Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 26
I
26
wxjuaiíadjía .e muoacihad'jaj QiQAjaviuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 9. DESEMBER 1989
Islenskur sjávarútvegur
og Evrópubandalagið
eftirHalldór
*
Arnason
Efnahagur á íslandi er á margan
hátt frábrugðið efnahagslífi annarra
Evrópuríkja. Má í því sambandi
nefna að hann byggist að mestu leyti
á einni atvinnugrein, sjávarútvegi,
og að utanríkisviðskipti eru óvenju
mikil. Þess vegna er mikilvægt fyrir
Islendinga að hafa góð samskipti við
önnur ríki og leggja áherslu á að
tryggja greiðan og hindrunarlausan
aðgang fyrir útflutningsafurðir sínar
að erlendum mörkuðum.
Um áramótin 1988-1989 mynd-
, uðu helstu hagsmunaaðilar í sjávar-
útvegi hér á landi Samstarfsnefnd
atvinnurekenda í sjávarútvegi til að
kanna möguleikana á skoðanaskipt-
um og samstarfi milli hinna ýmsu
greina sjávarútvegsins. Eitt af
markmiðum þessarar nefndar var
að móta sameiginlega afstöðu þess-
ara aðila til þeirrar þróunar sem á
sér stað innan Evrópubandalagsins
(EB) og sendi nefndin nýlega frá sér
skýrslu sem nefnist Islenskur sjávar-
útvegur og Evrópubandalagið. í
henni er fjallað um þá hagsmuni sem
tengjast islenskum sjávarútvegi í
samskiptum við EB.
Það er ekki að ástæðulausu að
þetta er eitt af markmiðum sam-
starfsnefndarinnar því EB er lang-
mikilvægasti útflutningsmarkaður
íslendinga og fer mikilvægi hans
vaxandi eins og mynd 1 sýnir.
Á síðasta ári fóru 59% af verð-
mæti útflutnipgsafurða á þann
markað og 62% af verðmæti út-
fluttra sjávarafurða.
Könnunarviðræður
EFTA og EB
Nefndin hefur fylgst með könnun-
arviðræðum EFTÁ og EB sem lauk
fyrir nokkru. Markmið þeirra var
að kanna möguleika á samvinnu
milli þessara aðila á þeim sviðum
sem falla undir áætlun EB um innri
markaðinn. Búist er við því að eigin-
legar samningaviðræður hefjist í
byijun næsta árs og að markmið
þeirra verði að koma á sameiginlegu
efnahagssvæði í Evrópu.
Markmiðið með auknu samstarfi
EB og EFTA er m.a. að auka hag-
vöxt og velferð í aðildarríkjunum og
er reynt að ná því með auknu frjáls-
ræði og samkeppni í vöruviðskipum,
þjónustu, fjármagnsflutningum og
frelsi fólks til þess að ferðast, búa
og starfa þar sem það vill. Þetta er
drifkrafturinn í því sem er að gerast
í EB og í samskiptum þess og EFTA.
Allt skiptir þetta miklu máli fyrir
íslendinga en sérstaða okkar sem
sjávarútvegsþjóðar í samskiptum við
þessar þjóðir skiptir ekki síður miklu
máli. /
Hvað vöruviðskipti varðar ten^j-
ast væntanlegar viðræður EFTA og
EB fyrst og fremst frelsi í viðskipt-
um með iðnaðarvörur en síður sjáv-
arafurðum og landbúnaðarafurðum.
Er búist við að viðræðurnar geti leitt
til útvíkkunar á fríverslunarsamn-
ingi þessara aðila og að síðar þróist
það yfir í tollabandalag.
En hvað er átt við með fríversluríl
Með fríverslun er stuðlað að heil-
brigðri samkeppni milli fyrirtækja i
þeim ríkjum sem gera með sér
fríverslunarsamning; innflutning-
stollar eru afnumdir, viðskiptahindr-
unum af öðru tagi er rutt úr vegi
og niðurgreiðslur og opinberir styrk-
ir við atvinnulífið eru óheimilir.
Einn starfshópanna í könnunar-
viðræðunum fjallaði um frjáls vöru-
viðskipti. Lítið var fjallað um við-
skipti með sjávarafurðir og fram
kom hjá fulltrúum EB að fríverslun
með sjávarafurðir er ekki á döfinni
og sögðu þeir að taka þyrfti tillit til
sjávarútvegsstefnu bandalagsins
Halldór Árnason
„Það er mikið hags-
munamál fyrir Islend-
inga að fríverslunar-
samningar við EB nái á
sama hátt til sjávaraf-
urða og iðnvarnings og
falli verndartollar og
opinberir styrkir við
atvinnulífið þar með
niður því hvort tveggja
er forsenda fríverslun-
arfyrirkomulags.“
sem erfiðlega gekk áð koma saman
árið 1983.
Uppistaðan í útflutningi íslend-
inga er sjávarafurðir eins og mynd
2 sýnir.
Sérstaða okkar íslendinga er mjög
mikil hvað þetta varðar. Hlutfall
sjávarafurða af verðmæti vöruút-
flutnings er rúmlega 70%, en það
er aðeins um 6% hjá Norðmönnum
og 2% hjá Kanadamönnum, sem eru
helstu samkeppnisaðilar íslensks
sjávarútvegs.
Sjávarútvegsstefiia EB
Sjávarútvegsstefnu bandalagsins
er ætlað að vernda og styrkja sjávar-
útveg aðildarríkjanna. Til þess er
beitt opinberum styrkjum og inn-
flutningstollum á sjávarafurðir.
Stangast hvort tveggja á við eitt af
meginmarkmiðum bandalagsins sem
er að stuðla að heilbrigðri sam-
keppni og auka fijálsræði í vöruvið-
skiptum. Við þurfum ftjálsan að-
gang að mörkuðum EB fyrir sjávar-
afurðir því þær eru okkar iðnaðar-
vörur. Við þurfum viðskiptafrelsi
með þær á sama hátt og iðnaðarvör-
ur EB-ríkja njóta.
Styrkir
Árið 1987 gerði EB 10 ára áætlun
um endurskipulagningu sjávarút-
vegsins og var ákveðið að veija að
meðaltali um 11 milljörðum íslenskra
króna í því skyni. Styrkirnir hafa
orðið mun hæixi en ráð var fyrir
gert og mun bandalagið veija um
27 milljörðum króna til styrktar sjáv-
arútveginum á þessu ári. Taflan sýn-
ir hvernig þróun styrkjanna hefur
verið.
Opinberir styrkir við
sjávarútveg í EB
Millj. ísl. kr.
5 ára áætl. 1987 ............ 56
Árlegir styrkir ............. 11
Veittir styrkir 1987-1989
1987 ....................... 11
1988 ....................... 20
1989 ....................... 27
Hér er aðeins um að ræða fram-
lag EB sem hefur verið 25-50% af
íjárfestingum fyrirtækja. Til við-
bótar kemur framlag frá viðkomandi
aðildarríkjum sem hefur verið
10-30% af sömu .framkvæmdum,
þannig að ætla má að heildarstyrk-
urinn á þessu ári sé yfir 35 milljarð-
ar íslenskra króna. Til samanburðar
má geta þess að heildarverðmæti
útfluttra sjávarafurða frá íslandi á
síðasta ári var 43,8 milljarðar króna.
Styrkjunum er m.a. varið til eftir-
farandi verkefna:
• fjárfestingar í fiskiskipum og
fiskvinnslu
• hagræðingarverkefni, s.s.
til að bæta geymslur, spara orku
og bæta löndunar- og hafnarað-
stöðu
• markaðssetning, auglýs-
ingar og kynning á sjávarafurðum
• sameiginleg verkefni á sviði
fiskveiða og vinnslu, fiskiræktar
og tilraunaveiða
• bætur til sjómanna og út-
gerðarmanna vegna aflataps, t.d.
vegna tapaðra veiðiréttinda í lög-
sögu annarra ríkja
• leggja gömlum skipum
Styrkirnir skapa sjávarútveginum
allt aðra stöðu en sjávarútvegurinn
hér á landi hefur því hann getur
ekki sótt styrki til annarra.
Tollar
Fyrir utan þessa háu styrki nota
EB innflutningstolla, eða vemdar-
tolla, til að bæta samkeppnisstöðu
sjávarútvegs í aðildarríkjunum. Bók-
un nr. 6 við fríverslunarsamning
íslands og EB er um tollaívilnanir
til handa íslendingum við innflutn-
ing á sjávarafurðum til EB frá ís-
landi. Hefur bókunin, sem tók gildi
árið 1976, haft mikla þýðingu fyrir
íslenskan sjávarútveg og væri staða
okkar óviðunandi ef hennar nyti
ekki.
Ýmislegt hefur breyst á þeim tíma
sem síðan er liðinn og er samningur-
inn nú ófullnægjandi fyrir íslend-
inga. Við gerð samningsins var talið
að hann næði til rúmlega 70% af
útflutningi á sjávarafurðum til EB
en eftir inngöngu Grikklands 1981
og Spánar og Portúgals 1986 er
þetta hlutfall komið niður í um 60%
vegna mikils útflutnings á saltfiski
til þessara landa.
Verndartollar á sjávarafurðum
standa í vegi fyrir eðlilegri þróun
atvinnugreinarinnar.
Tollar bandalagsins eru misjafn-
lega háir eftir afurðum og fískteg-
undum. Með tollastefnunni reynir
bandalagið að hafa áhrif á hvaða
afurðir eru fluttar inn, þannig að
það þjóni hagsmunum útgerðar og
fiskvinnslu í bandalaginu sem best.
Dæmi um það er að 18% tollur er á
ferskum þorskflökum en 3,7% á
óunnum þorski. Stuðlar bandalagið
þannig að innflutningi á óunnum
fiski sem fyrirtæki innan bandalags-
ins vinna úr og innflutningi á virðis-
auka.
Þegar fríverslunarsamningurinn
var gerður voru íslendingar fullviss-
áðir um að engar líkur væru á að
saltfisktollur yrði tekinn upp en þeg-
ar Spánn og Portúgal gengu í banda-
lagið var það gert. 13% tollur var
settur á flattan saltfisk og 20% á
söltuð flök. Á hveijuári hefur verið
leyfður innflutningur á tilteknu
magni af saltfiski án tolla-og á lægri
tollum en þróunin hefur verið sú að
kvótarnir hafa minnkað og tollarnir
hækkað. Árið 1986 var tollfijáls
kvóti 31 þús. tonn en 25 þús. tonn
á þessu ári. 60 þús. tonna kvóti var
1986 með 3,7% tolli en í ár er hann
49 þús. tonn með 6% tolli.
Rök bandalagsins fyrir tollunum
voru helst þau að framleiðendur og
neytendur saltfisks kæmu nú inn í
Mynd 1. Hlutfallsleg skipting íslenskra
útflutningsverðmæta 1985-1988
eftir markaðssvæðum
1986
1987
EB Banda- EFTA Japan Austur- Önnur
ríkin Evrópa ríki
Við erum ekki bara hagstœðir... KRINGLAN -.w'ó erum betri S: 68 58 68
Mynd 2. Hlutfallsleg skipting vöruútflutnings
1988 eftir vinnslugreinum.
80 T%--------------------------------------
Sjávar- AfurÖir . Iðnaðar- Landbún.- Annað
afurðir stóriðju vörur vörur