Morgunblaðið - 13.12.1988, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
59
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Sr. Gísli H. Kolbeins afliendir Jóhannesi Árnasyni sýslumanni fyrsta
eintak Snæfellings.
Sýsluritið Snæ-
fellingur komið út
Stykkishólmi.
hlustum á tónlist," er haft eftir
Pogacnik. Og einnig: Hún er öðru-
vísi í hvert skipti. Ég gæti sagt
ykkur tylftir af sögum um hvert
verk, en raunverulega er ekki hægt
að útskýra tónlist. Gleymið því
strax, sem ég sagði, og hafið ekk-
ert eftir mér.“
Frekari vísbending um markmið
Pogacniks með lifandi tónlistar-
flutningi fæst í spurningu hans:
„Upplifir fólk tónlist, þegar það
hlýðir á hana, eða upplifir það
sjálft sig?“
Flestir tónleikagestir búast við
skemmtun, en eftir honum er og
haft, að tónlist sé gluggi að reynslu
hins óþekkta. Nú er þessi ágæti
fiðluleikari, Miha Pogacnik, vænt-
anlegur í aðra heimsókn sína til
íslands snemma á næsta ári. Hann
mun í janúarlok nk. halda tónleika
í Reykjavík og á Egilsstöðum ásamt
píanóleikaranum Diedre Irons frá
Wellington á Nýja-Sjálandi. Hún
er fædd í Winnipeg, Kanada, árið
1945. Hugsanlega gefst einnig
kostur á námskeiði, sem á ensku
kallast „Active Listening". Fáir ís-
lendingar hafa hingað til verið á
IDRIART-listahátíðum. Þó voru 5
Islendingar á sl. sumri á fyrstu
IDRIART-listahátíðinni í Sovétríkj-
unum. Hér var um brautryðjenda-
starf að ræða og einstæðan viðburð
í Sovétríkjunum, þegar 200—300
manns frá Vesturlöndum, aðallega
Vestur-Evrópu, fjölmenntu austur
til hins gamalgróna, kristna menn-
ingarríkis, Georgíu.s em Rússar
nefna Grúsíu. Dagana 31. maí til
5. júní 1988 var IDRIART-lista-
hátíð haldin í Tifiis, höfuðborg
Georgíu. íslendingarnir héldu inn í
Sovétríkin með næturlest frá Hels-
inki, höfuðborg Finnlands. Að
morgni var stigið út á aðalbrautar-
stöð Moskvuborgar og haldið rak-
leitt með „metro" (neðanjarðarlest)
til hjarta borgarinnar, Kremlar.
Innan Kremlarmúra er miklu meira
en aðsetur Sovétstjórnarinnar, þar
eru dýrmæt, menningarsöguleg
listaverk, t.d. einar 5 kirkjur hver
annarri stórkostlegri og skreyttar
ómetanlegum listaverkum. Að
kvöldi dags var flogið til Tiflis.Ti-
flis er forn borg og hefur lengst
af verið höfuðborg Georgíu. Hún
stendur í dal við Kúra-ána, sem
fellur úr Kaspíahafi í Svartahaf.
Um Tiflis lágu löngum verzlunar-
götur milli austurs og vesturs,
norðurs og suðurs. Mjög hæfir
listamenn búa í Tiflis, og verður
gestum tónlistarfólkið sérstaklega
minnisstætt, en einnig þjóðdansar-
ar, sem sýndu snilldartakta.
Mjög athyglisvert var að kynn-
ast því, hversu mikla rækt þessi
fámenna menningarþjóð, Ge-
orgíubúar, leggja við þjóðmenningu
sína, og skipar þar augljóslega
tungumálið heiðurssess. Það hefur
varðveitzt mjög vel í aldaraðir. Rit-
málið er einstakt og er hvorki lat-
neskt né kirilíanskt (rússneskt),
heldur svipar stafagerðinni nokkuð
til arabísku. Tungumálið mun þó
teljast til indóevrópskra mála.
Það gefur augaleið, að Vestur-
Evrópumönnum kann að þykja erf-
itt að ná sambandi við þetta fólk,
en hitt er mála sannast, að leitun
er að viðlíka gestrisni og meðal
Georgíumanna. Menntun virðist
fara vaxandi, því að meðal yngra
fólks er allgóð ensku- eða þýzku-
þekking ekki óalgeng.
Þegar við Islendingarnir vorum
spurðir um uppruna okkar kom
okkur töluvert á óvart, að Ge-
orgíubúar virtust hafa heyrt á
landið minnzt og vita nokkurn veg-
inn um legu þess. Kann hér nokkru
um að valda toppfundurinn, sem
haldinn var í Reykjavík haustið
1986 og hlaut mjög mikla umfjöllun
sem vert var. Fullyrða má, að Ge-
orgíubúar séu einkar opnir og
áhugasamir fyrir umheiminum.
IDRIART-hátíðirnar sækja sem
sé ekki einvörðungu gildi sitt til
listarinnar, heldur einnig til mann-
legra tengsla og aukinnar þekking-
ar á framandi menningarsvæðum.
Hvað skyldi vísa meira til fram-
tíðar en starfsemi af þessu tagi?
Hiifimdur er rafmagns verkfræð-
ingvrhjá tslenska álfélaginu hf.
Sýslunefnd Snæfelisness- og
Hnappadalssýsiu kaus fyrir
nokkrum árum fjögurra manna
nefnd til að kom á fót riti sem
segði frá sýslunni og safnaði
fróðleik um liðið mannlíf og eins
það sem væri á döfinni.
Ritið hefir verið talsverðan tíma
í undirbúninei. í haust var lokið við
prentuð og nú fyrir skemmstu var
það tilbúið til dreifingar.
I ritinu eru margar myndir, bæði
af mönnum og landslagi, og er það
prentað hjá St. Fransiskussystrum
í Stykkíshólmi. Ritinu var gefið
nafnið „Snæfellingur" og ef því
verður vel tekið verður reynt að
halda útgáfunni áfram. _ Árni
MEIRIHÁTTAR
UNGLINGABÚK!
Meiriháttar stefnumót er um Svenna, 15 ára Akurnesing. Hann er
hrifinn af tveimur stelpum, sem báðar sýna honum áhuga. Hvora
þeirra á hann að velja?
Meiriháttar stefnumót er 7. unglingabók metsöluhöfundarins
Eðvarðs Ingólfssonar, höfundar „Fimmtán ára á föstu“, „Sextán ára
( sambúð", „Pottþétts vinar“ o.fl. pottþéttra unglingabóka.
Meiriháttar stefnumót er fjörlega sögð og skemmtileg saga, sem
vekur lesandann jafnframt til umhugsunar um lífið og tilveruna.
Meiriháttar stefnumót — Meiriháttar unglingabók!
Fyrir
unglingana
Alveg milljón
eftir Andrés Indriðason
Það er alveg milljón að verða vitni að
milljónaráni á Laugaveginum, að smella
óvænt inn í klíkuna og eignast æðislega
vinkonu, - allt sama daginn!
Hvemig bregst 14 ára strákur við þegar til-
veran tekur slíkri stökkbreytingu?
Spennusaga úr raunveruleikanum, bók
fyrir alla hressa krakka, ALVEG
MILLJÓN!
Laugavegi 18. Sími 15199-24240. Sí&umúla7-9. Sími 688577.
WONUSTAN'SÍA