Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
53
Rekstrarafkoma KEA mun verri en í fyrra:
Fjánnunaniyndimin
100 millj. kr. minni
REKSTURSAFKOMA Kaupfé-
lags Eyfirðinga er mun verri nú
en á sama tíma fyrir einu ári,
að sögn Vals Arnþórsssonar,
kaupfélagsstjóra. Valur sagði í
gær ljóst að halli yrði á rekstri
fyrirtækisins á árinu.
Á stjómarfundi Kaupfélagsins í
gær gerði Valur grein fyrir rekstri
fyrirtækisins fyrstu níu mánuði
þessa árs og sagði stöðuna mun
verri en á sama tíma í fyrra. Eftir
fundinn spurði Morgunblaðið Val
um rekstursafkomuna fyrstu níu
mánuði ársins: „Eftir mjög hag-
stætt rekstursár á árinu 1987, þeg-
ar félagið hafði fjármunamyndun
að upphæð 120 milljónir króna,
hefur rekstur félagsins versnað
mjög á yfirstandandi ári og þá sér-
staklega vegna stórhækkaðs fjár-
magnskostnaðar. Einnig hafa vissir
aðrir þættir orðið mjög erfiðir í
rekstrinum, eins og til dæmis fall-
andi verð á sjávarafurðum erlendis,
hægari sala á sjávarafurðum með
tilheyrandi hækkun vaxtakostnaður
vegna aukinna byrða, svo og veru-
lega verri afkoma í mjólkurvinnslu
vegna ónógrar hækkunar á vinnslu-
kostnaði í verðlagsgrundvelli. Sum-
ar deildir félagsins hafa reyndar
gengið betur en á síðasta ári, aðrar
álíka en sumar miklu verr. En þeg-
ar á heildina er litið er það fjár-
magnskostnaðurinn sem íþyngir
rekstrinum mjög illilega, þannig að
fjármunamyndun í rekstrinum, sem
er besti mælikvarðinn á afköst
hans, er um það bil 100 milljónum
króna lægri en á sama tíma 1987.
Líkur benda til að síðustu þrír mán-
uðir ársins verði hagstæðari vegna
lækkunar vaxta og meiri veltu í
verslunardeildunum, en samt er
augljóst að verulegur hallarekstur
verður á árinu í heild. Stjómun fé-
lagsins hefur í engu breyst, eða
innri rekstur, en efnahagsumhverf-
ið er sérlega óhagstætt, óhagstæð-
ara en við höfum áður séð.“
Hvernig er útlitið fyrir næsta
ár?
„Það er mjög athyglisvert að
athuganir benda til að sú lækkun
sem þegar hefur verið ákveðin og
framkvæmd í nafnvöxtum og í
raunvöxtum muni spara félaginu
svo mikil vaxtaútgjöld að það eitt
atriði út af fyrir sig dugi til að
næsta ár geti orðið hallalaust, ef
þá ekki önnur atriði breytast til
hins verra. En jafnframt má hafa
það í huga að ýmsir möguleikar til
verulegrar hagræðingar í rekstri
blasa við, svo sem ég gerði grein
fyrir á stjómarfundinum og er ég
því bjartsýnn á að rekstursniður-
staðan geti orðið jákvæð á árinu
1989.“
Þú nefnir að við blasi ýmsir
möguleikir til verulegrar hag-
Valur hættir fljót-
lega á nýja árinu
VALIJR Amþórsson, kaupfélagsstjóri KEA, starfar ekki þjá félaginu
fram að aðalfundi þess i apríl eins og áhugi var á i stjóra KEA. Hann
sagðist i gær taka við sfnu nýja starfi sem bankastjóri Landsbankans
fljótlega á nýju ári.
„Það var mælst til þess að ég yrði
hér til aðalfundar en ég get ekki
orðið við því. Ég tek við mínu nýja
starfí fljótlega á nýju ári, þó ekki
geti ég sagt upp á dag hvenær það
verður," sagði Valur.
Á stjómarfundi KEA í gær var
gengið formlega frá ráðningu Magn-
í
Mikill mannfjöldi fylgdist með at-
höfninni á Torginu þrátt fyrir fimm
stiga frost, og ,jólasnjór“ var yfir
öllu.
Kórar Bamaskóla Akureyrar og
Menntaskólans sungu við þessa at-
höfn við undirleik homaflokks Akur-
eyrar. Sigfús Jónsson, bæjarstjóri,
flutti síðan ávarp, Ingimar Eydal,
formaður norræna félagsins á Akur-
eyri ávarpaði viðstadda og Valur
Amþórsson, kaupfélagsstjóri og
konsúll Dana á Ákureyri, afhenti
Akureyringum síðan tréð fyrir hönd
Randers-borgar. Það var ung dama,
Ásta Eybjörg Þorsteinsdóttir, sem
kveikti á jólatrénu og síðan. stigu
viðstaddir dans í kringum tréð.
Akiyeyringum barst um árabil
jólatré frá Alasundi, vinabæ Akur-
eyrar í Noregi, en sá siður lagðist
af fyrir margt löngu. Forráðamenn
Allt til
jólanna
Mikið úrval af smádóti.
Verðið kemur á óvart.
HF.
Furuvöllum 1, Reynishúsinu,
600 Akureyri. S. 96-27788.
ræðingar í rekstrinum. Hvaða
möguleikar eru þetta?
„Þau atriði get ég ekki rætt opin-
berlega á þessu stigi," sagði Valur
Amþórsson.
Ein af verslunum KEA á Akureyri.
úsar tiauta Gautasonar sem næsta
kaupfélagsstjóra. Ekki var dagsetn-
ing nefnd í bókun fundarins, heldur
bókað að Magnús Gauti tæki við er
Valur hætti. Magnús hefur starfað
sem aðstoðar kaupfélagsstjóri síðan
í haust.
Ljós tendruð á
jólatré írá Randers
Á LAUGARDAG voru tendruð ljós á jólatré sem Akureyrarbæ barst
að gjöf frá vinabæ sinum í Danmörku, Randers, og er það staðsett á
Ráðhústorginu. Þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem Akureyri fær
jólatré að gjöf frá vinabæ sinum, og einnig er langt siðan að tré hef-
ur verið sett upp á þessum stað.
Randers ákváðu síðan í sumar að
taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið og mun jólatré frá þeim vænt-
anlega prýða Ráðhústorgið á Akur-
eyri um jólaleytið næstu árin.
Teclmics
HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU
Teclmics X 800 er hágæða hljómtækjasamstæða
með ótrúleg hljómgæði, glæsilegt útlit og framúrskar-
andi endingu. Þessi þrjú atriði koma í raun engum á
óvart þegar Teclmics á í hlut.
Vegna hagstæðra samninga og skilnings framleið-
anda á erfiðu ástandi hér heima getum við boðið
þessa samstæðu á hagstæðara verði en nokkru sinni
fyrr
Kr. ^e.CGG. Kr. 34.950.-
' m/ skáp kr. 39.940,-st.gr.
JAPISð
BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN
■ SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ SÍMI 96-25611 ■
KOMDUA MOPCUN