Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 35
Hit ílASMdáiiU .St MyuÁÖUt(iífl8 .QlÖAdaMuUíttjM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
Islensk tónverkamiðstöð:
Hljómdiskur með
Hamrahlíðarkómum
Verk eftir fimm íslensk tónskáld
KVEÐIÐ í bjargi nefiiist hljómdiskur, með söng Hamrahliðarkórs-
ins undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, sem íslensk tónverkamið-
stöð sendir á markað um þessar mundir í samvinnu við Ríkisútvarp-
ið. A disknum eru þrettán verk eftir fimm íslensk tónskáld; Jón
Nordal, Jón Leifs, Þorkel Sigurbjömsson, Hjálmar H. Ragnarsson
og Atla Heimi Sveinsson. Verkin hafa verið á efiiisskrá Hamrahlí-
ðarkórsins á undanfornum árum og flest hafa verið samin fyrir
kórinn eða frumflutt af honum.
Bergljót Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar tónverka-
miðstöðvar sagði í samtali við
Morgunblaðið, að tónverkamið-
stöðin hefði gefið ÚH3 hljómplöt-
ur með verkum íslenskra tón-
skálda, flestar með íslenskum flytj-
endum. í þetta sinn hefði verið
ákveðið að leita til Hamrahlíð-
arkórsins, sem hefur verið e.k. lif-
andi tilraunasmiðja fyrir íslensk
tónskáld.
Aðspurð um fjármögnun útgáf-
unnar sagði Bergljót að meiri hluti
fjármagnsins kæmi úr sjóðum tón-
skálda, en á þessu ári hefði ríkið
þó styrkt tónverkamiðstöðina
meira en áður. „Þetta er eins og
ef allir rithöfundar þyrftu að taka
af höfundarlaunum sínum til þess
að fjármagna bókaútgáfu. Fyrir
nokkrum árum var hafin útgáfa á
nótnabókum, en hún lognaðist útaf
vegna fjárskorts. Nú höfum við
fengið styrk frá Fjölís-deild STEFs
og höfum hafið þá útgáfu aftur."
Hvemig hefur útgáfunni verið
tekið?
„í rauninni mjög vel þó alltaf
megi finna það viðhorf að ef tón-
verkamiðstöðin gefi eitthvað út
hljóti það að vera leiðinleg íslensk
nútímatónlist. Það er mjög mikil-
vægt að koma þessum verkum á
plötur, þannig að þau séu aðgengi-
leg fyrir sem flesta. Einnig eru
hljóðritanir mjög mikilvægar í öllu
kynningarstarfi okkar hér heina
og erlendis. í tónverkamiðstöðinni
er stærsta safn íslenskra tónverka
á einum stað og í þann sjóð leitum
við þegar valin eru verk til útgáfu.
Aður en tónverkamiðstöðin hóf
útgáfustarfsemi voru handrit tón-
skálda notuð við alla kynningar-
starfsemi. Það gefur auga leið
hversu miklu betri mynd fæst af
verkunum með því að senda einnig
upptökur. Það auðveldar okkur að
koma íslenskum tónskáldum á
framfæri erlendis auk þess sem
það gefur fleirum tækifæri til að
kynnast því sem verið er að gera
í íslenskri tónlist."
Þorgerður Ingólfsdóttir hefur
verið stjómandi Hamrahlíðarkórs-
ins frá stofnun hans 1967 og und-
ir hennar stjóm hefur kórinn farið
fjölda tónleikaferða auk þess að
taka þátt í tónlistarsamkeppnum
víða um lönd. Arið 1984 vann kór-
inn fyrstu verðlaun í kórakeppn-
inni „Let the Peoples Sing“. Þor-
gerður var spurð hvort hún teldi
Hamrahlíðarkórinn Morgunblaðið/KGA
það ekki einnig mikils virði fyrir
flytjendurna að flutningur þeirra á
íslenskri tónlist væri hljóðritaður
og gefinn út.
„Jú, svo sannarlega. Ég hef
verið að hugleiða það í allri þess-
ari umræðu um að unga fólkið
viti lítið um íslenska menningu,
enginn kunni lengur ljóð o.s.frv.,
hvers vegna því er oft veitt mun
meiri athygli sem miður fer en því
jákvæða. I kómum okkar er ungt
fólk sem leggur sig allt fram um
að ná sem bestum árangri, án þess
að ætlast til einhverrar áþreifan-
legrar umbunar. Tónlistin sem er
á þessum diski er mjög krefjandi
og oft á mörkum þess að áhuga-
fólk ráði við hana, en með ótrúleg-
um áhuga og vinnu þessa unga
fólks hefur það tekist."
Er íslensk nútímatónlist leiðin-
leg?
„Nei, það er fákunnátta sem
veldur þeirri skoðun og einhver
þrjóska. Fólk bara vill ekki opna
eyrun fyrir henni. Það er ekki til
neinn samnefnari fyrir nútímatón-
list, það er einfaldlega tónlist sem
samin er í nútímanum. Tónverkin
á þessum diski em mjög fjölbreyti-
leg. Þama er að fínna verk sem
samin em við íslenskar þjóðvísur
og ljóð okkar bestu skálda -
íslensk menning í ljóðum og tón-
um. Tónverkin sjálf gefa mjög fjöl-
breytilega mynd af starfí tónd-
káldanna. Þama em t.d. fjögur
verk sem þau hafa tileinkað böm-
um sínum, leikhústónlist og kirkju-
tónlist ásamt stærri verkum."
Bergljót:„Með þessari útgáfu
er gerð tilraun til að gefa mynd
af þeirri kórtónlist sem tónskáldin
okkar hafa verið að semja síðustu
árin."
Þorgerður:„Þessi útgáfuröð
íslenskrar tónlistar frá tónverka-
miðstöðinni er í raun skrásetning
á sögu íslenskrar tónlistar sl. ára-
tugi. Sú sköpun sem á sér stað á
hverjum tíma helst í hendur við
það hveijir em virkir í flutningi,
þetta er hluti af okkar menningar-
sögu sem ekki má gleymast."
Bergljót:„Þessi útgáfa gefur
mjög góða mynd af því lifandi og
árangursríka samstarfí sem í mörg
ár hefur ríkt á milli íslenskra tón-
skálda og Hamrahlíðarkórsins."
FRAMTIÐARKORT
Hvað gerist næstu tólf mánuði?
Framtíðarkortið segir frá hverjum mán-1
uði, bendir á jákvæða möguleika og
varasama þætti. Hjálpar okkur að vinna I
með lífið á uppbyggilegan hátt og finna \
rétta tímann til athafna.
Öll kortin okkar aru unnin
afGunnlaugi Guðmunds-
syni, stjörnuspekingi, og
miðast við reynslu af
íslenskum aðstæðurp.
PERSONUKORT:
Lýsir persónuleikanum m.a.: Grunn-
tóni, tilfinningum, hugsun, ást og vináttu,
starfsorku og framkomu. Bendir á hæfi-
leika þína, ónýtta möguleika og varasama
þætti.
Hver er ég?
Bókin um
stjörnuspeki
10% höfundar-
afsláttur hjá okkur.
SAMSKIPTAKORT:
Samanburður á kortum tveggja einstaklinga
Hvernig er samband þitt við maka þinn og nána vini?
Ertu viss um að þú þekkir þarfir fólksins, sem þú umgengst
mest i daglegu lífi?
Samskiptakortið er eitt kort, sem lýsir samþandi tveggja ein-
staklinga - þendir á kosti og galla og hjálpar þeim að skilja
og virða þarfir hvors annars.
Við bjóðum einnig:
Bækur:
Allarnýjustu íslensku bækurnarum sjálfs-
ræktm.a. sálfræði, heilsurækt, mataræði
o.fl. Aukþess fjöldi nýrra erlendra bóka
um stjörnuspeki og jákvæðan lífsstil.
Kassettur:
Tóniist til afslöppunar og spennulosunar.
Líttu við eða hringdu í síma 10377 og pantaðu kort!
Opið alla virka daga frá kl. 10-18 e.h. og laugardag kl. 10-22.
Kortin eru afgreidd innan sólarhrings.
Sendum í pósíkröfu.
STJ0RNUSFEKI
ISTÖQIN
~LAUGAVEGI 66 SiMI 10377 1
Falleg gjöf, sem vekur til umhugsunar
VIÐ BJÓÐTJM ÞÉR ÞRJÁR TEGUNDIR AF STJÖRNUKORTUM
MEÐ ÖLLUM KORTUNUM FYLGIR SKRIFLEGUR TEXTI