Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 65
8861 5K?aM383a .81 HU0A0ULai3<l .GIGAjaVIUOHOM _ £9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 65
Verkalýðshreyfingin
Annar aðili sem þarf að koma
að þessu máli á skipulegan og raun-
hæfan hátt er verkalýðshreyfingin.
Verkalýðshreyfmgin hefur vanrækt
þennan þátt í starfi sínu. Þó má
segja að á undanförnum árum hafi
verkalýðsfélögin gert svolitlar til-
raunir í þessa átt. Aðallega felast
þessar tilraunir í því að aðstoða
félaga í verkalýðsfélögunum og þar
á meðal eldra fólk, til að komast í
sumarfrí til útlanda og einnig hefur
verið stuðlað að því að fólk geti
kómist í samband við áhugamál á
annan hátt. Allt er þetta góðra
gjalda vert en ómarkvisst og nær
til fárra af heildinni. Gallinn er sá
að þessi starfsemi er yfirleitt ekki
fastur liður í starfi verkalýðsfélag-
anna heldur er um tilboð að ræða
sem eru þá frekar nýtt af þeim hluta
fólks sem mest frumkvæði hefur
og bestar aðstæður og mesta sjálfs-
bjargarviðleitni.
Verkalýðshreyfingin ætti að gera
forvamarstarf á þessu sviði að stór-
um þætti í starfsemi sinni. Verka-
lýðshreyfingin á að stuðla að slíku
starfi og aðstoða félaga sína og í
hveiju verkalýðsfélagi ætti raunai
að vera félagsmálafulltrúi eð;
starfshópur sem aðstoðar fólk sér-
staklega á þessu afmarkaða og
mikilvæga sviði áður en fólk fer af
vinnumarkaðinum. Og verkalýðs-
félögin þurfa svo að halda áfram
eftir að félagarnir eru farnir af
vinnumarkaðinum. Kannski er þörf-
in aldrei meiri en þá. Þarna má
þráðurinn aldrei slitna og skyldur
verkalýðsfélagsins við félagana
verður að ná út fyrir þann tíma sem
þeir eru fullgildir félagar og í vinnu.
Það þarf að byija að vinna að
þessum málum miklu fyrr og á
breiðum grundvelli. Það á alveg
hiklaust að hefja þetta starf þegar
fólk hefur náð 50 ára aldri. Ef þetta
er gert á þennan hátt og fólkið
sjálft hefur frumkvæði í félögunum
er annars vegar hægt að fyrir-
byggja að tómarúmið myndist við
verklokin og hins vegar að gera
síðustu áratugina að fijóum tíma
en ekki að biðtíma undir lífeyrisald-
urinn.
Bæði BSRB og ASÍ ættu í þessu
máli að víkka hið þrönga hugtak í
kjarabaráttunni sem er alltof mikið
bundið við efnisleg lífskjör og fara
inn á þetta svið í vaxandi mæli.
Raunar verður verkalýðshreyf-
ingin að fara að hugsa á öðrum
grundvelli en hún gerði fyrir 50
árum. Sumir halda því fram að
verkalýðshreyfingin sé stöðnuð á
sama hátt og opinberir aðilar hvað
varðar afstöðuna til ellinnar. Það á
bara að henda fólki eins og brunn-
inni eldspýtu að lokinni starfsævi
og þá í besta falli að stuðla að því
að margir steypubílar komi og
steypi mörg og stór hús fyrir gamal-
menni sem hefðu getað frestað ell-
inni um mörg ár ef eðlilega hefði
verið að málum staðið. Verkalýðs-
hreyfíngin verður að skilja þær
breytingar sem orðið hafa á þjóð-
félaginu, þær félagslegu, fjárhags-
legu og heilsufarslegu breytingar
sem gera stöðu fullorðins fólks allt
öðruvísi en áður var.
Félög og félagasamtök
Þriðji aðilinn sem látið hefur sig
málefni aldraðra varða eru félaga-
samtök ýmis konar. Mörg þessara
samtaka vinna mikið starf og af
mikilli hugsjón. Þessi starfsemi
beinist ekki síst að húsnæðismálum
og umönnun aldraðra og er þetta
góðra gjalda vert framtak.
A allra síðustu árum hefur einnig
orðið ný vakning í þessum málum
þar sem fólkið sjálft hefur tekið
frumkvæði, samanber Félag eldri
borgara í Reykjavík og Hana nú-
klúbbamir í Kópavogi og kannski
fleiri. Þama er vafalaust um að
ræða mjög jákvæða þróun sem í
framtíðinni á eftir að verða traustur
homsteinn i þeirri þróun sem verður
að koma í málum fullorðins fólks.
Hlutur, ríkisvaldsins
Hér 'hefur verið í stuttu máli
tæpt á nokkmm þáttum í málum
aldraðra. Þetta eru sundurlausir
punktar þar sem reynt er að vekja
athygli m.a. sveitarstjómarmanna,
verkalýðshreyfingarinnar og svo
fólksins sjálfs á því hvernig staða
málsins er og hvetja þessa aðila
alla til dáða og framkvæmda sem
fyrst.
Það er augljóst að mál aldraðra
og hagur er hvergi nærri tryggður
á næstu ámm. Sú skelfing sem
margir ráðamenn bera í bijósti
vegna „fjölgunar gamalmenna" á
næstu ámm og áratugum sýnir ljós-
lega að málið er alvarlegt og þetta
sýnir einnig að menn bíða nánast
með hendur í skauti. Það er engin
heildarstefna og málið er ekki skoð-
að í félagslegu og fjárhagslegu
samhengi. Það er með þennan
málaflokk eins og aðra hliðstæða
málaflokka að ekki eru sterkir
þiýstihópar að baki. Aldraðir eiga
raunar enga sterka málsvara og
allof fáir úr þeirra eigin röðum láta
málið til sín taka. Það er bara beð-
ið eftir því að málið verði ennþá
verra viðureignar.
Það sem þarf að gera er að móta
stefnu fyrir næstu áratugi. Þetta
gerist ekki með því að hópar fólks
sem vinna hver á sínu sviði, haldi
fundi og ráðstefnur um þetta mál-
efni þó að ekki sé að efa að allt
slíkt sé af góðum hug gert. Það sem
þarf að gera er að gerð verði heild-
arúttekt á öllum þáttum málsins
og mótuð heildarstefna til langs
tíma. í þessari stefnumörkun er
ekki hægt að aðskilja félagslegar
og fjárhagslegar þarfir aldraðra í
framtíðinni. I þessari stefnumörkun
verður að gera ráð fyrir fjármunum
og tekjustofnun sem nema milljörð-
um til að standa undir alhliða þjón-
ustu fyrir aldraða í framtíðinni. Til
að mæta þessu risavaxna verkefni
verður að laga fjármál ríkisins
smám saman að þessu framtíðar-
verkefni og það verður að ganga
til þessa verks nú þegar. Það má
engan tíma missa ef sú skelfing sem
ráðamenn þjóðarinnar bera nú í
bijósti vegna „fjölgunar gamal-
menna“ á ekki að verða að martröð
framtíðarinnar. Og stjórnvöld
landsins verða að eiga frumkvæði
að þessu verki.
Höfiindur er atvinnumálafulltrúi
í Kópavogi.
Sverrir
Stormsker
með
barnaplötu
SVERRIR Stormsker hefiir sent
frá sér nýja plötu, sem ber heitið
Nú er ég klædur og kominn á
rokk og ról. Platan inniheldur
14 barnalög eftir Sverri, en hann
semur jafnframt texta og sér um
útsetningar, hljómborðs- og
gítarleik og söng að mestu.
Auk Sveerris koma fram söngv-
ararnir Rakel Axelsdóttir, 11 ára,
Þórhallur Sigurðsson, Alda Olafs-
dóttir, Barnakór Austurbæjarskóla,
Theodór Lilliendahl, Axel Einarsson
og Stefán Hilmarsson.
Hljóðfæraleikarar auk Sverris
eru þeir Ingi R. Ingason og Pálmi
ÞEYTIR, BLANDAR
O G HNOÐAR.
HANDHÆGT OG
ÞÆGILEGT TÆKI.
Sverrir Stormsker
Gunnarsson. Útgefandi þessarar
hljómplötu er Stöðin en dreifingu
annast Steinar hf. Tónlistin er einn-
ig fáanleg á kassettu og geisladisk.
Verðið er frábært, frá aðeins kr. 495.000,- staðgreitt.
ISUZU GEMINI •
er stolt feðra sinna - hannaður
með tilliti til formfegurðar og
margra ára endingar. í margendur-
teknum rannsóknum hefur
GEMINI reynst elnn sterkbyggðasti
og öruggasti smábíll gagnvart
slysum og hvers kyns óhöppum.
ISUZU GEMINI •
býður uppá meira innanrými og
þægindi en nokkur annar
sambæriiegur bíll. Þægileg
framsæti með margvíslegum
stillimöguleikum - aftursæti sem
má leggja niður til að auka
farangursrými og rúmgóðri
farangursgeymslu með víðri og
aðgengilegri opnun.
ISUZU GEMINI®
er sannkallaður kostagripur - ekki
of lítill og ekki of stór, búinn þeim
fylgihlutum sem fæstir sambæri-
legir bílar státa af, svo sem 5 gíra
eða sjálfskiptingu, aflstýri, útvarpi
m/segulbandi, góðri hljóð-
einangrun og traustum undirvagni.
mm BÍLVANGUR
Veldu þér GEMINI meö framhjóladrifi,
3ja eða 4ra dyra, með 1.31 ítra eða 1.51 ítra vél
HOFÐABAKKA 9 5IMI 687300
8
%
$
UPPHAF GÓÐRAR MÁLTÍÐAR
MOULINEX HANDÞEYTARINN
%
i
k / \ \
mammmmtmidmmi&mtimsimt.