Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 77

Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 77 Bítlavinafé- lagið í gull FYRSTA íslenska hljómplatan á yfirstandandi jólavertíð, sem selst í yfir 3.000 eintökum, er plata Bítlavinafélagsins „12 íslensk bítlalög". Platan kom út um miðjan nóv- ember og seldist fyrsta upplag hennar, 2.000 eintök, upp á rúmri viku. Nokkrir erfiðleikar voru að fá birgðir til landsins en þegar þær bárust loks um mánaðamótin seld- ust rúmlega 1.000 eintök, segir í frétt frá Steinum hf. Vitni vantar LÖGREGLAN óskar eftir að hafa tal af vitnum að árekstri tveggja fólksbila við umferðar- ljós á mótum Stekkjarbakka og Reykjanesbrautar, við Staldrið, um klukkan 7.45 að morgni föstudagsins. Annar bílanna kom eftir miðak- rein á leið norður Reykjanesbraut en hinum var ékið suður Reykjanes- braut og beygt austur Stekkjar- bakka. Okumennina greinir á um stöðu umferðarljósanna. Eru vitni að óhappinu beðin að hafa samband við Slysarannsóknadeild lögregi- unnar í Reykjavík. INNLENT Hamborgartré við Haíharbúðir Ljos voru tendruð á jólatré við Hafnarbúðir á laugardag. Tréð fékk Reykjavíkurhöfii sent, eins og mörg undanfarin ár, frá fé- lagsskapnum Wikingerrunde í Hamborg í V-Þýskalandi. Hafiiar- stjóri veitti trénu viðtöku frá fúlltrúa gefenda að viðstöddum, meðal annarra, Davíð Oddssyni borgarstjóra og sendiherra V- Þýskalands. Félagar úr lúðrasveitinni Svani léku. Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Útivistartími bama og unglinga í reglugerð um vemd bama og ungmenna segir m.a. að böm yngri en 12 ára megi ekki vera á aimannafæri eftir klukkan 20 á tímabilinu 1. september til 1. maí og eftir kl. 22 frá 1. maí til 1. september, nema í fylgd með fullorðnum, aðstandendum sfnum eða umsjónarmönnum. Þá segir að bömum yngri en 14 ára sé ekki heimill aðgang- ur að knattborðum, spilakössum eða leiktækjum, sem almenning- ur á aðgang að, nema í fylgd með fullorðnum. Enn fremur segir að ungiingar yngri en 15 ára megi ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 frá 1. september til 1. maí og kl. 23 frá 1. maí til 1. september, nema í fylgd með fuUorðnum eða um sé að ræða beina heimferð frá skólaskemmtun, íþrótta- samkomu eða annarri viðurkenndri æskulýðsstarfsemi. Að lokum segir f reglugerðinni að unglingum yngri en 16 ára sé óheimill aðgangur og dvöl á aimennum dansleikjum eft- ir kl. 22, öðrum en sérstökum unglingaskemmtunum, sem haldn- ar eru af skólum, æskulýðsfélögum eða öðrum aðilum, sem til þess hafa leyfí og háðar eru sérstöku eftirliti. Forstöðumönnum dansleikja er skylt að fylgjast með því, að regiunum sé fylgt, að viðlögðum sektum eða missi leyfis til veitingahalds eða skemmtanahalds um lengri eða skemmri tíma. Hvers konar þjónusta við böm eða unglinga eftir löglegan útivistartíma, önnur en heimflutningur, er bönnuð að viðlagðri ábyrgð þess, sem þjónustuna veitir. Handhöfum þjónustuleyfa er skylt að fylgjast með því, að ákvæði regiugerðarinnar séu haldin. Ný bók um Frostaog Frikka IÐUNN hefúr gefið út þriðju bók- ina í flokki teiknimyndasagna um þá félagana Frosta og Frikka eft- ir Bob de Moor og nefiiist hún Guli njósnarinn. Frosti og Frikki, ásamt Sigmari frænda, lenda í æsilegum ævintýr- um. Guli njósnarinn, hættulegasti óvinur mannkyns, er kominn á kreik og hefur tekist að ræna áætlunum um fullkomin kjamorkuflugskeyti sem hann ætlar að nota til að leggja Evrópu undir sig. Frosti og Frikki stofna björgunar- sveit ásamt vini sfnum Jerry Kan og ráðast inn f sjálfar höfuðstöðvar Gula njósnarans, þar sem hættur leynast við hvert fótmál. Bjami Fr. Karlsson þýddi. Kaupmannasamtök íslands: Vörugjald bitnar sér- staklega illa á lands- byggðarverslunum MORGUNBLAÐINU hefúr borist eftirfarandi ályktun gerð á fúndi framkvæmdastjómar Kaup- mannasamtaka íslands miðviku- daginn 7. desember 1988: „Framkvæmdastjóm Kaup- mannasamtaka íslands mótmælir harðlega þeim fyrirætlunum núver- andi rfkisstjómar að hækka vöm- verð í landinu með álagningu sér- staks vörugjalds. Um síðustu ára- mót náðist mjög mikilsverður og langþráður árangur f þvf að lækka tolla og afnema vömgjald á marg- víslegum vömtegundum og var það gert m.a. til þess að gera vömverð sambærilegra við það, sem gerist f nágrannalöndum okkar. Nú tæpu ári sfðar er fyrirhugað að taka þær verðhækkanir aftur. Sýnt er að þessi skattlagning mun hækka vöraverð til muna og veikja kaupmátt almennings enn frekar, sem leiðir af sér meiri samdrátt f veltu verslunarinnar, sem víðast á við rekstrarvanda að etja. Sérstaklega mun þetta skerða hag landsbyggðarverslana, þar sem þessar ráðstafanir auka til muna verðmismun á milli landsbyggðar og Reykjavíkursvæðisins, sökum þess að flutningskostnaður greiðist af þessum gjöldum og 25% sölu- skatt ber að greiða af flutnings- kostnaðinum. Þetta ber að hafa í huga á sama tíma og ríkisstjómin hefur boðað sérstakar aðgerðir til þess að bæta hag verslana á lands- byggðinni. Jafnframt þessu ftreka Kaup- mannasamtök íslands áður fram komin mótmæli sfn við fyrirhugaða hækkun sérstaks skatts á verslun- ar- og skrifstofuhúsnæði, sem kem- ur til með að auka kostnað f verslun- inni og veikir samkeppnisstöðu fslenskrar verslunar gagnvart er- lendri verslun. Þessi skattur mismunar mjög milli atvinnugreina og er þvf ósann- gjam og einsdæmi um skattlagn- ingu hér á landi." Eiginmenn Takið þátt í jólabakstrinum... ... og gefið henni TANITA eldhúsvog frá okkur. PDaisííos KRÓKHÁLS 6 SÍMI 91-671900 V HVÍTI PUNKTURINN TRYGGIR GÆÐEN Helstu útsölustaðir utan Reykjavíkur: Bókabúðin Veda, Kópavogi Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði Bókabúð Böðvars, Hafnarfirði Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókabúð Jónasar, Akureyri ' Bókval, Akureyri Bókabúð Jónasar Tómassonar, ísafirði Cjób fljöf sem gleður SHEAFFER

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.