Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
37
Walesa í París:
Bann við starfi Sam-
stöðu tefur umbætur
Segir V esturlandabúa búa við velsæld en
ekki halda í heiðri andleg verðmæti
París. Reuter.
PÓLSKI verkalýðsleiðtogínn og
Nóbelsverðlaunahafinn Lech
Walesa sagði í gœr að bann pól-
skra stjórnvalda við starfi fijálsu
verkalýðssamtakanna Samstöðu,
sem hann stjómar, væri hindrun
i vegi umbóta, »perestrojku, í
landinu. Walesa var staddur f
París í boði Francois Mitter-
rands, Frakklandsforseta, í til-
efiii af 40 ára afinæli Mannrétt-
indayfírlýsingarinnar siðastlið-
inn laugardag. Walesa ræddi á
laugardag í fyrsta sinn við sov-
éska andófsmanninn Andrej Sak-
harov, einnig Nóbelshafa, sem
sömuleiðis var boðið til borgar-
innar og á laugardagskvöld
komu þeir fram við hátíðarhöld
ásamt Nóbelshöfundinum Elie
Wiesel og Javier Perez de Cuell-
ar, framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, sem kom frá Ósló
þar sem hann tók við friðarverð-
iaunum Nóbels fyrir hönd friðar-
gæslusveita SÞ.
Walesa hélt fréttamannafund í
gær skömmu áður en ætlunin var
að hann legði af stað heimleiðis úr
fyrstu för sinni til Vesturlanda frá
1981 er Samstaða var bönnuð.
Hann sagði að koma yrði á raun-
verulegu stjómmálalegu, efnahags-
legu og félagslegu lýðræði ef um-
bótastefna Míkaíls Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga, perestrojka, ætti að
bera árangur en pólsk stjómvöld
hafa tekið undir umbótahugmyndir
Gorbatsjovs.
A sunnudagskvöld átti hann fund
með Pólveijum í, útlegð og sagði
þá að breytingar yrðu að gerast
með rólegum hætti í Póllandi, ekki
með byltingu. Það yrði að þrýsta á
stjómvöld en með skynsamlegum
hætti. Walesa bauð Sakharov í
heimsókn á hótelherbergi sitt á
laugardagsmorgun og s'agði þá hafa
orðið sammála um að kveða þyrfti
í kútinn leifamar af stalfnismanum
í báðum löndunum. „Ég ber mikla
virðingu fyrir Sakharov," sagði
Walesa við fréttamenn. Hann sagð-
ist vilja njóta reynslu Sakharovs og
vonaði að þeir ættu eftir að hittast
oftar.
Sunnudeginum eyddi pólski and-
ófsmaðurinn að mestu leyti í heim-
sóknir til franskra verkalýðsleið-
toga. Eftir fund með erkibiskupnum
í París, Jean-Marie Lustiger, ræddi
Walesa við fréttamenn en hópur
þeirra fylgdi honum hvert fótmál.
Hann sagði að Vesturlandabúar
virtust þjást af einkennilegum
skorti á andlegum verðmætum.
Parísarborg væri mjög falleg en
andlaus. Lustiger hafði eftir Walesa
að Vesturlandabúar væm auðugir
og nytu borgaralegra réttinda en
virtust ekki trúa á neitt.
Forseti Frakklands, Francois Mitterrand (fyrir miðju) ræðir við
Andrej Sakharov (t.v.) og Lech Walesa (t.h.) í embættisbústað forset-
ans, Elysee-höll. Andófemennirnir tveir voru heiðursgestir við at-
höfii í tilefhi 40 ára afinælis Mannréttindayfirlýsingarinnar síðastlið-
inn laugardag.
Fyrsti svissneski kven-
ráðherrann segir af sér
Eiginmanninum bárust upplýsingar frá henni úr ráðuneytinu
Zllrich. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðaina.
ELISABETH KOPP, dómsmálaráðherra Sviss og fyrsti kvenráð-
herra landsins, sagði af sér embætti f gærmorgun. Tryggð hennar
við eiginmanninn, Hans W. Kopp, varð henni að falli. Hún viður-
kenndi á föstudag að hafa ráðlagt honum að láta af embætti sem
varastjómarformaður f fyrirtækinu Shakarchi AG hinn 27. október
síðastliðinn eftir að hún heyrði orðróm í ráðuneytinu um að fyrirtæk-
ið tengdist mesta eiturlyfjaágóðahneyksli sem upp hefúr komist i
Sviss. Þangað til á föstudag höfðu þau hjónin fúllyrt að hún bland-
aði ekki starfí og einkalifi saman. En hið gagnstæða kom í ljós og
um helgina hvöttu fjölmiðlar og stjórnmálamenn ráðherrann svo til
einróma til að segja af sér.
Hans W. Kopp, sem er lögfræð- um verið umdeildur. Sögusagnir um
ingur eins og kona hans, hefur löng- hann fóru strax af stað þegar frúin
Araiat ávarpar allsherjarþingið í dag:
Viðurkennir landa-
mæri Israels frá 1967
Jerúsalem. Reuter. ZUrich. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins
YASSER Arafat, leiðtogi PLO,
Frelsissamtaka Palestínumanna,
ávarpar í dag allsheijarþing
Sameinuðu þjóðanna f Genf og
ætlar þá að viðurkenna landa-
mæri Israels eins og þau voru
fyrir árið 1967. Bassam Abu Sha-
rif, pólitiskur ráðgjafi Arafats,
skýrði frá þessu í gær í viðtali
við ísraelskt dagblað.
Sharif sagði í viðtalinu við Yedi-
oth Ahronoth, víðlesnasta dagblað
í ísrael, að Arafat ætlaði að skýra
nánar ályktanir Þjóðarráðs Pal-
estínu, sem samþykktar voru á
þinginu í Alsír í síðasta mánuði.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
sendiherra Islands í Genf, situr fund
allsherjarþingsins fyrir íslands
hönd. Fastafulltrúar fjölda ríkja,
meðal annars hinna Norðurland-
anna, hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York sitja fundinn í Genf.
Sverrir Haukur sagði að það hefði
ekki komið til tals að Hans G. And-
ersen sendiherra íslands hjá Sam-
einuðu þjóðununum í New York
kæmi til Genfar. Sverrir Haukur
sagði að á fimmtudag yrðu greidd
atkvæði um fimm tiljögur, þijár
gamlar og tvær nýjar. Önnur hinna
nýju er um viðurkenningu á Pal-
estínuríki. Hann vildi ekki tíunda
hvemig atkvæði íslands myndi
falla.
kom til greina sem ráðherra haust-
ið 1984. Þá var hann helst gagn-
rýndur fyrir að hafa lamið ritarana
sína fyrir að gera villur. Sameinað
þing kaus Elisabeth Kopp ráðherra
þrátt fyrir það. Rannsókn á rekstri
hlutafélagsins Trans K-B var þá
þegar hafin og stendur enn. Hans
W. Kopp var stjómarformaður þess.
Það virðist hafa falsað ársreikninga
og varð gjaldþrota 1982. í sumar
báru Qölmiðlar Hans W. Kopp á
brýn að hafa svikið tvær og hálfa
milljón sv. franka (75 milljónir ísl.
kr.) undan skatti. Málið er í rann-
sókn. Og að lokum tengdist nafn
hans ' eiturlyfj aágóðahneykslinu
mikla.
Fjölmiðlar greindu fyrst frá því
7. nóvember síðastliðinn að „Líban-
onsambandið", eins og stór eitur-
lyfjahringur er kallaður, hefði kom-
ið ágóða af eiturlyfjasölu í umferð
svo milljörðum svissneskra franka
skipti í gegnum svissneska banka
og fyrirtæki í Sviss. Eitt þessara
fyrirtækja er Shakarchi AG. Hans
W. Kopp hafði verið varastjómar-
formaður þess í fimm ár 27. októ-
ber sl. Hann sagði þá af sér, viku
áður en það var bendlað við eitur-
lyfjahringinn í íjölmiðlum, og sagð-
ist gera það vegna anna. Hann
þvertók fyrir að hafa verið varaður
við eða fengið upplýsingar úr ráðu-
neyti konu sinnar.
Vinsæll ráðherra
Elisabeth Kopp var vinsæll ráð-
herra. Hún þótti vinna störf sín vel
þótt allir væm ekki alltaf sammála
henni, sérstaklega ekki um harða
afstöðu varðandi flóttamenn sem
leita hælis í Sviss. Hún kaus að
fara áfram með dómsmálin þrátt
fyrir umræðuna um mann hennar
og sagðist geta greint á milli starfs
og einkalífs. Formaður þingflokks
Fijálslynda flokksins, flokksins
hennar, taldi hana færa um það og
meiri hluti sameinaðs þings sýndi
henni traust með því að kjósa hana
varaforseta landsins fyrir næsta ár
í síðustu viku.
Það kom því eins og þruma úr
heiðskíru lofti þegar Kopp viður-
kenndi að hafa varað mann sinn
við. Hún segist hafa átt við hann
örstutt samtal 27. október og að-
eins sagt honum það sem starfs-
stúlka hennar hefði frétt en ekki
ljóstrað neinu upp sem henni var
trúað fyrir sem ráðherra. Hún seg-
ir að hann hafi þegar verið búinn
að ákveða að hætta hjá Shakarchi
og segist hvorki hafa gerst sek um
löglegt né siðferðislegt brot í emb-
ætti. En yfirlýsing hennar á föstu-
dag olli slíkum usla að henni er
ófært að halda áfram í embætti.
Hún lætur af ráðherrastörfum í lok
febrúar.
Það er ekki ólöglegt í Sviss að
skipta illu fengnu fé, eins og ágóða
af eiturlyfjasölu, í nýja seðla.
Stjórnvöld vinna nú að því að semja
ný lög sem munu banna það. Elisa-
beth Kopp lagði nýlega til að þau
yrðu samþykkt sem fyrst og átti
að svara fyrirspumum um málið í
' þinginu í vikunni. Annar ráðherra
mun svara þeim í hennar stað.
ÚRVAL AF JÓLASKRAUTIÁ HLÆGILEGU VERÐI • SJÓN ER SÖGU RÍKARI
OPIÐ 13-18 VIRKA DAGA 10-22 LAUGARDAG
BARNANÁTTFÖT
SETUBÍLL
IfOlMÍAMimBUMNjNl
LAUGAVEGI 91 KJALLÁRA
SÁ BESTI í BÆNUM • STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
HLÆGILEGT VERÐ
KR. 500
KR. 395
-615
KODDAIi
HANDKLÆÐI
JAKKAFÖT
FRA
690
190
- 1.500
VERKFÆRA URVAL
LAKKSKOR
HERRASPARISKÓR FRÁ - 1.450
KULDASKÓR - - 1.200
VERKFÆRAKASSAR ~ 690
FERÐATÖSKUR - 2.180
LEDUR JAKKAR - 5.900
PEYSUR FRÁ KR. 390
ÚLPUR - - 990
BUXUR - - 500
ísvél - 590
12 BJÓRGLÖS -585
SÆNGURVERASETT M/LAKI KR. 1.290
SÆNGUR KR. 1.99(