Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988 HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD Morgunblaöiö/Bjarni Og hvert ætlar þú? Þorbjörn Jensson lék vel ! vöminni hjá Val. Hér hefur hann KA-manninn Jakob Jónsson á loft ! leiknum. Otmlegir yfirburðir! Valursigraði KA með rúmlega helm- ingsmun. Þrjú mörk KA ífyrri hálfleik VALSMENN halda sigurgöngu sinni áfram og í gœr voru það KA-menn sem urðu að lúta í lægra haldi fyrir meistaraefn- unum. Margir áttu von á spennandi leik enda hefur KA- liðið leikið vel í síðustu leikjum. En annað kom á daginn. Norð- anmenn náðu aðeins að skora þrjú mörk í fyrri hálfleik gegn fimmtán mörkum Vals. Eins og gefur að skilja var ekki mikil spenna í síðari hálfleik og þeg- ar upp var staðið höfðu Vals- menn skorað rúmlega helmingi f leiri mörk en KA-menn. Valsmenn tóku leikinn strax í sínar hendur og eftir tæpar níu mínútur var staðan 7:0 og Vals- menn svo gott sem öruggir um sig- ur. Á þessum kafla LogiB. var sóknamýting Eiðsson Vals 100%. KA- skrifar menn náðu að laga stöðuna með þremur mörkum gegn einu en þá tók ekki betra við. Aftur gerðu Valsmenn sjö mörk í röð og í leikhléi var stað- an 15:3. Síðari hálfleikurinn var, eins og gefur að skilja, ekki jafn góður af hálfu Valsmanna. KA-menn kom- ust aðeins inn í leikinn og leikur þeirra skánaði. Munurinn jókst þó en staðan KA heldur skárri í síðari hálfleik — hlutfallslega. Stórkostlag byrjun Valsliðið byrjaði leikinn af gífur- legum krafti. Frábær vöm og mark- varsla liðsins á fyrstu mínútunum og fjölbreyttur sóknarleikur færðu liðinu yfirburðastöðu. Leikurinn þegar unninn og síðari hálfleikurinn því mun slakari þrátt fyrir að vara- mennimir hafí leikið vel. Valdimar Grímsson og Geir Sveinsson áttu báðir mjög góðan leik. Valdimar eldsnöggur í sókn- inni og Geir opnaði vel fyrir skyttum Vals og skilaði sínu hlutverki í vöm- inni. Einar Þorvarðarson varði mjög vel í fyrri hálfleik og fylgdi vöm- inni vel. Sigurður Sveinsson skoraði glæsileg mörk og opnaði vömina með lúmskum línusendingum og sama má segja um Júlíus Jónasson. Of mlklð — of hratt KA-menn komu á óvart með slök- um leik. Þeir gerðu þau mistök að fara of hratt í Valsmenn og skot þeirra úr slæmum fæmm virtust ekki líkleg til að ná framhjá Ein- ari. Erlingur Kristjánsson og Jakob Jónsson vom skárstir í annars slöku liði KA. „Það er ágætt að fá hvíld eftir Ólympíuleikana og allt sem þeim fylgdi," sagði Einar Þorvarðarson, en hann lék aðeins fyrri hálfleikinn. „Þetta var ömggt enda spilaði KA-liðið alls ekki eins vel og það getur. Þetta er alls ekki ömggt hjá okkur. Við fömm í Evrópukeppnina og eigum erfiða leiki um sama leyti, gegn FH, KR og Víkingi og það getur allt gerst," sagði Einar. Morgunblaðiö/Bjami Slgurður Svelnsson skoraði sex mörk í gærkvöldi. Valur-KA 31 : 15 íþróttahús Vals, íslandsmótið í hand- knattleik, miðvikudaginn 16. nóvember 1988. Gangur leiksins: 7:0, 8:3, 15:3, 17:4, 18:7, 21:8, 22:11, 27:12, 27:14, 31:14, 31:15. Valur: Valdimar Grímsson 6, Sigurður Sveinsson 6/1, Júlíus Jónasson 4, Geir Sveinsson 4, Gísli Óskarsson 4, Jón Kristjánsson 2, Sigurður Sœvarsson 2, Jakob Sigurðsson 1, Þorbjöm Jens- son 1 og Theodór Guðfmnsson 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 12/2 og Páll Guðnason 8. Utan vallar: 6 mínútur. KA: Jakob Jónsson 6, Erlingur Kristj- ánsson 2, Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson 2, Ólafur Hilmarsson 2, Haraldur Har- aldsson 2 og Guðmundur Guðmundsson 1. Friðrjón Jónsson, Pétur Bjamason, Svanur Valgeirsson og Þorleiftir Anan- íasson. Varin skot: Sigfús Karlsson 7 og Axel Stefánsson 5. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Egill Markússon og Ámi Sverrisson. Frekar slakir. Áhorfendur: 650. ÍH&nR FÓLK ■ JAKOB Jónsson skoraði fyrsta mark KA í leiknum gegn Val þegar 10 mínútur og 22 _sek- úndur vom liðnar af leiknum. Áður höfðu Valsmenn komist í 7:0. Ekki tók betra við í síðari hluta fyrri hálfleiks. KA gerði þijú mörk en svo ekki eitt einasta mark í heilar 16 mínútur, eða þar til rúm hálf mínúta var liðin af síðari hálfleik. ■ HÚSVÖRÐURINN í Vals- heimilinu var brúnaþungur í gær- kvöldi, þrátt fyrir stóran sigur heimaliðsins. Starfinu gegnir nefni- lega enginn annar en Jóhann Donni .Jakobsson, knattspymumaðurinn ~~ knái sem var einn aðalmanna KA í mörg ár! ■ NÆSTI kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfírðinga, Magnús Gauti Gautason, var á meðal áhorfenda í Valsheimilinu í gær- kvöldi. Það kemur ekki á óvart að hann hafí haft áhuga á leiknum — Magnús Gauti stóð í marki hand- boltaliðs KA í fjölda ára. ■ ENN einn íþróttakappinn að norðan sem fylgdist með leik Vals og KA var Halldór Áskelsson, ^andsliðsmaður ! knattspymu, sem nýlega ákvað að skipta úr Þór í Val. Hann var í heimsókn hjá sínum nýju félögum. Þess má geta að Halldór er ekki ókunnur hand- knattleiksíþróttinni — hann var efnilegur í þeirri grein og varð ís- landsmeistari í handknattleik með 4. flokki Þórs á sínum tíma. Enginn er ann ars bróðir... BRÆÐURNIR Erlingur og Jón Kristjánssynir hittust í gær í íþróttahúsi Vals, en það er nú vart í frásögur færandi. En líklega hefði að minnsta kosti annar þeirra viljað hitt- ast við skemmtilegri aðstæð- ur. Jón, sem leikur með Val, sigraði Erling stóra bróður, sem leikur með KA, 31:15. Þrátt fyrir það voru bræðurn- ir mestu mátar eftir leikinn eins og vera ber. En hvernig skyldi það vera að mæta bróður sínum í leik. „Maður gleymir þessu nú fljótt þegar í leikinn er komið,“ sagði Erlingur. „Það var bara verst að ég náði ekki nógu oft í hann,“ bætti hann við og glotti. Jón var á sama máli: „Maður hugsar ekki svo mikið um það. En mér fínnst ekki gott að leika gegn KA,“ sagði Jón, en hann lék lengi með KA. „Mér gengur alltaf illa gegn gömlu félögunum og það varð engin breyting á því í þessum leik. Ég neita því heldur ekki að mér fínnst mjög leiðinlegt þegar þeim gengur illa,“ sagði Jón. „Leikur- inn í fyrra var svipaður og ég á erfítt með að einbeita mér í þess- um leikjum," sagði Jón. Erlingur og Jón snúa bökum saman á sumrin og leika þá báðir með KA í knattspymu,. En hvern- ig er það með bræður, þekkja þeir ekki hvom annan út og inn? „Jú við gerum það en það hefur ekki svo mikið að segja því við lendum svo sjaldan saman,“ sagði Erlingur. Er þá ekki meiri metn- aður þegar bróðir á í hlut? „Nei, það er frekar að maður hli'fi hon- um,“ sagði Jón. Hvað með liðin, hveiju spá þeir? „KA getur leikið betur og ég held að liðinu muni ganga nokkuð vel í vetur, verði í einu af fímm efstu sætunum,“ sagði Jón. „Já ég spái því sama um Valsmenn — þeir verða í einu af fímm efstu!," sagði Erlingur. Lið þeirra bræðra eiga eftir að mætast að nýju í vetur á Akur- eyri. „Það verður tekið „vel“ á móti þeim — því get ég lofað," sagði Erlingur. Þolr brsoður leika saman í vöm KA-liðsins í knattspymu. Hér eru þeir í baráttunni síðastliðið sumar — Erlingur skallar frá en jón fylgist með. Morgunblaöifl/Bjarni Valsvörnlrt er fimasterk. Þvf fengu KA-menn að kynnast í gærkvöldi og hér er það einmitt Erlingur Kristjánsson sem reynir að koma boltanum ! gegn. Jón bróðir hans er í miðjum „veggnum".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.