Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 42 III óvissu um tækifærin sem bíða þess heima að námi loknu. Það verður að heyja harða baráttu við sjálft sig. Að því leyti er list alveg eins og vísindi. Það er fróðlegt að taka annað dæmi af ávöxtum menntunar á ís- landi. Frá sokkabandsárum mínum í Reykjavík minnist ég blaðamanna- stéttarinnar í bænum. Hún var diykkfelld og heldur notaleg: ef maður þurfti að fá sér í staupinu um miðjan dag, þá var bara að stinga sér inn á eitthvert blaðið. Menn höfðu yfírleitt þvælzt út í blaðamennsku úr neyð, til að mynda þeirri að hafa ekkert lært. Verkið sem þeir skiluðu var eins og við er að búast: ef lesandinn man ekki til þess, vegna æsku eða af öðrum sökum, hvemig blöð og útvarp voru fyrir þijátíu árum, ætti hann að bregða sér á bókasafn og fletta blöðum frá þeim tíma og bera þau saman við til að mynda Morgun- blaðið eins og það er í dag. Þá birt- ist þar engin grein eins og þessi. Sannleikurinn er sá að blaða- mennska var eiginlega ekki til, hvað þá eitthvað sem svipaði til sjálf- stæðrar blaðamennsku. Ef ég má víkja frekar að eigin reynslu þá hef ég átt sæti í siða- nefnd Blaðamannafélagsins um nokkra hríð, og þurft að kynna mér í þaula fáein verk íslenzkra blaða- manna sem nú starfa. Auðvitað eru vankantar úti um allt. En eftir stendur að á skömmum tíma hefur orðið til í landinu blaðamannastétt sem hefur bæði metnað og sjálfs- virðingu, þótt hún fái oftast ekki sæmilegt færi á að njóta sín fremur en ungt vísindafólk og listafólk. Ég lagði það á mig í haust að fylgjast nokkuð vandlega með stjómar- myndunartilraunum sem þá fóru fram. Þær tilraunir kallaði Sig- mundur Guðbjamason rektor „skrípaleik" í háskólahátíðarræðu í síðasta mánuði, og þótti mér þar vægt að orði komizt. Þó veitti ég því miklu meiri athygli en skrípalát- unum sem slíkum hvað fréttamenn- imir bám að öllu leyti af stjóm- málamönnunum sem þeir áttu við að etja. Það var ójafn leikur. Nú spyr ég: hvaðan kemur þessi nýja blaðamannastétt? Svarið er að hún kemur úr háskólum. Hún er ávöxtur menntunar. Hún á ábyggi- lega eftir að blómgast, og þegar hún gerir það verður það einkanlega fyrir meiri og betri menntun. Dæmin gætu auðvitað orðið miklu fleiri. Ég nefndi það hér fyr- ir framan að á Islandi er að mörgu leyti austurevrópskt þjóðfélag. Þetta á við um dijúgan hluta af atvinnulífi landsmanna, eins og bezt sést á íslenzkri framleiðslu. Sterkur íslenzkur ostur er hráblautur og það er ekki hægt að skera hann í sneið- ar: ef það er reynt brotnar hann. íslenzkt belti er of breitt fyrir sylgj- una sem á því er svo það tætast upp á því brúnimar á einum degi. Ópaltöflur em oftar en ekki klesst- ar saman í pökkunum, og fímmta hver tafla bráðnar ekki heldur molnar uppi í manni. Ég er hættur að hafa tölu á þeim femum af skemmdum appelsínusafa, keyptum löngu fyrir ástimplaðan síðasta söludag, sem ég hef orðið að skila aftur til framleiðandans, og þó er framleiðsla hans ekki fólgin í öðm en að blanda vatni í útlent ávaxta- þykkni sem kemur n æstu m_ ábyggi - lega óskemmt til landsins. Á íslandi er ekki hægt að fá nýslátrað lamba- kjöt nema einu sinni á ári, ekki óblandað nautahakk nema með höppum og glöppum, og ekki bæri- legt hangikjöt nema gegnum kunn- ingjasambönd eða klíkuskap. Svona er það líka í Rúmeníu og Ráðstjóm- arríkjunum. Og eins og þar verður að skrifa þetta auma atvinnulíf að miklu leyti á reikning stjómmála- manna og umboðsmanna þeirra í bönkum og ráðum og sjóðum. Atvinnulíf á íslandi á sér aðeins eina von og hún er menntun. Það er að segja ungt fólk með metnað til að gera hlutina vel, þó ekki sé nema lítinn pappapakka með ópal- töflum. Perestrojka! Hagfræðingar hafa stutt það nokkram rökum að hagvöxtur hér á landi hafí lengi verið helmingi minni en hann hefði getað verið. Hvers vegna það? Þetta er hag- fræðileg spuming sem hægt er að svara með sterkum rökum: það er — ósköp einfaldlega — stjómmála- mönnum að kenna. Öllum eins og þeir leggja sig, úr hveijum einasta stjómmálaflokki. Þeir hafa reynzt vanhæfír til verka. Ami Bergmann kannaðist við þetta í Þjóðviljanum, sýndist mér, og kenndi því um að þessir karlar okkar væra alltaf að leika stjómmálamenn eins og Reag- an eða Gorbatsjoff, og hugsuðu mest um það hvemig þeir taki sig út í sjónvarpi. Kannski þetta sé rétt hjá Áma. Hann fylgist með þeim frá degi til dags sem er meira en ég geri. Það er ekkert til í íslenzkum stjómmálum á okkar dögum sem heitið getur hugsjón. Við getum ekki tilgreint einn einasta íslenzkan stjómmálamann sem trúir á eitt- hvað og berst svo fyrir því af öllum kröftum, með rökum eða þó ekki sé nema mælsku. Við hér í Háskól- anum vitum ekki af neinum al- þingismanni sem er vinur Háskól- ans, alþingismanni sem trúir því af hug og hjarta að vegur Háskóla Islands varði sóma landsins og breytir svo eftir þeirri sannfæringu sinni. Meira að segja háskólakenn- aramir á Alþingi hafa engan áhuga á Háskólanum, enda er það ugg- laust þess vegna sem þeir era al- þingismenn. Ég þekki líka dálítið til í Islensku óperanni. Þar höfum við um árabil leitað dauðaleit að alþingismanni sem trúir á tónlist og tónlistarlífíð í landinu. Það fínnst enginn, og samt era þeir sextíu og þrír. Það er ekki til alþingismaður sem trúir á siðferði og berst fyrir því upp á líf og dauða. Ekki lengur. Það er ekki einu sinni til al- þingismaður sem trúir á lands- byggðina, enda er landsbyggðin í kaldakoli eftir því sem þeir segja sjálfír. Samt er það landsbyggðin sem stjómað hefíir landinu í ára- tugi með rífandi meirihluta á lög- gjafarsamkomunni. En þeir trúa ekki á landsbyggðina. Þeir vilja hafa puttana í bönkum og ráðum og sjóðum fyrir þijú hundrað þús- und á mánuði, eins og Stefán Val- geirsson sem hefur stjóm landsins í hendi sér um þessar mundir. Og hvers vegna skyldu þeir ekki fá það úr því að forseti Hæstaréttar þarf mörg hundrað brennivínsflöskur á viku? Þeir vilja vera stjómmála- menn. Hver sem þetta les getur spurt sig spumingar og svarað henni: á hvað trúa Jón Baldvin Hannibalsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur Hermanns- son og Þorsteinn Pálsson? Er virki- lega enginn bjarmi af alvöraeldi sem heldur þeim gangandi frá degi til dags? Svarið getur aðeins orðið: þeir vilja vera stjómmálamenn. Svo má ugglaust lesa um það í heimilis- blöðunum og jólabókunum, hvað þeir era mannlegir og allt er huggu- legt í kringum þá og konumar þeirra flottar og fallegar, alveg eins og Nancy Reagan og Raísa Gor- batsjova. Nema félagi Svavar sem ætlar að afsala sér valdi út í skól- ana og þjóðlífið. Perestrojka! í staðinn fyrir hugsjónir hafa stjómmálamenn nú á dögum eitt- hvað sem þeir „leggja áherzlu á“. Svo er lögð áherzla á að eiga aðild að ríkisstjóm þótt hún virði ekki samningsrétt. Næsta dag er sú samþykkt tekin aftur, eins og hún sé fráleit og hafí eiginlega aldrei verið gerð, því að samningsréttur- inn sé „algert prinsípmál“, og á þriðja degi er ríkisstjómin mynduð og hinn heilagi málstaður samn- ingsréttarins gleymdur og grafínn. „Við leggjum áherzlu á þetta,“ segja þeir. Enginn alþingismaður trúir á landsbyggðina, og þá er ekki von að neinn alþingismaður trúi á íslenzka náttúru til lands og sjávar og hafi svo mikið. sem upplýstar skoðanir á henni, hvað þá hugsjón- ir um hana. Ég ætti ekki að nefna landsgjöfína — grænt og gróið land — ftá 1974 og nú er ég búinn að því. Tölum heldur um hvali. IV Að uppblásnu landinu frátöldu búa Islendingar enn sem komið er við tiltölulega óspjallaða náttúra: tært loft og hreint haf. En það er ekki þeim að þakka heldur guði eða náttúranni. Sannleikurinn er sá að Islendingar hafa frá öndverðu til þessa dags umgengizt láð og lög af einstöku virðingarleysi. Öll saga Islands er rányrkjusaga. Ef eitt- hvert vit væri í íslenzkum stjóm- málamönnum þá væra margir heit- ir vitrir og mælskir baráttumenn fyrir náttúravemd í þeirra hópi. En þar er enginn slíkur því að stjóm- málamenn era ekki baráttumenn fyrir neinu, heldur era þeir væra- Sjá næstu síðu STÓLAR í EPAL, FAXAFENI 7 GULLVÆCAR BÆKUR í SAFNIÐ Þrautgóðir á raunastund Steinar J. Lúðvíksson Björgunar- eg sjóslysasaga íslands, 19. bindi Bókin fjallar um árin 1972—1974. Þá gerðust margir stórviðburðir. Togarinn Hamranes sökk út af Jökli 1972. Hörmuleg sjóslys urðu í skaðaveðrum 1973 þegar vélbátarnir María og Sjöstjarnan fórust. Einn- ig segir frá strandi Port Vale við ósa Lagarfljóts. Minningar Huldu Á Stefánsdóttur Skólastarf og efri ár Hulda segirfrá Kvennaskólanum á Blönduósi þar sem hún var skólastjóri og Húsmæðraskóla Reykjavíkur sem hún veitti forstöðu. , ,Mór finmst bókin með hinum beztu, sem ég hef lesið þessarar tegundar" Þór Magnússon, þjóðminja- VÖrður om fyrsto minmngobók Holdu [ bréfi til honnor 10. jan. 1986. Þjóðhættir og þjóðtrú Skráð af Þórði safnstjóra i Skógum Þessi bók er árangur af samstarfi Þórðar Tómassonar safn- stjóra í Skógum og Sigurðar Þórðarsonar hins fróða af Mýrum í Hornafirði. Hér greinir frá lífi og starfi, þjóð- siðum og þjóðtrú. ÖRN OG ORLYGUR SÍÐUMÚLA II, SÍMI 8 48 66 P&Ó/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.