Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 33
MOKGirN’UMÐIÐ ÞRIÐJUDAGURU9. DESBMBER 1989
33
viss um að fleiri konur vildu gista
í faðmi þessa manns en komust þar
að.
Paul Nitsche hafði til að bera
fleiri eiginleika góðs söngstjóra en
nokkur annar maður sem ég hef
kynnst. Til viðbótar miklum per-
sónutöfrum og stjórnunarhæfileik-
um átti hann svo stórkostlega söng-
rödd að annað hvort var að syngja
vel í návist hans eða þegja ella. En
þá er ótalið það þýðingarmesta,
hann var fjölhæfur og frábær tón-
listarmaður.
Kórmenning Þýskalands
blómstraði í kringum Paul Nitsche
og tengdist beint Tónlistarháskól-
anum í Köln gegnum starf hans og
fleiri góðra manna, til dæmis Egons
Kraus sem gaf út nýja söngbók
handa framhaldsskólum með göml-
um og nýjum perlum kórtónlistar.
Þýsku útvarpsstöðvarnar í Múnch-
en, Köln og Hamborg lögðu mikla
áherslu á kórsöng. í Hamborg var
útvarpskórinn frægi sem Gottfried
Wolters stjórnaði. Eftir að ég stofn-
aði Pólýfónkórinn gerði ég mér ferð
til Hamborgar að hlýða á æfingar
og hljómleika þess ágæta kórs. „Ég
vil engar stórraddir í minn kór,“
sagði Wolters. „Af litlu röddunum
verður hljómurinn fegurstur, stóru
raddirnar hljóma aldrei alveg sam-
an.“
Söngurinn í þýskum kórum var
öðruvísi en í þeim ensku, tónninn
fyllri og sveigjanlegri, en sjaldan
jafn tær og ójarðneskur. Hvorki
þýski né enski stíllinn byggðu á
raddtæknþ ítalska „bel canto“
skólans. Ég lagði við hlustir og
reyndi að læra af öllu þessu. Með
sjálfum mér hugsaði ég að með því
að sameina þetta þrennt, kórmenn-
ingu Breta og Þjóðveija hinum létta
ítalska söngstíl, næðist hinn full-
komni samhljómur. En ég forðaðist
að nefna það við nokkurn mann,
það þætti sjálfsagt fjarstæða. Eftir
flutning Pólýfónkórsins á Messíasi
í Edinborg árið 1975 voru fyrir-
sagnir blaðanna: „Icelandic singers
get top marks“ og þekktasti gagn-
rýnandi Skotlands skrifaði í The
Scotsman: „Flutningur Pólýfón-
kórsins frá Reykjavík á Messíasi
var með yfirbragði meginlandsins.
Söngur þessa kórs einkennist af
skýrum, lifandi hljómi sem minnir
á Mið-Evrópu, hljóðfall hans er
skýrt mótað, kolúratorsöngur hans
vel aðgreindur og glitrandi og flutn-
ingurinn, framsetningin, kraftmikil
og hnitmiðuð. Veiki söngurinn var
líka fallegur og hljómur sópran-
raddanna sveif létt og fagurlega
sem ber vott um mikið vald og
ágæta tækni. Þetta ber að þakka
stjórnandanum, Ingólfi Guðbrands-
syni, sem hefur smíðað svo frábært
hljóðfæri úr kór sínum.“
Kór og kor, það á ekki saman
nema nafnið. Auðvitað fara gæði
þess hljóms, sem myndast af söng
margra saman, eftir röddum ein-
staklinganna í hópnum. Hlutverk
stjórnandans er ekki aðeins að
koma verkinu saman sem æft er
heldur að gera það besta mögulega
úr hverri einstakri söngrödd í hópn-
um svo að hún leggi sitt af mörkum
að magna upp þá fegurð hljómsins
sem hrærir hjörtun í tjáningu sem
er ofar öllum skiiningi.
Á leiðinni í litlu Volkswagen bjöll-
unni hans Pauls ræddum við fram
og aftur verkið sem verið var að
æfa, árangurinn sem náðist' eða
eftir var að ná. Eftir flutning á
Messíasi Hándels í Leverkusen, sem
hann stjórnaði, voru dómar gagn-
rýnenda afar mótsagnakenndir og
tók hann það nærri sér. í einni fyrir-
sögn stóð: „Hinn fullkomni Messías
undir stjórn Nitsches." í öðru blaði:
„Ósamstæður flutningur kórs og
hljómsveitar.“ Hveiju á fólk að
trúa? Það þorir jafnvel ekki að láta
eftir sér að hrifast ef ske kynni að
flutningurinn fyndi ekki náð fyrir
eyrum gagnrýnenda. Það væri
skammarlegt að láta eftir sér að
gráta af hrifningu ef...'.?
Ég lærði mikið af þessum manni.
Hann reyndist mér í alla staði sem
besti bróðir. Það er dýrmætt að
eignast svo óeigingjarna vináttu.
Hann var afar uppörvandi og hvetj-
andi fyrirmynd sem hafði mikil
áhrif á líf mitt þótt ég mótaði síðar
mín eigin vinnubrögð. Þennan vetur
opnuðust mér nýir fjársjóðir í tón-
Paul Nitsche með stúdentakór-
inn frá Bergisch Gladbach í
heimsókn hjá Ingólfi.
Ingólfúr og Nicholas, fararstjórar í fyrstu Spánarferð Útsýnar
1958.
listinni sem ég vissi ekki áður að
væru til.
Undir sól að sjá
Á slóðum Don Quixote
Upphaf kaflans „Undir Sól að
sjá“, þar sem greinir frá fyrstu
Spánarferð Útsýnar.
Við komum inn á Iberia-skagann
yfir strönd Kantabríu og það glittir
í hvítar fannir í hlíðum Pýrenea-
fjallanna á milli skýjahnoðra. Um
leið og komið er suður yfir fjöllin
blasir við landið bakað í sólar-
breiskju, sólsviðnar hæðir, upp-
þornaðir árfarvegir. Hið villta yfir-
borð landsins er veðurbitið og
skorpið eins og andlit gamla fólks-
ins. Úr lofti að sjá skiptist ræktaða
landið í reglulegar skákir með ge-
ometrískri nækvæmni eins og í
nútímamálverki eftir Mondrian, lit-
irnir tilbrigði um brúnt, grænt og
gult. Þetta er fallegt myndvérk séð
úr lofti og hiti í litunum. Vélin lækk-
ar flugið og lendir á Las Barajas-
vellinum við Madrid að áliðnum
degi. Það er spenna í loftinu, hið
áður óþekkta, fjarlæga í nánd. Svit-
inn drýpur af brám víkinganna úr
norðri og fölum vöngum. Á leið frá
flugvelli erum við þegar komin á
slóðir Lorca, Bunuels, Dali og Alb-
erti sem allir höfðu búið á stúdenta-
heimli við Calle de Pinar.
berrökkrið að síga yfir þegar fyrsti
íslendingahópurinn gengur til her-
bergja sinna á Hotel Emperatriz í
Madrid. Veggir og gólf eru klædd
marmara, framandi viðhafnarblær
yfir móttöku. I hópnum eru 54 far-
þegar, auk mín og spænska sendi-
kennarans Antonios Romeros, sem
átti að vera mín stoð og stytta, al-
fróður um Spán og spænska menn-
ingu og dável mæltur á íslenska
tungu.
Eins og kvöldverðurinn rann ljúft
niður með spænskum eðalvínum,
svo rann og ferðaþreytan af fólki.
Vildu menn þá ólmir sjá senjórítur
og spænska dansa. Romero hinn
spænski vissi um Flamenco-stað í
hliðargötu frá Alcala og þustum við
þangað. Dansfólkið er spengilegt,
hnarreist og stolt með þóttafullu
fasi líkt og eldur brenni í æðum
þess. Dansinn dunar og smellur
ekki aðeins á fjölum gólfsins, hljóð-
fallið er í blóðinu, púls þess lífs sem
lifað er:
Dunar blóð
ört, ótt,
eldsins glóð
funar fljótt.
Dansins spor,
djarft, létt,
þótti og þor
þreyta sprett.
Loga glatt
bál björt
og brenna hratt.
Rauður er dauðinn
en sorgin svört.
Ástin og dauðinn er inntak þeira
söngva sem kveðnir eru og tjáðir í
dansi og söng á þessu fyrsta Spán-
arkvöldi Útsýnar. Romero farar-
stjóri gerist drukkinn og djarfur í
orðum með frammíköllum til söngv-
ara og dansara. Reynt er árangurs-
laust að þagga niður í honum og
að lokum er hann fjarlægður í fylgd
lögreglu. í kynnisferð um borgina
daginn eftir er lágt á honum risið
og hann biðst leyfis að leita lækn-
is. Síðan sást ekkert til hans meir
fyrr en við heimför frá Barcelona
tæpum mánuði síðar. Tilkynnt var
um hvarf hans á aðalstöðvum lög-
landskunnra manna. Sumir þeirra
fylgdu mér oft síðar um nýjar ferða-
slóðir. Þannig mynduðust vináttu-
tengsl sem varað hafa alla ævi. Það
traust sem gott fólk batt við starf
mitt og fyrirtæki varð hornsteinn
vaxandi viðskipta. Spánn var innan
sjónhrings, önnur lönd koma síðar
við sögu.
íslendingar standa orðlausir af
hrifningu frammi fyrir snilld
spænskra málara í Prado-safninu í
Madrid. Þar kennir margra grasa,
en hjá spönskum meisturum sést
önnur tjáning og djarfieg notkun
lita. Listsafnarar á Islandi virða
fyrir sér verk Zurbaráns, Velázqu-
es, Murillos og Goya. Það var gam-
an að vera með Jóni Þorsteinssyni
íþróttakennara og Kristjáni í Kidda-
búð á ferð og finna hve næmt skyn
þeir báru á myndlist, enda miklir
vinir Kjarvals. Én svo var um marga
aðra. Jafnvel fólk sem hvorki fór á
málverkasýningar né söfn slóst í
hópinn og fylgdi hinum. Þannig
kviknaði áhuginn og þetta fólk varð
að listneytendum. En safnskoðun
þarf þarf að taka í áföngum því
að hugurinn méttast og einbeiting
og hrifning eru þreytandi til lengd-
ar auk þess sem fólk stendur venju-
iega mest allan tímann á söfnum.
Á kvöldin matast fólk og masar
saman í matsal Hotel Emperatriz.
Romero er týndur og tröllum gefinn
og veldur það nokkrum áhyggjum.
Spænskir leiðsögumenn, ensku-
mælandi, leysa hann af hólmi í
Madrid og í dagsferðum til Toledo
og E1 Escorial að sjá grafir k'onung-
anna og eitt mesta klaustur heims-
ins þar sem einnig voru skrifuð
handrit sem landanum þóttu falleg
og merkileg og fann þá til stolts
yfir íslenskum handritum, en þau
eru einu fornu gersemar íslendinga.
Þarna er líka eitt merkasta bóka-
og handritasafn veraldar auk allra
iistaverkanna í steini, vefnaði og á
striga. Þó er fátt eitt talið af undr-
um EL Escorial sem var allt í senn:
konungshöll og hvídarreitur geng-
inna konunga, kirkja, skóli, klaust-
ur, vísindastofnun og safn. Norður-
álfubúar, sem geta í hvorugan fót-
inn stigið fyrir þjóðarrembingi,
þyrftu að koma til E1 Escorial í einn
dag að læra lítillæti af stórþjóð sem
bæði varðveitir menningu sína ög
stolt, en menningin er eina forsenda
þjóðarstoltsins. An hennar er ekk-
ert sem einkennir þjóð á mannþingi
heimsins, aðeins hversu ágæt hún
er af verkum sínum, sjálfstæðri
hugsun og listrænni tjáningu.
Kvöldin í Madrid era mátulega
svöl til að rölta um göturnar kring-
um Kólumbusar-torg undir skörð-
um mána á heiðum næturhimni.
Spönsk nótt á sitt eigið hljóðfall sem
síast inn með andrúmsloftinu og
sest að í hugskotinu. Flamenco-
tónlist hljómaði víða út úr húsum
hveil og eggjandi. Franco var búinn
að láta loka gleðihúsunum en í stór-
um viðhafnarsal á „Casablanca"
sitja nærri eitt hundrað einmana
konur við borð með síma og bíða
þess að einhver gestanna taki upp
tól og hringi í númerið þeirra. Is-
lendingum finnst goð skemmtun
að koma á bari þessa „hvíta húss“
og virða fyrir sér kvenlega fegurð
með suðrænu yfirbragði: Mikið er
skopast og hlegið, en fararstjórinn
kippir í spottann áður en of langt
gengur.
Þetta var árið 1958 og septem—v reglunnar við Puerta del Sol og
•wnLlí-mA oA oírro írfn’ ncwrov í 'onrrlvof nffív nrinnm i nfirovm nrr
auglýst eftir honum í útvarpi og
sjónvarpi en allt kom fyrir ekki.
Romero fannst hvergi. Það var eins
og jörðin hefði gleypt hann.
Hópurinn var það stór að skipta
varð honum í tvo vagna. Ég man
þegar við stóðum á torginu Puerta
del Sol — Sólarhliðinu — í miðri
Madrid, en þaðan stefna tíu stræti
eins og geislar í allar áttir. Allar
vegalengdir á Spáni eru taldar frá
þessum punkti sem merktur er
tölunni núll. Það má til sanns vegar
færa að Spánarferðir íslendinga
hæfust á núlli í þessari ferð. en nú
lætur nærri að tíundi hver íslend-
ingur heimsæki Spán á hveiju ári
og fjölmargir fara árlega eftir að
hafa kynnst dásemdum þessa bjarta
og fagra lands.
Mannval var mikið í þessari
fyrstu Spánarferð minni og margt
VISA
NR. 102
Dags. 18.12.1989
VÁKORT
Númer eftirlýstra korta
4548 9000 0028 0984
4507 4500 0006 7063
4548 9000 0019 5166
4507 4200 0002 9009
4548 9000 0027 8186
4548 9000 0024 6738
4507 4500 0009 3267
4507 4400 0001 7234
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ÍSLAND