Morgunblaðið - 19.12.1989, Qupperneq 79
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
79
Miðstöð gigt-
lækninga verði á
Landspítalanum
STARFSHÓPUR sem stjómarnefiid Ríkisspítalanna skipaði er sam-
mála um að miðstöð gigtlækninga skuli vera á Landspítalanum og
að hann verði leiðandi stofiiun um meðferð, rannsóknir og kennslu
í gigtsjúkdómum. Hópurinn telur jafnframt að til þess að svo geti
orðið þurfi verulegar breytingar að verða í áföngum á ýmsum svið-
um. Ekki er talið raunhæft að allar gigtlækningar fari fram á Lands-
pítalanum, heldur marki hann stefiiu og verði til fyrirmyndar um
Iækningu þessa sjúkdóms. Gigtsjúklingar em einhver stærsti hópur
sjúklinga á Vesturlöndum.
Kökubakstur í fjörutíu klukkutíma
NEMENDUR í 8. bekk 2 í
Hjallaskóla í Kópavogi stóðu í
ströngu um helgina. Þeir efndu
til fjörutíu klukkutima mara-
þonbaksturs til þess að safha
peningum til að heimsækja
nemendur í Danmörku, sem
þeir hafa skrifast á við. Nem-
endurnir stóðu upp að loknum
bakstri sem nýbakaðir met-
hafar á þessu sviði.
Áður en maraþonbaksturinn
hófst leituðu nemendur til fyrir-
tækja sem gáfu hráefni í bakstur-
inn. Auk þess sem fjöldi fyrir-
tækja og einstaklinga hétu á þá
í sambandi við baksturinn. Nem-
endur skiptu sér niður á vaktir
og fengu foreldra í lið með sér.
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
Ríkisspítalanna sagði í samtali við
Morgunblaðið að á Landspítalanum
væri eina stóra gigtlækningadeildin
á landinu og því væri spítalinn í
sjálfu sér þegar orðinn gigtlækn-
ingamiðstöð.
Hugmyndin er að alhliða gigt-
lækningaþjónusta verði öll á einum
stað og að sögn Davíðs er reynt
að koma einu og einu atriði smám
saman í framkvæmd til þess að svo
megi verða. Nú er til dæmis í undir-
búningi að auka gigtlækningaað-
gerðir á bæklunardeildinni og að
fá fleiri sérfræðinga til starfa svo
einnig verði hægt að auka þjónustu
göngudeildarinnar.
„Þessi atriði koma fram í beiðn-
um okkar vegna fjárlagagerðarinn-
ar, en eru reyndar ekki í sjálfu fjár-
lagafrumvarpinu. Þar er ósköp fátt
sem okkur varðar,“ sagði Davíð.
Á Landspítalanum er legudeild
fyrir gigtsjúklinga og er reiknað
með að hún verði nýtt áfram. Þeg-
ar K-byggingin verður tekin í notk-
un rýmkar verulega um húsnæði
Þrír nemendur í Hjallaskóla, Hrafiihildur, Sunna og Ellý, sjást hér á fúllu í maraþonbastrinum.
Maraþonbakstur í Kópavogi:
og sagði Davíð að þá yrði mun
betri aðstaða til að efla starfsemi
göngudeildarinnar. Nú er komin
fjárveiting til að hefja byggingu
endurhæfingardeildar ofan á eld-
húsbyggingu Landspítalans. Þar
verður möguleiki á að efla til muna
endurhæfingu gigtsjúklinga.
Davíð sagðist gera sér þokkaleg-
ar vonir um að þetta geti allt ræst
á næstu árum.
„Gigtsjúklingar eru einn stærsti
hópur sjúklinga í öllum hinum vest-
ræna heimi og einhver sá aldýr-
asti. Það ætti því að vera hagkvæmt
fyrir þjóðarbúið að reyna að sinna
þessum hópi eins og frekast er
unnt svo fólk verði eins lítið frá
vinnu og mögulegt er,“ sagði hann.
Eignarskattsfrelsi spariskírteina ríkissjóðs:
Kvartað til Verðlagsstoftiun-
Ólafsfjörður:
Mink ban-
að á götu
Ólafsfirði.
KOLSVARTUR minkur, gæfiir
og elskulegur, var að spóka sig
á miðri Aðalgötunni á fostu-
daginn, einmitt þegar jólaerill-
inn var mestur í verslunum.
Minkur þessi var hændur að
mannfólkinu og virtist hafa
áhuga á að komast inn í hlýjuna
í Kaupfélaginu. Ekki átti kvikind-
ið miklum vinsældum að fagna.
Starfsmenn bæjarins komu á
vettvang vopnaðir skóflum. Upp-
hófst svo mikill eltingaleikur sem
lauk með banahöggi.
Rannsókn leiddi í ljós að mink-
urinn var ættaður af loðdýrabúi
sem stendur skammt frá kaup-
staðnum og svo var einnig um
bræður hans tvo sem banað var
niður við höfn sama dag.
- SB
ar vegna villandi auglýsinga
Frumvarp um eignarskattsfrelsi í umfjöliun Alþingis
KVARTAÐ hefúr verið tU Verðlagsstofnunar vegna auglýsinga ríkis-
sjóðs, þar sem auglýst eru spariskírteini ríkissjóðs og athygli vakin
á eignarskattsfrelsi skírteinanna. Kvörtunin byggist á því, að auglýs-
ingarnar gefi í skyn að skírteinin séu eignarskattsftjáls, en þau séu
það ekki nema að takmörkuðu leyti. Verðlagsstofnun hefúr farið
fram á greinargerð um málið frá fjármálaráðuneytinu og er hún
væntanleg í dag, þriðjudag. Þá hefúr verið lagt firam stjórnarfrum-
varp á Alþingi og kveður það á um ótvírætt og algjört eignarkatts-
frelsi spariskírteina, húsbréfa, ríkisvíxla og happdrættisskuldabréfa
rískissjóðs.
Kvörtunin barst upphaflega til
umboðsmanns Alþingis, sem vísaði
henni til Verðlagsstofnunar. Hún
byggist á því, að ríkissjóður auglýsi
spariskírteinin sem hagkvæmt
sparnaðarform og er skírskotað til
eignarskattsfrelsis, sem þau hafi
umfram önnur form og geri það
raunávöxtun þeirra meiri en vaxta-
prósenta skírteinanna ein gefi til
kynna. Hins vegar séu skírteinin
ekki skattfijáls nema að takmörk-
uðu leyti, eða einungis að því leyti
sem skírteinaeign er umfram skuld-
ir hvers og eins. Þetta þýði til dæm-
is, að ef börn eiga skírteini, þá
skattleggjast þau, ef foreldrar barn-
anna skulda, vegna þess að bömin
eru ekki sjálfstæðir framteljendur.
Af þessu leiði að spariskírteinin séu
ekki í reynd eignarskattsfijáls,
nema því aðeins að eigandi þeirra
sé skuldlaus og á þeim forsendum
séu auglýsingarnar villandi.
Pétur Kristinsson framkvæmda-
stjóri Þjónustumiðstöðvar ríkisverð-
bréfa segir að gegnumsneitt hafi í
öllum auglýsingum verið kynnt
eignarskattsfrelsi spariskírteina og
að ekki hafi í öllum tilvikum verið
tíundað að átt væri við eign umfram
skuldir. Til að skýra þau atriði hafi
verið gerð auglýsing þar sem út-
skýrt væri í smáatriðum hvernig
skattfrelsinu er farið.
„Það er einmitt sú auglýsing sem
verið er að kæra og það er dálítið
skondið að kæra auglýsingu vegna
skorts á upplýsingum, sem þó eru
í henni," segir Pétur. Hann segir*
að upphaflega hafi þessi fyrirvari,
að skírteinin væru eignarskatts-
ftjáls umfram skuldir, verið set,tur
í lögin til að koma í veg fyrir brask.
Það hafi verið á þeim tíma þegar
bankalán voru með lægri vöxtum
en spariskírteinin eða jafnvel nei-
Vinnsla á bílhræjum:
Stálfélagið hreins-
ar án endurgjalds
STÁLFÉLAGIÐ hf. hefúr tekið að sér endurgjaldslaust, að hreinsa
og flytja bílhræ af sorphaugunum í Gufúnesi. Verkið var boðið út
og átti Vaka hf. lægsta boð og sinnti fyrirtækið verkinu þar til
Stálfélagið tók við. Annað fyrirtæki Hringrás hf. fékk ekki að
taka þátt í útboðinu og telja forsvarsmenn fyrirtækisins að fram
hjá þeim hafi verið gengið.
„Hringrás hf. sendi borginni á
sínum tíma tilboð um að hreinsa
bílflök og koma þeim í Sundahöfn,
en það tilboð var of hátt og ekki
hægt að taka því,“ sagði Ingi Ú.
Magnússon gatnamálastjóri.
„Síðan hefur fyrirtækið ekki sinnt
þessu í langan tíma þannig að við
töldum að þeir hefðu ekki áhuga
á málinu. Var þá leitað til nokk-
urra aðila um það hvort þeir vildu
taka að sér, að hreinsa bíiflökin
af olíu og óæskilegum vökvum og
flytja til Stálfélagsins, sem bauðst
til að taka við þeim. Vaka var með
hagstæðasta tilboðið þannig að
samið var við þá. Seinna byijaði
Bílhræ sem bíða þess að verða fjarlægð.
Morgunblaðið/Sverrir
bílflök, sem eru uppi á haugum,
okkur að kostnaðarlausu.
Stálfélagið__að._hreinsæ ölL þ.essi____Verkinu er að Ijúka en ef betta j
verður eitthvað magn í framtíðinni
þá verður það boðið út,“ sagði Ingi.
kvæðum vöxtum og því hefðu þeir •
sem aðstöðu höfðu til, getað fengið
lán í bönkum, keypt rikisverðbréf
og fengið á þann hátt skattfrádrátt
út á fé sem þeir áttu ekki í reynd.
Nú sé þessu ekki til að dreifa, þar
sem bankavextir eru jákvæðir og
eftir litlu að slægjast með að taka
lán til að kaupa spariskírteini.
Neytendasamtökin hafa fylgst
með málinu og munu fulltrúar
þeirra eiga fund með fulltrúum
Verðlagsstofnunar í dag, til að fara
yfir stöðuna, að sögn Maríu E.
Ingvadóttur varaformanns samtak-
anna. Hún segir auglýsingu fjár-
málaráðuneytisins um spariskír-
teinin augljóslega vera villandi, þar
sem rætt er um eignarskattsfrelsi
þeirra. „Menn þurfa að vera býsna
vel að sér í skattalögum til að átta
sig á í hvaða tilfeilum þessi spar-
iskírteini eru eignarskattsfrjáls og
hvenær ekki. Hins vegar eru við-
brögðin undarleg, ef rétt er að lagt
hafi verið fram stjómarfrumvarp
um eignarskattsfrelsi skírteinanna,
í stað þess einfaldlega að breyta
auglýsingunni! Ef það er rétt, þá
er verið að mismuna sparnaðar-
formum og það gerir ráðuneytið til
þess að selja sína vöm, í sam-
keppni við aðra sem ekki njóta sömu
fríðinda," segir María.
í framvarpinu, sem er til breyt-
inga á lögum um tekjuskatt og eign-
arskatt, segir að heimilt sé að draga
frá eignum markaðsverðbréf, gefin
út af ríkissjóði (þar á meðai spa-
riskírteini), ríkisvíxla, happdrættis-
skuldabréf ríkissjóðs, húsbréf gef in
út af Byggingarsjóði ríkisins og
heimildin nær einnig til hlutdeild-
arskírteina verðbréfasjóða, þar sem
sjóðurinn er myndaður af framan-
greindum skuldaviðurkenningum.
Lögin eiga að gilda við staðgreiðslu
opinberra gjalda 1990 og við álagn-
ingu tekju- og eignarskatta 1990
og 1991. Það þýðir að þau gilda
fyrir uppgjör og framtal þessa árs,
en álagning vegna þess fer fram á
næsta ári.