Morgunblaðið - 13.12.1988, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
45
Skipaíitgerð
Deilur um áhaJhaskrán-
ingu þýskra skipaút-
gerðarfyrirtækja
Veatur-Berlín, frá Ketilbirai Tryggvasyni.
FYRIR þýska þinginu liggja þessa dagana drög að nýjum lögum um
áhafiiaskráningu þýskra skipaútgerðarfyrirtækja. Drög þessi gera
ráð fyrir því að í byijun næsta árs verði mögulegt að ráða erlenda
starfsmenn á þýsk skip með samningum sem gilda í heimalöndum
þeirra. Með öðrum orðum, þýsk skipaútgerðarfyrirtæki geta með
tilkomu þessarar tvöföldu skráningar ráðið til sín ódýrt vinnuafl
erlendis frá án þess að bijóta í bága við þýsk lög.
Vandi skipaútgerðarinnar
Tildrög þessara lagabreytinga
eru tjós ef litið er á samkeppnisað-
stöðu þýskra skipaútgerðarfyrir-
tækja gagnvart skipaútgerðum í
löndum ódýrs vinnuafls. Munur á
launakostnaði er almennt gífurleg-
ur og gerir það að verkum að skipa-
útgerðarfyrirtæki frá hinum svo-
kölluðum „ódýru löndum“ hafa í
sívaxandi mæli náð að undirbjóða
þýsk skipaútgerðarfyrirtæki og
reyndar frá flestum vestrænum
ríkjum á seinustu árum. Til að vega
upp á móti þessu misræmi hafa
vestræn skipafélög meir og meir
farið útí það að umskrá skip sín á
erlendar hafnir til að komast fram-
hjá lögum um laun og skatta í
heimalandi sínu. í dag er svo kom-
ið að meir en helmingur vöruskipa-
flota vestrænna ríkja siglir undir
flöggum annarra ríkja. Ýmis skipa-
félög í Þýskalandi hafa þó viljandi
reynt að halda sig við þýska flagg-
ið þar sem þau telja flaggið sjálft
hafa ákveðið markaðsgildi, það beri
vott um góða og trausta þjónustu
sem góðir viðskiptavinir kunna að
meta. Það eru þessi skipafélög sem
komið hafa fram með kröfu um
tvöfalda áhafnaskráningu á þýsk
skip til þess að vemda afkomu
þeirra fáu skipa sem ennþá sigla
undir réttu flaggi.
Mótmæli verkalýðsfélaga
Verkalýðsfélög og önnur samtök
sjómanna hér í Þýskalandi hafa
harðlega mótmælt innleiðingu þess-
arar skráningaraðferðar. Nefna sjó-
menn skráningaraðferð þessa
ómannsæmandi og félagslega
rangláta. Ætlunin sé að ráða ódýrt
vinnuafl í verstu störfin á skipunum
og einungis halda þýskum starfs-
mönnum í þeim störfum þar sem
faglærðs vinnukrafts sé krafist.
Með þessu tapist ekki einungis stöð-
ur fyrir þýska atvinnumarkaðinn
heldur sé hér beinlínis verið að inn-
leiða þrælahald að pýju.
I yfirlýsingu þeirra segir að sam-
tök sjómanna sjái og skilji vanda
skipaútgerðanna og það sé vilji
samtakanna að þau fáu skip sem
ennþá sigla undir réttu flaggi verði
vernduð. Þessi verndun megi samt
ekki vera á kostnað þýskra sjó-
manna eða félagslegs réttlætis.
Krefjast sjómenn þess að ríkið styðji
rekstrarafkomu skipafélaganna
með niðurgreiðslum líkt og í mörg-
um öðrum starfsgreinum og eða
með innleiðingu almennrar skipa-
stýringar, þ.e. að þýskum skipafé-
lögum verði tryggðir samningar frá
þýskum höfnum.
Ný lög um áhafnaskráningu
leysa ekki vandann!
Að áliti sérfræðinga kemur inn-
leiðing tvöfaldrar áhafnaskráningar
til með að bæta samkeppnisstöðu
þýskra skipaútgerðarfyrirtækja að
einhveiju leyti. Aðgerðin ein mun
þó ekki koma í veg fyrir frekari
umskráningar þýskra skipa. Mun-
urinn á samkeppnisaðstöðu þeirra
skipa sem skráð eru í „ódýru höfn-
unum“ og þeirra sem skráð eru í
höfnum vestrænna ríkja, er það
mikill að fremur ólíklegt má teljast
að þessari þróun verði snúið við.
Til þess að svo megi verða er mun
róttækari aðgerða þörf.
Efnahagsmál
Kreppa á norsk-
um tölvumarkaði
Eftir uppgang í 20 ár einkennist ástand-
ið af samdrætti og gjaldþrotum
Á SÍÐUSTU 20 árum hefur verið mikill uppgangur hjá norskum
tölvufyrirtækjum og þeim, sem selja ýmiss konar skrifstofiibúnað,
en á því hefur nú orðið mikil breyting. Samdráttur og gjaldþrot eru
nú það, sem einkenna þessa atvinnugrein.
„Markaðurinn fyrir skrifstofu-
búnað hefur staðnað hvað varðar
magn og í raun er um nokkurn
samrátt að ræða ef tekið er tillit
til verðhækkana milli ára,“ sagði
Tom Wingerei, einn af eigendum
Wingerei-fyrirtækisins og formaður
í landssamtökum norskra skrif-
stofu- og tölvuverslana. Sagði hann
ennfremur, að baráttan um við-
skiptavinina harðnaði stöðugt enda
væru aðhaldsaðgerðir ríkisstjómar-
innar farnar að segja til sín í fjár-
festingum fyrirtækja.
Það eru einkum litlu tölvufyrir-
tækin, sem hafa farið á hausinn,
og allt útlit er fyrir, að gjaldþrota-
skriðan eigi eftir að vaxa á næstu
mánuðum. Tölvufyrirtækið Pro-
fessional Systems, sem hefur meðal
annars umboð fyrir IBM, Apple og
Olivetti, skýrði nýlega frá því, að
um síðustu áramót hefði það skipt
við 330 minni fyrirtæki en um miðj-
an október hefðu 63 verið orðin
gjaldþrota eða búið að sameina þau
öðrum.
Eins og fyrr segir eru það aðal-
lega litlu fyrirtækin, sem verða
undir í samkeppninni, og öll eiga
þau það sameiginlegt að ráða yfir
litlu eiginfjármagni. Þótt stóru fyr-
irtækin standi betur að vígi hefur
að sjálfsögðu einnig kreppt að þeim
og tvö þeirra hafa farið yfir um,
til dæmis það kunna fyrirtæki Alf
G. Johnsen.
Mikill vöxtur hefur verið í tölvu-
versluninni í tvo áratugi og fyrir-
tækjunum hefur fjölgað mikið. Win-
gerei segir, að vafalaust séu þau
orðin allt of mörg og því nauðsyn-
legt að fækka þeim nokkuð.
„Samdrátturinn í einkageiranum
er hins vegar mjög mikill og miklu
meiri en stjórnvöld virðast átta sig
á. Það væri betra ef hann kæmi
jafnar niður, að ríkið axlaði hann
til jafns við atvinnuvegina. Nú má
líkja ástandinu á tölvumarkaðnum
við kverkatak og það er óvíst hvern-
ig umhorfs verður að lokum,“ sagði
Wingerei.
SKIPAUTGERÐ — Fyrir.þýska þinginu liggja drög að lögum um að í byijun næsta árs verði
mögulegt að ráða erlenda starfsmenn á þýsk skip með samningum sem gilda í heimalöndum þeirra. Þýsk
skipaútgerðarfyrirtæki geta þá ráðið til sín ódýran erlendan starfskraft án þess að bijóta í bága við þýsk lög.
mmm
'9m
pi|i|
'
- 173% mældra
Þúnærðbetri tilvika hefur
árangri í fólkfengið
permanenti háriðaftur, þar K
með MANEX. sem það áður
missti það. |
Laugavegi 164, sími 21901
eru fjarstýrdu bílarnir frá Tómstundahúsinu
Hraði og kraftur
einkenna þá, engar
hindranir standast
þá, það springur
ekki á þeim og
flestir bilstjórar frá
3ja áraoguppúr
getastjórnad
þeim. -X