Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 31 Hörður Torfasonsend- ir frá sér tvöfalda plötu HÖRÐUR Torfa sendir nú frá sér tvöfalda hljómplötu sem nefiiist „Rauði þráðurinn“ og inniheldur tónleika hans frá því í haust. Þarna er að finna flest þekktustu lög Harðar og spanna þau feril hans sem trúbadúrs, en hann er sem kunnugt er braut- ryðjandi á því sviði hérlendis. Alls eru á plötunum 18 lög og meðal þeirra má nefna Ég leitaði blárra blóma, Kveðið eftir vin minn, Dé Lappé (Dagurinn kemur), Jósep smiður og Bamamorðinginn María Farrar, en það lag hefur Hörður ekki gefið út á plötu áður. Eftir tónleikana var ákveðið að bæta nokkmm hljóðfæmm inn á sum laganna. Til þess verks voru eftirtaldir hljóðfæraleikarar valdir: Jakob Smári Magnússon á strengja- lausan bassa, Rafn Jónsson á áslátt- arhljóðfæri, Jón Ólafsson á orgel LjósmyndBjörg Sveinsdóttir Hördur Torfason og Haukur F. Hannesson á selló. Það er Ofar í Reykjavík sem sér um útgáfu þessarar plötutvennu en Steinar hf. sér um dreifingu. Skaldsaga efltir Jón Gísla Högnason Bókaforlag Odds Björnssonar hefúr gefíð út bókina Æskuást og önnur kona eftir Jón Gísla Högnason. Þetta er áttunda bók Jóns Gísla og fyrsta skáldsaga hans. í kynningu útgefanda segir: „í þessari bók segir frá æsku og upp- vaxtarámm ungs manns í sveit á íslandi á öndverðri þessari öld. Þetta er saga um ást og lífsbar- áttu, þolgæði og drengskap." Bókin er 183 blaðsíður. Prentun og bókband annaðist Prentverk Odds Björnssonar. Káputeikningu gerði Hans T. Christiansen. Jón Gísli Högnason Við hjá gullsmíðastofu Kjartans Ásmundssonar höfum á boðstólum mikið úrval af herraskartgripum, t.d. hringi, hálsfestar, bindisnælur og ermahnappa. Ef þú leitar að fallegri gjöf sem gleður ástvin - þá líttu við hjá okkur. L/kjartan ásmundsson gullsmiour .\ €totvviv 4tocvviv 4törm$lfcv NÚ ER ÉG KLÆDDUR OG KOMINNÁ ROKK OG RÓL Hvaða krakki á islandi kann ekki utanað lagið Sókrates (þú og þeir), jafnvel betur en eigið nafn og heimilisfang? Það væru þá helst fóstur. Núna er komin út 14 laga barna- plata eftir þennan dáða tónlistarmann, plata, sem börn jafnt sem fullorðnir hafa beð- ið eftir með óþreyju. Allir geta verið sammála um að þetta sé ein sniðugasta og skemmtilegasta barnapoppplata sem út hefur komið, enda eru nú þrjú lög plötunnar þegar farin að njóta vinsælda: „Fullorðinn og orðinn fullur" með Stormsker og Rakel Axelsdóttur, „Útó-pia" með Stormsker og Ladda, og „Bless" með Stormsker og Öldu Ólafsdóttir. Meðal annarra flytjenda má nefna Axel Einarsson (höfund lagsins „Hjálp- um þeim") og Stefán Hilmarsson, en hann syngur á plötunni m.a. ensku útgáfuna af Sókrates. Við fyrstu hlustun gæti maður haldið að hérna væru um „the best of" plötu að ræða. Við aðra hlustun virkar hún sem „greatest hits". Við þriðju hlustun virkar hún sem „the very best of greatest hits". ÚRVALS PLATA SEM ALLIR MANNALEQIR KRAKKAR OG KRAKKALEGIR MENN VERÐA AÐ EIQNAST ............ * .......T* --------- NÓTNABORÐHALD Óvenjulegri plata frá hendi popptónlistarmanns hefur ekki komið út á íslandi frá upphafi. Platan hefur að geyma leikin, melodísk píanóverk í klassískum stíl, róleg- ar, tregablandnar perlur, sem aðeins er á færi tónsnillinga að skapa. Hver hefði trúað því að „strigakjafturinn hann Stormsker" væri megnugur skapari svo gullfallegra meistaraverka sem þessara. Með plötu þessari brýtur Sverrir Storm- sker blað í íslenskri tónlistarsögu og tekur af allan vafa um það, hver sé hinn ókrýndi konungur tónsköpunarinnar á íslandi. Einu orðin sem megna að einhverju leyti að lýsa þessari plötu eru orð Kristjáns Albertssonar sem hann hafði um fyrsta sanna snilldarverk Laxness: „Loksins, loksins". Stormskerer Laxnesstónlistarinnar. TÓNLISTARUNNENDUR ÆTTU AÐ SKAMMAST SÍN FYRIR PLÖTUSÖFN SÍN, EF ÞESSA PLÖTU VANTAR. Útgefandi: Stöðin (Axel Einarsson) Dreifing: Steinar hf. .................................. Einn frumlegasti, afkastamesti og listfengasti tónlistarmaður landsins kveður sér hljóðs að nýju með tveimur plötum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.