Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 69
_______________M0RGUNBL4ÐIÐ: ÞKIDJUDAGUH lg. p^EMBEB, ,lg8p.
Hvað verður um
Öskjuhlíðina?
eftir Einar Egilsson
Undanfarin misseri hefur Nátt-
úruverndarfélag Suðvesturlands
gengist fyrir mörgum vettvangs-
ferðum almennings í Öskjuhlíðina
til að stuðla að kynnum fólks við
þetta merka útivistarsvæði, nátt-
úru þess og sögu, en einnig til að
kanna ástand þess. Öskjuhlíðin
tengist Bljáfjallaleiðinni svokölluðu
sem félagið hefur haft forgöngu
um að kynna og er því hluti af
órofinni heild opinna svæða úr
miðbæ Reykjavíkur um Fossvogs-
og Elliðaárdal upp í Bláfjöll. Einnig
hafa dagvistarbörn notið leiðsagn-
ar við náttúruskoðun í Öskjuhlíð-
inni á vegum félagsins.
Þær upplýsingar sem fyrir Iiggja
um framtíð Öskjuhlíðar valda
áhugafólki um náttúruvernd og
umhverfi miklum áhyggjum enda
benda þær til að í framtíðinni verði
svæðið ekki sá gæðareitur sem
vonir stóðu til.
Neikvæð áhrif
Áhuggjur af framtíð Öskjuhh'ðar
varða einkum eftirtalin atriði:
Gengið hefur verið all verulega
á svæðið og nú síðast með vega-
gerð um norðurhlíðina; reist hefur
verið bensínstöð upp í hlíðinni sem
að mati stjórnar NVSV hefði mátt
reisa fjær hlíðinni.
Lagning Hlíðarfótsbrautar sem
stefnt er að innan fárra ára mun
skerða Öskjuhlíðina mjög mikið og
gæði hennar sem útivistarsvæðis.
Hér er um að ræða gamla skipu-
Iagshugmynd sem sýnd var á
skipulagsuppdrætti árið 1948 og
nú er komið að því að framkvæma.
Hlíðarfótsbraut mun liggja frá
Reykjanesbraut í Fossvog, á bökk-
um Fossvogs neðan kirkjugarðs,
nærri rótum Öskjuhlíðar og sunnan
að Njarðargötu. Reykjavíkurborg
hefur í hendi sér alla ákvarðana-
töku um lagningu hennar, til fram-
kvæmda getur komið, hvenær sem
er, úr þessu. Áhrif brautarinnar
yrðu gríðarleg skerðing Öskjuhlíð-
arsvæðisins, rof á náttúrulegum
tengslum þess við Fossvoginn,
Nauthólsvík og Skeijafjörð, um-
ferðargnýr og umferðarmengun.
Finna þarf bæði tæknilega og
pólitíska lausn á þessu máli og
vinna opinskátt að því; slík lausn
kallará endurmat gömlu hugmynd-
anna, heildstæða lausn umferðar-
mála og nokkra viðhorfsbreytingu
sem félagið er trúað á að. muni
nást fram og er reiðubúið að taka
þátt í að skapa.
Fyrirhugað er að færa allt flug-
rekstrarstarf á Reykjavíkurflug-
velli inni á svæðið sunnan Öskju-
hlíðar og mun það hafa mikil áhrif
á útivistarsvæðið vegna aukinnar
umferðar bíla og flugvéla.
Öskjuhlíð hefur ekki verið sýnd-
ur mikill sómi síðustu árin ef undan
er skilin hreinsun oggrisjun á skóg-
arsvæðinu og ekki mótuð sem
skyldi jákvæð stefna um svæðið
og framtíð þess. Ágætt dæmi um
ómarkviss vinnubrögð er hið stóra
tún á háhæðinni en markmiðið með
ræktun þess virðist gleymt.
Stefnumörkun ætti að miðast við
að búa í haginn fyrir útivist og
verndun umhverfis. Hún þarf að
taka til umgengni, umhirðu, um-
ferðar fólks, gangstíga og tengsl
við nærliggjandi svæði, skógrækt-
ar, aðkeyrslu, varðveislu sögulegra
minja, leiðsagnar og upplýsinga um
svæðið. Allt til þess að auka útivist-
argildi svæðisins og sýna því og
mannlifinu í borginni virðingu.
Jákvæðir þættir
Af jákvæðum þáttum er varða
Öskjuhlíðina skal bent á eftirfar-
andi:
Öskjuhlíð og Fossvogsbakkar
eru á náttúruminjaskrá Náttúru-
verndarráðs sem mikilvægar nátt-
úruminjar en það hefur ekki náð
að hafa þau áhrif á áætlanir um
framtíðarnýtingu svæðisins að
maður og umhverfi hafi þar for-
gang umfram ökutækin. Miklu skal
því fórna.
Með ræktun fjölbreytts útivistar-
skógar hefur Öskjuhlíðinni verið
gefið nýtt yfirbragð og aukin fjöl-
breytni í gróðurfari. Þar er nú þeg-
ar tækifæri til að upplifa skóga-
rumhverfi og skynja og skilja áhrif
skógar á umhverfið. Margir ganga
um svæðið og sumir daglega. Nýtt
veitingahús mun draga fólk að, en
það mun þurfa að horfa niður á
straumþunga á ökutækja hringinn
í kringum Óskjuhlíðina. Ennþá er
tækifæri til að skapa allstóran úti-
vistarskóg í Öskjuhlíð og ekkert
annað svæði svo nærri miðborginni
mun gefast til slíkrar ræktunar.
Fyrirhuguð lagning Hlíðarfóts-
brautar mun skerða mjög gildi
hans. Þess vegna er tækifærið sem
nú gefst til að endurskoða gamlar
úrlausnir í umferðarmálum og
finna nýjar af stórhug afar dýr-
mætt og góð gjöf til komandi kyn-
slóða en náttúruverndarstarf á
umfram annað að meta með tilliti
til þeirra.
Morgunblaðið/Bjami
Einar Egilsson
Mörg merk náttúrufyrirbæri er
hér að finna sem skemmtilegt er
að læra að túlka og skilja, s.s. forn
fjörumörk, jökulmenjar, landmótun
og setlög, þar er víðátta og frá-
bært útsýni, einnig sögulegar minj-
ar um búskaparhætti, þjóðleiðir,
mannfundi, landamerki, gijótnám
og járnbraut og hemámsárin.
Svæðið er þegar fullplantað
tijám að mati umsjónaraðila og
hófst það verk 1952. Skógræktar-
félag Reykjavikur hefur annast
verkið en Hitaveitan kostað það.
„Lagning Hlíðarfóts-
brautar sem stefiit er
að innan fárra ára mun
skerða Öskjuhiíðina
mjög mikið og gæði
hennar sem útivistar-
svæðis.“
Uppi er áhugaverð hugmynd um
tijátegundasafn í suðurhlíðinni og
um gönguleið undir flugbrautina í
Skeijafjörð.
Fyrirhugaðar eru úrbætur á út-
falli skolps í Skeijafjörð sem í dag
spillir Fossvogssvæðinu sem úti-
vistarsvæði og mótar ímynd fólks
um það. Á þessu svæði geta því
opnast enn fjölbreyttari útivistar-
möguleikar innan tíðar og fráleitt
að ímynda sér að umrædd ak-
braut, Hh'ðarfótsbrautin, eigi heima
í samhengi þess.
Nu vantar skynsamlegar ákvarð-
anir í því mikilvæga menningar-
og náttúruverndarmáli sem upp-
bygging og umönnun Öskjuhlíðar
og Fossvogsbrautar í þágu
mannlífs í borginni er.
Höúindur er formnður
Náttúruvemdarfélags
Suðvesturlands.
AMIGA 500
Tölvan sem er efst á óskalistanum I ! !
Fáanlegur hugbúnaður:
* Bestu leikir sem sjást á tölvum
* Ritvinnsla
* Teikniforrit
* Heimilisbókhald
* Forritunarmál
* Ættfræðiforrit
* og margt fleira ...
TILBOÐ #2:
Amiga 500/512 Kb
A1084 litaskjár
1 ieikur
Kennsludisketta
Listaverö: kr. 108. 353.-
Tilboðsverð: kr. 94.000.-
Tilboðsverð miðast við staðgreiðslu.
ÞÓRf
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11
Innifalið:
* 4096 litir á skjá
* Stereo hljóð
* 3,5" diskettudrif (880 Kb)
* Gluggavinnslukerfi
* 68000 Motorola örgjafi (16/32 bita)
* Fjölverkakerfi (Multitasking)
TILBOÐ #1:
Amiga 500/512 Kb
Sjónvarpstengi
1 Leikur
Kennsludisketta
Listaverð:
Tilboðsverð:
kr. 62.817,-
kr. 54.000.-
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstœður
Utvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
ARMA
W PLAST
ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640