Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 4
r ooi \ u
4
TTimiqH nint. TQT/nnQm/
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
VEÐUR
Ljósmynd/Einar Stefánsson
Þrír úr hjálparsveit skáta í Kópavogi hlúa að slösuðum félaga sínum.
fjallshlfð við
Grýtutindá
iaugardag. Þyrta Landhelgis-
- ■ gæslunnar kom
ffgikijamÆl manninum til
A hjálpar.
Grýtutindur/
Stóridalur
EYJAFJALLA
JÖKULL
VEÐURHORFUR í DAG, 12. MARZ
YFIRLIT I GÆR: Við strönd Norður-Noregs er 1.000 mb lægð sem
þokast norð-austur og 1.037 mb hæð yfir norð-austur Grænlandi.
Um 1.200 km suö-suð-vestur í hafi er víðáttumikil 980 mb lægðsem
þokast norður.
SPÁ: Norð-austan átt, heldur sunnanlands síðdegis en annarsv-
íðast kaldi eða stinningskaldi. Él á Norður- og Austurlandi og líklega
einnig vestur með suð-austurströndinni en léttskýjað á Vestur- og
Suðvesturlandi. Hiti yfir frostmarki yfir hádaginn sunnanlands en
annars 1-7 stiga frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A MIÐVIKUDAG OG FIMMTUOAG: Norð-austan átl.
nokkuð stíf. Éljagangur á Norður- og Austurlandi en bjart veður
suð-vestan til. Frostlaust sunnanlands yfir hádaginn en annars
frost, mest 5-10 stig norð-vestanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
^3 Hálfskýjað
-í/ Skýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skórir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
9- ' VEBUR VÍBA UM HBM kl. 12:00 i gæt að ísl, tíma hiti vefiur Akureyri +3 snjóél Reykjavík +1 skýjað
Bergen 4 rlgning
Helsinkl 1 súld
Kaupmannahöfn 3 þoka
Narssarssuaq 1 úrkomaígr.
Nuuk +8 skafrenningur
Ósló 2 þokumóða
Stokkhólmur 4 þokumóða
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 15 alskýjað
Amsterdam 13 místur
Barcelona 17 mistur
Berlfn 12 mistur
Chlcago 1 alskýjað
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 9 súld
Giasgow 6 þoka
Hamborg 12 mistur
Las Palmas 20 skýjað
London 12 skýjað
Los Angeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 9 alskýjað
Madríd 11 skýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 15 þokumóða
Montreal +9 snjókoma
NewVork +3 léttskýjað
Orlando ? léttskýjað
París 12 súld
Róm 15 þokumóða
Yín 7 súld
Washíngton 0 heiðskírt
Wlnnipeg +3 léttskýjað
Slasaðist mik-
ið er haim rann
um 300 metra
LIÐLEGA tvítugur maður úr hjálparsveit skáta í Kópavogi slasaðist
alvarlega þegar hann rann um 300 metra niður fjallshlíð við rætur
Eyjafjallajökuls á laugardaginn. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór á slys-
stað og tókst við erfiðar
flytja hann á Borgarspítalann.
Hópur úr hjálparsveit skáta í
Kópavogi ætlaði að ganga yfir Eyja-
fjallajökul á skíðum og voru á leið
upp á hann við Grýtutinda, með
skíðin á bakinu, þegar slysið varð.
Manninum skrikaði fótur á svell-
bungu efst í gilinu, rann fram af
brúninni og síðan um 300 jnetra
niður snarbratta fjallshlíðina. Á leið-
inni lenti hann á grjóti og slasaðist
alvarlega. Hann mjaðmagrindar-
brotnaði, handleggs-, ökla- og rif-
beinsbrotnaði auk þess sem hann
marðist mikið.
„Aðstæður niðri hjá honum voru
erfiðar. Við fórum fjórir niður til
hans og spelkuðum hann, settum
hann í svefnpoka og gerðum tilbúinn
til flutnings. Tveir fóru síðan niður
í gilið en ég og annar urðum eftir.
Það var mikil hálka þar sem hann
lá og erfitt að athafna sig og við
urðum að nota ísexir til að renna
ekki niður hlíðina," sagði Björgvin
Richardsson annar þeirra sem var
niðri í gilinu hjá hinum slasaða.
Einar Stefánsson var einnig niðri
hjá þeim slasaða og hann sagði að
allar aðstæður fyrir þyrluna hefðu
verið erfiðar. „Gilið er þröngt og ég
gæti trúað að það hafi ekki verið
nema um 20 metrar frá þyrluspöðun-
að na manmnum upp ur gilinu og
um í fjallshlíðina. Þyrlan kom mjög
nærri okkur og gat híft börurnar
beint upp. Þeir stóðu sig mjög vel á
þyrlunni og kunnum við þeim bestu
þakkir fyrir,“ sagði Einar.
Páll Halldórsson var flugstjóri á
þyrlunni. „Aðstæður í gilinu voru í
erfiðari kantinum. Gilið er bratt og
mjög þröngt auk þess sem vindurinn
stóð niður í gilið. Við urðum að létta
þyrluna eins og við gátum áður en
við fórum inn í gilið. Þegar við kom-
um inn settum við Helgu Magnús-
dóttur lækni niður fyrir neðan mann-
inn og biðum í gilinu þar til búið
var að koma þeim slasaða á börurn-
ar. Það var það erfitt að fara inn í
gilið að við vildum frekar bíða þar
en fara út og koma aftur þegar allt
væri tilbúið. Eina leiðin til að kom-
ast út úr gilinu aftur var að bakka
þyrlunni aðeins og snúa henni síðan
um 180 gráður og fara undan vindin-
um, sem er ekki óska áttin hjá okk-
ur við flugtak,“ sagði Páll.
Það hefur verið nóg að gera hjá
þyrlu Landhelgisgæslunnar það sem
af er árinu, Hún hefur átján sinnum
verið kölluð út til leitar- og björgun-
arstarfa frá áramótum, eða tæplega
íjórða hvern dag að jafnaði.
Hinn slasaði hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Háskóli íslands:
Kosið í Stúdenta-
ráð og Háskólaráð
KOSIÐ verður um fulltrúa í Stúdentaráð og Háskólaráð Háskóla
íslands í dag. Tvær fylkingar, Vaka félag lýðræðissinnaðra stúdenta
og Röskva samtök félagshyggjufólks, bjóða fram lista í kosningun-
um. Atkvæðisrétt hafa allir stúdentar i Háskóla íslands.
18 kjörstaðir, í helstu byggingum
Háskólans, verða opnir á meðan á
kosningunum stendur, milli klukkan
9.00 til 18.00 í dag. Kosið verður
um 15 fulltrúa, 13 í Stúdentaráð og
2 í Háskólaráð. Fulltrúar í Háskólar-
áði eiga jafnframt sæti í Stúdenta-
ráði. Kosning fulltrúanna er til
tveggja ára.
Eins og áður sagði bjóðá ,tvær
fýlkingar' frám listá' í köshingúnúm
en þriðji listinn, Súrrealistinn, var
úrskurðaður ólöglegur. Fulltrúar
listans fóru fram á innsetningarað-
gerð hjá fógeta í gær en var neitað.
Um 5100 studentar eru skráðir í
Háskóla íslands og greiddu 54%
þeirra atkvæði í kosningunum í
fyrra.
Sjá ennfremur Af innlendum
vettvarigi á bls. 40: