Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
rOZ
Narnía — land
hamingjunnar
Békmenntir
Jenna Jensdóttir
C. S. Lewis: Hesturinn og dreng-
urinn hans. Þýðandi Kristin R.
Thorlacius. Almenna bókafélag-
ið 1988.
Ævintýrasögumar eftir hinn
fræga breska rithöfund og prófess-
or C.S. Lewis (1898-1963) eru allt-
af kærkomnar í íslenskri þýðingu.
Þetta er fimmta bók hans og er
eins og hinar þýdd af Kristínu R.
Thorlacius.
Sögurnar gerast að meginhluta
í undralandinu Narníu og aðalsögu-
hetjurnar eru flestar þaðan eða
tengdar landinu, eins og systkinin
þrjú, sem komu úr veröld raun-
veruleikans, settust að í Namíu og
urðu farsælt kóngafólk þar. Þau
koma meira og minna fyrir í öllum
Namíu-sögunum, þótt þær séu
sjálfstæðar hver um sig.
Þessi saga hefst í landinu Kal-
ormen, sem liggur langt í suðri frá
Namíu.
Við litla vík syðst í Kalormen
býr fátækur fiskimaður, Arshis að
nafni, ásamt drengnum Sjasta.
Dag nokkum kemur til þeirra
ókunnur maður, dökkur á brún og
brá eins og allir Kalormenar. Hann
er tiginmannlega búinn og hestur-
inn hans módröfnóttur á litinn og
kraftalegur, gyrtur skrautlegum
reiðtygjum.
Sjasta hlerar samtal fiskimanns-
ins og hins ókunna manns og kemst
þá að því að hann er ekki sonur
Arshis. Harin heyrir einnig að sá
ókunni vill kaupa hann sér til þjón-
ustu.
Þegar Sjasta fer til módröfnótta
hestsins^ tekur hesturinn að tala
til hans. í ungæðishætti hefur hann
hrakist frá Narníu, þar sem næst-
um öll dýr geta talað. Drengurinn
og hesturinn ákveða að flýja saman
til Namíu frá grimmdarlandinu
Kalormen. Það er langt og hættu-
legt ferðalag. Það veit hesturinn
Breki, sem hefur víða farið, en ljós-
hærði bjartleiti drengurinn Sjasta
hefur ekki farið mikið út fyrir
víkina sína til þessa.
Unga hefðarstúlkan Aravís verð-
ur á vegi þeirra. Hún er á flótta
vegna þess að faðir hennar hefur
heitið voldugum manni eiginorði
hennar. Hún er einnig með talandi
hest, Golu, til reiðar og er ferð
þeirra heitið til Narníu. Ferðin er
löng og erfiðleikar á hvetju strái.
Og margvíslegar hættur sem skap-
ast hafa af hatri og valdastreitu.
Mestu örðugleikarnir mæta þeim
er þau koma til stórborgarinnar
Tassban, en gegnum hana þurfa
þau að fara á leið sinni til Namíu.
Þar tvístrast hópurinn og hver
verður að leysa sinn vanda. Þar er
Sjasta tekinn í misgripum fyrir
Kórin konungsson frá Namíu. Af
hveiju þeir em svona líkir upplýsist
í sögulok. Ljónið Aslan kemur hér
einnig við sögu og veitir Aravís
ráðningu til að vekja skilning henn-
y
C.S. Lewis
ar á líkamlegum sársauka er hún
hefur valdið þjónustustúlku er hún
strauk frá heimili sínu.
Saga þessi er, held ég, ekki eins
átakamikil og hinar fyrri sögur.
En sá seiðmagnaði blær sem frá-
sögnin er ávallt lituð af helst hér
einnig.
Umhverfis- og náttúrulýsingar
em mjög vel gerðar. Sem dæmi er
hér tekin lýsing á Tassban-borg:
„Hver húsaröðin tók við af ann-
arri, hvert stræti öðm ofar, götur
hlykkjuðust upp á milli bygging-
anna og feiknamikil þrep lágu þar
upp, og uxu glóaldin og sítrónutré
meðfram þeim.“ Annars skil ég
ekki vel þessa setningu: „Tassban,
eitt af undmm veraldar" — þar sem
þetta á að vera ævintýraveröld.
Spenna og eftirvænting helst til
söguloka, þrátt fyrir það sem áður
er sagt.
Það má deila um, hvort ekki
ætti að búa tignar- og aðalsheiti í
íslenskan búning. Að öðm leyti er
málið sérlega vandað og á sinn
þátt á því að gera þessa gömlu
sögu ágæta í íslenskri þýðingu.
Hinar fíngerðu myndir eiga vel
heima í ævintýraveröld.
AÐRIR TAIA UM VIDIO
HITACHI!
Barnabók eflt-
ir Margareta
Strömstedt
FYRSTA Mörtubókin eftlr sænska
barnabókahöfúndinn Margareta
Strömstedt er komin út á íslensku
hjá Vöku-Helgafelli. Olga Guðrún
Arnadóttir þýddi bókina úr
sænsku.
f fréttatilkynningu útgefanda seg-
ir um efnið: „Marta — Dagur í desem-
ber fjallar um annasaman dag í lífi
Mörtu sem er kostuleg stúlka með
auðugt ímyndunarafl en viðkvæma
lund. Stundum er hún mjög glöð og
kát, en stundum fínnur hún fyrir litla
„kvíðadýrinu" sem nartar í magann
á henni. Sérstaklega þegar mamma
er lasin og pabbi þrejdtur. Hinn við-
burðaríki dagur hefst með því að það
kyngir niður snjó. Marta fer út og
sér torkennilegan rauðan blett í ný-
fallinni mjöllinni! Hugur hennar fer
á flug: „Er þetta blóðblettur? Hvað
getur hafa komið fyrir? í kjölfarið
leiðir hvert atvikið af öðru.“
Bókina prýðir fjöldi teikninga.
Vaka-Helgafell annaðist setningu og
umbrot, en Prentstofa G. Benedikts-
sonar sá um prentun og bókband.
Bókin er 92 blaðsíður í kiljubandi.
ÞEGAR
TALAR RÖNNING
Hvernig væri að þú
talaðir við
Rðnning?
KITACHIVIDEOMYNDAVÉL VM 600 E
• Fimmfaldur hraði á lokara frá 1/50
til 1/2000 á sek
• Venjuleg VHS kasetta. Allt að 8
klst upptökutími á LP
• Sjálfvirkur fjarlægðarstillir (Auto
Focus)
• Ljósnæmi niður í 10 Lux
• Macro stilling (nærmynd í focus)
• Mynddeyfing (Fade-out og Fade-
in)
• Skyndiskoðun á upptöku í inn-
byggðum skoðara
• 380 línu lituppiausn
• Hljóðnemi með rokdeyfi
• Rafdrifin zoom linsa
F= 1,6x6 (12x72)
• Dagsetning möguleg á mynd
• Afspilun beint á sjónvarp
• Þyngd 2 kg
FYLGIHLUTIR
Rafhlaða VMBP 21 (1 klukkutími)
Snúra með RCA tengjum (cinch)
Snúra með scart tengi (fyrir mynd-
band eða sjónvarp)
Spennubreytir 110-220 volt (beint
við vél eða rafhlöðuhleðsla)
Hörð taska og axlaról
Heyrnartæki
Rafhlaða VMBP 22 (2 klukku-
tímar)
Regntaska
Linsur (aðdráttarlinsa og gleið-
hornslinsa)
Litmonitor á vél
Textavél (textagenerator)
Auka hljóðnemi
12 volta bíltengi
Stopprofi með snúru
0H.TAGHÍ
mm\ hiiftM MtMOftáNoimiu vt m
• 3 myndhausar (gefur skýrari mynd,
minni truflanir)
• Fullkomin fjarstýring með skjá (Display
til stillingar fram í tímann)
• Ársminni með 8 upptökumöguleikum
Digital tækni
Mynd í mynd (tvær myndir á skjá)
Kyrrmynd (truflanalaus)
Hægmynd (með breytilegum hraða)
Stillanlegt fyrir fastar stillingar á 69 stöðvar
Scart tengi
/#/®Rönning
•J/f//// heimilistæki
KRINGLUNNI8-12/103 REYKJAVÍK/SlMI (91)685868