Morgunblaðið - 19.12.1989, Page 46
4é
M.0RGUKBtáA!BIBi ÞWIÖffHJIDAtgllHR !t&. QE8BMBERL1989'
Álver í Eyjafirði:
Sveitarfélögin tilbúin að
kosta hafiiarmannvirki
Oska efir samanburði á áhrifum á byggða-
þróun rísi álver í Eyjafirði eða Straumsvík
SVEITARFÉLÖGIN við Eyjafjörð eru tilbúin til að kosta byggingu
hafnarmannvirkja og bera ábyrgð á rekstri liafnar verði álver byggt
við Eyjafjörð. Samkvæmt lauslegum áætlunum er gert ráð íyrir að
kostnaður vegna byggingar hafnarmannvirkja sé um 420 milljónir
króna. Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri gekk á fund Jóns Sigurðs-
sonar iðnaðarráðherra í gær og færði honum þessi skilaboð frá for-
svarsmönnum eyfirsku sveitarfélaganna. í bréfi sem iðnaðarráðherra
fékk í gær var óskað eftir því að gerður yrði samanburður á kostnaði
við byggingu og rekstur álvers í Eyjafirði og í Straumsvík og einnig
að Byggðastofnun verði falið að gera samanburð á áhrifúm þess að
álver risi annars vegar í Eyjafirði og hins vegar í Straumsvík.
Héraðsnefnd Eyjafjarðar, bæjar-
stjórar Akureyrar, Dalvíkur og
Olafsfjarðar ásamt fulltrúum frá Iðn-
þróunarfélagi Eyjafjarðar héldu með
sér fund á föstudag þar sem þessi
mál voru rædd og um helgina var
gengið frá bréfi, sem afhent var iðn-
aðarráðherra í gær. í bréfinu kemur
fram að fulltrúar sveitarfélaganna
við Eyjafjörð telja að forsendur um
aukinn kostnað svo sem eins og
vegna aðfengins vinnuafls í Eyjafirði
eigi ekki við rök að styðjast og því
beri að endurskoða mat á þessum
þætti, en í skýrslu staðarvalsnefndar
vnr n ísímim tímn bent n nð við-
bótarstofnkostnaður gæti verið alln-
okkur í Eyjafirði vegna aðfengins
vinnuafls. Þessir útreikningar eru frá
árinu 1982 og miðuðust við að í
Eyjafirði væri þá ekki til staðar neitt
afgangs vinnuafl. Fulltrúar sveitar-
félaganna telja að þessir útreikning-
ar eigi ekki við rök að styðjast nú
og fara fram á að þeir verði endur-
skoðaðir.
„Þá vilja fulltrúar sveitarfélag-
anna við Eyjafjörð lýsa því yfir að
verði álver byggt við Eyjafjörð eru
sveitarfélögin reiðubúin að kosta
byggingu hafnarmannvirkja og bera
ábyrgð á rekstri hafnarinnar. Er þá
miðað við þá hafnargerð sem gert
er ráð fyrir í skýrslu staðarvalsnefnd-
ar,“ segir í bréfinu til iðnaðarráð-
herra. Lauslega áætlað er gert ráð
fyrir að kostnaður vegna byggingar
hafnarmannvirkja sé um 420 milljón-
ir króna.
Þá er einnig í bréfinu ítrekaður
áhugi þessara aðila á því að orku-
frekur iðnaður verði byggður upp í
Eyjafirði og á það bent að bygging
og starfræksla álvers í Eyjafirði sé
stærsta tækifærið sem ríkisstjórn
Islands hafi fengið um langt skeið
til að efla atvinnulíf utan höfuð-
borgarsvæðisins og þar með að fram-
kvæma skynsamlega byggðastefnu.
„Við óskum eftir því að endurskoð-
aður verði samanburður á kostnaði
við byggingu og rekstur álvers í
Eyjafirði og Straumsvík að hafnar-
gerð frátalinni. Einnig óskum við
eftir því að leitað verði til Byggða-
stofnunar um samanburð á þeim
áhrifum sem bygging álvers annars
vegar í Eyjafirði og hins vegar í
Straumsvík hefði á byggðaþróun í
landinu,“ segir í bréfi fulltrúa sveit-
arfélaganna við Eyjafjörð til iðnaðar-
ráðherra.
NYJAR BÆKUR
ALLT STAKAR SOGUR asutgáfan FAANLEGAR 41PAKKA A KR. 1.750,-
STORAR JOLABÆKUR
AUKAÚTGAFA
í GÓÐU BANDI
ATH!
VERÐA EKKI
GEFNAR ÚT
VASABROTI!
AÐEINS
KR. 1.850,
- -toooR
vvafCÍ . ■
Q*
ásútgáfan
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sigurður Ingólfsson og Rut systir hans fyrir miðri mynd. Til vinstri
á myndinni eru afi hans og amma, Sigurður Guðmundsson vígslubisk-
up á Hólum í Hjaltadal og Aðalbjörg Halldórsdóttir. Til hægri eru
foreldrar hans, Steinunn S. Sigurðardóttir og Ingólfúr S. Ingólfsson.
Smásagnasamkeppni MENOR og Dags:
Sigurður Ingólfsson
hlaut fyrstu verðlaun
SIGURÐUR Ingólfsson nemi í bókmenntafræðum við Háskóla íslands
bar sigur úr býtum í smásagnasamkeppni Menningarsamtaka Norð;
lendinga og dagblaðsins Dags. Smásaga Sigurður nefnist Sanctus. í
öðru sæti var sagan Takmark einmana drengs eftir Svavar Þór
Magnússon nema í Menntaskólanum á Akureyri.
Verðlaun voru aflient við athöfn
í Gamla Lundi við Eiðsvöll. Alls
bárust um eitt hundrað sögur í sam-
keppnina og sagði Haukur Ágústs-
son formaður MENOR að þátttakan
hefði farið fram úr björtustu vonum
manna. í dómnefnd voru Sverrir
Páll Erlendsson menntaskólakenn-
ari, Bragi V. Bergmann ritstjóri
Dags og Hjalti Pálsson safnvörður
á Sauðárkróki. Sverrir Páll sagði
það mikið gleðiefni hversu margar
sögur hefðu verið vel skrifaðar og
einnig það hve margir ungir rithöf-
undar hefðu sent inn sögur. Sagði
hann ástæðu til að óska ungum
íslendingum til hamingju með dag-
inn.
Sigurður Ingólfsson hefur áður
hlotið fyrstu verðlaun fyrir framlag
sitt til skáldskaparins, en það var
í Ijóðasamkeppni Menningarsam-
taka Norðurlands og Ríkisútvarps-
ins á Akureyri.
Fjorðungssamband Norðlendinga:
Lög um verkaskiptingu
taki gildi um áramót
Á FUNDI á vegum Fjórðungssambands Norðlendinga sem haldinn
var á föstudag var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er ábyrgðar-
lausum málflutningi og tillögugerð um að ganga á samkomulag á
milli ríkisins og sveitarfélaganna
um breytta verkaskiptingu þeirra
Fundinn sóttu 29 fulltrúar f'rá
15 sveitarféiögum á Norðurlandi,
en á fundinum var rætt um sam-
ræmingu álagningar sveitarfélaga
og áhrif virðisaukaskatts á fjárhag
sveitarfélaga.
„Fundur haldinn af fjórðungs-
stjórn með forsvarsmönnum þétt-
býlissveitarfélaga á Norðurlandi
haldinn á Akureyri 15. desember
1989 mótmælir ábyrgðarlausum
málflutningi og tillögugerð um að
ganga á samkomulag á milli ríkisins
og sveitarfélaganna um tekjustofna
sveitarfélaga og um breytta verka-
skiptingu þeirra á milli,“ segir í
ályktuninni.
Síðan segir ennfremur að fundur-
inn krefjist þess að lög um þetta
efni taki gildi um áramót eins og
ákvæði þeirra segja til um. „Minnt
er á að lög þessi voru sett á grund-
velli víðtækrar samstöðu sveitar-
stjórna og með samkömulagi við
ríkisvaldið. Það er því siðlaust að
rifta þessu samkomulagi einhliða
af ríkisvaldinu í krafti fjárveitingar-
valdsins á Alþingi."
Þá skorar fundurinn á stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga
að ganga ekki til nokkurs sam-
komulags um að fresta gildistöku
laga um tekjustofna og um breytta
verkaskiptingu bæði að því er varð-
ar lögin í heild sinni eða einstaka
um tekjustofna sveitarfélaga og
á milli.
þætti framkvæmdarinnar. „Fund-
urinn skorar á alþingismenn að
koma í veg fyrir að þetta gerræði
fái náð fyrir augum Alþingis og að
ríkisvaldið standi við gefin fyrirheit
í þessum efnum,“ segir í lok álykt-
unarinnar.
Fræðslu- og jafti-
réttisfulltrúi:
Ein um-
sókn komin
EIN umsókn hafði borist um starf
fræðslu- og jafnréttisfulltrúa
Akureyrarbæjar þegar umsókn-
arfrestur rann út síðastliðinn
föstudag.
Auk þeirrar umsóknar sem þegar
var komin, sagði Karl Jörundsson
starfsmannastjóri Akureyrarbæjar
að von væri á fleiri í pósti. Hann
sagði að reynt yrði að ganga sem
fyrst frá ráðningu í stöðuna, þar
sem það hefði þegar dregist of
lengi. Bæjarstjórn samþykkti jafn-
réttisáætlun í júní síðastliðnum og
var þá auglýst eftir jafnréttisfull-
trúa, en enginn sótti um stöðuna.