Morgunblaðið - 19.12.1989, Page 43
íSíléSÍÖfctóSÖf jíWÚESMÖÉR-1989
48
Athugasemd frá Lands-
sambandi smábátaeigenda
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Landssambandi smábátaeigenda:
í Morgunblaðinu þann 5. júlí
1989 er birt frétt ásamt mynd.
Fréttin ber nafnið: „Fundu ólögleg
laxanet við Laxárósa. Grunur um
stórfelldan veiðiþjófnað." í um-
ræddri frétt segir Orri Vigfússon
formaður Laxárfélagsins m.a.:
„Við höfum séð skrítið línukefli
um borð í mótorbát á Kópaskeri
og það er trú okkar að ekki sé
hægt að veiða annan fisk á þau
veiðarfæri heldur en lax. Sigurður
(Sigurður Árnason hjá Isnó í Keldu-
hverfi, sbr. upplýsingar í nefndri
frétt. Innskot L.S.) smellt.i myndum
af línunni, en þá kom bátseigandinn
aðvífandi og brást ókvæða við.“
Með hér ofangreindri frétt er svo
birt mynd af því línukefli, sem Orri
Vigfússon nefnir í umsögn sinni.
Fundur í stjórn Landssambands
smábátaeigenda haldinn í
Reykjavík 2. des. 1989 ályktar
vegna ofangreindrar fréttar.
1. Nefnd línurúlla (sbr. mynd) er
algengt veiðitæki, sem nýtist
eingöngu við veiðar á þorski og
ýsu með svokallaðri heilgirn-
islínu, stundum nefnd Lófótlína.
Aðilar sem stunda veiðivörslu
ættu að þekkja öll venjuleg veið-
arfæri, sem notuð eru til fisk-
veiða í landhelgi íslands, svo
ekki komi til mistúlkunar á nota-
gildi þeirra.
2. Að framansögðu má ljóst vera
að umrætt línukefli er ekki notað
til ólöglegra laxveiða. Þar sem
eftirlitsmennirnir, 'þeir Orri og
Sigurður, hafa ekk’i gert hér
áður greint línukefli upptækt og
kært meinta ólöglega notkun
þess, þá lítur stjórn L.S. svo á
að þeir ættu að biðja eiganda
báts og línukeflis opinberlega
afsökunar á vafasömum frétta-
flutningi.
3. Stjórn L.S. lítur svo á að góð
samskipti milli laxveiðiréttar-
hafa og annarrra veiðimanna,
þar með talið smábátaeigenda,
sé grundvöllur þess að viðkom-
andi hafi nauðsynlegan skilning
á rétti hvor annars og geti verið
sæmilega sáttir.
Umrædd grein í Morgunblað-
inu þann 5. júlí sl. er ekki til
þess fallin að stuðla að góðum
samskiptum milli aðila.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
18. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 76,00 64,00 70,01 34,285 2.400.240
Þorskur(óst) 75,00 75,00 75,00 2,328 174.563
Ýsa 137,00 104,00 118,24 21,293 2.517.675
Karfi 38,50 20,00 37,76 7,736 292.141
Ufsi 41,00 40,00 40,49 13,718 555.524
Samtals 72,04 94,212 6.787.229
í dag verður meðal annars selt óákveðið magn af karfa og fleiri tegundum
úr Víði HF og óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 97,00 52,00 76,48 43,322 3.313.397
Ýsa 97,00 60,00 79,58 5,155 410.249
Karfi 37,00 23,00 31,02 23,592 755.495
Ufsi Samtals 47,00 40,00 41,72 50,26 94,781 170,237 3.954.244 8.555.648
Selt var úr Viðey RE og Ásgeiri RE. I dag verða meðal annars seld 30 tonn
af þorski, 30 tonn af ýsu og 45 tonn af ufsa úr Ásbirni RE, Þorláki ÁR og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Björgúlfi EA,
Þorskur 105,00 60,00 73,89 45,063 3.329.580
Ýsa 130,00 39,00 99,42 11,972 1.190.254
Karfi 40,00 34,00 36,40 0,939 34.182
Ufsi Samtals 35,00 34,00 34,98 70,63 3,404 73,742 119.065 5.212.187
i dag verða meðal annars seld 15 tonn af þorski og 3 tonn af ýsu úr Þór
Péturssyni ÞH og Eimi GK, svo og 15 tonn af þorski og 10 tonn af ýsu úr
línu- og netabátum.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 11. til 15. desember.
Þorskur 124,67 221,960 27.672.067
Ýsa 135,17 15,355 2.075.543
Ufsi 79,59 1,945 154.794
Karfi 57,31 0,368 36.394
Grálúða 101,06 36,410 3.679.437
Samtals 121,68 277,245 33.736.302
Selt var úr Hjörleifi RE í Grimsby 13. desember, Sólbergi ÓF í Grimsby
14. desember og Þórhalli Daníelssyni SF í Hull 15. desember.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 11. til 15. desember.
Þorskur 112,63 413,455 46.567.401
Ýsa 124,93 300,965 37.599.015
Ufsi 67,06 13,514 906.262
Karfi 56,97 18,993 1.082.042
Koli 128,70 59,980 7.719.335
Samtals 115,40 883,413 101.946.686
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 11. til 1! 5. desember.
Þorskur 99,11 9,598 951.243
Ýsa 155,47 6,284 976.972
Ufsi 86,48 417,216 37.719.999
Karfi 90,41 417,216 37.719.999
Grálúða 108,72 0,409 44.465
Samtals 89,66 677,337 60.731.989
Selt var úr Breka VE 12. desember, Drangey SK 13. desember og Má SH
15. desember. Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven.
Nokkrir af leikurum myndarinnar. Frá vinstri eru Guðmundur Elías
Stefánsson, Elsa Nielsen, Guðrún Edda Þórhannesdóttir, Karl 01-
geirsson og Heiðrún Anna Björnsdóttir.
„Leikur að eldi“:
Stuttmynd eftir
verðlaunahandriti
NEFND um átak í áfengisvörn-
um, skipuð af heilbrigðisráð-
herra, efndi sl. vor til handrita-
og slagorðasamkeppni í grunn-
og framhaldsskólum. Hvort-
tveggja átti að lýsa ávinningi
þess að neyta ekki vímuefna.
Nefhdinni bárust um 150 tillög-
ur. Slagorð Hólmfríðar Ýrar
Gunnlaugsdóttur, nemenda í
Lækjarskóla í Hafttarfirði, „Þú
vinnur lífsins glímu án vímu“
fékk fyrstu verðlaun í slagorða-
^keppninni óg nú hefúr verið gerð
leikin stuttmynd, „Leikur að
eldi“, eftir verðlaunahándriti
Gerðar Gestsdóttur, nemanda í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
„Leikur að eldi“ er rúmlega fjög-
urra mínútna löng, gerð af Kvik-
myndafélaginu Nýja bíói hf. Hilmar
Oddsson er leikstjóri myndarinnar
og samdi hann einnig tónlist. Leik-
arar eru Guðrún Edda Þðrhannes-
dóttir, Karl Olgeirsson, Heiðrún
Anna Björnsdóttir, Elsa Nielsen,
Guðmundur Elías Stefánsson,
Halldóra Anna Hagalín, Gunnar
Ómarsson, Brynhildur Guðmunds-
dóttir og Jökull Sigurðsson. Sjóvá-
Almennar, Þjóðkirkjan, Slysavarna-
félag íslands, Vímulaus æska,
Rauði kross Isiands, Átak gegn
áfengi og Lions-hreyfingin styrktu
gerð myndarinnar.
Að sögn Aldísar Ingvadóttur,
námsstjóra í fíknivörnum og full-
trúa menntamálaráðuneytis í
nefndinni, er myndinni ætlað að
höfða almennt til unglinga, að þeir
hugsi sig um og velji í eigin þágu
og að myndin sé laus við hræðsluá-
róður.
Ætlunin er að myndin verði sýnd
í sjónvarpi á milli dagskrárliða, í
athugun er að sýna hana í kvik-
myndahúsum fyrir kvikmyndasýn-
ingar og jafnvel að semja við dreif-
ingaaðila myndbanda um að setja
hana á myndbönd.
Komst upp
um bruggara
þegar vatns-
rör brast
LÖGREGLAN í Reykjavík lagði
hald á hátt í annað'hundrað lítra
af heimabruggi í fjölbýlishúsi í
vesturbænum á sunnudag. Upp
komst um bruggið þegar heitt
vatn tók að leka milli hæða í hús-
inu.
Hringt var á lögreglu sem knúði
dyra á íbúðinni þaðan sem vatnið
hafði lekið og vakti þar upp íbúana.
Þegar inn kom blöstu við lögreglunni
bruggkútar og -tæki. Leiðsla sem
notuð hafði verið við bruggunina
hafði gefið sig og vatn lekið um öll
gólf og smogið niður á næstu hæð.
I íbúðinni voru 25 þriggja pela flösk-
ur af neysluhæfu bruggi auk þess
sem lagt hafði verið í á annað hundr-
að lítra til viðbótar.
Fjórir menn voru handteknir á
staðnum og færðir til yfirheyrslu.
Bruninn á
Skagaströnd:
Kviknaði í út
frá djúpsteik-
ingarfeiti
Talið er víst að upptök eldsins, sem
varð manni að bana á Skagaströnd
á fimmtudag í síðustu viku, megi
rekja til þess að djúpsteikingarfeiti
hafi gleymst í venjulegum potti á
heitri eldavél. Að sögn rannsóknar-
lögreglu fylgir mikil eldhætta því að
djúpsteikja með þessum hætti og
kviknar í feitinni á skömmum tíma
gleymist hún á heitri hellu.
Ánægðir krakkar á leikskólanum á Hellu.
Hella:
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Nýr leikskóli tekinn í notkun
Selfossi.
NÝLEGA var tekinn í notkun nýr leikskóli á
Hellu. Hann leysir af hólmi eldra húsnæði og
hýsir nú 36 börn í tveimur deildum og annar
vel eftirspurn.
Leikskólinn er byggður af Rangárvallahreppi með
stuðningi ríkissjóðs sem greiðir helming kostnaðar
ásamt búnaði.
Foreldrafélag leikskólans hefur tekið virkan þátt
í uppbyggingu hans. Það hefur keypt meginhluta
þeirra leikfanga sem notuð hafa verið í leikskólanum
til þessa.
Sig. Jóns.
NÝJAR ENSKAR BÆKUR FYRIR FAGURKERA
BÓKABÚÐ STEINARS
Bergstaðastræti 7, s. 12030
' • Opið 9 -18 í desember