Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 2
2
MORGÚMBLAÐIÐ ÞRlÐJUdAGIÍR Í2. MARZ 1991
Ályktun Sjálfstæðisflokks um sjávarútvegsmál;
Sanngjörn sjávarút-
vegsstefna ómörkuð
„MIKILL tími og fyrirhöfn hefur farið í deilur um stefnuna í stjórn
fiskveiða. Hins vegar hefur sjávarútvegsstefna, sem tekur tillit tii
allra þátta, ekki enn verið mörkuð og næstu ríkisstjórnar bíður þar
mikið og vandasamt verk,“ segir í ályktun um sjávarútvegsmál, sem
samþykkt var á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á sunnudag.
Ekki var tekið á helstu ágrein- stjórn sjávarútvegsmála í 13 ár, og
ingsefnum í sjávarútvegsmálum í
ályktuninni enda litið svo á að það
sé ekki tímabært, þar sem bæði sé
stutt til kosninga, og að á næsta
ári eigi að fara fram endurskoðun
núverandi laga um
fiskveiðistjórnun.
í ályktuninni segir, a,ð Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi ekki farið með
eðlilegt sé að stærsti flokkur lands-
ins fái þetta mikilvæga ráðuneyti í
sinn hlut í næstu ríkisstjórn og
hafi forustu um mat á árangri þeirr-
ar fiskveiðistefnu, sem nú sé fylgt
samfara endurskoðun og einföldun
fiskveiðistefnunnar á næsta ári.
Sjá nánari umfjöllum bls. 16.
Drengir játa íkveikju
í mannlausu húsi
Vestmannaeyj um.
ELDUR kom upp í mannlausu húsi við Bröttugötu í Vestmannaeyj-
um síðdegis á sunnudag. Slökkvilið kom fljótlega á staðinn og
tókst að ráða niðurlögum eldsins á skammri stundu. Strax kvikn-
aði grunur að um íkveikju væri að ræða og í gær játuðu tveir
drengir, 8 og 9 ára gamlir, að vera valdir að eldsupptökunum.
Slökkviliði Vestmannaeyja var
tilkynnt um eldinn kl. 19.40 á
sunnudag. Logaði þá í risi hússins
á Bröttugötu 10. Eldurinn hafði
ekki náð að breiðast mikið út er
slökkviliðið kom á vettvang og var
eldurinn slökktur á skammri
stundu. Ekki var búið í húsinu en
í þvi var búslóð í geymslu. Búslóð-
in skemmdist talsvert af sóti og
reyk og talsverðar skemmdir urðu
í risi hússins.
Rannsóknarlögreglan í Eyjum
vann að rannsókn á eldsupptökum
og grunaði fljótt að um íkveikju
væri að ræða. Geir Jón Þórisson,
rannsóknarlögreglumaður, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að tveir drengir 8 og 9 ára
gamlir hefðu seinnipartinn í gær
játað að hafa kveikt eldinn. Hefðu
þeir komist inn í húsið um lítinn
glugga og kveikt eld í drasli á ris-
hæðinni en síðan forðað sér út.
Geir Jón sagði að mikið sinu-
brunaæði hefði verið hjá bömum
og unglingum í Eyjum undanfarið
og væri ekki ólíklegt að slíkt ýtti
undir verknaði sem þennan.
— Grímur
Morgunblaðið/Gísli Úlfarsson
Færeyski rækjutogarinn lenti á bakborðssíðu Guðbjarts og kramdi hann upp að bakkanum.
Areksturinn í Isafjarðarhöfn:
Orsökin talin bilun í bún-
aði eða mistök stýrimanns
SJÓPRÓF ieiddu það ekki endan-
lega í ljós hver var ástæða þess
að færeyski rækjutogarinn
Olympic Champion sigldi á tog-
arann Guðbjart í ísafjarðarhöfn
aðfaranótt laugardags. Það kom
fram í réttinum að annaðhvort
hefði orðið bilun í búnaði eða
stýrimaðurinn ekki farið rétt að.
Talið er að það kosti að minnsta
kosti 20 milljónir kr. að gera við
Guðbjart.
Sjóprófin fóru fram á ísafirði að
kröfu Siglingamálastofnunar. Áður
hafði náðst samkomulag á milli
Hraðfrystihússins Norðurtangans
hf., sem á Guðbjart, og tryggingafé-
lags færeyska skipsins um að félag-
ið bæti allt tjón sem Norðurtanginn
verður fyrir vegna þessa óhapps.
Matsmaður Tryggingamiðstöðvar-
innar sem tryggir Guðbjart fór vest-
ur í gær. Telur hann að beint tjón
á skipinu sé yfir 20 milljónir kr.
Næstu daga fer fram bráðabirgða-
viðgerð og jafnframt verður varan-
leg viðgerð boðin út, bæði hér á
landi og í Færeyjum. Skipið verður
frá veiðum í nokkrar vikur. Jón
Páll Halldórsson framkvæmdastjóri
Norðurtangans sagði að það kæmi
sér illa, sérstaklega fyrir áhöfn
skipsins. Þetta hefði hins vegar lítil
áhrif á hráefnisöflun fyrir frystihús-
ið því það hefði annan togara og
tvo línubáta og gerðu menn sér
vonir um góða steinbítsvertíð.
Björn Jóhannsson, fulltrúi bæjar-
fógétans á ísafirði, sem stjórnaði
sjóprófunum sagði að það hefði
komið fram í réttinum að þegar
stýrimaðurinn var að bakka skipinu
til að komast frá bryggju hefði
hafnsögumanninum fundist skipið
nálgast Guðbjart ískyggilega og
sagt stýrimanninum að setja á fulla
ferð áfram. Það teldi stýrimaðurinn
sig hafa gert og að þeim hafi fund-
ist vélarafl aukast en samt hefði
skipið sigið aftur á bak og lent á
Guðbjarti. Ekki hefði verið hægt
að leiða í ljós hvort þarna hefði
verið um að ræða bilun í búnaði
skipsins eða að stýrimaðurinn hefði
of seint sett á fulla ferð áfram mið-
að við þær erfiðu aðstæður sem
voru í höfninni. Búnaður skipsins
starfaði eðlilega eftir óhappið, þeg-
ar skipstjórinn tók við stjórninni og
lagði skipinu að bryggju.
Það kom fram við sjóprófin að
hafnsögumaðurinn neitaði fyrr um
kvöldið að fara með skipið úr höfn
vegna þess að hann taldi skipstjór-
ann undir áhrifum áfengis. Sögðust
skipstjóri og stýrimaður hafa neytt
áfengs öls en ekki fundið til áfengis-
áhrifa.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Frá undirritun nýs búvörusamnings milli ríkisvaldsins og Stéttarsambands bænda. Á myndinni eru ta-
lið frá vinstri: Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráð-
herra, Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda og Þórólfur Sveinsson, varaformaður
Stéttarsambands bænda. ______________
Nýr búvörusamningur undirritaður í gær;
Kostnaður ríkissjóðs um 30 millj-
arðar króna á samningstímanum
NÝR búvörusamningur ásamt viðaukum var í gær undirritaður af
samninganefnd Stéttarsambands bænda og landbúnaðarráðherra og
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, en samningurinn var
undirritaður með fyrirvara um samþykki fulltrúafundar Stéttarsam-
bands bænda og Alþingis við nauðsynlegar lagabreytingar. Áætlað
er að útgjöld ríkissjóðs vegna samningsins verði um 30 milljarðar
króna á samningstimanum, en það er á bilinu 7-9 milljörðum lægri
upphæð en orðið hefði miðað við núverandi fyrirkomulag búvöru-
framleiðslunnar óbreytt.
Búvörusamningurinn, sem gildir
frá 1. september 1992 til 31. ágúst
1998, byggir í öllum meginatriðum
á tillögum sjömannanefndar um
hagræðingu í sauðfjárrækt, en auk
þess eru með honum viðaukar varð-
andi fjárhagslegar stuðningsað-
gerðir, sem ríkisvaldið mun grípa
til í tengslum við samninginn, og
greint hefur verið frá í Morgunblað-
inu. I samningnum eru settar fram
ákveðnar meginreglur varðandi
mjólkurframleiðsluna, en þær á að
útfæra nánar í sérstökum samn-
ingi, sem gera á fyrir næstu ára-
mót. 1 lánsfjárlagafrumvarpi, sem
nú liggur fyrir Alþingi, eiga að
koma heimildarákvæði til að hefja
framkvæmd samningsins strax í
vor, þannig að ákvæði um aðlögun
sauðfjárframleiðslunnar að innan-
landsmarkaði geti hafist. Nauðsyn-
legar lagabreytingar vegna fram-
kvæmdar samningsins og fullgild-
ingar hans verða síðan lagðar fyrir
næsta Alþingi, en þar er meðal
annars um að ræða verulegar breyt-
ingar á búvörulögunum.
Á blaðamannafundi að lokinni
undirritun samningsins kom fram,
að miðað við að núverandi kerfi
landbúnaðarframleiðslunnar hefði
verið framlengt óbreytt, fæli nýi
samningurinn í sér 7-9 milljarða
króna sparnað fyrir ríkissjóð á
samningstímanum. Varðandi sauð-
fjárræktina er áætlað að út samn-
ingstímann verði heildarkostnaður
ríkisins um 17 milljarðar króna, en
þar er um að ræða heildarniður-
greiðslur og kostnað vegna stuðn-
ingsaðgerða. Áætlaður heildar-
kostnaður vegna mjólkurframleiðsl-
unnar er 12-14 milljarðar króna.
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, sagði að
lokinni undirritun samningsins, að
hann teldi hann vera raunhæfan
og ásættanlegan, og sérstaklega
væri hann ánægður með það hve
breið samstaða hefði tekist um
samninginn.
Steingrímur J. Sigfússon, land-
búnaðarráðherra, sagði að hann
væri ánægður með að þessum
áfanga væri náð, en á margan hátt
væri um að ræða tímamót í íslensk-
um landbúnaði. „Þarna er verið að
taka á erfiðum hlutum, en ég er
sannfærður um að það er gert með
skynsamlegum hætti. Það er reynt
að mæta eftir föngum þeim áhrif-
um, sem þetta kemur til með að
hafa á bændur og stijálbýlið, og
gera þessar óhjákvæmilegu breyt-
ingar og aðlögun í íslenskum land-
búnaði sem auðveldastar fyrir þá
sem í hlut eiga.“
Að lokinni undirritun búvöru-
samningsins boðaði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, til blaðamannafundar, en
þar ítrekaði hann meðal annars þá
afstöðu Alþýðuflokksins að tryggja
yrði hlut afurðastöðva í verðlækkun
til neytenda, og á þessari stundu
liti hann því svo á að aðeins væri
um drög að samningi að ræða.
Kópavogur;
Ráðist
á leign-
bílstjóra
FARÞEGI í leigubíl réðst á
bílsljóra þegar hann var að
fara út úr bílnum og veitti
honum áverka í andliti. Hann
sparkaði einnig í bílinn svo
hann dældaðist. Árásarmað-
urinn hvarf að þvi búnu á
braut en grunur beinist að
ákveðnum manni, að sögn
rannsóknarlögreglunnar í
Kópavogi.
Atburðurinn varð um kl. 5
aðfaranótt sl. sunnudags. Búist
var við að bílstjórinn legði fram
kæru í gær.
Ingólfur Ingólfsson, formaður
Frama, félags leigubílstjóra,
sagði að ekki hefði verið mikið
um slíkar árásir að undanförnu.
Hann sagði að alltaf væri eitt-
hvað um kýtinga en þó hefði
ekki komið til líkamsmeiðinga í
langan tíma. „Leigubílstjórum
stendur til boða viðvörunarkerfi
og eftir að það var kynnt held
ég að megi fullyrða að ekki hafi
komið til alvarlegra líkamsmeið-
inga,“ sagði Ingólfur. Hann
sagði að nokkur íjöldi leigubíl-
stjóra hefði sett viðvörunarkerfi
í bíla sína en þau kosta um 6-8
þúsund kr. „Það er aldrei hægt
að koma í veg fyrir svona árásir
en þetta er talið geta minnkað
hættuna á þeim,“ sagði Ingólfur.