Morgunblaðið - 19.12.1989, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19' DKSIJMBER 1989 ‘
ÁRAMÓTABOLLA
u.þ.b. 3 I.
1 I appelsínusafi
Vi I eplasafi
V2 I blandaður safi
3 flöskur sítrónugosdrykkur
2 flöskur tonik
ið notum ýmis tákn til að vekja viðeigandi stemmingu og
tilfinningar. Við skreytum jólatré um jólin, skjótum flug-
eldum um áramót, kveikjum kertaljós til að undirstrika
notalegheit og rómantík. Stundum er tilgangurinn með
táknunum sá að undirstrika áfanga í lífinu eða einfaldlega
að gera sér dagamun. Til þessa er algengt að nota áfengi
með öðrum táknum.
Sá sem vanist hefur hinu táknræna hlutverki áfengisins
getur átt erfitt með að gera sér í hugarlund að hægt sé að
vera án þess og nota önnur tákn með sama árangri í
staðinn. Tákn sem uppfylla allar kröfur um hátíðleika, til-
breytingu og fjölbreytni en hafa þann kost til viðbótar að
hafa engar neikvæðar aukaverkanir.
Jól og áramót eru tilvalin tækifæri til að brydda upp á
óvæntum nýjungum til ánægjuauka. Hvernig væri að prófa
uppskriftina sem hér fylgir.
TÁKN UM TILBREYTINGU
Átak gegn áfengi
Vímulaus æska
Áfengisvarnaráð
skvettur af grenadin
ís
þunnar sítrónu og gúrkusneiðar
Er Guð ímynd-
un og ekki til,
eðaerhann
raunveruleiki?
eftii' Dagrúnu
Kristjánsdóttur
Mér er ljóst að það stingur
nokkuð í stúf, nú á dögum efnis-
hyggju og eftirsóknar eftir vindi,
að fara að tala um Guð. Margir
munu spyija: Hver er þessi Guð
og hvað kemur hann okkur við?
Hann hefur aldrei geit neitt fyrir
mig. Ennfremur munu margir ef-
ast um tilveru hans er þeir líta í
kringum sig og horfa á lífsbarátt-
una sem alls staðar virðist hörð
og óvægin og fáum hlíft, nema
stöku undantekningum. Alls stað-
ar blasa við erfiðleikar, sorgir og
þjáningar. Jafnvei móðir jörð er
orðin örmagna. Auðlindir hennar
nær þurrausnar, sjórinn að verða
lífvana vegna mengunar, loftið
eitrað sem ætlað er að gefa líf,
en ekki eyða. Stríð geisa, morð
eru framin af mikilli grimmd, of-
beldi, reiði og hatur ráða gjörðum
mannanna. Græðgi eftir auð og
völdum ráða ferð margra í gegn
um lífið, þó traðkað sé á veikum
og snauðum og engu skeytt um
tilfinningar náungans, rétt eða
rangt.
Haldið er áfram að framleiða
morðtól, enda mesti gróðavegur,
því heift mannanna hvers í annars
garð tekur aldrei enda. Einnig er
unnið af kappi við að framleiða
eiturefni sem eyðileggja allt líf,
ef ekki á augabragði fyrir slysni,
þá smám saman og er ekki langt
í það að mennirnir séu að leiða
hægfara dauða yfir allt mannkyn,
vegna eigingirni sinnar og græðgi
eftir meiri og stórstígari fram-
förum, meiri yfirburðum móts við
aðrar þjóðir, til að geta óhindrað
drottnað yfir heimsbyggðinni.
Heimska og miskunnarleysi mann-
anna hvers gegn öðrum og kom-
andi kynslóðum — ef þær komast
á legg — er í sannleika yfirþyrm-
andi. Mikil heimska er það að
framleiða eiturefni í stónim stíl
sem vitað er að ekki er hægt að
eyða, en drepa þess í stað líf, í sjó
og á iandi. Miskunnarleysi er það
að mergsjúga svo auðlindir jarðar
að eftirkomandi kynslóðir fái
einskis notið af þeim gnægtum
sem Guð ætlaði mönnunum til
milljóna ára með hóflegri og skyn-
samlegri notkun, í stað þess að
bruðla svo gegndarlaust með þess-
ar gjafir og þær eru um það bil
uppurnar, og til viðbótar þessari
eyðileggingu er stofnað til gífur-
legra skulda sem næstu kynslóð
er ætlað að greiða.
Það er ekki óeðlilegt, þegar
þessar staðreyndir eru skoðaðar,
þó að einhver efist um tilvist Guðs,
sem er sagður kærleikur og ekk-
ert nema kærleikur.
Drottinn gaf mönnunum fijáls-
an vilja og þess vegna eru öll
óhæfuverk verk mannanna en ekki
Guðs. Ef aðeins mennirnir léðu
TIL SÖLU
Þessi Coles 40/45 t. bílkrani árg. ’76 er til
sölu. Kraninn þarfnast viðgerðar. Tilvalin
kaup fyrir aðila, sem hafa aðstöðu til við-
gerða. Gott staðgreiðsluverð eða skuldabréf
til lengri tíma.
Upplýsingar á skrifstofu S.H. verktaka,
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
rnin
Disneybæknr fyrir yngstn börnin
Fjórar stórar og litríkar harðspjaldabækur frá
Walt Disney. Þær þroska ímyndunarafl
barnanna og skemmta þeim um leið.
SlÐUMÚLA 29
SÍMI6-88-300
\29
LJ