Morgunblaðið - 17.11.1988, Síða 31

Morgunblaðið - 17.11.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988 31 Þorskaflahámark: Mikil stefnubreyt- inghjá stjómvöldum - segir forstjóri Hafrannsóknastoftiunar „ÞAÐ HEFUR orðið mikil stefimbreyting hjá stjórnvöldum, þvi þau fara nú nær okkar tillögum en nokkurn tíma áður hvað þorskstofiiinn varðar. Hann minnkar hins vegar lítils háttar á næsta ári,“ sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafi'ann- sóknastofnunar, í samtali við Morgunblaðið. Hafrannsókna- stofiiun lagði til að ekki yrðu veidd meira en 300 þúsund tonn af þorski á næsta ári en sjávarútvegsráðuneytið segir að þor- skaflinn gæti orðið 325 þúsund lestir árið 1988. „Stjórnvöld fara að mestu leyti {sjónum og þeir héldu fram. Fiski- eftir okkar tillögum varðandi veið- ar á öðrum bolfisktegundum og við erum ekki óánægðir með þess- ar niðurstöður þeirra,“ sagði Jak- ob Jakobsson. „Það hefur runnið smám saman upp fyrir mönnum að það er ekki eins mikið af þorski skipaflotinn er of afkastamikill. Við sögðum í Svörtu skýrslunni árið 1975 að fiskiskipaflotinn væri orðinn nægilega stór og síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið," sagði Jakob Jakobsson. Þorskaflasamdráttur bitnar mest á sjómönn- um á vertíðarbátum -seg-ir formaður Sjómannasambands Islands Þorskaflasamdráttur á næsta ári kemur harðast niður á sjómönnum á vertíðarbátum," sagði Óskar Vigfússon, formað- ur Sjómannasambands íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Við verðum hins vegar að taka þessum samdrætti eins og hveiju öðru hundsbiti og teljum okkur ekki hafá leyfi til að gera athugasemdir við hann,“ sagði Óskar. „Það hefur einnig verið talað gefið sjómönnum mest í aðra um mikinn samdrátt í rækjuveið- hönd. Það er mat sjómannasam- um á næsta ári,“ sagði Óskar. takanna að fiskiskipaflotinn sé of „Samdráttur í þorsk- og rækju- stór og þau hafa mælt gegn veiðum þýðir stórskell fyrir sjó- stækkun flotans allt frá árinu menn því þorskur og rækja hafa 1978,“ sagði Óskar. Aflasamdráttur feekkar fiskvinnslufyrirtækjum - segir formaður Samtaka fiskvinnslustöðva „AFLASAMDRÁTTUR á næsta ári rýrir tekjur fiskvinnslunn- ar verulega. Hann gerir erfiðan rekstur fiskvinnslufyrirtækja enn erfíðari og hefúr í fiir með sér fækkun fískvinnslufyrir- tækja og samruna þeirra,“ sagði Amar Sigurmundsson, form- aður Samtaka fiskvinnslufyrirtækja, í samtali við Morgun- blaðið. „Þessi samdráttur skapar ekki síður vanda fyrir útgerðina og það kæmi mér ekki á óvart að hann leiði til þess að fiskiskipum fækki,“ sagði Amar. „Það er einn- ig viðbúið að starfsfólki í físk- vinnslu fækki en nú vinna um níu þúsund manns við fiskvinnslu. Samdrátturinn þrýstir á að stjóm- völd grípi til aðgerða. Raforku- verðslækkun og raunvaxtalækk- anir hafa ekki komið fram og dollarinn er kominn niður fyrir það sem hann var fyrir síðustu gengisfellingu. Tap á frystingu er 6% og saltfiskvinnsla er einnig rekin með tapi,“ sagði Amar Sig- urmundsson. Eimskip og Rainbow Navigation: Niðurstaða vegna vam- arliðsflutninga ókomin ENN liggja ekki fyrir niðurstöður dómstóls í Bandaríkjunum vegna sjóflutninga fyrir varnarliðið milli íslands og Banda- ríkjanna. Bandaríska skipafélagið Rainbow Navigation fékk sett lögbann á útboðið á þeim forsendum að útboðsgögn væru ekki lögmæt. Flutningadeild bandaríkjahers bauð út flutninga fyrir vamarliðið (febrúar 1987 og var útboðsgögnun skilað í mars, en samningstímabilið var frá 1. maí 1987 til 30. april 1988. Eimskip hlaut þá 65% flutn- inganna, en Rainbow Navigation 35%. Samkvæmt samningi þjóðanna frá 1986 koma 65% flutninganna í hlut þess skipafélags sem lægst býður óg 35% í hlut lægstbjóðanda frá hinu landinu. Flutningamir vom aftur boðnir út í mars sl. og tilboð- um átti að skila síðari hluta apríl- mánaðar. Rainbow Navigation kærði hins vegar útboðsgögnin, þar sem stjómendur skipafélagsins ef- uðust um lögmæti þeirra. Lögbann var þá sett á útboðið og málið kom til kasta dómstóla í Bandaríkjunum. Málflutningi er nú lokið, en sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins er óvíst hvenær dómur fellur og verður það jafnvel ekki fyrr en eftir áramót. í júní sl. var um það samið að skipafélögin tvö, Eimskip og Rain- bow Navigation, sigldu samkvæmt gamla samkomulaginu þar til dóm- ari hefur úrskurðað í málinu og flutningamir verða boðnir út á ný. Aukafundur Sölumiðstöðvar hraöíVvstihúsanna Á línuritinu sést þróun afla og útflutningsframleiðslunnar á árunum 1980 til 1989 reiknuð á föstu verð- lagi 1980. Taka skal fram hvað spá fyrir árið 1989 varðar að þar er ekki gert ráð fyrir nýjustu samdrætti í áætlunum sjávarútvegsráðuneytisins um afla þess árs. Ef verðbólga er glæpur er gengisfelling refeingin -sagði Jón Páll Halldórsson MEÐAL ræðumanna á sérstökm félagsfúndi SH voru Qórir fram- kvæmdastjórar fiskvinnslufyrirtækja sem töluðu undir yfirskrift- inni „Ástandið séð úr héraði“. Flestir þeirra töluðu þó einkum um hinn almenna vanda frystingarinnar, sem þeir sögðu stafa af verðbólgu, Qármagnskostnaði, of háu raungengi og mikilli kaupmáttaraukningu. Lántökur til tapreksturs og áframhaldandi ijárfestingar gerðu aðeins Ult verra. Hér á eftir fer útdráttur á erindum Qórmenninganna. Frystingin á Suður- nesjum að hverfa Ólafur B. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Miðness í Sandgerði, rakti þróunina á Suðumesjum frá árinu 1973 til dagsins í dag. Fyrir 1973 vom Suðumesin með öfluga stöðu innan greinarinnar og ein- hveija bestu afkomu á landinu, en síðan hefði þróunin Iegið stöðugt niður á við, fyrirtæki hefðu hætt rekstri eða orðið gjaldþrota og mikið hefði verið um sölu á kvóta og skipum af svæðinu. Sem dæmi mætti nefna að 1973 hefðu Suður- nes verið með 16% af aflamagni og 16% af aflaverðmæti frystingar- innar í landinu.Árið 1987 hefðu þessar tölur verið komnar niður í 7%. Samsvarandi tölur úr söltun væru 36% niður í 21%. Ástæður þessarar þróunar sagði Ólafur meðal annars vera mikla samkeppni um takmarkað vinnu- afl, minnkandi afla og það að Keflavíkurflugvöllur hefði gleypt starfsfólk í auknum mæli. Hann sagði að dagar frystingarinnar á Suðumesjum væm brátt taldir ef ekki yrðu gerðar viðamiklar breyt- ingar á rekstrargmndvellinum. Jón Páll Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Norðurtangans á Isafirði sagði að það væri rétt að það væri glæpur að brenna upp sparifé með neikvæðum vöxtum, en væri það minni glæpur að brenna upp eiginfé fyrirtækja með of háum fjármagnskostnaði? Skuldir fyrirtækja í sjávarútvegi væm nú 26% hærri en árið 1986. Þá hefði kaupmáttur aukist meira en landstekjur og aldrei meira en á síðasta ári, eða um 21%. Jón Páll sagði að raungengi hefði hækkað allt frá árinu 1986 og nú væri svo komið að gjaldeyr- ir væri á útsölu og það ylli þenslu. Genginu væri haldið óbreyttu og afleiðingin væri hrun framleiðslu- atvinnuveganna. Ástandinu -nú mætti líkja við gengishækkunina 1927. Sú aðgerð hefði litið vel út á pappímum í skrifstofu Lands- bankans, en valdið hmni útgerðar og fiskvinnslu víða um land, meðal annars á ísafirði. Bærinn hefði aldrei náð sér eftir það. „Ef verðbólgan er glæpur er gengisfelling sú refsing sem þjóðin verður að taka á sig, enda á hún sök á glæpnum með eyðslu um efni fram.“ Sjóðakerfíð ýtir undir ofvöxt Finnbogi Jónsson, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, sagði að afkoma fískvinnslunnar á Austfjörðum hefði verið undir landsmeðaltali á síðasta ári. „Fyrirtækin em alls ekki í stakk búin að taka á sig aflasamdrátt á næsta ári auk lækkana á erlendum mörkuðum. Nú þegar er rannið upp tímabil gjaldþrota og greiðslustöðvana sem mun fara vaxandi á næstu mánuðum." Finnbogi sagði að hvergi í heim- inum ætti að vera eins auðvelt að stjóma fjárfestingum og á íslandi. Staðreyndin væri hins vegar sú að fískvinnslustöðvum, rækju- og loðnuverksmiðjum fjölgaði og af- kastageta flotans hefði aukist. Saltverkunarstöðvum hefði fjölgað úr 260 fyrir nokkmm ámm upp í rúmlega 400 nú. Það væri að- fínnsluvert þegar bankar og opin- berir sjóðir stuðluðu að slíkri þró- un. Verður að stöðva lán í taprekstur Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja, sagði að svo virt- ist vera að menn héldu að físk- vinnslufyrirtæki úti á landsbyggð- inni gætu gengið endalaust, þó að engum kæmi á óvart að fyrirtæki í þéttbýli yrðu gjaldþrota ef út- gjöld þeirra væm hærri en tekjur. Nú væri umhverfíð hins vegar orð- ið harðara og fyrirtæki í sjávarút- vegi að verða gjaldþrota. Byggðastofnun hefði lánað 1.800 milljónir króna til 30-50 fyr- irtækja í fiskvinnslu á síðastliðnu ári, en þessir peningar væm notað- ir í mörgum tilvikum til þess eins að framlengja taprekstur. Með þessu væri í raun verið að hjálpa fyrirtækjum að fara á hausinn. Það væri kannski ekki æskilegt fyrir heildina að öll fyrirtækin kæmust út úr vandanum, það yrði að skoða hvert einstakt dæmi betur og það yrði að stöðva lánveitingar til tap- reksturs. Framsóknarflokkurinn: Flokksþingið hefet á fbstudag FLOKKSÞING Framsóknarflokksins hefst ldukkan 10 föstu- daginn 18. þessa mánaðar á Hótel Sögu og stendur fram á sunnudag. Um 700 manns eiga seturétt á þinginu. Þingið hefst með því að formað- ur flokksins, Steingrímur Her- mannsson, flytur yfirlitsræðu. Einnig flytur ritari flokksins og gjaldkeri skýrslu. Almennar um- ræður verða síðdegis á föstudag og árdegis á laugardag, en á laug- ardagseftirmiðdag verða kosnir 25 manns í miðstjóm flokksins. Á sunnudag verður meðal ann- ars kjörin stjóm flokksins, og gefa Steingrímur Hermannsson formaður, Halldór Ásgrímsson varaformaður, Guðmundur Bjamason ritari og Finnur Ing- ólfsson gjaldkeri kost á sér til endurkjörs. Sigurður Geirdal framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins sagði við Morgunblaðið að byggðamál yrðu væntanlega í brennidepli á flokksþinginu, og ástandið í at- vinnu- og efnahagsmálum á landsbyggðinni. Þá yrði væntan- lega mikið rætt um efnahagsmál, stjómarsamstarfið og samstarfið í síðustu ríkisstjóm.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.