Morgunblaðið - 17.11.1988, Qupperneq 46
46________•_____MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988_
Þjóðfélagslegt hlutskíptí
byggðastefnu á Islandi
eftirAskel
Einarsson
Sérstaða íslenskrar
landsbyggðarstefhu
Það sem skilur að íslenska lands-
byggðastefnu og svonefnda
byggðastefnu nágrannalandanna
eru tvö megin atriði:
1. íslensk byggðastefna byggist
á því að hinir dreifðu landkostir,
sem er undirstaða gjaldeyrisbú-
skapar þjóðarinnar, séu virkjaðir
jöfnum höndum í landinu og hin
dreifða búseta, sem þess vegna er
nauðsynleg hagsmunum þjóðfé-
lagsins, njóti sem mest afraksturs
og margfeldisáhrifa þessara land-
kosta.
2. Hinn félagslegi þáttur
íslenskrar byggðastefnu byggist
ekki á því að útrýma atvinnuleysi
og koma í veg fyrir fátækt, eins
og tíðkast í mörgum nágrannalönd-
um, heldur er hann sá að íbúar
landsins, hvar sem þeir búa, njóti
*- jafnræðis um uppbyggingu grunn-
gerðar þjóðfélagsins og um að aðra
samfélagslega aðstöðu, þrátt fyrir
dreifða búsetu, sem er óhjákvæmi-
leg vegna þjóðfélagshagsmuna.
Ahrif félagslegrar
Qármögriunar á þróun
landsbyggðar
A Islandi er tvennt sem sker úr
varðandi fjárhagslega uppbyggingu
á byggðaþróunarsvæðum, miðað
m við það sem tíðkast í nágrannalönd-
unum. Bæði í Skotlandi, Norður-
löndum og í Evrópu hefur megin
styrkur opinberra byggðaaðgerða
beinst að því að fá fyrirtæki, til að
flytja rekstur sinn frá þéttbýlis-
svæðum til vanþróaðra byggða.
Þessu stjómtæki er einnig beitt
gagnvart erlendum fyrirtækjum,
sem hyggjast koma upp starfsað-
stöðu í viðkomandi löndum. Um
þetta eru tæplega marktæk dæmi
hér á íslandi.
Það sem einkennir íslenska upp-
byggingu félagslegrar fjármögnun-
ar er:
1. Samfélagsleg uppbygging at-
vinnufyrirtækja m.a. fyrir samstarf
samvinnufélaga, sveitarfélaga og
Honda 89
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfl
Verð frá 919 þúsund,
miðað við staðgreiðslu á gengi 1. nóv. 1988
NÝ AFBORGUNARKJÖR
ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA.
W HORTDA
VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
einstaklinga, með söfnun stofn-
framlaga, án krafna um fjárhags-
lega arðsemi eigenda.
2. Sérstakt framtak einstaklinga
og hópa þeirra um að leggja fram
fjármagn til atvinnustarfsemi í
heimabyggð, sem einskonar
byggðaaðgerð, án krafna um
ákveðna arðsemi.
Af þessum ástæðum _eru betri
samfélagsleg skilyrði á íslandi en
víða erlendis um raunhæfar
byggðaaðgerðir, en þar er hvorki
er fyrir hendi félagslegur hvati til
atvinnuuppbygginga, né framtak
framsækinna heimamanna. í mörg-
um löndum tíðkast ekki að sveitafé-
lag standi í atvinnurekstri eða að
samvinnufélag láti sig atvinnumál
varða. Þetta er íslensk sérstaða í
byggðamálum, sem verður að
vernda efnahagslega. Sama er að
segja um framtak einstaklinga, sem
ávaxta fé sitt í heimbyggð, þrátt
fyrir enga hagnaðarvon.
Efnahagslegt umhverfi
á Islandi andstætt
byggðastefiiu
Menn hljóta að velta fyrir sér
hversvegna sama efnahagssveifla
endurtekur sig á íslandi aftur og
aftur. Skýringin er í raun einföld.
Yfirbygging þjóðfélagsins og þjón-
ustubáknið verður æ frekara á fóðr-
um. Þegar harðnar í dalnum hjá
útflutningsatvinnuvegunum kemur
ætíð í ljós að þjónustubáknið sættir
sig ekki við þau hlutaskipti, sem
framleiðsluatvinnuvegimir hafa
fram að færa í þjóðarbúið. At-
kvæðaþungi þessara hópa er slíkur
að stjórnmálaflokkamir verða að
taka tillit til þeirra, þar sem æ
grisjast það lið, sem er á hinum
vængnum, þ.e. landsbyggðin, þrátt
fyrir nokkra skekkju í vægi at-
kvæða landsbyggðinni í hag.
Stendur landsbyggðin
á elleftu stundu
Miðað við hlutverkaskipti í
íslensku samfélagi, eins öflugs þétt-
býliskjarna annars vegar og lands-
byggðar hins vegar, sem fulltrúa
framleiðsluhagsmuna, þarf ekki
skarpan mann til þess að sjá, að
það er í síðasta sinn, sem nást í
gegn millifærsluaðgerðir og leið-
réttingar framleiðslunni í hag, eftir
pólitískum leiðum. Viðbrögðin við
niðurfærsluleiðinni voru þannig í
raun, að stórir hópar, eins og laun-
þegasamtökin og milliliðirnir í þjóð-
félaginu, vom ekki tilbúnir að skilja
hættuástandið. Með öðrum orðum,
þessir hópar töldu sig ekki varða
um hag landsbyggðar og um leið
framleiðsluhagsmuni þjóðfélagsins.
Þetta er alvarleg staðreynd, sem
kallar á ný viðhorf.
Ný efiiahag'sleg' viðhorf
í byggðamálum
Báðir höfuðatvinnuvegir lands-
byggðar búa við framleiðslutak-
markanir, sem hljóta að hafa
Áskell Einarsson
„Margt bendir til þess
að íslensk byggða-
stefiia verði að laga sig
að frjálsri verðmyndun
í landinu m.a. með tilliti
til beinnar eða óbeinnar
aðildar landsins að stór-
um markaðssvæðum.
Þá verður um tvo kosti
að ræða frjálsa gengis-
skráning, eða hreyfan-
lega gengisskráningu
bundna við ákveðin
samflot. Sú leið sem
hefiir verið farin und-
anfarin ár, að gengis- *
skráningin þurfí hvorki
að taka mið af hag at-
vinnuveganna né af eft-
irspurn, hlýtur að
ganga sér til húðar og
hefur reynst byggða-
hagsmunum andstæð.“
byggðaleg áhrif á margvíslegan
hátt.
Landbúnaðurinn á undir höggi
að sækja vegna offramleiðslu miðað
við heimamarkað. Verðlagning
landbúnaðarafurða er við það miðuð
að atvinnugreinin standi í stað.
Sjávarútvegurinn hefur búið við
strangar aflatakmarkanir, sem hef-
ur hamlað getu atvinnuvegarins.
I íslensku þjóðfélagi hefur við-
gengist sú meginstefna að miða
gegnisskráningu við geðþótta
stjórnvalda um að beita gengis-
skráningunni, sem hemil á verðlag-
þróun í landinu.
Á sama tíma og verðlagsmyndun
í landinu er frjáls og laun þorra
launþega fylgja verðlagi, eru út-
flutningsatvinnuvegirnir með
bundna verðskráningu á aflafé sínu
í erlendum gjaldeyrir. Hér er verð-
lagsmótuninni snúið við. Gróði eða
margfeldisáhrif við meðferð erlends
gjaldeyris í efnahagskerfinu koma
þeim til góða, sem hafa óbundnar
hendur um alla verðlagsmeðferð í
þjóðfélaginu, m.a. á þjónustu eða
vamingi.
Það er því í raun um tvær leiðir
að velja hina fijálsu leið, sem þýðir
að á meðan grundvallar hagsmunir
þjóðarbúsins byggjast á útflutn-
ingsatvinnuvegum landsbyggðar,
þá verði skráning gjaldeyris gefin
ftjáls og verðlagning hans mótist
af eftirspum.
Hin leiðin er sú að mótuð verði
gengisstefna, sem tryggi að afkoma
útflutningsatvinnuveganna verði
það hagstæð, að þangað leiti í senn
fjármagn og vinnuafl. Sköpuð verði
skilyrði til þess að útflutningsgrein-
amar geti byggt upp eigin fé sitt
og varist sveiflum m.a. með verð-
jöfnunarsjóðum. Vaxtastiginu verði
haldið innan hóflegra marka.
Hér skal ekki Iagður endanlegur
dómur að hvor leiðin verður valin.
Meginmálið er það að afkomu-
gmndvöllur undirstöðuatvinnuveg-
anna verði tryggður, með réttri
gengisskráningu á hveijum tíma.
Þjóðarhagur gerir
byggðastefnu nauðsynlega
Margt bendir til þess að íslensk
byggðastefna verði að laga sig að
fijálsri verðmyndun í landinu m.a.
með tilliti til beinnar eða óbeinnar
aðildar landsins að stómm mark-
aðssvæðum. Þá verður um tvo kosti
að ræða fijálsa gengisskráning eða
hreyfanlega gengisskráningu
bundna við ákveðin samflot. Sú leið
sem hefur verið farin undanfarin
ár, að gengisskráningin þurfi hvorki
að taka mið af hag atvinnuveganna
né af eftirspurn, hlýtur að ganga
sér til húðar og hefur reynst
byggðahagsmunum andstæð.
Staðan í efnahagskerfi þjóðar-
innar nú er sú, að fyrir dymm
stendur skuldaskil útflutningsat-
vinnuveganna, sem munu að sjálf-
sögðu miklu bjarga. Eftir stendur,
að mörg álitleg fyrirtæki em rúin
eigin fé, sem verður að bæta úr,
ella verða fyrirtækin vanbúin að
standa á eigin fótum, þrátt fyrir
allar skuldbreytingárnar.
Sú stefna að Byggðastofnun
eignist hlutafé í fyrirtækjum
víðsvegar um landið er engin alls-
heijarlausn. Það eðlilega er að eig-
endur þeirra fyrirtækja, sem misst
hafa eigin fjármagn vegna langvar-
andi hallareksturs sökum rangrar
gengisskráningar, eigi kost á heppi-
legu lánsfé til að endumýja eigna-
hluti sína.
Þetta er nauðsynlegt sökum þess
að víða úti um landið er ekki leng-
ur til staðar hvorki félagslegt eða
áhættu fjármagn til þessháttar end-
urhæfingar á eigin fjárstöðu fyrir-
tækja. Eftir að skuldaskil hefðu
farið fram og eigin fé hefði verið
endumýjað ættú framleiðslufyrir-
tækin að geta-starfað áfram eðli-
lega þ.e.a.s. ef hinn almenni rekstr-
argmndvöllur er fyrir hendi. Það
er meginmálið.
Raunhæf byggðastefna er þjóð-
ANNAÐ bindi Læknisráða
Miinsters er nú komið út hjá
Vasaútgáfunni. Þetta annað
bindi heitir Almenn kynlífs-
fræðsla og er 192 blaðsiður með
myndum og orðalista.
Erik Miinster er starfandi læknir
í Danmörku og skrifar í Ekstrablad-
et og Familie Journal. Þetta safn
hagslega nauðsynleg. Þjóðfélagið
verður að sætta sig við þau lífskjör,
sem framleiðsluatvinnuvegirnir og
nýting orkulindanna gera möguleg
í þessu landi.
Atökin um nýtingu
orkulindanna einkenna
næsta áratug
Margir líta björtum augum til
stóriðjuframkvæmda og nýtingu
orkulinda landsins. Nú horfir í það,
að haldið verði áfram stóriðjufram-
kvæmdum í Straumsvík og haldið
áfram virkjunum á Þjórsársvæðinu.
Margt bendir til að þetta sé byijun
í því, að margir erlendir fjármagns-
aðilar muni af ýmsum ástæðum
fysa að fjárfesta á íslandi. Hér er
á ferðinni stærsta byggðamál næsta
áratugar. í þessum efnum verður
að beita festu og knýja á um að
erlendir fjármagnsaðilar virði
íslenska byggðahagsmuni. Island
er æ meira að færast í þjóðbraut.
Með alþjóðlegum varaflugvelli má
hugsa sér að hér verði komið upp
útvarðarstöð fyrir Evrópu, varðandi
loftflutninga til og frá Japan og
Asíulöndum. Þessi ákvörðun er
einnig byggðamál, sem er þyngri á
metunum en afstaða til varnarmála.
Þetta er spurningin um að nýta
stöðu og legu landsins í miðju Átl-
antshafi í þágu byggðaþróunar á
íslandi.
Hvernig á að verja
byggðahagsmuni
landsbyggðarinnar?
Það er fullreynt að ekki er mögu-
leiki að færa til stjómsýslukerfið í
þjóðfélaginu, nema valdinu sjálfu
verði dreift t.d. með millistjórnstigi.
Með auknum kröfum um félagslega
aðstoð og aðstöðu til menntunar
hallar á fyrir sveitabyggðum og
fyrir minni þéttbýlisstaði lands-
byggðar. Þá er það spumingin
hvemig er hægt að efla hina stærri
þéttbýlisstaði, svo að þeir geti boð-
ið upp fjölbreytt félagslegt um-
hverfi og veitt mótvægi í búsetuþró-
uninni, án þess að ganga á for-
gangshlutverk framleiðslubyggða-
laganna við sjávarsíðuna.
Ekkert af þessu kemur að sjálfu
sér. Ekki má í þessum efnum ein-
blína um of á stjórnsýslu ríkisins,
þó að staðsetning hennar hafi að-
dráttarafl. Hér á ekki síður við um
þjónustustarfsemi á vegum fyrir-
tækja, einkaaðila og velferðarþjón-
ustu. Hér sem oftast er sjálfs hönd-
in betri en ríkisforsjáin, en þessu
gleymir landsbyggðarfólkið iðu-
lega.
Hvernig á að beina
Qármagni til
landsbyggðarinnar?
Myndist hagsæld í landsbyggðar-
atvinnuvegunum skapast hagstætt
fjárhagslegt andrúmsloft úti í
byggðunum. Meira af fjárfestingafé
þjóðarinnar verður þá ráðstafað frá
bæjardyrum manna, sem sótt hafa
fjármagn sitt af heimaslóð. Þetta
getur jafngilt breyttum hugsana-
hætti um hvar eigi að fjárfesta.
Landshlutabundnir byggðasjóðir
og fjárfestingarfélög eiga að vera
hluti byggðaaðgerða í landinu og
njóta opinbers fjármagns. Máske
þarf að aðlaga bankakerfið lands-
byggðarhagsmunum betur en raun-
in er nú. Fijálsgengisstefna er
áhrifaríkasta lausnin í þjóðfélagi
fijálsra viðskiptahátta.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlend-
inga.
læknisráða mun verða 12 bindi.
í fyrsta bindi var fjallað um
smitsjúkdóma og síðar koma sér-
stök bindi um taugasjúkdóma,
barnasjúkdóma, hjartasjúkdóma
o.s.frv. Telja margir slík hefti um
ákveðin viðfangsefni notadrýgri en
stórar og skrautlegar læknabækur.
5daga megrun.sem
VIRKAR!
Vandaðurbæklingurmeðupp-
lýsingum og leiðbeiningum á
Islensku fylgir.
FÆST i APÓTEKUM OG BETRI MÖRKUÐUM.
IITAEININGAR I
_ LAGMARKI
- NGAR AUKAVERKAMIR
T EOLILEGU
ÞYNGDARTAPI
-EÐJANDI OG
BRAGÐGOTTT
Ai
LLAR MATARAHYGGJUR
ÚRSÖGUNNI
Heildverslun,
Þingaseli 8,
Slmi 77311
Annað bindi Lækn-
isráða Míinsters