Morgunblaðið - 12.03.1991, Page 1
72 SIÐUR B
59. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn í ísrael:
Merki um breytt viðhorf
arabaríkja vekja vonir
- segir utanríkisráðherra ísraels
Túnis. Jerúsaleni. Reuter.
DAVID Levy, utanríkisráðherra Israels, sagðist í gær sjá merki breyttra
viðhorfa hjá arabaríkjum. Þessi orð lét hann falla eftir að James Bak-
er, utanríkisráðhcrra Bandaríkjanna, hafði skýrt honum frá viðræðum
sínum við forsvarsmenn átta arabaríkja. „Það sem við höfum heyrt,
og að sjálfsögðu höldum við áfram að ræða málin,...eru vissulega merki
um eitthvað sem við höfum ekki séð áður og þau vekja vonir. Við
verðum að halda áfram að vinna á þessum nótum en við erum nær
markinu en í gær,“ sagði Levy.
Iraska stjórnar-
andstaðan:
Rætt hvern-
ig steypa
skuli Sadd-
am af stóli
Nikósíu. Reuter:
LEIÐTOGAR útlægrar stjórnar-
andstöðu í írak hittust í gær í
Beirút í Libanon. Einn fundar-
manna, Abu Ahmed al-Jaafarai,
félagi í hinum islamska Dawa-
flokki, lýsti fundarefninu svo að
rætt væri hverjar væru bestu,
fljótiegustu og fyrirhafnar-
minnstu leiðirnar til að steypa
Saddam Hussein íraksforseta af
stóli. Fulltrúar íraskra uppreisn-
armánna í Suður-Irak segja að
uppreisnin breiðist út en flótta-
menn frá Basra, næststærstu
borg Iraks, segja að stjórnarher-
inn nái borginni brátt á sitt vald
vegna yfirburða sinna.
A fundinum í Beirút eru 325 leið-
togar írösku stjórnarandstöðunnar
og er þetta mikilvægasti fundur
þeirra til þessa. Þetta er sundurleit-
ur hópur þar sem eru heittrúaðir
múslimar, Kúrdar, kommúnistar,
þjóðernissinnaðir arabar, andófs-
menn innan Ba’ath-flokksins, fyrr-
um liðsforingjar úr hernum og
fijálslyndir menntamenn hallir und-
ir Vesturlönd. En sameiningaraflið
er hatrið á Saddam Hussein. Al-
Jaafari sagðist vona að takast
mætti að gera raunhæfa áætlun
um framtíð íraks. Einnig^er rætt
um hvort koma eigi á fót útlaga-
stjórn.
Ayatollah Taqi al-Mudarresi,
talsmaður samtaka shíta sem aðset-
ur hafa í Teheran, höfuðborg írans,
sagði að úrvalssveitir Saddams
hefðu ráðist á borgina helgu Karb-
ala en uppreisnarmenn sem þar
réðu nú lögum og lofum hefðu
hrundið atlögunni. Hann sagði að
500 manns hefðu fallið í borginni
á sunnudag.
Fréttastofan IRNA í Iran sagði
í gær að órói breiddist út í Bagdad
og þar hefðu hundrað manns fallið
undanfarna daga.
Sjá „Kúrdar treysta tökin...“ á
bls. 29.
----------------
John Major:
Bretland í
hjarta Evrópu
Bonn. The Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, hélt sína fyrstu ræðu á
erlendri grund í gær síðan hann
tók við embætti af Margaret
Thatcher. Hann ávarpaði Konrad-
Adenauer-samtökin í Bonn og
sagðist sjá Bretland fyrir sér í
hjaiáa Evrópu.
„Ég vil að við tökum okkur stöðu
þar sem við eigum heima: í hjarta
Evrópu, þar sem við vinnum með
bandamönnum okkar að því að móta
framtíðina." Major ítrekaði engu að
síður andstöðu Breta við sameigin-
legan gjaldmiðil EB og lagði áherslu
á að ekki mætti íjúfa tengslin yfir
Atlantshafið, bandarískir hermenn
yrðu að vera um kyrrt í Evrópu.
Baker kom til ísraels í gær eftir
að hafa heimsótt Saudi-Arabíu, Kúv-
eit og Egyptaland. Baker hefur þeg-
ar fengið stuðning átta arabaríkja
við friðarfrumkvæði bandarískra
stjórnvalda. Talsmenn Frelsissam-
taka Palestínu (PLO) tilkynntu í gær
að þeir legðu blessun sína yfir fund
Bakers með fulltrúum Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum sem
verður í dag. PLO gaf til kynna að
samtökin væru hlynnt fundinum
vegna þess að George Bush Banda-
ríkjaforseti hefði látið „jákvæð um-
mæli“ falla í síðustu viku. En þá
sagði forsetinn að friður í Mið-Aust-
urlöndum væri undir því kominn að
ályktunum Sameinuðu þjóðanna um
efnið yrði framfylgt og viðurkennd
yrði sú grundvallarregla að land yrði
látið af hendi fyrir frið. Var talið að
forsetinn ætti við að ísraelar skyldu
láta hernumdu svæðin af hendi gegn
því að arabar semdu við þá frið.
Bandarísk stjórnvöld hafa lagt á það
áherslu að þau séu ekki reiðubúin
að taka upp tengsl við PLO á ný en
þau voru rofin í júní á síðasta ári.
Aðstoðarmaður Bakers sem ekki vildi
láta nafns síns getið sagði í samtali
við Reuters-fréttastofuna að eftir að
ráðherrann hefði rætt við leiðtoga
arabaríkja undanfarna daga hefði
hann á tilfinningunni að breytinga
vasri að vænta á forystu PLO.
Israelskir hermenn felldu í gær
sex araba skammt frá jórdönsku
landamærunum. Þrír ísraelskir her-
menn særðust í skotbardaganum sem
var nærri Tirat Zvi-samyrkjubúinu.
Talsmenn hersins segja að arabarnir
hafi verið vel vopnum búnir og hafi
þeir borið merki Hamas, samtaka
heittrúðra múslíma á hernumdu
Sovétríkin:
„Stríðsyfirlýs-
ing“ Jeltsíns
vekur andsvör
Moskvu. Ileuter.
SOVÉSKIR ríkisfjölmiðlar og aft-
urhaldssamir þingmenn á sov-
éska þinginu gagnrýndu Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, harð-
lega í gær eftir „stríðsyfirlýs-
ingu“ hans á hendur Míkhaíl
Gorbatsjov, forseta Sovétríkj-
anna. Sovéska stjórnarmál-
gagnið Pravda gaf í skyn í gær
að Jeltsín væri falskur lýðræðis-
sinni og nokkrir þingmenn fóru
fram á að farið yrði í mál við
forseta Rússlands vegna ummæla
hans um helgina.
Jeltsín nýtur mikilla vinsælda
meðal almennra borgara í Sovétríkj-
unum og er talið að hálf milljón
manna hafi tekið þátt í mótmælum
í ijölmörgum sovéskum borgum um
helgina til stuðnings honum og gegn
Gorbatsjov.
Sovéska þingið varaði í gær lýð-
veldi Sovétríkjanna við því að reyna
að hindra þjóðaratkvæðagreiðsluna,
sem fram á að fara 17. mars nk..
í ályktun sem samþykkt var á þing-
inu segir að „öllum leiðum verði
beitt“ til að tryggja að hver einasti
borgari Sovétríkjanna hafi tækifæri
til að taka þátt í atkvæðagreiðsl-
unni.
Sex lýðveldi, Eistland, Lettland,
Litháen, Georgía, Moldavía og Arm-
enía, hafa neitað- að taka þátt í
undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar. Boris Jeltsín lýsti því einnig
yfir um helgina að Rússland væri
ekki reiðubúið til að rita undir hinn
nýja sáttmála.
Sjá „Jeltsín lýsir yfir stríði..."
á bls. 28.
svæðunum. Þau samtök hafa lagst
gegn fundi Bakers með Palestínu-
mönnum. Á sunnudag banaði Palest-
ínumaður fjórum ísraelskum konum
í Vestur-Jerúsalem með hnífi. ísra-
elska lögreglan segir að morðinginn
hafi átt sér vitorðsmenn og hafi hann
sagt við yfirheyrslur að verknaður
sinn væri skilaboð til Bakers.
Sjá „Almennur stuðningur..."
á bls. 28-29.
Albanía:
Pólitískum f öngum sleppt?
Róm. Reuter.
CLAUDIO Martelli, aðstoðarutanríkisráðherra Italíu, er nýkominn
frá Albaníu og segist hann hafa fengið það loforð frá þarlendum
ráðamönnum að öllum pólitískum föngum í landinu yrði sleppt.
Ekki kom fram í máli Martellis hefði verið sleppt og 120 sætu enn
hversu margir fangar yrðu látnir inni.
lausir. í janúar sagði talsmaður alb-
önsku stjórnarandstöðunnar að Sjá „Vonsviknir flóttamenn..."
rúmlega 500 póiítiskum föngum á bls. 27.