Morgunblaðið - 13.12.1988, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
JOOP!
BJOÐUM VID
AFALLRI
OG KOPERINGU
Ólympíuskákmótið í Þessalóníku:
Herslumuninn skorti
hjá íslensku sveitinni
Skák
Karl Þorsteins
ÞEGAR upp var staðið frá tafl-
mennsku á Ólympíumótinu í
Þessalóníku er aðallega tvennt
sem skilur eftir. Glæsileg tafl-
mennska sovésku Qandvinanna
Kasparovs og Karpovs sem Iögðu
grunninn að fáheyrðum yfir-
burðum sovésku sveitarinnar í
karlaflokki og sigur ungversku
stúlknanna í kvennaflokki. Polg-
ar-systumar þrjár ásamt Madl
tókst þannig að rjúfa óslitna sig-
urgöngu sovéska kvennaliðsins á
Ólympíumótum frá upphafi.
Það munaði sex vinningum á
sovésku sveitinni og helstu keppni-
nautum þeirra í karlaflokki. Þar
voru auðvitað fremstir í flokki
heimsmeistarinn Garrý Kasparov
og áskorandinn Anatolý Karpov
sem lögðu grunninn að yfirburðum
sovéska liðsins og tefldu báðir af
þvílíkri snilld að mótspyma and-
stæðinga virtist oft á tíðum heldur
léttvæg. Heimsmeistarinn Garrý
Kasparov hlaut 8V2 vinning í 10
skákum og árangur heimsmeistar-
ans mældist upp á 2.877 ELO-
skákstig! Karpov stóð félaga sínum
lítt að baki, þótt skákir hans hefðu
jafnan rólegra yfirbragð en flug-
eldasýningar heimsmeistarans. Inn-
sæi hans í rólegri stöðubaráttu er
með ólíkindum og ósjaldan var and-
stæðingurinn knúinn til uppgjafar
jafnvel án þess að vita hvar glappa-
skotin voru. Karpov hlaut 8 vinn-
inga í 10 skákum og árangurinn
var upp á ein 2.800 ELO-skákstig.
Auðvitað stóðu aðrir sveitarmeðlim-
ir sovésku sveitarinnar þeim kump-
ánum langt að baki og á tíðum virt-
ist taflmennska þeirra Júsupovs,
Beljavskýs, Ehlvests og Ivanchuks
heldur litlaus og ósannfærandi. í
raun var sigurinn líka tryggður
löngu fyrir síðustu umferð og verð-
ur þá jafnan erfiðara að halda fullri
einbeitingu við slíkar aðstæður.
Keppnin um silfursætið var ólíkt
meira spennandi. Fyrirfram var
álitið að enska liðið með stórmeist-
arana Short, Speelman, Nunn og
Chandler innanborðs væri líklegt til
að hreppa hnossið. Sú varð niður-
staðan eftir miklar sviptingar í
síðustu umferð. Þá tefldi sveitin við
Hollendinga og þegar þremur skák-
um var lokið var staðan tveir vinn-
ingar gegn einum þeim hollensku í
vil. Það sem meira var að staða
Nunns virtist vonlaus gegn van der
Sterren. Hollendingurinn hafði peð
framyfir og sigur myndi tryggja
honum áfanga að stórmeistaratitli
og sveitinni annað sætið. En taugar
Hollendingsins brustu, honum yfirs-
ást einföld flétta andstæðingsins
og jafntefli var niðurstaðan og eftir
stigaútreikning voru ensku sveitinni
veitt silfurverðlaun. Hollendingar
hlutu þess í stað bronsverðlaunin.
Það var ekki hlutskipti íslensku
sveitarinnar að beijast um sigur-
sætin að þessu sinni. Sveitin lenti
í 15. sæti af 107 þátttökusveitum,
auðvitað langt frá því marki sem
stefnan var sett á. Þó munaði ekki
miklu á vinningatölu sveitarinnar
og þeim sem voru í efstu sætunum.
Þannig skilur einungis 2'/2 vinning-
ur að íslensku sveitina og þá er
skipar annað sætið. Ekki mikill
munur ef haft er í huga að í Dubai
var munurinn 4 '/2 vinningur, þrátt
fyrir að fimmta sætið væri stað-
reynd þá. Niðurstaðan er auðvitað
sú að Monrad-kerfið sem teflt er
eftir á mótinu er meingallað til að
úrskurða um „réttlát" úrslit fyrir
neðan efstu sætin. Heppnin með
andstæðinga er of veigamikill þátt-
ur í kerfinu til þess að svo megi
vera. Það er íhugunarvert að skoða
t.d. hvemig liðin hafa komist í efstu
sætin á mótinu. Á meðan sum liðin
hafa staðið í toppbaráttunni mótið
á enda hafa önnur látið sér nægja
að sitja um miðbikið og lagt áhersl-
una á góðan endasprett. Kerfið
byggir á því að sveitir með jafn-
marga vinninga tefli ætíð saman í
hverri umferð. Það var áberandi
hjá mörgum sveitum hve vel var
gætt að þessum málum þannig að
samið var frekar um jafntefli á öll-
um borðum í viðureignum frekar
en að leggja í áhættu og reyna að
sigra. Refsingin kæmi þá einfald-
lega í næstu umferð er liðið fengi
sterkari andstæðinga. Brautar-
gengi sveitanna framan af móti
skiptir þannig litlu máli. Það er ein-
ungis spumingin um úrslit í síðustu
tveimur eða þremur umferðunum
sem er örlagavaldur um lokaniður-
stöður. Þá leggja sveitimar ofur-
kapp á að vinna stóran sigur og
vonast til að góður sigur fleyti þeim
ofar á töflunni.
Það var stefna íslensku sveitar-
innar að glíma við erfiðustu and-
stæðingana eins fljótt og kostur
væri. Þannig mætti eyða þeirri
áhættu að þurfa að glíma við þær
í síðustu umferðunum og hrapa nið-
ur í mótstöflunni ef tap hlytist.
Þessi ráðagerð tókst að hluta til
því strax í fimmtu umferð sat liðið
á efsta borði andspænis sovésku
snillingunum. Viðureignin tapaðist.
Jóhann varðist mjög vel gegn
heimsmeistaranum og tókst að
halda jöfnu eftir erfiða stöðu. Jón
L. hafði góðar gætur með svörtu
mönnunum gegn Júsupov og gerði
snemma jafntefli. Margeir tapaði á
hinn bóginn sorglega gegn Ehlvest.
Hafnaði jafnteflisboði í tímahraki
og missti síðan af snjallri björgunar-
leið í framhaldinu. Helgi tapaði
gegn Ivanchuk. Þegar tvær um-
ferðir vom eftir á mótinu var staða
íslensku sveitarinnar þokkaleg.
Vinningstalan hin sama og í Dubai
fyrir tveimur árum. Tékkneska liðið
reyndist sveitinni á hinn bóginn
erfiður andstæðingur í næstsíðustu
umferð. Lengi vel var útlitið bjart
og jafnvel útlit um sigur í viðureign-
inni en hjólin voru skjót að snúast
og tap varð niðurstaðan, IV2-2V2.
Stóran sigur þurfti því í síðustu
umferð til að ná frambærilegu sæti
og slíkt var hvergi óhugsandi ef lið
í veikari kantinum væri andstæð-
ingur okkar. Sú von brást hrapal-
lega því við útreikninga kom í ljós
að andstæðingamir yrði lið A-
Þjóðveija. Sveitina skipa þaul-
reyndir skákmeistarar og afskap-
lega traustir og því auðvitað ekki
eftirsóknarverðir andstæðingar
þegar stóran sigur þarf. Viðureign-
in endaði líka með skiptum hlut,
báðum sveitum til sárrar gremju.
Jón L. hlaut slæman skell gegn
Bönsch. Hann beitti leikaðferð sem
þjálfari sveitarinnar Spassky hafði
bent á sem athyglisverða leið í æf-
ingarbúðunum fyrir keppnina og
lítillega hafði verið skoðuð þar og
álitin leiða til tvísýnnar stöðu. Þar
varð okkur heldur betur á í mess-
unni því öflugt mótsvar gerir af-
brigðið ótefiandi enda tapaði Jón
skákinni í raun án þess að fá nokk-
um tíma kost á að byija hana.
Margeir bætti um betur og sigraði
Knaak í skemmtilegri viðureign þar
sem allt var lagt undir á meðan
Jóhann og Helgi gerðu jafntefli við
sína andstæðinga.
Ef leita skal skýringa á brösugu
gengi á mótinu má vafalaust finna
margt til. Heimsbikarmótið í
Reykjavík sat vitaskuld i Jóhanni
og Margeir enda hefur lítill tími
gefist til hvíldar eftir það og aðrir
sveitarmeðlimir tefldu hvergi nærri
af þeim krafti sem þeir eiga til.
Liðið var í heild einnig heldur ófar-
sælt í viðureignum sínum og fékk
minna úr þeim en efni stóðu til.
Kannski var boginn spenntur full
hátt í mörgum viðureignum. Hugar-
farið var að sigra í viðureignum og
Spassky a.m.k. lét þá skoðun sína
í ljós að mótinu loknu að vænlegra
til árangurs hefði verið að leggja
minna í viðureignirnar framan af í
stað þess að flækja taflið að óþörfu.
Örygginu var einnig ekki til að
dreifa hjá liðsmönnum. I mótinu
öllu var einungis í þremur umferð-
um sem enginn liðsmanna tapaði
skák. Slíkt er auðvitað ekki líklegt
til árangurs ef haft er til saman-
burðar að í Dubai voru þær um-
ferðir níu hjá íslenska liðinu. Af
þessum ástæðum voru stórir sigrar
afar fátíðir hjá sveitinni jafnvel
gegn veikari sveitum.
Gífurleg þróun er hjá mörgum
þjóðum um þessar mundir sem til
þessa hafa verið kunnar fyrir flest
annað en frambærilega skákmenn.
Filippseyjar komu mest á óvart nú.
Stórmeistarinn Torre er þaðan en
flestir aðrir liðsmenn sveitarinnar
voru með öllu óþekktir. Það aftraði
ekki liðinu sem í síðari umferðum
mótsins sat sleitulaust í efstu sæt-
unum og hafnaði að lokum í sjö-
unda sæti á mótinu.
Kvennaflokkur:
Ungversku stúlkurnar rufu
einokun sovéska liðsins
Fyrir Ólympíumótið vakti keppn-
in í kvennaflokki ekki síður eftir-
væntingu en hjá karlpeningnum.
Auðvitað er enn mikill styrkleika-
munur milli kynjanna en til leiks
voru nú mættar Polgar-systurnar
ungversku, Zsuza, Judith og Soffia
sem til þessa hafa neitað að tefla
í sérstökum kvennamótum, ásamt
Madl. Þær hafa vakið athygli hvar-
vetna sem þær hafa teflt fyrir góða
frammistöðu og mikil eftirvænting
ríkit hvort þeim tækist að klekkja
á sovéska liðinu sem einrátt hefur
verið um sigursætið á mótum til
þessa. Sovéski stórmeistarinn Gu-
1. borð: Jóhaxm Hjartars. - - 0 1 >/2 >/2 0 >/2 1 0 V2 1 1/2 V2 6 50
2. bor* Jón L. Ámason 1 V2 1 1 V2 V2 1/2 V2 - V2 1 0 - 0 7 58,3
3. bor* Marf?eir Péturas. 1 1 - V2 0 >/2 - 0 V2 V2 1 1 >/2 1 71/2 62,5
4. bor& Helffi Ólaísson 1 1 V2 1 0 - >/2 '/2 1 V2 0 - 1/2 V2 7 58,3
1. varam. Karl Þorsteins — 0 1 — — 1 V2 - 0 - — - - - 2>/2 50
2. varam. Þröstur Þórhallss. 1 1 0 - 2 66,7
4 2'/z 2>/2 3'/2 1 2>/2 l>/2 l>/2 2>/2 l>/2 21/2 3 l>/2 2
' ■ ‘ 1 1 1 1 ■ ' ' '______________V f'í t. .... ..I t