Morgunblaðið - 13.12.1988, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
Bækur:
Bítsnillingur kveður sér hljóðs
Fatlaður, mállaus piltur brýst út úr þögn sinni
Christopher Nolan
CHRISTOPHER Nolan er aðeins
22 ára. Þessi ungi írski rithöf-
undur hefur unnið til einna virt-
ustu bókmenntaverðlauna sem
veitt eru á Bretlandseyjum,
Whitbread-verðlaunanna, fyrir
bók sina Undir augliti klukkunn-
ar, bók um fatlaðan ungan mann
sem sættir sig við það sem hann
getur ekki breytt og lifir hamingju-
sömu lífi. Bókin er reyndar sjálfsæ-
visaga.
Hinn 6. september 1966 var
komið að því að Bemadette Nolan,
bóndakona í Mullingar á írlandi,
yrðri léttari í annað sinn. Fyrir
átti hún dótturina Yvonne með
manni sínum Joseph.
Fæðingin gekk illa. Eftir margra
klukkustunda baráttu og keisara-
skurð var lftill drengur þó kominn
í heiminn nær dauða en lífi. Þenn-
an langa tfma hafði háls bamsins
sveigst svo að heilinn hafði ekki
fengið nægilegt súrefni og greini-
legar heilaskemmdir gerðu strax
vart við sig. En fæðingin var einn-
ig erfið fyrir móðurina svo að ótt-
ast var um lff hennar.
Bæði móðir og bam komust til
þeirrar heilsu sem vænta mátti.
Bamið var algjörlega lamað, einu
hreyfingar þess vom krampa-
kenndar og stjómlausar nema
augnhreyfingar. Augun gat bamið
hreyft og það fylgdist vel með öllu
sem fram fór í kringum það.
Til þess að fá úr því skorið hvort
bamið væri andlega heilt var farið
með það til sérfræðings. Ekki var
með neinum venjulegum hætti
hægt að kanna andlegt ástand þess
en læknirinn beygði sig að baminu
og blés í augu þess. Bamið lokaði
augunum. Aftur dró læknirinn and-
ann djúpt og blés, bamið lokaði
augunum. í þriðja sinn dró læknir-
inn andann djúpt en nú blés hann
ekki. Bamið hatfði lokað augunum
en þegar ekkert gerðíst opnaði það
augun aftur af forvitni. Eftir rann-
sókn sína úrskurðaði læknirinn
bamið eðlilegt andlega en lfkamleg
fötlun þess var algjör.
Móðurástin er fómfús og skilyrð-
islaus. Bemadetta lagði allt sem
hún átti í að hjálpa og fræða litla
fatlaða drenginn sinn. Hún lærði
að skilja hann með því að horfa í
augu hans og þótt hann gæti ekki
talað vissi hún að ekkert var að
honum andlega og heymin var í
lagi þótt skert væri. Því sameinað-
ist flölskyldan f uppeldinu, allir lásu
fyrir bamið og töluðu við það, allir
komu fram við það eins eðlilega
og þeim var unnt.
Það var erfitt að stunda bústörf-
in við hlið þess mikilvæga verkefti-
is sem uppeldi Christophers var
allri fjölskyldunni og þegar snáðinn
þurfti að fara f skóla ákvað flöl-
skyldan að hætta búskap en flytj-
ast til Dyflinnar því að þar væri
besta menntun að fá fyrir hann,
fyrst í skóla fyrir fatlaða, en síðar
fékk hann því sjálfur framgengt
að menntast í skóla fyrir ófötluð
böm.
Margt braust um í heilbrigðum
kolli hins fatlaða drengs og hann
átti sér einn draum: Að koma hugs-
unum sínum frá sér, að koma ein-
hveiju á blað.
Kraftaverkið gerðist þegar hann
var 10 ára, en þá var honum gefið
lyfið Lioresal sem reyndist hafa
slakandi áhrif á krampakenndar
höfuðhreyfingamar svo að honum
tókst að stjóma þeim.
„Ég hafði lengi vonað að vinstri
höndin yðri leið mín til tjáskipta
við annað fólk en svo reyndust það
verða höfuðhreyfingamar," skrif-
aði hann síðan með sínum sérstæða
hætti, en þar sem höfuðið er það
eina sem hann getur hreyft, er
pinni ólaður við enni hans en móð-
ir hans stendur hjá honum og held-
ur undir höku hans meðan hann
stýrir pinnanum á staf fyrir staf á
ritvélinni eða tölvunni sinni.
Þegar hann fór að geta tjáð sig
kom í ljós að pilturinn var framúr-
skarandi vel gefinn, hann hafði
leikið sér að því að setja saman
ljóð f þögn sinni allt frá 3 ára
aldri, eftir hann voru birt ljóð og
bókin „Stíflubrestur draumanna"
sem voru ljóð og hugrenningar
drengsins úr þögn sinni kom út
þegar hann var 15 ára. Hlaut hún
einróma lof gagnrýnenda sem
sögðu að hugur piltsins væri „perla
í ostmskel".
Þrátt fyrir fötlun sína reynir
Christopher að njóta Iffsins. Hann
getur ekki nærst án aðstoðar og á
jafnvel erfitt með að kyngja.
Lfkamlegt ástand hans er .ísköld
staðreynd og hann hefur lært að
sætta sig við það sem hann getur
ekki breytt. Honum þykir gaman
að Beckett, Dickens, Spike Milligan
og Tinu Tumer og nýtur þess að
fá sér romm og kók.
Þegar hann fór að sjá Jóns-
messunæturdraum fékk hann að
sitja í hljóðeinangruðum klefa leik-
sfjórans svo ósjálfráðar hrejrfingar
hans tmfluðu ekki leiksýninguna.
„Allt þetta er gert fyrir fatlaðan
dreng?" skrifaði hann hrærður og
hugsaði til „fatlaðra bræðra og
systra sem aldei hafa fengið tæki-
færi til að njóta svo djúprar fegurð-
ar“. í mestu uppáhaldi leikrita er
Beðið eftir Godot.
Það var svo f lok ársins 1987
að bók hans Undir auglíti klukk-
unnar var valin úr 71 ævisögu til
að keppa um hin eftirsóttu Whit-
bread-verðlaun. Meðal ævisagn-
anna var umtöluð ævisaga Oscars
Wilde eftir Richard Ellmann.
Til verðlaunanna vom tilnefndar
bækur úr fiokki skáldsagna, fyrstu
skáldsagna höfunda, ljóða og
bamabóka auk ævisagna útgefinna
á enskri tungu. Dómnefndin komst
að þeirri niðurstöðu að Undir aug-
liti klukkunnar væri best allra
bóka á enskri tungu árið 1987 og
hlaut Christopher því verðlaunin,
alls tæplega tvær milljónir króna.
Þar sem verðlaunin féllu til svo
mikið fatlaðs manns sá dómnefndin
ástæðu til að taka það sérstaklega
fram að fötlun hans hefði ekki sem
slík haft nein áhrif á valið.
Það var hátfðleg stund þegar
Bemadetta Nolan ýtti fatlaða
drengnum sfnum fram á sviðið til
að taka við verðlaununum með
honum. Hún tók fram ræðu sem
allir vissu að hefði tekið verðlauna-
hafann óratfma að skrifa, ein síða
á tólf klukkustundum er vinnuhraði
hins unga rithöfundar.
„í kvöld vinnur fatlaður maður
sér sess f hópi rithöfunda heimsins.
í kvöld er það ég sem hlæ og græt
gleðitárum um leið. En bíðið við.
Bræður mfnir em spyijandi að baki
mér; Hvað um okkur, svo hljóða.
Getum við lfka öðlast rödd? í kvöld
tala ég fyrir þeirra munn. í kvöld
er mesta gleðistund lífs míns.
Hugsið ykkur hvers ég hefði farið
á mis ef læknamir hefðu ekki
bjargað lffi mínu einn september-
dag fyrir löngu. Er hægt að ræna
fatlaðan mann frelsinu? Er hægt
að hugsa sér að nú megi troða^ svo
á meðbróðumum að honum geti
ekki auðnast að draga að sér ferskt
loft þessa heims? í bók minni má
finna misfagrar frásagnir, en í
kvöld er heimurinn friðsamlegur f
mfnum augum."
Christopher Nolan vinnur nú að
næstu bók. Hún er tilbúin í huga
hans en hvenær hin meitlaða frá-
sögn hans kemst á blað er ekki
gott að segja, en víst er að margir
gætu tekið sér það lífsviðhorf hans,
að una glaðir við sitt, til fyrirmynd-
ar.
Hér fer á eftir kafli úr bók
Christophers Nolans, Undir aug-
liti ItlnkknnTinr;
„Þegar Joseph kom að anddyrinu
biðu þeir Peter Nicholson og
Eddie Collins eftir honum. Hann
horfði rannsakandi á þá en sá
aðeins bamslega kurteisi og
traust. „Megum við fara með þig
núna í fyrsta tímann?" spurði
Peter en Matthew hélt aftur af
þeim þvf hann vildi útskýra fyrir
þeim ósjálfráðar handahreyfing-
amar. Nora sagði ekkert; hún
virtist treysta drengjunum sjálf-
um til að ráða fram úr þessum
nýja vanda. „Ég verð héma inni
í þessari stofu ef þið þarfnist
mín," sagði hún um leið og hún
gjóaði augunum að gulum dyrum
og með það lögðu drengimir af
stað inn eftir ganginum með
nýja bekkjarbróðurinn. Joseph
hélt iíkama sfnum stilltum á
meðan drengimir sömdu um það
sín á milli hvemig hafa skyldi
hemil á höndum hans. „Við för-
um með þig inn f tónmenntastof-
una að syngja," sagði Peter í
trúnaði og fyrir enda gangsins
komu þeir í flasið á hópi nem-
enda sem biðu eftir því að kenn-
arinn opnaði dymar. Hann
hleypti krökkunum inn og þegar
hann varð var við nýja nemand-
ann gekk hann til hans, tók inni-
lega um hönd hans og sagði:
„Vertu hjartanlega velkominn til
Mount Temple. Eg vona að dvöl
þfn héma hjá okkur verði þér
sem ánægjulegust, Joseph."
Eddie smokraði síðan hjólastóln-
um inn í stofuna og kennslan
hófst. Joseph virtist forvitinn
þegar hann renndi augunum
blygðunarlaust frá einum nem-
anda til annars á meðan þeir,
ákveðnir í að sýnast hvergi
bangnir, litu snöggt undan þegar
augnaráð hans lenti á þeim.
Hann fann lyktina af lamandi
óttanum en ætlaði sér heldur
ekki að auka áhyggjur þeirra
með því að spennast upp og
geifla sig ógurlega þegar and-
litsvöðvamir herptust sitt á hvað
í krampakasti.
Rétt undir lok tímans báðu
Peter og Eddie um leyfi til að
fara og útskýrðu fyrir kennaran-
um að þeir þyrftu á forskoti að
halda til að koma hjólastólnum
yfir í næstu stofu áður en gang-
amir fylltust af nemendum sem
þustu hundruðum saman fram
að skipta um stofur. í leit að
umræðuefni litu þeir Peter og
Eddie á hinn nýja skjólstæðing
sinn og reyndu að hafa hann
með f samræðunum. Allt gekk
eins og f sögu hjá drengjunum
þremur, en ekkert hefði getað
búið þá undir það sem gerðist
næst. Skyndilega glumdi skóla-
bjallan eins og heimsendir væri
í nánd, Joseph varð viti sínu fjær
af ótta og heilaskemmd tauga-
viðbrögð hans þeyttu honum upp
í loftið svo að vesalings Peter
og Eddie voru næstum dánir úr
hræðslu. Þrátt fyrir óttann létu
drengimir engan bilbug á sér
finna. Þeir fengu sjálfstraustið
aftur og spurðu Joseph hvort
allt væri í lagi. Hann brosti og
beindi augunum upp undir loft
sem þýddi já.“
TVÆR LJÓÐABÆK-
UR HANNESAR
ENDURÚTGEFNAR
Iðunn gefur út Kvæðasafii 1951—
1976 og Heimkynni við sjó
IÐUNN hefur endurútgefið
tvær ljóðabækur eftir Hannes
Pétursson, Kvæðasafn
1951-’76, sem fyrst kom út árið
Heldur færri
ferðamenn
FÆRRI erlendir ferðamenn
komu hingað til lands nú en í
fyrra. Fleiri íslendingar komu
að utan en á fyrra ári.
Frá áramótum og til 1. desember
komu 124.233 erlendir ferðamenn
hingað til lands. Á sama tfma í
fyrra komu hingað 125.112 erlend-
ir ferðamenn. Islendingar ferðast
meira milli ianda en í fyrra. Fram
til 1. desember höfðu um 138.523
þeirra komið heim að utan en í fyrra
einungis 132.292.
1977, og Heimkynni við sjó, sem
fyrst kom út árið 1980. Báðar
hafa þessar bækur verið ófáan-
legar í nokkur ár.
í Kvæðasafiii birtast kvæði úr
öllum ljóðabókum skáldsins fram
til ársins 1976, kvæði úr bókinni
Úr hugskoti, kvæði sem birst
höfðu í tímaritum, en ekki verið
prentuð í bókum og loks nokkur
áður óbirt kvæði og hlaut bókin
mjög góðar viðtökur hjá ljóðaunn-
endum. Mjmdskreytingar í hana
gerði Jóhannes Geir listmálari.
Heimkynni við sjó er eitt sam-
felldasta ljóðasafn Hannesar Pét-
urssonar. í því birtast sextíu ljóð
þar sem skáldið bregður upp
myndum frá skynheimi einstaíd-
ings andspænis náttúrunni. Hann
yrkir um nálæg fyrirbæri hennar
Hannes Pétursson
„með þeim hætti að lesandi skynj-
ar svimandi fjarlægðir meiri en
lagðar verða að baki í ferðalögum
fram og aftur um sögu mannkyns
eða leiksvið athafna þess,“ eins
og Vésteinn Ólason komst að orði
f ritdómi.
Kápumynd gerði Gunnar Karls-
son.
*
Bók um Islands-
ævintýri Himmlers
eftir Þór Whitehead
ALMENNA bókafélagið hefur
gefið út bókina íslandsævintýri
Himmlers eftir Þór Whitehead.
Á bókarkápu segin „Sameining
íslands og Hitlers-Þýskalands var á
dagskrá hjá Heinrich Himmler, yfir-
foringja SS og þýsku lögreglunnar,
í Berlín 1936. Erindreki Himmlers,
SS-foringinn Paul Burkert, fór um
ísland og reyndi að veiða innlenda
ráðamenn í net sitt. Meðal þeirra var
Hermann Jónasson forsætisráðherra.
Himmler mælti til vináttu við Her-
mann með sérstæðum hætti og bauð
honum á Ólympíuleikana í Berlín. Á
meðan sendi hann könnunarleiðang-
ur til íslands skipaðan SS-foringjum
og Gestapómönnum, sem síðar urðu
kunnir um heim allan fyrir flölda-
morð, undirróður og njósnir. Ráða-
gerðir voru uppi um stjóriöjufram-
kvæmdir Þjóðveija á íslandi, land-
nám þeirra hér og byltingarþjálfun
fyrir íslenska nasista hjá SS.
Þór Whitehead fylgir í bókum
sínum ítrustu kröfum sagnfræðinnar,
en tekst jafnframt að hrffa lesendur
sína með jjósri og lifandi frásögn.
Hér opnar hann þeim furðuheim þý-
Þór Whitehead.
skra nasista og skýrir ráðabrugg
þeirra um að innlima ísland f rfki
Himmlers.
Vinnubrögð Þórs og stfll hafa áun-
nið bókum hans sess á metsölulistum.
Að baki þessari bók liggur margra
ára könnun á heimildum SS og öðr-
um gögnum f skjalasöfnum vfða um
lönd. íslandsævintýri Himmlers 1935
—1937 er hér loks rakið."
Bókin er 192 blaðsíður.