Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 68
DESEMBEIÍ 1989
C
MORATEMP .
V^MORA/
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæáur.
Fást í byggingavöruverslunum.
^ meiri ánægja^
Mn&ifr
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁDHÚSTORGI
Dr. Kildare og kollegar hans
eftir Þorstein J.
Vilhjálmsson
London. Sunnudagskvöld í júlí. Það
er heitt. Neðanjarðar er hitinn óþol-
andi. Gamli maðurinn í lestinni
þurrkar af sér svitann. Hann Tiorfir
með hluttekningu á svartklæddan
pilts sem svitnar enn meira. „Að
hugsa sér, í svörtu um hásumar,“
má lesa úr svip hans. Svartstakk-
arnir í lestinni eru fleiri. Þeir
streyma út á brautarstöðinni við
Wembley. „Tickets for the concert,
tickets?“ spyija óeinkennisklæddir
sölumenn. Á Wembley Arena er að
hefjast árshátíð svartstakkanna.
Þeir svitna saman í anddyrinu; súpa
á bjór í plastflöskum og rauður
varalitur situr eftir á flöskustútn-
um. Þeir eru að bíða miðstjórnarinn-
ar. Þeir eru að bíða fyrirmæla.
Þeir eru að bíða þess að stjórnin
byrli þeim lyf við lífsleiða. Lyfið er
tónlistin. Læknirinn The Cure.
Leiðtogi svartstakkanna er
söngvarinn með svárta hárið; yfir-
læknirinn sem klæðist sjálfur svörtu
og notar augnskugga og varaiit
dags daglega. Honum leiðist Jim
Kerr. Hann geiti um/ daginn að
Donnu Summer. Maðurinn er Bryan
Robson poppsins — Robert Smith,
fyrirliði og yf irlæknir í helstu hljóm-
sveit gamla heimsveldisins. Hann
er allt í öllu í leik sinna manna.
Reyndar hét hljómsveitin upphaf-
lega Easycure og var stofnsett í
Sussex um það leyti sem flóðalda
nýbylgjunnar skall yfir heims-
byggðina. Síðan var nafninu breytt
í Cure. Sagan segir að Robert Smith
hafi ætlað að hætta í hljómsveitinni
allt frá því Three imaginary boys-
platan kom út fyrir tíu árum. Stund-
um finnst mér að hann hefði átt
að láta verða af því. Stundum ekki.
Cure hafa oft hitt á hinn rétta tón;
tökum sem dæmi Boys don’t cry,
Lullaby, Love cats, In between da-
ys, Just like heaven, Charlotte so-
metimes og fleiri slíka söngva. Þeir
hafa enda sent frá sér einar tólf
breiðskífur ef allt er talið. Þetta er
um leið Akkillesarhæll hljómsveit-
arinnar. Robert Smith og kollegar
eru löngu hættir að koma á óvart.
Nýjasta breiðskífa Cure er jafn
áhugaverð og fundir í sameinuðu
Alþingi. Chris Roberts sagði í plötu-
dómi í Melody Maker í vor; „Disinte-
gration er ákveðin iífsreynsla, eins
og til dæmis að missa handlegg eða
fót. Hún er einna líkust þögulli
Tarkovsky-mynd í slow motion.“
Ég segi kannski ekki að Disinte-
gration sé svo slæm. Blaðamennirn-
ir á Melody Maker eiga heldur eng-
an sinn líka i kjánaskap — næst
slá þeir Sykurmolana af, sannið þið
til. Hvað sem því líður er versti
galli umræddrar plötu alveg voða-
legt átakaleysi. Robert Smith og
kollegar eru of útreiknanlegir í lag-
asmíðum og margir textamir verstu
klisjur, eins og þessi hending úr
Pictures of you: „Ég hef horft svo
lengi á myndirnar af þér að ég var
næstum búinn að ímynda mér að
þær væru raunverulegar." Hræði-
legt. Eða þetta úr Lovesong: „Þeg-
ar ég er með þér finnst mér alltaf
eins og ég sé kominn heim — Ég
mun alltaf elska þig hvert sem ég
fer...“ Hryllilegt. Síðasti riddara-
kross Cure er áreiðanlega Lullaby
af Disintegration. Þetta er ótrúlega
sterkt lag og myndbandið hreinn
unaður. Annað efni á plötunni er
allt í lagi. Ekkert meira en það.
Það finnst mér í sjálfu sér næg
ástæða til að svipta þessa sjálfskip-
uðu lækna leyfinu. Best væri að
þeir hefðu kjark til að gera það
sjálfir. Ein ástæðan fyrir því að
þeir þrjóskast við kann að vera sú
að fjöldi aðdáenda er enn á lífi.
Cure fyllti Wembley Arena þijú
kvöld í röð. Það segir sína sögu.
Ég sat umkringdur svartklæddu
fólki og beið eftir að læknarnir
byijuðu að kukla á sviðinu. Ég veðj-
aði við sjálfan mig að tónleikarnir
myndu hefjast á Plainsong af Disin-
tegration. Ég vann veðmálið. Á eft-
ir kom klisjan viðurstyggilega Pic-
tures of you. Örsmáir geislar ljós-
kastaranna lýsa upp fölt andlit dr.
Smiths. Svart hárið kastaðist fram
á andlitið þegar hann sveiflaði
höndunum. Svarta skyrtan náði
honum niður á hné. Hann var með
varalit. Beint fyrir framan mig sat
steinrunnin eftirmynd hans og lét
sér nægja að klappa kurteislega
eftir hvert lag. Aðrir aðdáendur
voru öllu líflegri, klöppuðu, stöpp-
uðu, í draumkenndu ástandi. Hiti
og sviti í sjöunda himni. Dáleiðsla
hefur enda verið vörumerki Cure
alla tíð; dulúðug Iög, dreymnir,
dularfullir textar og seiðandi söng-
ur Roberts Smiths. Gallinn er bara
sá að áhrifin eru hverfandi, líkt og
maður fengi sér jurtate úr blóð-
bergi við kvefi í stað benelíns. Ég
segi samt ekki að Catch, nú eða
Just like heaven hafi ekki aðeins
hreyft við manni. Jú, og tónleikaút-
gáfan af Why can’t I be you? var
líka stórgóð þar sem hendingum
úr Love Cats var blandað saman
við viðlagið. Samt, samt var þetta
allt saman einhvern veginn of gott
— ljósin, hljómburðurinn, sviðið,
hljómsveitin — Smith, Gallup, Will-
iams, Thompson og O’Donnell, allt
svo óþolandi óaðfinnanlegt, eins og
1948-útgáfan af Hamlet með sir
Laurence heitnum. Og aðdáendurn-
ir ellefu þúsund voru að springa af
gleði yfir að heyra Boys don’t cry,
Let’s go to bed, Close to me og
allt þetta, einu sinni enn. Cure voru
klappaðir þrisvar sinnum upp að
minnsta kosti og svarthærð, svart-
klædd ungmenni keyptu sér stutt-
ermaboli á leiðinni út. Hvað skildi
þetta fólk taka til bragðs ef átrún-
aðargoðin hættu störfum? hugsaði
ég í troðfullri lestinni á leiðinni frá
Wembley. „Robert was absolutely
wonderful,“ hugsaði næsti maður
upphátt og svarthærð stúlka söngl-
aði' Just like heaven. Cure virðast
enn geta líknað aðdáendum sínum,
a.m.k. sumum , þó áhrifamáttur
tónlistarinnar sé í reynd hverfandi.
Cure eru heimilislæknar á eftirlaun-
um. Og Robert hótar enn að hætta
í hljómsveitinni af gömlum vana,
„Samt, samt var þetta
allt saman einhvern
veginn of gott — ljósin,
hljómburðurinn, sviðið,
hljómsveitin — Smith,
Gallup, Williams,
Thompson og O’Donn-
ell, allt svo óþolandi
óaðfinnanlegt, eins og
1948-útgáfan af Hamlet
með sir Laurence heitn-
um.“
úlfur, úlfur aðferðin held ég. Sam-
kvæmt yfirlýsingum dr. Smiths á
þessu ári langar hann mest af öllu
að byija að nýju og hefja tónlistar-
feril upp á eigin spýtur. Ekki vegna
þess að metnaður hans krefjist
þess, heldur, eins og yfirlæknirinn
orðaði það svo eftirminnilega sjálf-
ur: „Vinur minn tók mjög góða ljós-
mynd af mér og ég kem aldrei til
með að nota hana nema ég hefji
sólóferil.“
Það var og.
Höfimdur starfar hjá
Ríkisúí vurpiini.
Mark segulband
3.950 stgr.
Nova samlokugrill
5.375 stgr.
Nova djúpsteikingarpottar
frá 6.200 stgr.
Mark útvarp
með 6 stöðva minni
4.300 stgr.
Melitta kaffivélar frá 3.580 stgr
0SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VID MIKLAGARÐ
Thomson ferðaútvarp með tvöföldu
segulbandi og geislaspilara 29.735 stgr
1 1
S 5 1 1 DKlflAL .. i»
mM