Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
27
fangar sem haldnir eru geðsjúk-
dómum og að mati fangelsislækna
og geðlækna eiga heima á geðdeild-
um ríkissjúkrahúsanna. Þrátt fyrir
áratuga langa baráttu við að reyna
að koma framangreindum aðilum í
faðm heilbrigðisstéttarinnar hefur
enn ekkert gerst, heldur dúsa þeir
í tugthúsunum í umönnun ómennt-
aðra fangavarða í þessum fræðum.
Þetta er hvorki forsvaranlegt þeirra
vegna né vegna_ fanganna. Eg er
hræddur um að íslendingar myndu
ekki ganga hnarreistir frá umræðu
um þessi málefni á alþjóðavett-
vangi.
Heildarstefnu vantar
Þrátt fyrir að frumvarp til fjár-
laga ársins 1990 geri ráð fyrir um
260 milljón króna framlagi til alls
fangelsiskerfisins má halda því
fram að heildarstefnu í þessum
málaflokki skorti. Áætlun um brýn-
ar úrbætur og æskilega skipan
fangelsismála þarf að ljúka. Þá
þarf jafnframt að skoða aðrar leiðir
en fangelsisrefsingu einvörðungu.
Frændur okkar Danir hafa sjö
ára góða reynslu af nýrri refsileið.
Árið 1982 tóku þeir upp úrræðj sem
þeir kalla samfélagsþjónustu. í stað
fangelsisrefsingar vinnur brota-
maður launalaust ákveðinn tíma-
fjölda í þágu samfélagsins í frítíma
sínum, svo sem hjá góðgerðarfélög-
um og íþróttafélögum. Hugmyndin
er upphaflega frá Bretlandi, en
Danir riðu fyrstir af Norðurlöndun-
um á vaðið. Svíar eru að taka upp
þetta úrræði á fimm stöðum til
reynslu í þijú ár frá og með næstu
áramótum. Þá verða Island, Finn-
land, Grikkland, Spánn og Maíta
einu Evrópulöndin sem ekki hafa
tekið það upp. Fyrrverandi dóms-
málaráðherra, Jón Sigurðsson,
skipaði nefnd til að skoða þennan
kost og verður fróðlegt að sjá niður-
stöður þeirrar nefndar. Að minnsta
kosti er það sannfæring mín að
þetta sé skynsamlegur kostur sem
geti bæði sparað okkur fé og dreg-
ið úr mannlegum þjáningum.
Spurning er hins vegar um út-
færslur.
í þessu sambandi þykir mér einn-
ig rétt að nefna aðra leið, sem Svíar
kalla „kontraktsvárd" og þeir tóku
upp 1. janúar 1988. Þar er um að
ræða að í stað refsingar getur dóm-
ari gefið brotamanni kost á að fara
í áfengis- eða fíkniefnameðferð.
Velji hann seinni leiðina þá gera
þeir samning sín á milli um fram-
kvæmdina. Rjúfi aðili skilyrði
samningsins fer hann í afplánun.
Þetta fyrirkomulag hefur gefið
góða raun í Svíþjóð. Danir eru líka
með þennan möguleika í athugun.
Spurningin er: Ætla íslendingar að
reka lestina í þessum efnum?
Á íslandi er til fiskveiðistefna,
landbúnaðarstefna, utanríkisstefna
og stefnur í flestum öðrum mála-
flokkum sem stjórnmálaflokkarnir
á Alþingi hafa mótað. Eg get hins
vegar fullyrt að enginn flokkur á
Alþingi hefur ertefnu í fangelsismál-
um. Ef stjórnmálamenn hefðu talið
sig hafa atkvæðahag af því þá ef-
ast ég ekki um að við íslendingar
ættum í dag heildarstefnu í fangels-
ismálum þar sem meðal annars yrði
tekið á þeim atriðum sem hér hafa
verið reifuð.
Jólatilboð
Húsasrmðjunnar
Makita slípirokkur
kr. 12.950,-
Útvarp/kassettutæki
kr. 5.800,-
SKÚTUVOGI16 SÍMI 687700
í verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar
jólagjafir við allra hæfí og á jólamarkaði
á 2. hæð er mikið úrval skrauts og
gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst
einnig allur húsbúnaður og
hcimilistæki, öll áhöld og efni
sem þarf til að fegra og prýða
heimilið fyrir jólin.
Kryddhilla.
kr. 2.804,-
Piparkökuhús
kr. 717,-
Peugeot borvél
kr. 5.653,-
Expressó kaffivél
kr. 5.963,-
Höfundur er forstjóri
Fangelsismálastofnunar. Grein
þessi erað stofni til erindi sem
hann flutti í Rotary-klúbbi
Reykjavíkur 13. des. sl.
ÞÚ HJOLAR A
ALLAN VETURINN !
«... Reidhjólaverslunin r-
ORNINNl
Spítalastíg 8 við Óðingtorg simar 14661 26888