Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 50

Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 Þymar á skáldabmutimii eftirÁgúst Sverrisson I fljótu bragði séð mætti ætla að ekki væri amalegt að vera ljóðskáld á íslandi. Vitanlega er srjaldgæft að fólk geti lifað af slíku snuddi frekar en öðrum ritstörfum en engu að síður virðist á yfirborðinu margt hvetja þá til átaka við ljóðið sem á annað borð finna hvöt hjá sér og hæfíleika til að galdra með orðum. Góður skáldskapur fer varla framhjá hinum sívakandi bókmenntaheimi eða hvað? Sífellt er orðum vikið að hinni blómlegu og gró- skumiklu ljóðabókaútgáfu þannig að ekki ætti skáldum að finnast þau standa ein í streðinu, öflugt samkomu- hald virðist iðkað til að koma ungum og efnilegum Ijóðskáldum á framfæri og sífellt er verið að prenta safnrit með tjómanum af orðgaldri nýgræð- inga. Virðulegt forlag hefur gefið út heildarsafn (eða þvi sem næst) tveggja ungra skálda en slíkt hefur hingað til aðeins tíðkast um aldraða eða látna höfunda. Með sanni er sagt að gróska sé í ljóðagerð á Islandi eða að „ljóðið lifi góðu lífí“. Þannig lítur þetta út á yfirborðinu fyrir mörgum, þetta er framhliðin á þorpi ljóðlistarinnar í bókmenntaheim- inum. Raunveruleikinn bakvið þessa framhlið er hins vegar allt annar og mörgum til lítils sóma sem þar koma við sögu þó að eftir standi sú stað- reynd sem sumir vilja vefengja að ennþá eru ort góð ljóð á Islandi. Af rímdraugum og bókmenntafasisma Þeir vita sem til þekkja að hið gríðarlega magn svokallaðrar neð- anjárðarútgáfu, þ.e. útgáfu á kostn- að höfunda, er ákaflega misjafnt að gæðum. Stór hluti almennings og bókmenntastofnanir og sérílagi menningarskríbentar dagblaða virðist ekki gera sér grein fyrir þessari staðreynd. Þessu fléttast tvær ríkjandi meginranghugmyndir um samtímaljóðlist sem hér verða reifaðar. Fyrri ranghugmyndin snertir ljóðlistina í heild og er reyndar svo heimskuleg að allir sannir bók- menntaunnendur reyna að leiða hana hjá sér, hún tengist almennu menningarhatri hjá stórum hópi fólks úr ölium þjóðfélagsstéttum sem á það sameiginlegt að vilja he§a lágmenningu til virðingar. Almennir menntunarstaðlar virðast ekki vera í neinu samhengi við menningarneyslu enda til fjöldinn af fólki háskólamenntuðu í við- skipta- og raungreinum, sem hefur viðlíka smekk fyrir listum og sein- þroska táningar. Og hópurinn virð- ist sífellt stækka ef marka má radd- ir borgaranna í offramboðinu í fjöl- miðlaflórunni. Þetta er fólkið sem kaupir sér myndlykil til að láta dæla í sig undanrennunni af vest- rænni kvikmynda- og sjónvarps- þáttagerð en vill ekki umgangast bækur sem annað en stofustáss. Skoðanir þessa fólks á nútímaljóð- list eru á þessa leið: Nútímaljóð eru óskiljanleg, leiðinleg og eiginlega enginn skáldskapur. Almennilegt ljóð hefur ekki verið ort síðan menn hættu að nota rím og stuðla nema í sjónvarpsþáttum Omars Ragnars- sonar. „Þetta er ekkert Ijóð“ er al- gengt viðkvæði þegar sljó lágmenn- ingamærð augun eru rekin í texta nútímaskálds. Krafan um stuðla og rím sem mælikvarða á hvað sé ljóð og hvað ekki er í rauninni jafngáfu- leg og að þess væri krafíst að skáld- sögur væru rímaðar og stuðlaðar eða kaflar þeirra nákvæmlega jafn- langir: gæði skáldskapar ráðast af þeim hughrifum sem textinn veldur og meðferð skáldsins á tungumál- inu: í rauninni skiptir ekki máli hvort nútímaljóð er kallað ljóð eða eitthvað annað en ljóð; það hefur jafnmikið gildi undir titlinum „smá- texti" eða hvað eina. Krafa lág- menningarsauðanna um stuðla og rím er þeim mun hlálegri að í bók- menntaheiminum er mikið rætt um (og það ekki að ástæðulausu) að UHfetÉÉftfeÉHflÉMÉÉÉMHilÉiÉÉá mörkin milli sögu og ljóðs séu að rofna og heitið skáldsaga sé raunar þegar úrelt því form hennar rúmi nú ýmislegt sem það ekki gerði áður. Það er í rauninni aukaatriði hvort texti er kallaður ljóð, saga, þáttur, kafli eða guð má vita hvað, gæði og gildi skáldskapar ráðast af allt öðrum hlutum. Fyrmefndur afruglarahópur er reyndar ekki einn um þessar grát- broslegu rímskorðuðu skoðanir á ljóðlist. Nokkuð hávær í þessu for- dóma- og fáviskumyrkri er viss hópur „listnjótenda" og „bók- menntafólks" sem tamið hefur sér svo þröngan smekk og svo óbil- gjamar skoðanir á list að flokka má undir fasisma, eru viðhorfin enda mjög í anda misheppnaðs lista- manns nokkurs er ávann sér frægð á öðrum sviðum og hét Adolf Hitler. Miðaldra framkvæmdastjóri birti á dögunum grein í Morgunblaðinu sem lýsir ágætlega skoðunum þessa hóps: Var þar sproksett ljóðaárbók AB, efni hennar fundið flest til for- áttu, tekin nokkur dæmi úr bókinni og þeim gefin einkunnin úrkynjuð list. I þessari bókmenntagreiningu framkvæmdastjórans komu fram þröngar og nákvæmar skoðanir hans á því hvað til ljóðlistar eigi að teljast: Ljóð sé rímaður og stuðl- aður texti sem ekki má rúma neitt hugmyndaflug umfram hverdags- legt raunsæi: Fór það enda mest í taugar greinarhöfundar að skáldin beittu fyrir sig líkingum og brugðu upp myndum sem ekki falla að hinni flötustu rökhyggju. Mætti af þess- ari gagnrýni ætla að skáldskapur hefði ekkert með hugmyndaflug að gera heldur kalda rökhyggju og leikni í því að láta orð ríma. I áhlaupi sínu á skáldskapinn réðst höfundur ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, lét sér ekki nægja að hnýta í íslensk skáld heldur amaðist við þýðingu Jóhanns Hjálmarssonar á ljóði eftir Cesar Vallejo. Óneitanlega skoplegt að þetta heimsfræga útlagaskáld frá Perú sé dæmt hæfileikalaust með þessum hætti. Utangarðsmenn og jafnaðarmennska Síðarnefnda ranghugmyndin snerti eiginútgáfuljóðlist og finnst í kolli ótrúlega margra: Að hana stundi aðeins utangarðsfólk, fylli- byttur, geðsjúklingar eða dópistar, sem finni hjá sér tjáningarhvöt en séu gjörsamlega ófærir um að virkja hana til boðlegrar orðlistar. Vissu- Iega er algengt að fólk af þessu tagi láti prenta eftir sig „ljóðakver“ og er svo sem ekkert við það að athuga, ljóðagerð er þroskandi hugðarefni hvort sem árangurinn er þroskandi lestrarefni eða aumk- unarvert bull; hins vegar er með þessu hvergi nærri upptalið það sem út kemur af ljóðabókum utan for- laga og ekki heldur þó að við sé bætt slatta af menntaskólanemum að stíga sín fyrstu og oft óburðugu skref á rithöfundarbrautinni. Óg enn vantar í hópinn þó að minnst sé á óskilgreindan hóp einfeldninga af ýmsu tagi sem gefa út ljóðabæk- ur þrátt fyrir afurðir sem lítið er- indi eiga upp úr skrifborðsskúff- unni. Til eiginútgáfuljóðlistar telst nefnilega fjöldinn allur af fram- bærilegum og jafnvel mjög góðum ljóðabókum. Enda má segja að með örfáum landsfrægum undantekn- ingum sé öll ljóðabókaútgáfa á kostnað höfunda. Það er vissulega slæmt að þorri fólks hafi ekki hugmynd um þetta en þeim mun verra að það fólk sem sérstaklega er til þcss menntað og ráðið til starfa að vita þessa hluti og gera öðrum þá ljósa, virðist í raun hafa lítið vit á því hvað er að gerast í íslenskri ljóðlist. í blaða- skrifum um ljóðabækur er stunduð frumleg en í raun ákaflega óréttlát tegund af jafnaðarmennsku, en undirstaðan að henni er sú aðferð í gagnrýni að mynda sér skoðun um bók áður en hún er lesin; þessi Jimiii í H!S í ?.#J!ÍU Ágúst Sverrisson „Krafan um stuðla og rím sem mælikvarða á hvað sé ljóð og hvað ekki er í rauninni jafii- gáfuleg og að þess væri krafíst að skáidsögur væru rímaðar og stuðl- aðar eða kaflar þeirra nák væmlega j afiilang- sérkennilega bókmenntagreining tekur gjarnan til aidurs höfundar, hvort hann gefur út bók sína sjálfur eða ekki og hvort hann hefur sent frá sér eitthvað annað en ljóð. Sé skáldið ungt, fáist ekki við annað bókmenntakyns en Ijóðlist, má það vænta tvenns konar viðbragða af blaðagagnrýnendum: Stundum birtist enginn ritdómur en í þeim tilvikum má saka gagnrýnendur um bókaþjófnað því þeim eru gefnar bækurnar til þess að um þær verði skrifað. Það er lágmarkskurteisi að endursenda skáldinu bókina ef við- komandi blaðamaður er of góður til að skrifa um hana. Seinni viðbrögðin eru í raun lítið skárri og geta jafnvel verið skaðleg efnilegum byijendum í ljóðlist sem hafa litla hugmynd um hvar þeir standa en fá hér ranga hugmynd af stöðu sinni: Þetta eru ritdómar sem birtast mörgum mánuðum og stundum árum eftir útkomu bók- anna og eru samanlagt í anda full- kominnar jafnaðarmennsku sem kannski væri æskilég í kjaramálum en á engan rétt á sér í bókmennta- gagnrýni. Sums staðar hefur þessi aðferð náð þeirri fullkomnu slípun að allar ljóðabækur fá næstum sömu umsögnina: Þannig eru slakar ljóðabækur hífðar upp en vænleg skáld dregin niður: Yrkisefni bókar er reifað almennum orðum í ör- stuttu máli, birt stutt sýnishorn af ljóðum, greinarstúfurinn síðan botnaður með vinsamlegum klisjum um að ýmislegt í bókinni lofi bara góðu en höfundur eigi jafnframt margt ólært. Lesa má milli línanna á þessum umsögnum að þær eru skrifaðar af skyldurækni en um leið greiðasemi við skáldin og minna á vingjarnlegt klapp á bakið. Þetta er jafnaðarmennska blaðagagnrýn- enda í stuttu máli. Þessi fjöldaframleiðsla á „rit- dómum“ hefur nú staðið í nokkur ár og er að verða allsráðandi. Vissu- lega eiga margar ljóðabækur ekki skilið betri viðbrögð en gagnvart mörgum skáldum er þetta svívirða, hljóðlátt ómeðvitað ranglæti, fram- ið hvað eftir annað. Þessi árátta veldur því að á hveiju ári drukkna nokkrar frambærilegar ljóðabækur iIMIst i ífttiií í 1111 f ilftlt Í iii í því tugatalsflóði af leirburði sem flæðir úr prentsmiðjum og fjölritun- arstofum borgarinnar því enginn virðist hafa áhuga á því að færa þeim þann sess sem þær eiga skilið. Máli mínu til stuðnings vil ég tilfæra þrjú dæmi um homkerlingar í bókmenntaheiminum. Öll dæmin eru úr bókum sem hafa fengið viðlíka meðferð í fjölmiðlum og leir- burður eftir menntaskólanema eða aumkunarvert drykkjuraus utan- garðsmanna prentað og prangað inn á fólk til að eiga fyrir næsta sjúss. Fyrsta dæmið er úr frumraun sem kom út síðastliðið vor, annað dæmið úr bók sem kom út fyrir ári og svo lítið hefur borið á að jafnvel allra hörðustu og fordómalausustu bókmenntamönnum hefur yfirsést hún, þriðja dæmið er raunar hálf- gerð þjóðarskömm því höfundur mun vera á miðjum aldri og hefur gefið út fjöldann af góðum bókum án þess að skapa sér nafn í bók- menntaumræðunni. Ég vil spyija þá lesendur sem hafa nennu og hæfileika til að lesa þessi ljóð með opnum huga, hvort skáldskapur af þessu tagi eigi virkilega skilið þá meðferð sem um er getið. Hringrás örugg hringrás daganna og þögn næturinnar sem ekkert rýfur nema hugsanir vinda örugg hringrás náttúrunnar og kvöldin með sín fáeinu ljós á stangli og inni beðið fregna af veðrum meðan snörlar í pípu og gamall hundur sefur undir borði hringrás minninga sem fjarlægist á hvom veginn sem er (Úr „Með byssuleyfi á eilífðina" e. Jón Stefánsson). Það sem ég átti ósagt í falli steinanna míkrósjónhomi guðdómsins. Þangað komst ég aldrei. Til sjálfs mín. (Úr „Mars“ e. Halldór Ólafsson) greini ei andlit útum kámugan gluggann aðeins óskalög vindsins vinsældalista strætisins greini ei andlit minnínga óra aðeins rödd þína hása kveinstafi rafsteiktra fugla greini ei andlit draums veru aðeins hugrím taugastuðla (Úr „Þrítíð“ e. Geirlaug Magnússon) Jafoaðarmennska í safnbókum í upphafi þessara skrifa var það gefið í skyn að safnbækur með afurðum ungskálda innihéldu það besta. Svo er þó ekki. Jafnaðarmennskan einkennir einnig Ljóðaárbók AB og nýgræðingasöfn undanfarinna ára ekki síður en blaðagagnrýnina bölvuðu. Sá munur er þó á að útgáfa þessara verka er unnin af góðum hug og fijálsum vilja en ekki skyldurækni. Ber það að virða. Ljóðasafnararnir virðast hins vegar hafa fallið í þá gryfju að velja ekki eftir gæðum skáldskaparins sem fyrir liggur heldur haft að leiðarljósi einhvers konar uppeldisfræðileg sjónarmið í stað bókmenntalegra. Meginhugsunin á bakvið áhugann á ljóðagerð ungs fólks virðist af sömu rót og áhugi fyrir myndverkum bama: Að vilja skyggnast inn í hugarheim kynslóðanna í stað þess að halda góðri list á lofti. En jafnaðarmennska safnbókanna er einnig ranglát gagnvart ljóðlistinni og frambærilegum skáldum þó að hugurinn sé góður. Jafnframt er allur sá hroði og leirburður sem í þessum bókum finnst vatn á myllu rímdrauganna og hatursmanna nútímaljóðlistar. Það er hrapallegur misskilningur að nútímaljóðlist sé sami grauturinn í sömu skál sama hve hátt allir landsins framkvæmdastjórar og bókmenntafasistar hrópa. Máli mínu til stuðnings vil ég enda þessa grein á tveimur dæmum um andstæður í íslenskri ljóðagerð, þar sem hún leggst lægst og þar sem hún rís hæst. Fyrra ljóðdæmið þótti gjaldgengt í bókina Nýgræðingar í ljóðagerð 1970—1981 en seinna ljóðið er úr bók eins viðurkenndasta höfundar þjóðarinnar af yngri kynslóðinni (sem betur fer eru ekki öll góð ljóðskáld óþekkt). ... og bræðralag I sósíalísku samfélagi verða allir frjálsir líka konur sagði hann um leið og hann skundaði út á fund um jafnrétti kynjanna og skildi hana eftir eina með uppvaskið og bömin. í myrkrinu liggja óteljandi þræðir hver um annan þveran eins og risar leiki fuglafit, verði manni gengið út um kvöld að skoða tungl eða síðförult fólk taka þessir þræðir að vefjast hratt og hljóðlega um höfuðið, innan skamms er það horfið undir vafninginn, til að sjá áþekkt silkipúpu, en sjálfur nemurðu hvorki ljós né hljóð lengur, fálmar þig áfram uns fingumir finna aðrar hendur, annað umvafíð höfuð sem ekkert sér og ekkert heyrir Dæmi nú hver sem betur getur þessi tvö sýnishorn af gjaldgengri ljóðlist í íslenskum bókmenntaheimi. Að mínum dómi er fyrra dæmið klisjukennd flatneskja sem hefur viðlíka bókmenntagildi og símaskráin, seinna ljóðið hefur opinn huga á loft með frábærri myndvísi og orðleikni. Tvö hrópandi dæmi um það að jafnaðarmennskan í Ijóðaumfjöllun er með öllu óréttmæt. Mál er að linni. Höfundur er starfsmaður í Félagsmiðstöðinni Árseli. Heydálaprestakall: Aðventu- hátíðir um helgina Aðventuhátíðir í Heydala- prestakalli verða í barnaskólan- um á Stöðvarfírði laugardaginn 17. desember og i Heydalakirkju sunnudaginn 18. desember og hefjast á báðum stöðum kl. 20.30. Kirkjukórar Heydalakirkju og Stöðvarfjarðarkirkju syngja saman á hátíðunum aðventu- og jólasálma undir stjórn Ferenc Utassy. Þá flytja kórarnir sérstakt tónverk helgað aðventunni, aðventusöng eftir Zoltán Kodally. Fermingar- börn munu flytja helgileik og sunnudagaskólabörn syngja við kertaljós. Þá verður ljóðalestur og bænastund. Ræðumaður á báðum hátíðunum verður sr. Kristján Róbertsson sóknarprestur á Seyðisfirði. - ^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.