Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 80
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
200þúsund bögglar
Morgunblaðið/Sverrir
Mynd þessi var tekin í böggladeild Póstmiðstöðvarinnar í Ármúla
í gœr, en þessa dagana er mikið að gera í póstafgreiðslum um
land allt. Samkvæmt upplýsingum Björns Björnssonar póstmeist-
ara í Reykjavík er reiknað með að um 500 tonn verði send með
pósti í desember. Áætlað er að bögglasendingar verði um 200
þúsund, og um 20 milljón bréf og blöð verði send, en þar af eru
jólabréf um 4 milljónir. Fastir starfsmenn við póstafgreiðslu í
Reykjavík eru 430 talsins, en í desember eru um 220 unglingar
ráðnir til viðbótar. Síðasti skiladagur á jólapósti er 17. desem-
ber, en á Qugpósti til Evrópu er síðasti skiladagur 15. desember.
Arnarflug:
Starfsmenn
íhuga 10%
. launalækkun
STARFSFÓLK Arnarflugs íhugar
nú að bjóðast til að lækka laun sin
um 10% á næsta ári. Hugmynd
þessa efhis var varpað fram af
starfemanni á fundi starfefólks
og stjórnenda fyrirtækisins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var hugmyndin rædd nokk-
uð í lok fundarins, eftir að fram-
kvæmdastjóri Amarflugs, Kristinn
Sigtryggsson, var farinn af fundin-
um. Til fundarins var kallað að frum-
kvæði starfsfólks, sem vildi ræða við
forsvarsmenn fyrirtækisins vegna
erfiðrar rekstrarstöðu þess.
í gærkvöldi hafði undirskrifta-
söfnun ekki hafist, en undirskrifta-
' listar eru tilbúnir samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins. 10% launalækk-
un alls starfsfólks Amarflugs myndi
lækka útgjöld félagsins um nálægt
20 milljónum króna á næsta ári, ef
af verður, en 110 til 130 manns vinna
hjá fyrirtækinu. Um 80 manns sóttu
fundinn, þar sem launalækkunar-
hugmyndin kom fram.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
„Giljagaur var annar ...“
Ellefu dag—
artiljóla
ELLEFU dagar eru til jóla
og í dag, þriðjudag, kemur
Giljagaur til byggða.
Hofsóshreppur:
2% hækkun á telquskatti
Útgjöld lækka um 700 millj. króna
SAMKOMULAG hefur náðst milli stj órnarflokkanna um að skera
niður ríkisútgjöld á næsta ári um allt að 700 milljónum króna meira
en Qárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir. Þá hefur einnig náðst sam-
komulag um að hækka tekjuskatt um 2% og verður frumvarp um
breytingu á tekju- og eignaskatti væntanlega lagt fram í dag. Hins
vegar náðist ekki samkomulag um að leggja 12% söluskatt á happ-
drætti, eins og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu og átti að
skila um 500 milljónum í ríkissjóð. Gert er ráð fyrir að önnur um-
ræða á Alþingi um Qárlagafrumvarpið verði síðar í þessari viku.
Alþýðubandalag og Framsóknar-
flokkur vildu að tekjuskattur yrði
hækkaður um 3% en Alþýðuflokkur
vildi ekki sætta sig við svo mikla
hækkun. Hvert prósent á að skila
ríkissjóði um 500 milljónum í aukn-
ar tekjur. Kjartan Jóhannsson,
þingmaður Alþýðuflokks, sagðist
eftir atvikum vera ánægður með
að ná tekjuskattshækkuninni niður
í 2%. Menn yrðu að fara varlega í
allar breytingar á tekjuskatti þar
sem hann hefði áhrif á vilja fólks
til að vinna og tilhneigingu til skatt-
svika, þannig að mikil hækkun skil-
aði ef til vill ekki þeim tekjum sem
búist væri við.
Fjárlagafrumvarpið gerði ráð
fyrir því að gjöld ríkissjóðs á næsta
ári yrðu 76,1 milljarður en tekjur
Fjárhaldsstj órn skípuð og
óskað eftii' greiðslustöðvun
SVEITARSTJÓRN Hofsóshrepps hefur verið svipt Qárforráðum og
verður skipuð sérstök Qárhaldsstjórn, að ákvörðun Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, félagsmálaráðherra. Þá hefur félagsmálaráðuneytið snúið
sér til skiptaráðanda og óskað eftir greiðslustöðvun sveitarsjóðs í
allt að þijá mánuði. Skuldir sveitarsjóðs nema um 54 milljónum
króna, eða þreföldum til fjórföldum árstekjum hreppsins. Þetta jafii-
gildir nærri 200.000 króna skuld á hvern íbúa hreppsins, sem voru
um 270 árið 1986. Jóhanna sagði að um 30 ár væru síðan gripið var
tíl svipaðra aðgerða í máli Kaldrananeshrepps í Strandasýslu.
Hofsóshreppur óskaði fyrir um
þremur vikum eftir fjárhagsaðstoð
frá ríkisvaldinu í samræmi við 90.
grein sveitarstjómarlaganna, sem
kveður á um að veita megi styrk
eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga sé fjárhagur sveitarsjóðs mjög
■ -^læmur. Jóhanna Sigurðardóttir
sagði að eftir rannsókn sem endur-
skoðunarskrifstofa gerði fyrir ráðu-
neytið á Qárhag og rekstri sveitar-
félagsins hefði verið talið óhjá-
kvæmilegt að beita 91. grein sveit-
arstjómarlaganna, sem kveður á
um að skipa fjárhaldsstjóm. Skuld-
ir hreppsins væru svo miklar að
framlag úr Jöfnunarsjóði dygði alls
ekki til og ekki væri hægt að ná
fram greiðslustöðvun nema með
þessum hætti. Félagsmálaráðu-
neytið skipar formann og annan
mann til í ljárhaldsstjóm á næstu
dögum, en þriðji maðurinn verður
skipaður af Sambandi sveitarfé-
laga.
Jóhanna sagði ljóst að á undan-
fömum árum hefði verið ráðist í
meiri fjárfestingar en sveitarsjóður
hefði getað staðið undir. Skuldir
hreppsins umfram eignir væm um
33 milljónir króna. Endurskoðendur
hefðu lagt til að sameina Hofsóss-
hrepp nágrannasveitarfélögum. Þá
væri heimild fyrir að leggja fram
tillögfu fyrir sveitarstjórn um að
leggja allt að 25% álag á útsvör,
aðstöðugjöld og fasteignaskatt.
Ráðherra sagði að vonandi þyrfti
ekki að koma til þess.
Jóhanna sagði aðspurö að sam-
bærileg beiðni lægi ekki fyrir frá
neinu öðru sveitarfélagi. Ríkis-
stjómin hefði ákveðið að skipa
nefiid til að skoða þau sveitarfélög
sem ættu miklar skuldir útistand-
andi hjá fískvinnslufyrirtækjum,
þannig að sveitarfélögin færu ekki
halloka í uppgjöri sem þar færi
fram, til dæmis í gegnum Atvinnu-
tryggingarsjóð. Um væri að ræða
um 30 sveitarfélög sem ættu oft
um 40-70% og jafnvel allt að 1,5-
faldar árstekjur sínar útistandandi
hjá fískvir.nslufyrirtækjum.
77,3 milljarðar. Fyrir lá að tekju-
hliðin myndi hækka talsvert í með-
fömm fjárveitinganefndar, m.a.
myndu útgjöld til skólamála hækka
talsvert. Þá hafa forsendur tekju-
hliðar einnig breyst frá því fmm-
varpið var lagt fram vegna aukins
samdráttar.
Nú er gert ráð fyrir því að flár-
veitinganefnd fái rúmar 500 millj-
ónir til úthlutunar en á móti komi
niðurskurður á ýmsum liðum um
tæplega 1.300 milljónir króna. Þar
er stærsti liðurinn ferðakostnaður
og risna ríkisstarfsmanna, sem á
að lækka um 250 milljónir, eða um
allt að þriðjung. Þá á launakostnað-
ur að lækka vemlega, m.a. með því
að ráða ekki fólk til sumarafleys-
inga. Framlag til byggingarsjóða
ríkisins lækkar um 150 milljónir og
framlag til vegamála um 90 milljón-
ir.
Seðlabankinn hefur spáð því að
vegna samdráttar verði ráðstöfun-
arfé húsnæðiskerfisins 470 milljón-
um króna lægra á næsta ári en ráð
var gert fyrir á fjárlögum og Vinnu-
veitendasambandið hefur spáð því
að ráðstöfunarféð verði 1.100 millj-
ónum minna.
Jóhanna Sigurðardóttur félags-
málaráðherra sagði í gærkvöldi að
ekki ætti þó að þurfa að óttast að
ekki verði staðið við þær skuld-
bindingar sem húsnæðislánakerfið
hefði gert, þrátt fyrir minna fram-
lag úr ríkissjóði. „Það er samt alveg
ljóst að miðað við þessar aðstæður
getur húsnæðislánakerfið ekki tekið
á sig þær 150 milljónir króna, sem
ríkisstjómin hefur lofað hópum sem
eiga í erfiðleikum, og stjómin verð-
ur því að útvega það fjármagn sem
til þarf. “