Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 16
(!8er fl38M383a .
MOR-GUNBLAÐl© -Þ
il-
JMJJÖaQM
Stóðhestabókin Heiðajarlar:
Hart að Búnað-
arfélaginu vegið
_________Bækur____________
Valdimar Kristinsson
NÚ GEYSIST fram á ritvöllinn
Jónas Kristjánsson DV-ritsljóri
með útkomu bókarinnar Heiða-
jarlar sem er nokkurskonar ætt-
bók stóðhesta sem Búnaðarfélag-
ið hefur trassað að gefa út. Jónas
er nú reyndar þekktari fyrir að
skrifa um rauðvín, matsölustaði
og heimsborgir en graðhesta.
Ekki fyrir mörgum árum sýktist
Jónas heiftarlega af svokallaðri
hestabakteríu sem margir hafa orð-
ið fyrir barðinu á og telja sig
heppna. í kjölfarið fékk hann mik-
inn áhuga á ættum hrossa sem
leiddi til þess að hann fór að setja
þetta áhugamál sitt inn á tölvu og
var að lokum kominn með mikinn
ættfræðibanka hrossa. Jónasi þótti
Búnaðarfélagið ekki hafa staðið sig
sem skyldi í útgáfu stóðhestaætt-
bóka frekar en svo mörgu öðru. Sá
hann sér því leik á borði og tók
ómakið af Búnaðarfélaginu með
útgáfu Heiðajarla sem hann gefur
sjálfur út.
Heiðajarlar hefur að geyma upp-
lýsingar um 178 stóðhesta en bókin
telur um 370 blaðsíður. Er þetta
mikið og fróðlegt rit sem hefur
ýmsar gagnlegar upplýsingar að
geyma auk upplýsinga um þessa
stóðhesta. Jónas fer ótroðnar slóðir
í mörgu og meðal annars tekur
hann sér bessaleyfi eins og ýmsir
vilja meina og notar gamla númera-
kerfið á hestana sem hann virðist
úthluta þeim í samráði við Gunnar
Bjarnason fyrrverandi hrossarækt-
arráðunaut en Gunnar mun nota
þetta kerfi í sinni bók Ættbók og
saga. Ósagt skal um það látið hér
hvort þeir félagar hafi heimild til
að gera þetta á eigin spýtur en fróð-
legt væri að fá úr því skorið fyrir
dómstólum hvort svo sé. Ekki er
ólíklegt að þetta geti valdið ruglingi
í náinni framtíð eins og margir
hafa haldið fram. Nokkra athygli
vekur uppsetning á ættartölum
stóðhestanna sem er mun ýtarlegri
og aðgengilegri en hingað til hefur
tíðkast í ættbókum eða öðrum ritum
þar sem getið er ætta hrossa. Eru
þær hafðar vinstramegin á hverri
opnu en mynd af hestunum hægra-
megin ásamt upplýsingar um lit,
aldur, hjá hveijum hesturinn er
fæddur og í hvers eigu hann er.
Þá er reifað í stuttu máli af hvaða
ættlínum hesturinn er kominn og
einkunnir og mál. Númer hestanna
sem Búnaðarfélagið úthlutar er
getið neðst í textanum og er þar
kallað bít’ala sem mér skilst þýði
aukatala. Er það spurning hvort
ekki hefði verið eðlilegra að kalla
númer þeirra Jónasar og Gunnars
bítölu eða aukatölu. Fyrir neðan
textann eru útlínur Isiands og
punktur sýnir staðsetningu fæðing-
arstaðar hestsins. Til hliðar við
Eindagjnn er
2Z desember
vegna
söluskatts
í nóvember
A
I 1 ð gefnu tilefni er athygli vakin á því
að eindagi söluskatts
vegna nóvembermánaðar 1989
er miðvikudagurinn 27. desember 1989.
Forðist örtröð -gerið skil tímanlega
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
textann er svo súlurit yfir einkunn-
ir hestsins með tölustöfum við enda
súlnanna og skýringar á dómsatrið-
um. Notar Jónas þar ný heiti á
dómsatriðum. T.d. kallar hann bak
og lend afturhluca, í stað réttleika
notar hann réttstaða og í stað fóta-
gerðar notar hann fætur. Hér áður
fyrr var alltaf talað um sköpulag
þegar gefin var upp einkunn fyrir
líkamsbyggingu hestsins og síðar-
meir hefur verið talað um byggingu
en Jónas kýs að kalla það „Gerð“.
í stað geðslags notar hann geð og
í stað fegurðar í reið notar hann
reið sem má telja eðlilega styttingu
vegna plássleysis. Að þessu síðast-
talda undanskildu má telja þessar
breytingar óþarfa hringl með hlut-
ina sem er til þess eins fallið að
rugla menn í ríminu. Að öðru leyti
er þetta súlurit vel aðgengilegt og
þægilegt í notkun.
Myndir í bókinni eru allflestar
góðar eða vel nothæfar en nokkrar
afleitar. Er þar ekki eingöngu við
aðstandendur bókarinnar að sakast
því mjög erfitt getur reynst að safna
saman góðum myndum af svo
mörgum hestum og ótrúlega marg-
ir stóðhestseigendur eiga ekki til
almennilega mynd af „stolti sínu“
svo ótrúlegt sem það kann nú að
hljóma. En ekki er alveg hægt að
fyrirgefa höfundi slæmar myndii'
af 20 hestum því vitað er með vissu
að góðar eða í það minnsta betri
myndir eru til af þessum hestum.
í tveimur tilvikum eru ekki réttar
myndir með hestunum og mun í
öðru tilvikinu vera um hryssu að
ræða. Reikna má með að nokkrir
eigendur eða aðstandendur stóð-
hesta í bókinni verði ekki par hrifn-
ir af myndinni af djásninu sínu en
aðrir geta svo sjálfum sér um kennt.
Mikilvægt er að vel sé til vandað
þegar birtar eru myndir af kyn-
bótahestum og ekki hvað síst ef um
ættbók er að ræða. Þótt allir viður-
kenni að ekki sé sanngjarnt að
dæma hest eftir mynd þá er hinu
ekki að leyna að skoðanir manna á
hestum geta mótast ótrúlega mikið
af einni mynd. En áður en skilið
er við myndirnar er rétt að ítreka
að söfnun mynda í bók sem þessa
er erfitt starf 'eins og kemur fram
í formála höfundar en þar segir
hann að útvegun mynda hafi nán-
ast gengið kraftaverki næst.
í formálanum fer Jónas mikinn
og gagnrýnir hann þar Búnaðarfé-
lagið og starfsmenn þess miskunp-
arlaust, einnig lætur hann í ljósi
efasemdir um réttmæti kynbóta-
dóma fortíðarinnar og tölvukyn-
bótamat sem Þorvaldur Arnason
hefur hannað fyrir Búnaðarfélagið.
Vafalaust á gagnrýni Jönasar ein-
hvern rétt á sér en óneitanlega er
þarna fast að orði kveðið og læðist
að manni sá grunur að tilgangurinn
með því sé sá að fá mikla umræðu
um bókina og þá um leið ódýra og
góða auglýsingu. Og víst er um að
hafi það verið tilgangurinn hefur
þetta heppnast mjög vel. Segja má
að erindi það sem Jónas flutti á
ársþingi LH og sú umfjöllun sem
bókin fékk á þinginu hafi hleypt
öllu í loÆ upp og í framhaldi kom-
ist inn á ljósvakana og dagblöðin.
En hvað sem allri gagnrýni og
auglýsingum líður getur Jónas
glaðst með áhugamönnum um
hrossarækt yfir útkomu Heiðajarla
og með því einu að gefa bókina út
gefur hann Búnaðarfélaginu langt
nef.
CMC kerti Wrtr niðurhengd loft, er ur
galvaniseruðum maiml og eldþolið.
CMC kerti er auftvclt 1 uppsetningu
og mjög (terkt.
CMC korti er ,e*, meft stiHanlegum
upphengfum sem þola allt aó
50 kg þunga.
CMC korti 1 mörgum geróum baaói
sýnilegt og taliö og verðið er
Otruloga lágt.
CMC kertier serstakiega hannad Hringiö eftir
fyrir lottplötur tri ArmstronQ ,rekan upplysingum
1**.!*% Einkaumboð i Islmufi.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CQ
Ármúla 29 - Reykavík - sími 38640