sameinaði í sér holla
íhaldssemi og framsækið öjáls-
lyndi."
Arnarstapi:
Biðlisti á sumarbústaðalóðir
Fréttir úr Breiðuvíkurhreppi
Laugarbrekku.
TÍÐARFAR hefer verið slæmt í haust bæði til lands og sjávar, mjög
stormasamt, kalt og úrkomusamt. Afli hjá bátum sem gerðir eru út
frá Arnarstapa og Hellnum var tregur og var orðinn sáralltill í ágúst.
Mestur afli á bát hjá einum manni mun hafe verið um 30 tonn yfir
sumarið. Sumir bátanna hættu veiðum seint í ágúst vegna aflatregðu
og ótiðar. Nokkrir bátar fóru á Iúðuveiðar seint í sumar og veiddu
vel, þegar gaf á sjó.
Sumarbústöðum hefur íjölgað við
Amarstapa í sumar og er nú búið
að reisa 7 bústaði og sá áttundi verð-
ur reistur bráðlega. Búið er að sækja
um allar útmældar sumarbústaðalóð-
ir sem eru 36 og nokkrir komnir á
biðlista.
Heyskapur gekk ekki almennt vel
i sumar en verst urðu þeir úti sem
byijuðu seint að heyja. Hey hröktust
ekki en miklar tafír urðu vegna
storma. Mikið fauk af heyjum í norð-
anroki sem brast á aðfaranótt 25.
júlí. Þá fauk hey á þremur bæjum í
norðanroki 27. og 28. ágúst. Hey
ódrýgðust því mikið hjá flestum
bændum hér í sumar en hröktust
ekki. En vegna heyfoks eru hey sums
staðar með minna móti.
Dilkar eru svipaðir að vænleika
og í fyrra. Suma bændur vantar tals-
vert af fjalli og fé sem ekki hefur
náðst hefur sést á fjöllum. Ein kind
fullorðin hefur nokkrum sinnum sést
uppi á fjalli. Af sumum mun hún
vera talin huldukind. Ekki hefur ver-
ið hægt að komast nálægt henni.
Líklegt er talið að þama sé um að
ræða sömu kind sem aldrei náðist í
fyrrahaust og hljóp þá á fjöll.
Þann 3. október komu til mín tvö
ungmenni, karl og kona frá Svíþjóð.
Þau vinna bæði við útkomu blaðs,
sem kemur út mánaðarlega og heitir
Seta. Þau voru að skoða hér náttúr-
una á nesinu, aðailega sunnan fjalls
og tóku mikið af myndum. Þau voru
hrifin af náttúrunni hér undir Jökli,
fóru meðal annars tvær ferðir í
Dritvík og Djúpalón. Ég var með
þeim í tvo daga að sýna þeim og
segja. Þau tóku mikið af myndum
hér í svokallaðri Baðstofu við Hellna
og í Dritvík og Djúpalóni. Þá kveiktu
þau elda í Dritvík og tóku mikið af
myndum við eldinn. Fólk úr Staðar-
sveit var með í þessari ferð, þar af
2 böm. Vegurinn fannst þeim mjög
slæmur.
Sænska stúlkan talaði vel
íslensku. Þau voru mjög ánægð með
ferð sína hingað á nesið. A meðan
þau vom hér höfðu þau gistingu og
mat í Ytritungu í Staðarsveit hjá
Guðmundi Sigurmonssyni og konu
hans, Jónínu Þorgrímsdóttur.
Veitingahúsinu Amarbæ á Amar-
stapa var lokað um mánaðamótin
ágúst-séptember, en þangað komu
margir gestir í sumar.
Vetur heilsaði með einmuna blíðu
veðri og logni og glaða sólskini. Við
vonum öll að veturinn verði góður
og jgjafmildur.
Oska ég svo öllum landsmönnum
til sjávar og sveitar blessunar Guðs
á nýjum vetri. - Finnbogi
Brían Poole á íslandi
Brian Poole, fyrrverandi söngv-
ari hljómsveitarinnar Tremeloes,
er væntanlegtir til landsins og
heldur tónleika á Hótel Islandi
18. og 19. nóvember.
Ifyrir tveimur áratugum kom
Brian Poole til landsins með hljóm-
sveit sinni Tremeloes. Þá vom lög
hans „Someone, Someone" og „Si-
lence is golden" ofarlega á vin-
sældalistum víða um heim. Eftir
nokkurra ára hlé hefur Brian Poole
stigið fram á sviðið aftur og er nú
á hljómleikaferð með nýrri hljóm-
sveit. Hér á landi heldur Brian Po-
ole tvenna tónleika helgina 18. og
19. nóvember. Forsala aðgöngu-
miða er á Hótel Islandi.