Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 57
e&ot craHwray'an ct ctTUi*ninmcM rfxat im/nnanwr MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 a?. - 57 feld, þjálfari Chirburdanidze, heimsmeistara kvenna, hafði þann- ig ekki mikla trú á framgöngu stúlknanna og lét það álit sitt í ljós að í viðureignum við karla hefðu þær mikla sálfræðilega yfírburði. Karlmenn hefðu almennt tilhneig- ingu að álíta að sigur yrði að vinn- ast gegn stúlkunum ungu. „Nú tefla þær á jafnvægisgrundvelli og gefst því kostur á að sanna hvort þær séu snillingar ellegar einungis venjulegir kvenmenn,“ sagði hann og ef marka má ummælin teljast þær nú víst til snillinga. Ungversku stúlkumar sigruðu nefnilega á mótinu eftir æsispenn- andi lokaviðureign. Þær hlutu 33 vinninga en hinar sovésku 32'/2 vinning. Keppnin var æsispennandi frá upphafí til enda og aldrei skildi meira en IV2 vinningur sveitimar. Fyrir síðustu umferð vom liðin jöfti með 31 vinning. Fyrir sovésku stúlkunum beið þó auðveldara hlut- verk, að mæta hollenska Iiðinu, á meðan ungverska liðið tefldi við það sænska með Piu Cramling á fyrsta borði. Ungversku stúlkumar reynd- ust á hinn bóginn sterkari. Hlutu tvo vinninga í lokaviðureigninni en hinar sovésku einungis IV2. Sovéska liðið varð fyrir skipbroti skömmu fyrir mótslok þegar ein fremsta skákkona þeirra, Akh- milovskaja, tók þá örlagaríku ákvörðun að flýja land. Fyrir þrem- ur áram kynntist hún að sögn bandaríska liðstjóranum og ákváðu þau nú að gifta sig og fara í skyndi til Bandaríkjanna. Það munaði um minna fyrir sovéska liðið því hún hafði fengið 8V2 vinning í þeim 9 skákum sem hún hafði teflt til þessa auk þess sem sömu stúlkumar urðu að tefla mótið á enda án hvíldar. Yngsta Polgar-systirin, Judith Polgar, var höfuðpaurinn í sigrum ungverska liðsins. Hún blómstraði á mótinu, hlaut I2V2 vinning í 13 skákum og var jafnan fyrst í liðinu til að afgreiða andstaeðing sinn. Stúlkan virðist hreint búa yfir ótrú- legum hæfíleikum ásamt mikilli æfingu. Láklega skýtur hún elstu systurinni nú ref fyrir rass með þessari frammistöðu og ef marka má reikninga gáranga verða ELO- skákstig hennar vel yfír 2.500 stig þegar til útreiknings kemur í jan- úar. Grikkir hafa nú tryggt sér rétt til þess að halda Olympíuskákmótið á fjögurra ára fresti fram til alda- móta. Sú ákvörðun fellur þó illa við skoðanir skákmanna því aðstæður vora hvergi mótshölduram til sóma. í keppnissal var loftið þungt, reykingar allsráðandi og þröngur húsakostur. Ljósmyndarar vora að auki í sífellu að smella af skotum þvert á reglur. FIDE og lítið var aðhafst til að stugga við óviðkom- andi þegar komið var á umráða- svæði keppenda. Húsakostur var raunar ágætur fyrir íslensku sveit- ina en fyrir það eiga skáksambands- menn íslenskir frekar heiður skilið en grískir skipuleggjendur því stór fjárútlát þurfti að inna af hendi svo tíl þess kæmi. Skáksamband Is- lands á að öllu leyti heiður skilið fyrir sköraglega frammistöðu varð- andi undirbúning sveitarinnar og verður hvergi við það að sakast yfir árangrinum. Að lokum er vert að líta á hvem- ig heimsmeistarinn Kasparov af- greiðir enska stórmeistarann Short rétt eins og hvem annan áhuga- mann. Lokaniðurstaða, karlaflokkur: 1. Sovétríkin 40>/2 vinn. af 48 mögul. 2. England 34V2 (457.0) 3. Holland 34*/2 (455.0) 4. Bandaríkin 34 (459.0) 5. Ungvetjaland 34 (456.5) 6. Júgóslavía 33V2 7. Filippseyjar 33 (449.5) 8. Kína 33 (447.0) 9. Kúba 33 (439.5) 10 Argentína 33 (434.5) 11. ísrael 33 (432.5) 12. Svíþjóð 33V2 (458.0) 13. Tékkóslóvakía 32>/2 (446.0) 14. Ítalía 32V2 (432.0) 15. ísland 32 (449.5) 16. Danmörk 32 (449.0) 17. A-Þýskaland 32 (444.5) 18. V-Þýskaland 32 (435.5) 19. Indland 32 (432.0) Alls tefldu 107 þjóðir í karlaflokki. Lokaniðurstaðan i kvennaflokki: 1. Ungveijaland 33 vinn. af 42 mögul. 32V2 3. Júgóslavía 28 4. Kína 27 I 5. Búlgaría - 25 \ 6. Grikkland 24 (344.0) 7. Rúmenía 24 , (343.5) 8. Kúba 24 / (338.5) 9. Bandaríkin 23>/2 (344.0) 10. Holland 23>/2 (322.0) Alls tefldu 56 bióðir í kvennaflokki. Hvítt: Garrý Kasparov. Svart:Nigel Short. Drottningarbragð 1. c4 — e6, 2. Rc3 — d5, 3. d4 — Be7, 4. cxd5 — exd5, 5. Bf4 — c€, 6. Dc2 - g6, 7. e3 - Bf5, 8. Dd2 Kasparov velur hér afbrigði sem Karpov beitti í einvíginu gegn hon- um í London 1986. í fyrstu mætti ætla áð um leiktap sé að ræða með að víkja drottningunni undan en hvítur hefur í hyggju að koma upp sterku miðborði með því að leika f3 og e4. 8. - Rf6, 9. f3 - c5, 10. Bh6! Nýjung Kasparovs og miklu sterkari leikur en framhaldið 10. Bb5+ — Rc6, 11. dxc5 — Bxc5 og möguleikarnir vega nokkuð jafnt. Leikur heimsmeistarans hindrar hrókun hjá svörtum ásamt því sem svörtum reynist erfiðleikum bundið að koma mönnum sínum á þokka- lega reití. 10. - cxd4?! (Auðvitað lá ekkert á þessum uppskiptum sem opna e-línuna fyrir hvítum. Skynsamlegra var að leika 10. - Rc6 þvf 11. Bg7?! - Hg8, 12. Bxf6 - Bxf6, 13. dxc5 - Da5 skapar engar hættur fyrir svartan. 11. exd4 - a6?, 12. g4! - Be6, 13. Rge2 - Rdb7,14. Bg2 - Rb6 Svarta staðan er nú þegar mjög erfíð og hann á erfitt um vik. Kóng- ur hans getur hvergi hreyft sig og taflmennskan er ráðleysisleg. E.t.v. var skárra að leika 14.— Bf8 þó svartur sé ekki öfundsverður af stöðu sinni. 15. b3 — Hc8, 16. 0-0 — Hc6, 17. h3 - Rfd7 - 18. Rdl! Það er aðdáunarvert hve auð- veldlega hvítur bætír stöðu sina með einföldum leikjum án þess að andstæðingurinn komi nokkram vömum við. 18.- Hg8, 19. Rf2 — f5? Peðið var betur látið ósnert því liðsmenn hvíta liðstjómandans eiga nú mun auðveldara um vik að leggja til atlögu gegn svarta kónginum. 20. Hael! - g5,21. gxf5 - Bf7? 21. — Bxf5, 22. Rg3 var eflaust skárra þótt úrslitin yrðu vafalaust hin sömu. Svörtum gefst ekkert tækifæri til að klófesta hvíta bisk- upinn á h6. 22. Rg4 - Bh5, 23. Rg3! Og hvítur gafst upp. 23. — Bxg4 er auðvitað svarað með 24. Bxg5 og frekari mótspyma er tilgangs- laus. Skúli Pálsson á Laxalóni lýsir viðburðaríkri ævi sinni, segirfráættsinniogsamferðamönnum, frumkvæði sínu í fiskeldi og áratugabaráttu fyrir að fá að rækta regn- bogasilung. „Framkoma valdastofnana í minn garðer eitt mesta hneyksli í atvinnusögu þjóðarinnar“ segir Skúli. BLADADÓMAR „Þarna er loks felld saman í heild sérstæð saga mannréttinda- baráttu í heimalandi okkar, íslandi. Sú saga ætti að vera skyldu- námsbók í skólakerfinu.“ (Ólafur Hannibalsson DV 28.11. ’88) „Þessi saga Skúla Pálssonar á Laxalóni er hið merkilegasta skilríki og til þess fallin að leiða hugann að því að í hinu rómaða lýðræðisríki Islandi er ekki ávallt allt sem sýnist.“ (Sigurjón Björnssonar Mbl. 26.11. ’88) „Bókin er öðrum þræði þungur áfellisdómur yfir þjóð, en reisir yfir sig lokað miðstýringakerfi, sem berst með oddi og egg gegn sumum þeim er leita á mið óvissunnar.“ (Jónas Kristjánsson DV 26.11.’88) Mörgum þykir bókin vera kjaftshögg á kerfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.